Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Blaðsíða 26
34 Afmæli _____ Snorri Snorri Sigfússon, Gránufélags- götu 48, Akureyri, er sjötugur í dag. Starfsferill Snorri fæddist í Lundargötu á Akureyri og ólst aö mestu upp á Akureyri en niu ára flutti hann meö foreldrum sínum til Sigluíjaröar. Hann lauk barnaskólanámi og tveimur bekkjum í gagnfræðaskóla en stundaöi síldarsöltun af kappi allt frá því hann var drengur. Á skólaárunum lék Snorri knatt- spymu meö íþróttafélaginu Þór, auk þess sem hann tefldi mikið en Snorri hefur unnið til verðlauna á skákmótum. Snorri var í síld öll sín unglingsár en þeir feðgar ráku síldarsöltunar- stöðvar á Sigluflrði, Húsavík og Eskifirði ásamt því að eiga og gera út skip. Þá saltaði Snorri síld á Ak- ureyri á árunum 1947-50. Þegar síld- in hvarf árið 1970 fór Snorri að starfa eingöngu hjá Nótastöðinni Odda á Akureyri en þar hafði hann áður starfað að meira eða minna leyti þegar ekki var síld á vetrum. Snorri stundar enn skrifstofustörf. Fjölskylda Snorri kvæntist 1940 fyrri konu sinni, Sigrúnu Bárðardóttur, en þau slitu samvistir árið 1946. Árið 1950 kvæntist Snorri seinni konu sinni, Rósu Sumarliðadóttur, en hún lést 1969. Snorri og Sigrún eignuðust þrjár dætur. Þær eru Ásgerður, húsmóðir á Akureyri, gift Ingva Þórðarsyni og eiga þau íjögur börn; Ólöf, hús- móðir í Gilsfirði, gift Halldóri Gunn- arssyni og eiga þau fimm börn, og Guðlaug, húsmóðir í Kópavogi, gift. Daníel R. Dagssyni. Sonur Snorra og Rósu er Brynjólf- ur, búsettur á Akureyri, kvæntur Jóhönnu S. Júlíusdóttur og eiga þau sex böm og tvö barnabörn. Afkom- FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990. Sigfússon endur Snorra em því orðnir tuttugu ogeinn. Snorri á tvær yngri systur. Þær eru Guðrún, búsett í Grímsey, gift Jóhannesi Magnússyni, og Guölaug, búsett á Akureyri. Foreldrar Snorra: Sigfús Bald- vinsson, f. 24.9.1893, skipstjóri, út- gerðarmaður og fyrrv. forstjóri Nótastöðvarinnar Odda, og kona hans, Ólöf Guðmundsdóttir, f. 19.10. 1894, húsfreyja. Ætt og frændgarður Foreldrar Sigfúsar voru Baldvin Jóhannesson, útvegsb. í Stakka- gerði, og Guðlaug, systir Snorra námsstjóra, fóður Snorra flugstjóra, Jóhannesar yfirflugmanns og Hauks ritstjóra. Guðlaug var einnig systir Bjöms í Tjarnargarðshorni, afa Leifs Hannessonar verkfræð- ings. Guðlaug var dóttir Sigfúsar, b. á Brekku og á Grund í Svarfað- ardal, Jónssonar, b. í Syðra-Garðs- homi í Svarfaðardal, Jónssonar. Móðir Sigfúsar á Brekku var Guð- laug Gunnarsdóttir. Móðir Guð- laugar var Anna Sigríður Bjöms- dóttir, b. á Gmnd, bróður Guðnýjar, móður Þorkels, sem var faðir Þor- kels veðurstofustjóra og afi Sigur- jóns Rists vatnamælingamanns. Þá var Guðný amma Önnu, ömmu Sig- urðar Bj ömssonar bæj arverkfræð- ings og langömmu Héðins Stein- grímssonar skákmanns, og Guðný var amma Pálínu ljósmóður, ömmu Steingríms Hermannssonar forsæt- isráðherra. Önnur systir Björns á Grund var Guðrún, amma Páls Zop- hóníassonar, alþingismanns og búnaðarmálastjóra, foður Hannesar búnaðarmálastjóra, Páls Agnars yfirdýralæknis, Zophóníasar skipu- lagsstjóra og Hjalta hjá SÍS. Ólöf, móðir Snorra var dóttir Guð- mundar Jónssonar, meðhjálpara, kirkjugarðsvarðar og fyrsta bæjar- pósts á Akureyri, og Anínu Ágústu Arninbjarnardóttur frá Gæsum. Snorri Sigfússon. Snorri mun taka á móti gestum í tilefni afmælisins klukkan 15 laug- ardaginn 10.11. í Félagsborg, sal verksmiðjufólks, en því miður reyndist ekki unnt að hafa kaffi á sjálfan afmælisdaginn. Óskar Ágústsson Óskar Agústsson, kennari frá Laugum, er sjötugur í dag. Starfsferill Óskar ólst upp í Rangárþingi hjá foreldrum sínum og systkinum. Hann fór ungur í skólann á Laugar- vatni, fyrst í Héraðsskólann en síð- an í íþróttakennaraskólann. Að því námi loknu hóf hann kennslu tutt- ugu og eins árs að aldri. Hann kenndi um þriggja ára skeiö á veg- um UMFÍ og ÍSÍ og hélt námskeið víða um landið. Á sumrin vann hann ýmis störf en starfaði þó aðal- lega við fijálsíþróttakennslu og sundkennslu. Óskar ferðaöist síðan milli skóla á landinu og kynnti sér kennslu og tilhögun skólanáms en annan vetur fór hann til Danmerkur og kynnti sér þar nýjungar í íþrótta- kennslu. Dvaldi hann þá m.a. í Sönneborg og Oelerup og ferðaðist til fleiri lýðháskóla auk þess sem hann fór til Noregs. Þá sótti hann fjölda námskeiö hér á landi. Haustið 1944 tók Óskar við stöðu íþróttakennara að Laugum í Suður- Þingeyjarsýslu og kenndi þar til árs- ins 1985. Hann og kona hans ráku Hótel Laugar í fjörutíu ár eða til ársloka 1989. - Hann gegndi einnig ýmsum trún- aðarstörfum á þessum árum, var formaður Héraðssambands Suður- Þingeymga í tuttugu ár, póstaf- greiðslumaður og síðan símstjóri að Laugum um tuttugu ára skeið, ásamt ýmsum félags- og nefndar- störfum, einkum viðkomandi íþrótt- ir. Óskar var framkvæmdastjóri 11. landsmóts UMFÍ sem haldið var að Laugumáriðl961. Hann hefur verið sæmdur mörg- um heiðursmerkjum, t.d. gullmerki UMFÍ, er heiðursfélagi ÍSI og hefur hlotið gullheiöursmerki þeirra af fyrstu og annarri gráðu. Fjölskylda Óskar kvæntist eftir að hann kom að Laugum, Elínu Friðriksdóttur húsmæðrakennara. Börn Óskars eru Ágúst stórkaup- maður, kvæntur Helgu Sigurðar- dóttur ritara; Hermann lektor, kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur þroskaþjálfa; Knútur forstjóri, kvæntur Guönýju Jónsdóttur sjúkraþjálfa, og Una María ritstjóri, gift Helga Birgissyni lögmanni. Systkini Óskars á lífi eru Björgvin Eyjólfur; Hannes kaupmaður; Jón- ína húsmóðir, og Sigurjón skrif- stofustjóri. ForeldrarÓskars voru Ágúst Jónsson, b. á Sauðholti í Holtum í Rangárvallasýslu, og María Jó- hannsdóttir húsfreyja. Föðursystkini Óskars voru Jón' b. í Ásmúla í Holtum, faðir Ingólfs Jónssonar, verslunarstjóra í bóka- búðinni Helgafell; Árni, b. í Herru, Óskar Ágústsson. og Gróa, húsmóðir á Stokkseyri auk annarra sem flest dóu ung. Móðursystkini Óskars voru Jó- hanna, móðir Bergþórs, fóður Jó- hanns, forstjóra Hagvirkis; Siguijón bólstrari, afi Ingólfs Margeirssonar ritstjóra; Finnbogi Arndal, kennari og skáld, síðast í Hafnarfirði. Jóhann, faöir Maríu var b. í Ós- gröf á Landi, bróðir Jónasar, langafa Þórs veðurfræðings og rit- höfundanna S vövu og Jökuls Jak- obsbarna. Jóhann var sonur Jóns, b. í Mörk á Landi, Finnbogasonar, b. á Reynifelli á Rangárvöllum. Móðir Maríu var Sigríður Eiríks- dóttir frá Stokkseyri Höskuldsson- ar, b. á Kirkjulæk, Eiríkssonar, b. á Ægissíðu, Bjarnasonar, b. og hrepp- stjóra á Víkingslæk, Halldórssonar, ættfoður Víkingslækjaættarinnar. Pálína Ásta Jósepsdóttir Pálína Ásta Jósepsdóttir, Suður- götu 71, Hafnarfiröi, er áttræð í dag. Ásta fæddist að Atlastöðum í Fljótavík í Norður-ísafjarðarsýslu og ólst þar upp en flutti ung til Ísa- fjarðar. Áriö 1942 flutti hún til Reka- vikur bak Höfn með sambýlismanni sínum, Stefáni Péfiu-ssyni, en þau fluttu svo að Brautarholti við Isa- fjörð árið 1943. Árið 1952 fluttu þau til Hafnarfjarðar og hefur Ásta átt þar heima síðan en Stefán lést 16. 5.1982. Fjölskylda Þau Ásta og Stefán eignuöust eng- in böm en ólu upp eitt barn, Ólöfu Ástu Guðmundsdóttur, ömmubarn Ástu. Maður Ólafar Ástu er Guð- mundur Guðjónsson landfræðing- ur. Sjálf eignaðist Ásta fjögur böm fyrir sambúð þeirra Stefáns en þau em Grétar Kristinn Hermann, f. 25. 10.1931, húsasmíðameistari, kona hans er Sigríður Guöbjartsdóttir; Sonja Hulda, f. 17.5.1933, sjúkra- liði, gift Gísla Bjarnasyni múrara- meistara; Jenný Maggý, f. 30.1.1937, d. 2.2.1975, en fyrri maður hennar var Hilmar Sigurðsson og seinni maður var Sigurður Björnsson; Ás- dís Berg, f. 28.4.1942, kennari, gift Guðmundi Rafnari Valtýssyni skólastjóra. Systkini Ástu eru Brynhildur Snædal, f. 3.9.1902, kennari en fyrri maöur hennar var Karl Leifur Guð- mundsson og seinni maður hennar var Ólafur Friðbjarnarson; Her- mann Vernharð, f. 12.8.1906, d. 9. 5.1982, en kona hans var María Friðriksdóttir; Jósep Gunnar, f. 9. 5.1909, d. 13.10.1984, en kona hans var Steinunn Ólöf Magnúsdóttir; Finnbogi Rútur, f. 13.4.1913, húsa- smiður en kona hans var Aníta Friöriksdóttir, d. 17.10.1984; Guðný Ingibjörg, f. 4.9.1914 en maður hennar var Ragnar Magnússon sem er látinn; Sólveig Friðrika, f. 5.7. 1918 en maður hennar var Ólafur Rósinkarsson sem er látinn. Foreldrar Ástu voru Jósep Her- Pálina Ásta Jósepsdóttir. mannsson, b. á Atlastöðum, og kona hans, Margrét Katrín Guönadóttir. Ásta tekur á móti gestum og vin- um aö Hrafnistu í Hafnarfiröi í sal á 5. hæð frá klukkan 18-21 fimmtu- daginn 8.11. Sighvatur Einarsson Sighvatur Einarsson, fyrrv. bóndi á Tóftum í Stokkseyrarhreppi, er níræðurídag. Sighvatur dvelur nú á vistheimil- inu Kumbaravogi. Hann tekur á móti gestum á Hótel Selfossi sunnu- daginn 11.11. frá klukkan 15-18. Sighvatur Einarsson. Til hamingju með daginn 90 ára Pétur Ólafur Gislason, Læknishúsinu, Eyrargötu, Eyrarbakka. 75 ára ÓlafurSveinson, Grund, Reykhólahreppi. Pálmi Guðnason, Hnitbjörgum, BlönduósL Sigurbjörn Bjömsson, Aðalgötu 56, Ólafsfirði. 70 ára Jónina Egilsdóttir, Rauðafelli, Bárðdælahreppi. 60 ára Árdís Björnsdóttir, Norðurvangi6, Hafnarfirði. Þorsteinn O. Laufdal, Kruratnahólum 10, Reykjavík. 50ára Davíð Björn Sigurðsson, Lágholti 8, Mosfellsbæ. Ragnhildur Fransdóttir, Lyngholti 2, Akureyri. yölundur Hermóðsson, Álftanesi, Aöaldælahreppi, Þorsteinn Gunnarsson, Kotströnd, Ölfushreppi. 40ára_________________ Auðunn B. Ólafsson, Dalseli38, Reykjavík. Guðjón Már Gíslason, Nesbala 124, Seltjamamesi. Skúii Hauksson, Útey I, Laugardalshreppi. Pétur Matthíasson, Aðalgötu 5, Siglufirði. Rögnvaldur Sigurðsson, Tungusíðu 6, Akureyri. Guðmundur L. Meldal, ÞórustöðumHI, Öngulsstaðahreppi. Jóhannes Sigurgeirsson, ÖngulsstöðumlII, Öngulsstaðahreppi. Einar S. Þorbergsson, Garöarsbraut 43, Húsavík. SMÁAUGL.ÝSINGAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.