Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990.
Utlönd
Enginn forsætisráðherra f innst á Indlandi
Hinn aldni forseti Indlands leitar
nú að hugsanlegum arftaka Pratap
Singh í embætti forsætisráðherra.
Stjórnmálaskýrendur eru sammála
um að hann eigi engra góðra kosta
völ því að allar fylkingar á indverska
þinginu eru margklofnar og eins víst
að upp úr sjóði í landinu ef einum
hópi er gert hærra undir höfði en
öðrum.
Ramaswamy Venkataraman for-
seti er áttræður og hafði treyst á að
Pratap Singh endist lengur í embætti
en eitt ár. Forsetinn getur illa fellt
sig við Chandra Shekhar sem klauf
Janatabandalagið, flokk Singh, og
segist nú hafa stuðning meirihluta
þingsins til að mynda stjórn.
Fylgismenn Shekhars á þingi eru
aðeins 56 en á þinginu sitja alls 545
menn. Hann hefur hins vegar fengið
loforð um hlutleysi frá Rajiv Gandhi
og Kongressflokknum og nær með
því móti meirihluta á þingi. Það þyk-
ir hins vegar ekki fýsilegur kostur
að leiða leiðtoga fámenns flokksbrots
til æðstu valda.
Stjórnmálamenn á Indlandi segja
það fáránlegt að gera Shekhar að
forsætisráöherra en þeir vilja heldur
ekki efna til kosninga því að þær
gætu leitt af sér víðtæk átök í
landinu.
Reuter
ScRGmÁLx^BERGmÁL
Aðra hverja viku
ALLT A EINUM STAÐ
SJONVARP • UTVARP
Lögreglan handtók skotmanninn á
Rauða torginu þegar í stað. Sagt er
að hann sé geðveikur.
Simamynd Reuter
Byltingarafmælid:
Sennilega
það síðasta
Mótmæli almennings og tvö skot
út í loftið settu mestan svip á bylting-
arafmælið í Sovétríkjunum í gær. Til
þessa hefur afmælisins verið minnst
með þrautskipulagðri skrautsýningu
en nú var allt á riii og stúi.
Herflokkarnir sem stóöu að her-
sýningu dagsins komust þó Rauða
torgið á enda en leiðtogarnir undu
ekki lengi á þaki grafhýsis Leníns
og gengu með mannfjöldanum í lok
sýningarinnar.
Það vakti mesta athygli að óþekkt-
ur maður skaut tveimur skotum upp
í loftið ekki fjarri leiðtoganum Gor-
batsjov. Ekkert bendir þó til að skot-
in hafi verið ætluð Gorbatsjov og
enginn særðist.
Það er hald margra að ekki verði
haldið upp á byltingarafmæhð oftar.
Mikill styrr stóð um hátíðahöldin nú
og jafnvel borgarstjórinn í Moskvu
vildi fella þau niður til að spara pen-
ing. Reuter
Þýskaland - Pólland:
Enn deilt um
landamærin
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands,
ætlar að hundsa kröfur Pólverja um
að undirritaður verði sáttmáh um
landamæri ríkjanna. Kohl á í dag
fund með Tadeusz Masowiecki þar
sem samskipti landanna verða rædd.
Nú ér ár liðið frá því Kohl lenti
fyrst í vanda vegna landamæranna
við Póhand en hann hefur ekki viljað
styggja marga flokksmenn sína með
því að viðurkenna þau landamæri
sem ákveðin voru að lokinni síðari
heimsstyrjöld.
Hann hefur þó aldrei beinhnis
hafnað hugmyndinni en er augljós-
lega þess lítt fýsandi að festa landa-
mæri við svokahaða Oder-Neisse
línu. Heima sætir Kohl gagnrýni
manna sem vilja að gamhr draugar
frá síðustu styrjöld verði endanlega
kveðnir niður og Þjóðverjar viður-
kenni þau landamæri við Pólland.
Reuter
finnst í
Svíþjóð
Sjö beinagrindur frá víkingatíman-
um hafa fundist í Krákberg í Mora í
Dölunum í Svíþjóö. Nokkrar beina-
grindanna eru með skartgripi á sér.
Fomleifafræðingar segja að um fjöl-
skyldugröf sé aö ræða og líklegast
hafi fjölskyldan veriö kristin þar sem
fæturnir snúi í austur og höfuðin í
vestur.
Ef um heiðingja hefði verið að ræða
hefðu líkin verið brennd fyrir greftr-
un. Hins vegar eru kristnir ekki van-
ir að hafa skartgripi með sér þannig
aö líklegast er tahð að gröfin sé frá
tíma siðaskipta um eitt þúsund.
Á víkingatímanum voru margir
bæir þar sem nú er Mora. Stunduðu
íbúarnir viðskipti með járn. tt