Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Page 11
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990.
11
Utlönd
Forsetakosningar næstar á dagskrá 1 Bandaríkj unum:
Vilja Cuomo í
forsetaframboð
- einl maðurinn sem gæti keppt við Georg Bush
Eftir úrslit kosninganna í Banda-
ríkjunum eygja demókratar nú
möguleika á aö fella George Bush
við næsta forsetakjör. Þeim tókst
að reyta nokkrar skrautfjaðrir af
fylgismönnum forsetans þótt
valdahlutföllin milli demókrata og
repúblikana breytist ekki svo að
teljandi sé. Niðurstaðan var að
þingmönnum demókrata fjölgar í
allt um tíu og þeir ráða nú ríkjun-
um Texas og Flórída.
í Bandaríkjunum beina menn nú
sjónum sínum að forsetakosning-
unum sem haldnar verða 1992.
Aðdragandi þeirra er langur og
helstu kandídatar demókrata
verða að fara að gera upp hug sinn
því senn hvaö líður hefjast próf-
kosningar í flokknum.
Innan flokks demókrata er Mario
Cuomo, ríkisstjóri í New York,
ötvíræður sigurvegari. Hann vann
afgerandi sigur í ríkinu og hlýtur
nú að hyggja á forsetaframboð.
John Silber, háskólarektor í Bos-
ton, var talinn líklegastur til að
keppa við Cuomo sem forsetafram-
bjóðandi demókrata. Hann féll hins
vegar í Massachusetts, ríki þar sem
flokkurinn hefur átt góðu fylgi að
fagna um langt árabil.
Silber er þó ekki kennt um ófar-
irnar heldur forvera. Sá er Mik
Dukakis sem demókratar treystu
ekki einu sinni til að reyna að ná
endurkjöri sem ríkisstjóri í
Massachusetts. Dukakis er nú end-
anlega úr leik sem stjórnmálamað-
ur í Bandaríkjunum eftir hrakfar-
irnar í forsetakosningunum 1988.
Reuter
Kosningarnar í Bandaríkjunum:
Græningjar kolféllu
Nýliðar græningja eru einu stjórn-
málamennirnir í Bandaríkjunum
Fndurskin á
bilhurðum eykur
örvggi i umterðinni
sem ekki reyna að túlka niðurstöður
nýafstaðinna kosninga sér í hag. Þeir
viðurkenna algeran ósigur, enda
höfnuðu kjósendur öllum tillögum
þeirra um aukna umhverfisvernd.
Græningjar létu nú til sín taka í
ríkjunum á vesturströndinni, eink-
um þó í Kaliforníu. Þeir reyndu að
fá stuðning við tillögu sem borin var
fram undir slagorðinu „Big Green“
en í kosningum í Bandaríkjunum eru
kjósendur spurðir álits á hinum ólík-
ustu hugmyndum um leið og kosið
er í helstu embætti.
Kjósendur í þremur ríkjum á vest-
urströndinni höfnuðu tillögunni en
það var þó líkn með þraut að þeir
höfnuðu líka öllum tillögum sem
andstæðingar græningja báru fram.
Andstæðingarnir báru fram tillögur
um afnám reglna um umhverfis-
vernd en kjósendur stóðu fast við
íhaldssemi sína og vildu engu breyta.
Græningjar ætla að fá inni með
„Big Green“ hugmynd sína á ríkis-
þinginu í Kaliforníu og vinna henni
fylgi þar þrátt fyrir að 64% kjósenda
hefði lýst sig andvíga tillögunni.
„Við megum ekki gefast upp þrátt
fyrir ósigur nú. Allir vilja vernda
umhverfið og það kemur að því fyrr
eða síðar að fólk fellst á einhverjar
aðgerðir í þá veru,“ sagði Duane Pet-
erson, talsmaður græningja.
Sárast þótti græningjum þó að au-
katillaga, sem þeir fluttu um vernd
gamalla trjáa, féll með aðeins eins
prósents mun. Skógarhöggsmenn
börðust hart gegn þessari tillögu og
vöröu miklum flármunum í áróður
gegn henni - og höfðu betur.
Reuter
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Ævars Guðmundssonar hdl., v/hestamannafélagsins Fáks, fer
fram uppboð á fola, merktum F8 á vinstri síðu., tal. eigandi Davið Viðars-
son, fimmtudaginn 15. nóvember nk. kl. 16.00 að Viðivöllum í Víðidal.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavik
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA A
VALOA ÞÉR SKAÐA!
yUMFERÐAR
RÁÐ
fkAlternatorar
& Startarar
Ótal gerðir og tilheyrandi varahlutir.
w Hagstætt verð. 12 mán.ábyrgð.
HÁBER G ”
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91 -8 47 88
Sérstakar LIBERO bleiur fyrir stráka,
sérstakar LIBERO bleiur fyrir stelpur.
Strákableiurnar eru þykkastar að
framan, stelpubleiurnar eru þykkastar í
miðjunni, þar sem þörfin er mest.
Nú er líka teygja að aftan, sem heldur
bleiunni á réttum stað.
Allar Libero bleiur eru
óbleiktar og ofnæmisprðfaðar.
Jólamatur og -kökur:
SENDIÐ JÓLAUPPSKRIFTIR
ann 28. nóvember mun DV gefa
út aukablað um mat og kökur til
jólanna. Að þessu sinni verður
sérstaklega leitað til lesenda um upp-
skriftir, enda vitað að fólk lumar á alls
konar góðum og sniðugum uppskrift-
um að jólamat og ekki síður kökum,
sælgæti og öðru góðgæti sem tileyrir
jólum. Einnig eru smáfrásagnir af til-
urð uppskrifta, íslenskra og erlendra,
og jólahaldi á íslandi og úti í heimi
skemmtileg viðbót.
Hér er ekki um verðlaunasamkeppni
að ræða heldur verður dregið úr öllum
innsendum bréfum. Hinir fimm
heppnu fá senda nýja og glæsilega
Matreiðslubók Iðunnar en hún kostar
7.400 krónur.
Sendið uppskrift eða uppskriftir að alls
konar jólamat til DV fyrir 11. nóvemb-
er. Uppsetning þarf að vera skýr og
engu má skeika með mál og vog. Best
væri að fá uppskriftirnar vélritaðar en
skýr rithönd getur gengið. Ef mikið
efni berst verður að velja uppskriftir
til birtingar en allir eiga jafna mögu-
leika á matreiðslubók.
Munið að skrifa undir með fullu nafn-
i, heimilisfangi og síma. Merkið um-
slagið:
Dagblaðið-Vísir
Matur og kökur
Pósthólf 5380
125 Reykjavík 0UNN
Brœðraborgarstúj 16