Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Side 17
16
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990.
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990.
25
Iþróttir
fþróttir
Úrslit á Evrópumótunum í knattspyrnu
2. umferð, síðari leikir, samanlögð úrslit í svigum, feitletruðu liöin áfram.
Evrópukeppni meistaraiiða:
ClubBriigge(Belgíu) - AC Milan (jtaliu)...................0-1 (0-1)
(0-1 Carbone. Ahorfendur 23.500)
Glasgow Rangers (Skotlandi) - Rauða Stjarnan (Júgóslavíu).1-1 (1-4)
(0-1 Pancev, 1-1 McCoist. Áhorfendur 23.821)
MalmöFF(Svíþjóð) - Dynamo Dresden (Þýskalandi)............1-1 (2-2)
(0-1 Gutschow, 1-1 Persson. Dresden vann vítakeppni. Áh. 8.112)
Marseille (Frakklaridi) - Lech Poznan (Póllandi)..........6-1 (8-4)
(1-0 Papin, 2 0/3 ()/■'} 1 Vercruysse, 3-1 Jakolcewicz, 5-1 Tigana, fr-1 Boli. 40.000)
Spartak Moskva (Sovétríkjunum) - Napoli (Ítalíu)..........0-0 (0-0)
(Spartak sigraði, 5-3, í vítaspymukeppni. Áhorfendur 102.000)
Swarovski Tirol (Austurríki) - Real Madrid (Spáni)........2-2 (3-11)
(1-0 Hörtnagl, 1-1 Losada, 1-2 Losada, 2-2 Linzmaier. Áhorfendur 14.000)
Evrópukeppni bikarhafa:
Barcelona (Spáni) - Fram (íslandi)........................3-0 (5-1)
(1-0 Sacristan, 2-0 Beguiristain, 3-0 Pinilla. Áhorfendur 17.300)
DuklaPrag(TékkósL) - Dinamo Kiev (Sovétr.)................2-2 (2-3)
(0-1 Juran, 1-1 Foldyna, 1-2 Juran, 2-2 Bittengel. Áhorfendur 5.000)
Estrela da Amadora (Portúgal) - Liege (Belgíu)............1-0 (1-2)
(1-0 Dias. Áhorfendur 10.000)
Juventus (Ítalíu) - Austria Vín (Austurríki)..............4-0 (8-0)
(1-0 Alessio, 2-0 Baggio, 3-0 Baggio, 4-0 Baggio. Áhorfendur 12.000)
Legia (Póllandi) - Aberdeen (Skotlandi)...................1-0 (1-0)
(1-0 Iwanicki. Áhorfendur 10.000)
Sampdoria (Ítalíu) - Olympiakos (Grikklandi)..............3-1 (4-1)
(1-0 Lombardo, 2-0 Branca, 2-1 Drakopulos, 3-1 Branca. Áh. 40.000)
Steaua(Rúmeníu) - Montpellier (Frakklandi)................0-3 (0-8)
(0-1 Coletter, 0-2 Garande, 0-3 Guerin. Áhorfendur 5.000)
Wrexham (Wales) - ManchesterUnited(Englandi).....'........0-2 (0-5)
(0-1 Robins, 0-2 Bruce. Áhorfendur 13.327)
UEFA-bikarinn:
Admira Wacker (Austurríki) - Luzern(Sviss)................1-1 (2-1)
(1-0 Marschall, 1-1 Marini. Áhorfendur 4.500)
Anderlecht (Belgíu) - Omonia (Kýpur)......................3-0 (4-1)
(1-0 Verheyen, 2-0 Oliveira, 3-0 Rutjes. Áhorfendur 18.000)
Atalanta (Ítalíu) - Fenerbache (Tyrklandi)...................4-1 (5-1)
(1-0 Evair, 2-0 Perrone, 3-0 Nicolini, 4-0 Bonacina, 4-1 Ismail. Áh. 18.000)
Bologna (Ítalíu) - Hearts (Skotlandi).....................3-0 (4-3)
(1-0 Detari, 2-0 Villa, 3-0 Mariani. Áhorfendur 15.000)
Dundee United (Skotlandi) - Vitesse (Hollandi)............0-4 (0-5)
(0-1 Latuheru, 0-2 Latuheru, 0-3 van der Brom, 0-4 Eijer. Áh. 10.261)
Ferencvtiros (Ungverjalandi) - Bröndby (Danmörku).........0-1 (0-4)
(0-1 Bent Christensen)
Inter Milano (Ítalíu) - Aston Villa (Englandi)............3-0 (3-2)
(1-0 Klinsmann, 2-0 Berti, 3-0 Bianchi. Áhorfendur 80.000)
Leverkusen (Þýskalandi) - Katowice (PóUandi)..............4-0 (6-1)
(1-0 Lesniak, 2-0 Jorginho, 3-0 Herrlich, 4-0 Schreier. Áh. 8,700)
Monaco (Frakklandi) - Odessa (Sovétrikjunum)..............1-0 (1-0)
(1-0 Weah. Áhorfendur 5.000)
Roma (Ítalíu) - Valencia (Spáni)..........................2-1 (3-2)
(1-0 Giannini, 2-0 Völler, 2-1 Femando. Áhorfendur 48.000)
Seville(Spáni) - Torpedo (Sovétríkjunum)..................2-1 (3-4)
(0-1 Shavitsjev, 1-1 Bengoechea, 2-1 Vazquez. Áhorfendur 28.400)
Timisoara(Rúmeníu) - Sporting Lissabon (Portúgal).............2-0 (2-7)
(1-0 Vlaicu, 2-0 Varga. Áhorfendur 20.000)
II
- sagöi Maradona 1 Moskvu í gær
Um 102 þúsund áhorfendur í
Moskvu í gær urðu vitni að þvi
þegar ítölsku meistararair Napoli
féUu út úr Evrópukeppni meistara-
Uða í knattspymu, fyrir sovéska
félaginu Spartak Moskva. Láðin
skildu jöfh án marka í annað sinn,
og Spartak sigraði í vitaspymu-
keppni, 5-3.
Leikurinn fór fram í srýókomu
og hitastig var undir frostmarki en
það kom ekki i veg fyrir frábæra
aösókn. Ðiego Maradona kom inn
á sem varamaður hjá NapoU í síð-
ari hálfleik en eins og áður hefúr
komið fram fór hann með einka-
flugvél tfl Moskvu á þriðjudag eftir
að hafa neitað að fara með liðinu á
mánudag! „Ég gerði mistök og þau
kostuðu mig sæti í Uðinu,“ sagöi
Maradona eftir leikinn. „Málið er
ekki búið, ég mun skýra það á
föstudag og þar kemur ýmislegt
fram,“ bætti hann við.
• Franz Beckenbauer, yfirþjálf-
ari Marseflle, gat andað léttara í
gærkvöldi eftir 6-1 sigur Uðsins á
Lech Poznan frá PóUandi en Pól-
verjarnir höfðu unnið fyrri leikinn,
3-2. PhiUppe Vercruysse skoraði
þrjú af mörkum franska liðsins.
• Roberto Baggio, dýrasti knatt-
spymumaður heims, skoraði þtjú
af mörkum Juventus í 4-0 sigri á
Austria Vín. Eitt úr vítaspymu og
eitt úr aukaspyrnu og það þriðja
eftir sendingu frá Salvatore
Schillaci. -VS
Villa úr leik
- tapaði fyrir Inter Milan, 0-3
Gunnar R. Sveinbjömsson, DV, Englandi;
Lið Aston Villa sýndi slakan leik
þegar það tapaði, 3-0, fyrir Inter
Mílanó í annárri umferð UEFA-
bikarsins á ítahu í gær. Vflla var
með 2-0 forskot úr fyrri leik Uðanna
en ítaUmir unnu það upp á verð-
skuldaðan hátt og fengu aragrúa
marktækifæra í leiknum.
Júrgen KJinsmann skoraði strax á
upphafsmínútunum og þeir Berti og
Branchi bættu við mörkum í síðari
hálfleiknum. Leikmemi Villa komust
aldrei í takt við leikinn og David Platt
og Gordon Cowans vora langt frá
sínu besta.
United eitt breskra
liða eftir í keppninni
Manchester United er nú eini fulltrúi
Bretlands sem eftir er í Evrópumót-
unum. United vann öraggan sigur á
Wrexham í Wales, 0-2, í gærkvöldi.
Mark Robins og Steve Brace skoruðu
mörkin í fyrri hálfleik og United
vann 5-0 samanlagt.
Símamynd/Reuter
• Frá leik Barcelona og Fram í gærkvöldi. Kristinn R. Jónsson er liggjandi á vellinum eftir einvigi um knöttinn við Andoni Zubizareta, landsliðsmarkvörð Spáverja í liði Barcelona.
Síðari viðureign Barcelona og Fram í Evrópukeppni bikarhafa:
Tap en hetjulega varist
- snillingarnir frá Barcelona sigruðu baráttuglaða Framarar, 3-0
Þorsteinn ]. Vilhjálmsson, DV, Barœlona:
Spænskir fréttamenn undruðust
hvað miklar framfarir hafa orðið í
knattspyrnunni á íslandi síöan Fram
lék síðast gegn Barcelona í Evrópu-
keppninni 1988 en þá tapaði Fram, 5-0,
í Barcelona. í framhaldi af því sagði
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, á blaða-
mannafundinum eftir leikinn að ef
Fram héldi áfram aö dragast á móti
Barcelona á tveggja ára fresti hlyti sá
tími að renna upp að Fram myndi bera
sigur úr býtum.
Spánverjar voru
yfir sig hrifnir
Já, Spánverjar voru yfir sig hrifnir af
leik áhugamannanna frá íslandi á Nou
Camp-leikvanginum í Barcelona í gær-
kvöldi. íslandsmeistarar Fram léku þá
á móti dýrasta knattspyrnuliði heims,
Barcelona, síðari leikinn í Evrópu-
keppni bikarhafa og fóru leikar 3-0
fyrir Barcelona. Framliðið barðist
hetjulega gegn þessu stórliðið og á
heildina litið mega Framarar vel viö
una. Mörg stærri knattspyrnulið en
Fram hafa fengið mun stærri skell á
Nou Camp en í fyrstu umferð keppn-
innar vann Barcelona eitt besta félags-
lið Tyrklands, 7-2, á Nou Camp.
Fram átti í
vök að berjast
Eins og vitaö var fyrir leikinn áttu
Framarar í vök að verjast en Fram
sýndi mikla baráttu og náði oft að leika
skemmtilega á milli sín og með smá-
heppni hefði liðinu tekist að skora
mark. Oft var liðinu klappað lof í lófa
en engum þó eins oft og Birki Kristins-
syni markverði. Birkir Kristinsson
varði hvað eftir annað á stórglæsilegan
hátt og kom markvarsla hans í veg
fyrir enn stærri ósigur. Barcelona byrj-
aði leikinn af miklum krafti og mark-
mið þeirra var greinilega að skora
mark sem allra fyrst í leiknum.
Fyrsta mark Barcelona kom þó ekki
fyrr en á 18. mínútu en fram að þeim
tíma vora sóknir Spánverja mjög þung-
ar. Eusebio skoraði markið eftir að
Viðar Þorkelsson skallaði frá markinu
eftir homspyrnu, boltinn barst til
Eusebio, sem skoraði viðstöðulaust í
markið, óverjandi fyrir Birki. Eftir
markiö voru Framarar töluvert með
knöttinn en komust lítt áleiðis. Mikael
Laudrup var stórhættulegur í sókna-
raðgerðum sínum og skapaði mikinn
usla.
Jón Erling nærri
því að skora mark
Beguristan skoraði annað mark Barc-
elona á 35. mínútu með lúmsku skoti
sem Birkir átti ekki mikla möguleika
að verja. Rétt undir lok hálíleiksins
áttu Framarar hættulegasta tækifærið
sitt í leiknum. Jón Erling Ragnarsson
komst einn inn fyrir vöm Barcelona,
lék á Andoni Zubizareta markvörð en
einum varnarmanna Barcelona tókst
að sparka knettinum frá þegar hann
var að fara yfir marklínuna. Þarna
skall hurð svo sannarlega nærri hæl-
um.
Síðari hálfleikur var endurtekning á
þeim fyrri. Spánveijar sóttu talsvert
og á 55. mínútu skoraði Pinilla þriðja
markið af stuttu færi eftir að Birkir
hafði varið skot frá Julio Salinas. Rík-
haröur Daðason átti fastan skalla að
markinu rétt áður eftir aukaspymu frá
Pétri Ormslev en Zubizareta varði vel.
Það sem eftir lifði leiksins vörðust
Framarar vel og mörkin urðu ekki
fleiri.
Framliðið skorti
berlega leikæfingu
Það kom berlega í ljós í leiknum að
Fram-liðið skorti leikæfingu og úthald-
ið fór að bresta eftir því sem á leikinn
leið. Spánveijar nýttu sér mistök
Fram-liðsins sem rekja má tfl úthalds-
leysis. Birkir Kristinsson á mikið hrós
fyrir frammstöðu sína í markinu. Pétur
Ormslev komst einnig vel frá sínu,
hélt boltanum vel og dreiíði spilinu
skemmtilega. Annars á allt liðið lof
fyrir góða frammistööu en Fram-liðið
mætti einfaldlega oflörlum sínum í
þetta skiptið. Fram-Uðið getur borið
höfuðið hátt þrátt fyrir ósigur.
Mikael Laudrap var yfirburðamaður
í Barcelona og er greinilega í feikna
góðu formi um þessar mundir.
Pétur ætlar að slá metið í kúlu
Pétur Guðmundsson, kúluvarpari
úr HSK, ætlar að reyna að slá íslands-
metiö í kúluvarpi utanhúss um næstu
helgi en þá veröur haldiö kastmót á
hinum glæsilega frjálsíþróttavelli í
Mosfeflsbæ. Pétur náði þeim áfanga
um síöustu helgi að slá Islandsmetið
innanhúss þegar hann kastaöi kúl-
unni 20,66 metra í Reiðhöllinni í
Víðidal en gamla metið átti Hreinn
Halldórsson, 20,59 metra. Hreinn á
enn íslandsmetið utanhúss sem er
21,09 metrar en Pétur hefur kastað
kúlunni lengst 20,77 metra.
„Þetta met um síöustu helgi gefur
mér byr undir báða vængi. Ég er mjög
vel stemmdur og á alveg eins von á
því aö geta bætt íslandsmet Hreins
og stefni að því. Mótið um næstu helgi
verður bæði laugardag og sunnudag.
Það er rojög gott fyrirkomulag og
þannig er hafður háttur á þegar keppt
er á stórmótum erlendis," sagði Pétur
Guðmundsson í viðtali við DV.
• Mótiö verður eins og áður sagði
á laugardag og sunnudag og hefst
báöa dagana kl. 14.30. Auk Péturs
keppa Andrés Guðmundsson, bróðir
Péturs, og Stefán Hallgrímsson.
-GH
Sverrir í raðir KA
ÞórhaHux Ásmundsson, DV, Sauðárkxóki:
Allt bendir til þess að Sverrir
Sverrisson, hinn efnilegi knatt-
spyrnumaður úr Tindastóli, leiki
með KA í 1. deildinni næsta sumar.
Sverrir var einn besti leikmaður
Tindastóls síðasta sumar en hann er
tvítugur miðjumaður.
„Ég hef rætt við forráðamenn KA
og líst vel á að breyta til og spila í
1. deildinni. Það hefur líka ýtt undir
þennan áhuga minn að þjálfaramáhn
hafa gengið mjög seint hjá Tinda-
stóli,“ sagði Sverrir í samtali við DV.
Stólarnir þjálfaralausir
Þess má geta að Tindastóll er nú eina
2. deildar liðið sem er ekki búið að
ráða þjálfara fyrir næsta keppnis-
tímabil.
BðBdi liðin
mega vel
við una
Þorsteirm J. Vilhjálmssan, DV, Barceiana:
„Fram-liöið kom mér ekkert á
óvart," sagði Mikael Laudrap, besti
leikmaður Barcelona í leiknum.
Þeir léku með hjartanu, ef svo má
segja, eins og títt er um lið frá smá-
þjóðum sem leika gegn stærri lið-
um. Það hafa verið undarleg úrsht
í knattspymuheiminum að undan-
fómu eins og til dæmis þegar Fær-
eyingar unnu Austurríkismenn,
þannig að Fram-liðið átti alla
möguleika á að gera okkur ein-
hveija skráveifu.
„Ég lék með Juventus á móti Val
fyrir fjórum áram og það er greini-
legt að miklar framfarir hafa orðið
í knattspymu á íslandi frá þeim
tíma. Ég held að sigur okkar hafi
aldrei verið í hættu, við tókum
þennan leik eins og hvem annan
og vanmátum ekki Fram-hðið á
nokkum hátt. Besti maður Fram í
leiknum fannst mér vera Pétur
Ormslev og markmaðurinn Krist-
insson. Á heildina htið held ég að
úrsiitin hér á Nou Camp hafi verið
sanngjörn og bæði liðin mega vel
við una,“ sagði Mikael Laudrup.
„Engin skömm að tapa
með þremur mörkum“
- sagöi Birkir Kristinsson markvöröur
„Það sem háði okkur öðru fremur
í leiknum var úthaldsleysið. Við
gerðum mikið af vitleysum sem rekja
má beint til þreytu og þeir nýttu sér
það tfl fulls. Að öðru leyti er ég sátt-
ur við úrshtin," sagði Kristinn R.
Jónsson.
Jón Erling Ragnarsson
„Ég ætlaði að skjóta en fékk svo ein-
hvem veginn á tflfinninguna að
Zubizareta væri með mig í vasanum
og ég ákvað frekar að leika á hann.
Það tókst en vamarmaður náði að
bjarga á hnu. Það er svekkjandi að
klikka á tveimur nákvæmlega eins
færam í báðum leikjunum við Barc-
elona en svona getur þetta verið í
fótboltanum,“ ságði Jón Erhng
Ragnarsson.
Birkir Kristinsson
„Ég er tiltölulega sáttur við minn
hlut í leiknum. Eg náði að koma við
boltann í seinna markinu en skotið
var það fast að ég náði ekki að stýra
boltanum framhjá stönginni. Barcel-
ona-hðið er gott en ég held að það sé
engin skömm að tapa með þremur
mörkum. Það hefði verið gaman að
skora gegn þeim og við fengum tæk-
ifæri til þess sem við náðum því mið-
ur ekki aö nýta,“ sagði Birkir Krist-
insson.
Ríkharður Daöason
„Þessir Évrópuleikir hafa verið mjög
góð reynsla fyrir okkur ungu strák-
ana í liðinu. Aðstaðan hér á Nou
Camp-leikvelhnum er ólýsanleg og
mikil upplifun að fá að leika svona
leik. Ég hefði hugsanlega getað náð
að skaha boltann betur en náði ekki
að stýra honum nógu vel þannig að
Zubizareta náði að veija.
Ásgeir Elíasson
„Við voram að spila við gott lið og
ekki hægt að reikna með að við vinn-
um leik sem þennan. Mér fannst þeir
komast of mikið í gegnum miðja
vörnina í fyrri hálfleik, við hefðum
frekar átt að leyfa þeim að komast
upp í homunum. Úrslit leiksins vora
aö mínu mati sanngjörn miðað við
það að leikmenn eru ekki í góðri
æfingu," sagði Ásgeir Ehasson.
Halldór B. Jónsson
„Við sluppum sæmflega út úr þessu,
held ég. Strákarnir allir og Ásgeir
eiga heiður skihnn. Það var ýmislegt
sem skyggði á leikinn heima í
Reykjavík en ég held að frammistaða
hðsins í kvöld hafi verið framhald
af því. Þetta er búið að vera langt
keppnistímabil fyrir hðið og stefnir
í að ekki sé hægt að halda aðalfund
knattspymudeildar fyrr en á milh
jóla og nýárs," sagði Halldór B. Jóns-
son, formaður knattspyrnudeildar
Fram.
Ingi Bjöm endurráðinn
- öll 1. deildar liöin ráöiö þjálfara
Ingi Björn Albertsson hefur verið spymudefidar Vals, í samtah við DV
endurráðinn þjálfari hjá 1. deildar í gær.
hði Vals í knattspymu og var gengið Þar með eru öll hðin í 1. deild búin
frá samningum hans og knatt- að ráða þjálfara fyrir næsta keppnis-
spymudeildar Vals um síðustu helgi. tímabil. Ormarr Örlygsson á þó
Ingi stjómaði liði Vals í fyrsta skipti reyndar eftir að skrifa undir hjá KA
á síðasta keppnistímabili og undir en það hefur verið ákveðið að hann
hans stjóm urðu Valsmenn bikar- þjálfi hðið á næsta keppnistímabih.
meistarar og höfnuðu í 4. sæti í 1. Þjálfarar 1. deildar hðanna 10 verða
deild. þessir á næsta keppnistímabih:
„Við í stjóm knattspymudefldar Fram...........Ásgeir Ehasson
Vals eru mjög ánægðir að samningar KR................Ian Ross
okkar við Inga Björn skulu vera ÍBV.........Sigurlás Þorleifsson
komnir í höfn. Ingi skrifaði undir Valur...IngiBjörnAlbertsson
tveggja ára samning í fyrra sem átti Stjaman....Jóhannes Atlason
að endurskoða eftir keppnistímabi- FH.......Ólafur Jóhannesson
hð. Við vorum mjög ánægðir með Víkingur..........LogiÓlafsson
störf hans á síðasta keppnistímabih KA.......Ormarr Örlygsson
svo að það kom ekkert annað tfl UBK............HörðurHilmarsson
greina en að ráða hann áfram,“ sagði Víðir.Óskar Ingimuhdarson
Helgi Magnússon, formaður knatt- -GH
Sport-
stúfar
m
~TT~
KR-ingar sigruðu á
haustmóti Knatt-
spyrnuráðs Reykja-
víkur í meistaraflokki
karla. KR vann ÍR í úrslitaleik á
gervigrasvellinum í Laugardal
með einu marki gegn engu í
fyrrakvöld.
Keflavík og Njarðvík i
úrvalsdeildinni í kvöld
Þrír leikir eru í úrvals-
deildinni í körfuknatt-
leik í kvöld. Þór tekur
á móti ÍR á Akureyri
kl. 19.30. Kl. 20 keppa Haukar og
Grindavík í íþróttahúsinu við
Strandgötu og á sama tíma er
sannkallaður stórleikur í Kefla-
vík. Þá taka heimamenn á móti
nágönnum sínum í Njarðvík.
Bæði þessi hö hafa verið í góðu
formi í undanfornum leikjum svo
það má búast við hörkuleik eins
og ávallt þegar þessi lið leiða sam-
an hesta sína..
Georg hættur með
Njarðvíkingum
Ægir Mar Kárason, DV, Suöumesjum:
Georg Birgisson, einn efnileg-
asti leikmaður Njarövíkinga í
körfuknattleik, hefur ákveðið að
hætta i körfuboltanum og snúa
sér alfarið að knattspyrnunni. Á
þeim vígstöðvum leikur Georg
með Keflavík og þykir þar eiga
bjarta framtíð fyrir sér.
Norðmenn unnu íTúnis
Norðmenn sigruðu
Túnisbúa, 1-3, í vin-
//» áttuleik í knattspyrnu
—sem fram fór í Túnis í
gær. Tore Dahlum skoraði tvö
marka Norðmanna og Kare In-
bebrigtsen eitt en Mondher
Msakni svaraði fyrir Túnis úr
vítaspyrnu, minnkaði þá muninn
í 1-2.
Palace áfram
Crystal Palace tryggði sér í gær-
kvöldi sæti í 4. umferð ensku
deildabikarkeppninnar í knatt-
spyrnu með því að sigra Leyton
Orient, 0-1, á heimavelh 3. deild-
arhðsins í London. Palace mætir
næst Southampton. í 2. deild
vann Bristol Rovers sigur á
Barnsley, 2-1, og Millwah tapaði
fyrir Oxford, 1-2.
KR í úrslit bikar-
keppninnar í borðtennis
A-hð KR sigraði A-hð
Víkings, 6-1, í undan-
/| úrslitunum í bikar-
keppninni í borðtennis
í TBR-húsinu í fyrrakvöld. KR-
ingar mæta sigurvegaranum í
leik B-liðs Víkings og Stjömunn-
ar sem fram fer í Garðabæ á
föstudagskvöld.
Evrópuleikir Þróttar í
Austurriki um helgina
fslands- og bikarmeist-
arar Þróttar, Reykja-
vík, í blaki karla mæta
austurríska félaginu
0
TS Sokol Moma Wien í 1. umferð
Evrópukeppni meistarahða. Báð-
ir leikir hðanna fara fram í Vín-
arborg um næstu helgi, á föstu-
dag og sunnudag.
Hagsmunafélag um
kvennaknattspyrnu
Stofnfundur hagsmunafélags um
kvennaknattspymu á íslandi
verður haldinn í húsakynnum ÍSÍ
í Laugardal á fjórðu hæð laugar-
daginn 10. nóvember kl. 13. Vel-
unnarar kvennaknattspyrnu eru
hvattir tfl að fjölmenna á stofn-
fundinn.