Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Side 25
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990.
33
vSmáauglýsingar - Snni 27022
Sérsmíðaðir V-þýskir sturtuklefar f.
íbúðir aldraðra. Festast beint á gólf.
Hæð 1,95 m. Verð aðeins 18.900. A &
B, Bæjarhrauni 14, Hf, sími 651550.
Húsgögn
Veggsamstæður úr mahóní og beyki.
Verð kr. 49.500 samstæðan og kr.
39.500 hvít. 3K-húsgögn og innrétting-
ar við Hallarmúla, næst fyrir ofan
Pennann, sími 91-686900.
Möppuhillur — BókahiUur
fyrir skrifstofur og heimili.
liik, leak. heyki. mahogni, fura
og hvítar rneð heykiktintum.
3K húsgögn og innréttingar við Hallar-
múla, næst fyrir ofan Pennann, sími
91-686900.
Varahlutir
KTIS
DEMPARAR
r
I
MAZDA
TOYOTA
NISSAN
DAIHATSU
HONDA
Ásamt úrvali í aðrar gerðir. Gæði og
verð í sérflokki. Sentjum í póstkröfu.
• Almenna varahlutasalan hf., Faxa-
feni 10, 108 Rvík (húsi Framtíðar),
símar 83240 og 83241.
■ BQar til sölu
MMC L-300, árg. ’81, til sölu. Bíll í topp-
standi. Tilboðsverð. Uppl. í síma 91-
674748 eftir kl. 17.
MMC Pajero disil turbo '87, sjálfskipt-
ur, lengri gerð, á 31" dekkjum, rafm.
í rúðum og læsingum, vökvastýri,
toppeintak. Uppl. í síma 91-42390.
Toyota LandCruiser turbo disil, árg. ’87,
100% læsingar. Uppl. í síma 43298.
MMC Pajero long turbo dísil '86. Ginn
eigandi. Toppeintak. Uppl. gefur Bíla-
sala Reykjavíkur, sími 678888.
Dísil. Til sölu þessi Ford Econoline 350
’85, 6,9 ltr., dísil, sjálfskiptur, með
gluggum. Einnig Chevrolet pickup
4x4, yfirbyggður hjá Ragnari Vals-
syni, 6,2 ltr. dísil, sjálfskiptur. Mikið
endurnýjaður bíll á nýjum 35" dekkj-
um. Uppl. í síma 91-624945 e.kl. 16.
Ymislegt
Ný þjónusta.
Leigjum út sérhannaða flutninga-
kassa.
Allar stærðir sendibíla.
Hvergi ódýrari. Síminn er 685000.
Nýja-Sendibílastöðin.
■ Ldkamsrækt
Fótbolti, körfubolti, blak, skallatennis,
badminton o.fl. Eigum nokkra tíma
lausa í íþróttasalina um helgar og fyr-
ir kl. 17 virka daga. Tilvalið fyrir
vaktavinnu- og skólafólk. Ath. mán-
aðarkort í tækjasal á aðeins 1900 kr.
Góður leiðbeinandi. Námskeið í leik-
fimi byrjar 1. nóvember og 1. desemb-
er, verð 3500 kr. Góður kennari.
Gullsport, Stórhöfða 15, s. 672270.
Fréttir
Einvígið hálf nað
og staðan jöf n
- eftir jafntefli í tólftu og síðustu skákinni í New York
Garrí Kasparov og Anatoly Karpov
sömdu um jafntefli í nótt í tíúnda
sinn í tólf skákum í heimsmeistara-
einvíginu í New York. Þar með er
fyrri hluta einvígisins lokið - hvor
hefur hlotið sex vinninga. Köppun-.
um gefst nú kærkomið tækifæri til
hvíldar þar til þeir taka upp þráðinn
að nýju í Lyon í Frakklandi. Þrett-
ánda skákin verður tefld þar í borg
24. þessa mánaðar.
Heimsmeistarinn fékk góða stöðu
í tólftu skákinni í nótt en í miötaflinu
missti hann þráðinn og nokkrir til-
gangslausir leikir hans gáfu Karpov
tóm til að rétta úr kútnum. Mörgum
kom á óvart að Karpov skyldi ekki
tefla til þrautar er Kasparov bauð
jafntefli eftir 37. leik sinn. En Karpov
átti lítinn tíma aflögu og hefur metið
það svo að virk staða heimsmeistar-
ans ætti að gefa honum auðvelt jafn-
tefli.
Fregnir úr herbúðum Karpovs
herma að hann sé ánægður með að
hafa haldið sínu gegn heimsmeistar-
anum í New York. Margir álíta að
það hljóti aö gefa honum aukið sjálfs-
traust og hann veröi því til alls líkleg-
ur í Frakklandi. Á hinn bóginn er
heldur engan bilbug að fmna á
mönnum heimsmeistarans. Umboðs-
maður hans, Englendingurinn
Andrew Page, sagði að hann hefði
teflt lakar en búist hefði verið viö en
nú þyrfti hann að hvílast og þá lofaði
framhaldið góðu.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Spænski leikurinn aftur sem ávallt
hefur orðið uppi á teningnum í ein-
víginu er Karpov hefur haft svart ef
síðasta skák er frátalin. Þá beitti
hann Petrovs-vörn sem hefst með 2.
- Rf6. Væntanlega fáum við að sjá
meira af þeirri ágætu byrjun í Lyon.
3. - a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5
7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Rd7
Afbrigði Tsígorins sem nægði
Karpov ti jafnteflis í sjöttu og átt-
undu skákinni.
10. d4 Bf6 11. a4 Bb7 12. Ra3!?
Kasparov er vopnaður nýrri hug-
mynd - í stað 12. axb5 eða 12. Be3.
Hann þrýstir að peðinu á b5 og knýr
Karpov til róttækra aðgerða.
12. - exd4 13. cxd4 Ra5 14. Ba2
Ekki 14. axb5 axb5 15. Rxb5? Bxe4!
16. Hxe4 Rxb3 17. Hxa8 Dxa8 o.s.frv.
er svartur nær peðinu aftur með
góðu tafli.
14. - b4 15. Rc4 Rxc4 16. Bxc4 He8
Hér mætti leita að öðrum mögu-
leikum. Eins og skákin teflist nær
Karpov ekki jafnvægi.
17. Db3 Hxe4 18. Bxf7+ Kh8 19. Be3!
Beittasti leikurinn. Eftir 19. Dxb4?
Hxel+ 20. Rxel Hb8 situr liðsskipan
hvíts á hakanum og svartur nær
frumkvæðinu.
19. - He7 20. Bd5 c6 21. Be6 Rf8 22. Bg4
a5 23. Hacl Rg6 24. Bh5(?!)
Frá og með þessum leik missir
heimsmeistarinn þráðinn eftir að
hafa byggt upp vænlega stöðu. Stinga
má upp á 24. Rd2!? ásamt BÍ3, g3 og
h4 með frjálsu tafli á hvítt.
24. - Hc8 25. Bg4
Upphaflega hugmyndin var eflaust
25. Bxg6 en heimsmeistarinn telur
hag sínum betur borgið með því að
eiga biskupinn á borðinu.
25. - Hb8 26. Dc2 Hc7 27. Df5? Re7!
Þetta snjalla svar hefur Kasparov
áreiðanlega ekki tekið meö í reikn-
inginn er hann lék síðasta leik sinn
sem reynist því fullkomið vindhögg.
í ljós kemur að 28. Dxa5?? Rd5 með
hótuninni 29. - Ha8 setur drottningu
hvíts á höggstokkinn. Karpov nær
með þessu að laga stöðu riddarans
og snýr nú taflinu við.
28. Dd3 Rd5 29. Bd2 c5 30. Be6 Rb6 31.
Skák
Jón L. Arnason
dxc5 dxc5 32. Dxd8+ Hxd8 33. Bf4 He7
34. Rg5
Ekki 34. Hxc5? Hde8 og leppun
biskupsins kostar lið.
8
7 A 11
6 5 Á ÁJ i &
4 A A
3 A
2 & A A
1 S <&>
34. - Bd5! 35. Bxd5 Hxd5 36. Hxe7 Bxe7
37. Hel
Kasparov bauð jafntefli um leið og
hann lék síðasta leik og eftir nokkra
umhugsun þáði Karpov boðið. Peð
hans á drottningarvæng virðast ógn-
vænleg og því kom mörgum á óvart
að hann skyldi gefa taflið upp á bát-
inn. Eftir 37. - Hd7 (ekki 37. - Bxg5??
vegna máts í borðinu) 38. RÍ7+ Kg8
39. Re5, eða 37. - Rc8, lendir hann í
varnarstöðu en 37. - Bf8 er vinnings-
tilraun. Karpov hefur hins vegar
metið það svo að eftir 38. Re6 Kg8 39.
b3, eða strax 38. b3, nægi virk staða
hvits til jafnteflis. Auk þess var hann
tímanaumur og hann leggur ekki í
vana sinn að freista gæfunnar.
-JLÁ
ABCDEFGH
SVFR
Opið hús
í félagsheimili SVFR föstudaginn 9. nóvember. Húsið
opnað kl. 20.30.
Dagskrá:
* Árni ísaksson veiðimálastjóri: Veiðin 1990.
* Jón G. Baldvinsson, formaður SVFR, segir fréttir
af netaupptökum og samningurh í Borgarfirði.
* Þröstur Elliðason sýnir litskyggnur og segir frá
veiðinni í Rangánum.
* Glæsilegt happdrætti.
Fræðslu- og skemmtinefnd SVFR.
Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir
tilboðum í eftirfarandi:
Rarik-90005: Háspennuskápur 11 kV, fyrir
aðveitustöðvarnar Eskifirði,
Laxárvatni, Ólafsfirði, Saurbæ
og Þorlákshöfn.
Opnunardagur: Fimmtudagur 20. desember 1990,
kl. 14.00.
Tilboðum skal skrla á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma
og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
miðvikudegi 7. nóvember 1990 og kosta kr. 2.500,-
hvert eintak.
Reykjavík 2. nóvember 1990
Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118,
105 Reykjavík