Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1990, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990.
Jólaleyfiídag:
og iánsfjárlög
Mikið skipulagsleysi virtist
ríkja á Alþingi í gær og er Ijóst
að ekki verða öll þau mál afgreidd
sem ríkisstjórnin vildi að af-
greidd yrðu fjæir jólafrí þing-
manna. Langur timi fór í aö ná
samkomuiagi um fjölmörg atriði
varðandi flárlagafrumvarpið og
voru stöðug fundahöld um allt
Alþingishúsið og öðrum húsum
sem tilheyra Alþingi í gær.
Afþeim málum sem ekki verða
afgreidd fyrir jólaleyfi má nefna
sjálf bráðahirgðalögin. Þau verða
ekki afgreidd úr efri deíld fyrr en
Alþingi kemur aftur saman í jan-
úar. Þá verða lánsfjárlög heldur
ekki afgreidd fyrir jól.
Aftur á móti náðist samkomu-
lag um það milh stjórnar og
stjórnarandstöðu að afgreiða á
næturfundi í nótt er leið og á
þingfundum í dag, trygginga-
gjaldið, sem er sameining á öllum
launatengdum gjöldum atvinnu-
veganna. Víröisaukaskattsmálið
fer í gegn í dag sem og frumvarp
um sjóðvélar því tengt. Eins fer
frumvarp um stimpilgjald í gegn
sem ogfmmvarpið um húsnæðis-
málin. Sömuleiðis veröur frum-
varp um skatt á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði afgreítt í dag.
Einnig frumvarp urn staðgreiðslu
opinberra gjalda, sem er fylgi-
frumvarp þess. Frumvarp um
samskiptamiöstöð heyrnarlausra
verður afgreitt og frumvarp um
Háskóla íslands.
Allt axmað, sem rikisstjómin
vildi að afgreitt yröi fyrir jól og
DV skýrði frá á miövikudag,
verður aö bíða.
-S.dór
Þingflokkarfái
25 milijónir
Seint í gær birtist breytingartil-
iaga við fiárlagafrumvarpið. Hún
er borin fram af fulltrúum allra
stjórnmálaflokkanna í fiárveit-
inganefnd Alþingis. Þessi breyt-
ingartillaga hljóðar upp á að
lækka fiárveitingu viö kostnað
Alþingis úr 260 milljónum króna
í 235 milljónir en hæta inn nýjum
liö í fiárlagafrumvarpið sem heit-
ir: Sérfreeðileg aðstoö fyrir þing-
flokkana og nemur upphæðin
24,8 milljónum króna.
Tillagan kemur til afgreiðslu í
dag þegar atkvæði verða greidd
um fiárlagafrumvarpið og allar
þær hreytingartillögur sem lagð-
ar voru fram við þriðju umræðu
þess.
-S.doi
Kasparov
héitjöfnu
Heimsmeistarinn Garry Ka-
sparov færðist nær því að halda
titiinum þegar hann hélt jafntefii
í 21. einvígisskákinni í gær. Þegar
skákin fór í bið á mánudaginn var
það áht flestra sérfræðinga að
Karpov ætti góða sigurmögu-
leika. Biöleikur Karpovs var hins
vegar ekki sá besti og þrátt fyrir
ítrekaðar vinningstilraunlr varð
hann að sætta sig viö jafhtefli eft-
ir 86. leik.
Staðan i einvíginu er nú 11,5-9,5
Kasparov í vil og þarf heims-
meistarinn einungis eitt jafntefh
í þeim þremur skákum sem ólok-
iö er til þess að halda titlinum.
22. skákin veröur tefld á laugar-
daginn og þá hefur Kasparov
hvítt.
■eg
Fréttir
Marta Svavarsdóttir, til hægri, sat kappklædd i eldhúsinu ásamt gestkomandi konu sem taldi ekki óhætt að fara ur kapunm þott hun stoppaði ekki lengi.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kuldaboli ræður víða ríkjum á heimilum 1 Hafnarfirði og Garðabæ:
Éq er alveg að krókna
- sagðikonaásjötugsaldrisemDVheimsótti
„Þetta er alveg agalegt ástand. Eg
er öryrki og get mig því lítið hreyft.
Það er búið að vera mjög kalt hjá
okkur undanfama daga þar sem hit-
inn í íbúðinni hefur veriö í kringum
15 stig. Maður er fljótur að kólna
þegar maður getur ekki hreyft sig
og því er ég alveg að krókna," sagði
Marta Svavarsdóttir, íbúi við Keldu-
hvamm í Hafnarfirði, í samtah við
DV í gærdag.
Marta og annar íbúi við Keldu-
hvamm, sem DV ræddi við, sögðu að
hitinn í sumum húsum við götima
hefði farið niður undir 12 stig. Hefði
heimkoman þvi verið heldur kulda-
leg fyrir marga sem komu úr vinn-
unm í frostinu. Gestkomandi kona
hjá Mörtu sagði blaðamanni frá
nokkrum íbúum í nágrenninu og víð-
ar í Hafnarfirði og Garðabæ sem
hefðu verið að drepast úr kulda und-
anfamar vikur.
Ástæður kuldans í húsum í Hafnar-
firði og Garðabæ má rekja til útfell-
ingar í heitu vatni sem kemur frá
Nesjavöhum. Útfelhngin hefur trufl-
að vatnsrennshð og hefur þrýstingur
í römnum falhð. Þá hefur verið tölu-
vert af sandi og ryöi í vatninu og stífl-
að síur í vatnsinntaki húsa. Einn íbúi
í Kelduhvammi sagðist þurfa að
hreinsa síuna í inntaksrörinu hjá sér
reglulega til aö halda hita í húsinu.
Hefði hann gert það tvisvar á dag og
í hvert skipti hefði mikið af ryði og
sandi komið í ljós. Eftirjireinsunina
hefði rennslið á heita vatninu aukist
og hiti komið í húsið.
Viðstöðulaus hreinsunar-
vinna
Meðan DV-menn vom í heimsókn
hjá Mörtu var þar vélvirki á vegum
Hitaveitunnar sem beðinn var að
koma. Hann sagðist ekki hafa gert
annað en að hreinsa inntaksrör í
húsum um allan Hafnarfiarðarbæ
síðasthðinn hálfan mánuð. Hefði oft
verið unnið langt fram á kvöld og
væri ekkert lát á hjálparbeiðnum frá
fólki í kuldanum. I síunni hjá Mörtu
var töluvert af sandi og skolaði vél-
virkinn úr. rörinu. Hvarf hann síðan
á braut til að hjálpa fleiri köldum
Hafnfirðingum.
Þegar DV-menn kvöddu var aðeins
farið að hitna hjá Mörtu en henni
var satt að segja ekkert farið að ht-
ast á blikuna svona rétt fyrir jólin.
Væri ekki einungis kalt heldur blikk-
uöu fiósin á hveijum degi vegna raf-
magnstruflana frá stálbræðslunni í
hrauninu sunnan Hafnarfiarðar.
Hvort sían hjá Mörtu helst hrein
fram að jólum á eftir að koma í fiós.
-hlh
Fjárlög fyrir árið 1991 verða afgreidd í dag:
Fjárlög í fyrsta sinn
yf ir 100 milljarða
- harðar umræður á Alþingi stóðu fram á nótt
Þriðja umræða um fiárlagafrum-
varpið fyrir árið 1991, sem hófst í
gær, stóð fram á nótt. Fjárlagafrum-
varp næsta árs er upp á um 101 millj-
arð króna og er þetta í fyrsta sinn
sem fiárlagafrumvarpið hér á landi
fer yfir 100 mihjónir króna. Eins og
venjulega deildu sfióm og stjórnar-
andstaða um ágæti frumvarpsins.
Hér fer á eftir það sem talsmenn
sljómar og stjórnarandstööu sögöu
um fiárlagafrumvarpið í samtali við
DV.
„Þessi fiárlög bera sömu einkenni
og fiárlög tveggja síðustu ára. Þau
fela í sér mikla þehslu í ríkiskerfmu.
Þau fela í sér stórkostlegar skatta-
hækkanir. Þau fela í sér hallarekstur
sem að verulegu leyti er dulinn. Þau
bera þess merki að við gífurlegan
vanda er að fást í fiármálum ríkisins
sem velt er yfir í framtíðina og þjóð-
in verður að axla og greiða með ein-
um eða öðrum hætti á komandi
árum,“ sagði Pálmi Jónsson, fulltnii
Sjálfstæðiílokksins í fiárveitinga-
nefnd.
„Frumvarpið sýnir að ríkisstjómin
og meirihluti hennar á Alþingi hefur
staðist þær freistingar að búa hér til
óábyrgt kosningafrumvarp. Þetta er
staðfesting á því aö stöðugleikinn á
að vera homsteinn í íslenskum efna-
hagsmálum. Aukning útgjaldanna er
minni en á undanförnum árum eða
í kringum 1 prósent. Því miður verð-
ur að segja nei við marga þrátt fyrir
miklar kröfur viða að úr þjóðfélaginu
vegna þess að það er ekki vifii til að
sækja meiri tekjur í gegnum meiri
skatta. Það er halli á þessu frum-
varpi. Hann er hins vegar miklu
minni en menn hafa búist við. Vegna
hvers? Vegna þess að í marga mán-
uði hefur verið glímt við það erfiða
verkefni að halda útgjöldunum niðri.
Á síðustu mánuðum er uppsveifla í
hagkerfinu að byrja. Hún skilar sam-
eiginlegum sjóði okkar meiri tekjum
þrátt fyrir óbreytta skatta. Sumir
hafa spurt hveraig á því standi að
halli sem menn töldu að yrði allt að
7 milljarðar veröur aðeins 4 milljarð-
ar. Svar mitt er það að hygginn fiár-
málaráðherra sýnir ekki tekjuhhö-
ina fyrr en búið er að loka útgjalda-
liðnum," sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son fiármálaráðherra.
„Þetta fiárlagafrumvarp boðar
heimilum í landinu verulegar þreng-
ingar. Skattar eru hækkaðir, láns-
fiárþörf ríkissjóðs eykst og það er
ýmsum vanda leynt. Sá vandi er fal-
inn í fiárlögunum og mun því ekki
. birtast fyrr en á næsta ári. Meginein-
kenni þessara fiárlaga þykja mér
vera að þaö er hlaupið frá vandan-
um. Honum er vísað til framtíðarinn-
ar,“ sagði Málmfríður Sigurðardótt-
ir, fulltrúi Kvennalistans í fiárveit-
inganefnd.
I dag verða greidd atkvæði um fiár-
lagafrumvarpið í sameinuðu þingi.
-S.dór