Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991. Viðskipti Beinar útsendingar CNN og Sky hafa áhrif: Mjög vaxandi eftirspurn eftir gervihnattadiskum Eftirspurn eftir gervihnattadiskum hefur aukist verulega eftir að Stöö 2 og Sjónvarpið hófu beinar útsending- ar frá alþjóðlegu sjónvarpsstöövun- um CNN og SKY. Að sögn forstjóra Radíóbúðarinnar, Gríms Laxdals, hefur salan síðustu daga verið á milli 5 og 10 diskar á dag. Þá hefur versl- unin Japis einnig orðiö vör við aukna eftirspurn síöustu daga, þar er þó enn sem komið er meira um fyrir- spumir að ræða. „Salan tekið kipp“ „Salan hefur tekið kipp eftir að stríðið við Persaflóa byijaöi og síð- ustu daga höfum við selt á milli 5 og 10 diska á dag,“ segir Grímur Laxdal hjá Radíóbúðinni. Ódýrustu diskarnir hjá Radíóbúð- inni eru 1,2 metrar í þvermál og kosta um 73.900 krónur. Þessir diskar ná einu tungli og hljóöiö er í mono. Verð diskanna hækkar síðan stig af stigi og kosta 1,2 metra diskar með hljóði í stereo um 138.580 krónur. Þessir diskar eru með snúnings- tjakki sem færir sig sjálíkrafa á milli þriggja tungla. Intelsat VA-F11 vestarlega Á þessa diska er ekki hægt að ná útsendingum CNN stöðvarinnartem sendir í gegnum gervihnöttinn Int- elsat VA-Fll. Ástæðan er sú hve það tungl er vestarlega í háloftunum. Magnúsdregur sigtilbaka Magnús R. Jónsson, eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Garra, hefur dregið framboð sitt til formanns Félags íslenskra stórkaupmanna til baka. Hefur hann þess í stað lýst yfir fyllsta stuðningi við Birgi Rafn Jónsson, framkvæmdastjóra og eiganda Magnúsar Kjarans, til formanns félagsins. -JGH Ofsagtum skattaDavíðs Ofsagt var i frétt DV síðastlið- inn fóstudag um álögð íasteigna- gjöld aö skattar núverandi meiri- hluta væru hærri en hjá vinstri meirihlutanum vorið 1979. Þeir eru jafnháir. í fréttinni var vitnað til bréfs Verslunarráös til Davíðs Odds- sonar borgarstjóra en mörg fyrir- tæki í borginni eru ósátt við há fasteignagjöld. Segir í bréfinu að vinstrimeírihlutínn hefði á árinu 1979 hækkaö fasteignagjöldin úr 0,842 prósentum í 1,25 prósent. Þessi gjöld hefðu hins vegar ekki lækkað þegar núverandi meirihluti komst að þrátt fyrir loforð um að allar skattahækkan- ir vinstri meirihlutans yrðu tekn- ar til baka. Þess má geta að Verslunarráð sendi í gær fleiri sveitarfélögum viövaranir um álagningu fast- eignagjalda og sérstaks sorpeyð- ingargjalds. I bréfi Verslunarráðs segir orð- rétt: „Nýtt gjald, sorpeyöingar- gjald, hefur komið inn í. fjár- hagsáætlanir ýmissa sveitarfé- laga við gerð þeirra nú. Verslun- arráð telur óeðlilegt að leggja slikt gjald á fyrirtæki án þess að fasteígnaskattur lækki á móti. Má benda á aö Reykjavíkurborg hefurþannháttá." -JGH - seljum á milli 5 og 10 diska á dag, segir forstjóri Radíóbúöarinnar Mjög vaxandi eftirspurn hefur verið eftir gervihnattadiskum síðustu daga. Hins vegar sendir SKY-stöðin í gegnum gervihnöttinn Astra 1A sem er austarlega í háloftunum og næst sú stöð með diskum af stærðinni 1,2 metrar í þvermál. Til frekari upplýs- inga fyrir neytendur skal þess getið að hluti af því sjónvarpsefni, sem næst um gervitungl, er sent út ruglað. Að sögn Kristbjörns Sigurðssonar, sölumanns hjá Radíóbúðinni, er hægt að ná CNN-stöðinni, Intelsat VA-Fll tunghnu, á diska sem eru um 1,80 metrar í þvermál. Slíkir diskar ásamt nauðsynlegum útbúnaði eru á um 200 þúsund krónur stykkið. Hann segir ennfremur að mjög hafi verið rætt um það aö CNN- stöðin kæmi inn á nýtt Astrad gervi- tungl sem búið er að skjóta á loft og tekiö verður í notkun eftir nokkrar vikur. Fari svo mun CNN-stöðin nást á ódýrari diska sem eru um 1,2 metr- ar í þvermál. íbúðir í fjölbýlishúsum þurfa sérstakan stýribúnað Nokkuð hefur verið um að húsfélög í fjölbýlishúsum eða raðhúsum hafi spurst fyrir um gervihnattadiska að undanfórnu. í slíkum tilvikum þarf aukalegan stýribúnað með fyrir hverja íbúð svo að hvert heimili geti valið á milli stöðva. Við það hækkar verðið töluvert. Pakkinn sem áður var á bilinu 74 þúsund til 138 þúsund hækkar í um 230 til 270 þúsund krónur fyrir fjög- urra húsa raðhúsalengju, svo að dæmi sé tekið. Fleiri velta gervihnatta- sjónvarpi fyrir sér Að sögn Birgis Skaptasonar, ann- ars framkvæmdastjóra Japis, hafa þeir lagt áherslu á að selja aðeins diska frá 1,5 metrum í þvermál til að tryggja myndgæðin og aðeins í stereo vegna hljóðsins. Verð slíks disks er um 120 þúsund krónur pakk- inn. Inni í þessum pakka er ekki stýribúnaður fyrir íbúðir í fjölbýlis- húsum eða stærri diskur til að ná CNN-stöðinni. „Það er heldur meiri eftirspurn en áður. Mest er um fyrirspurnir að Samdráttur í sölu áfengis og tóbaks: Meira selt af léttum vínum en minna af bjór Þrátt fyrir samdrátt í sölu áfengis og tóbaks á síðasta ári hafa létt vín unnið á í söluá kostnað sterkra vína og bjórs. Samdráttur í sölu á áfengi nam 5,31 prósenti í lítrum en 4,13 prósentum í alkóhóllítrum. Sam- drátturinn í sölu bjórs var tæplega 7 prósent. íslendingar drógu ekki aöeins úr drykkju á síðasta ári. Þeir reyktu líka minna. Samdráttur varð í sölu á vindlingum um 1,19 prósent. Einnig seldist minna af vindlum og reyktó- baki. Sala á neftóbaki jókst hins veg- ar lítillega, eða um 0,80 prósent. Aukning varð í sölu á rauðvíni, rósavíni og sérstaklega kampavíni á síðasta ári en hins vegar varð lítils háttar samdráttur í sölu hvítvíns. Samdráttur varð í sölu á sérríi, vermútum og aperitífum. Hins vegar jókst sala á koníaki. Af algengustu sterku vínunum seldist minna af viskíi, brennivíni, vodka og gini en veruleg aukning varö á rommi eins og Baccardi. Virðist sem romm hafi verið í tísku á síðasta ári. Athyglisvert er aö sala á bitterum Alkóhóllítrar á mann 1985 1986 1 987 1988 1989 1 990 Seldir alkóhóllitrar í Áfengis- og tó- baksverslun rikisins á hvern íslend- ing eldri en 15 ára. Salan jókst aug- Ijóslega á árinu 1989 þegar sala bjórs hófst hérlendis. í fyrra dró heldur úr drykkjunni. tæp 27 prósent á síðasta ári. Bitterar eru um 38 prósent aö styrkleika. Af algengum bitterum má nefna Jag- ermeister og Gammel dansk. Skýringin á aukinni sölu bittera er talin tengjast bjórdrykkjunni. Al- gengt er á Norðurlöndum að drukkn- ir séu snafsar af bitterum með bjór. Þessi siður mun vera aö aukast hér- lendis. Á árinu 1989 voru seldar rúmlega 6,9 milljónir lítra af bjór. í fyrra voru seldar tæplega 6,5 milljónir lítra. Þetta er 7 prósent minnkun. í alkó- hóllítum var samdrátturinn meiri eða rúmlega 8 prósent. Það bendir til þess að fólk hafi farið meira yfir í léttari styrkleika á bjórtegundum. íslendingar keyptu áfengi hjá ÁTVR fyrir tæpa 7,5 milljarða á síð- asta ári. Um 70 prósent af þessari sölu fer fram á höfuðborgarsvæðinu. Það segir þó ekki alla söguna því nokkuð er um póstverslun á áfengi og sömuleiðis eru langflestir vín- veitingastaðir landsins í höfuðborg- inni. Af einstökum stöðum úti á landi er Akureyri með mesta sölu en næst- mest er selt á Selfossi og í Keflavík. Vínbúðin á Akureyri þjónar Akur- eyringum, Ólafsfirðingum, Dalvík- ingum, Húsvíkingum og þéttbýhs- stöðunum á norðausturhorninu. -JGH Samtenging á Pésum og Macintosh Tölvudeild Kristjáns Ó. Skagfiörð opnaði í gær sýningu á netkerfi sem gerir PC-tölvum, sem keyra MS-DOS og OS/2 stýrikerfi, Macintosh-tölv- um, UNIX-tölvum og VAX-tölvum kleift að tengjast í sameiginlegu net- kerfi og samnýta gögn. Sýningunni lýkur á morgun. Að sögn Gísla Ragnarssonar hjá Kristjáni Ó. Skagfiörð er búnaðurinn sem tengir Macintosh-tölvur og VAX-tölvur afrakstur samstarfs Apple og Digital sem hófst áriö 1988. _„Þessi búnaður .hefur aö.rundan- fornu fengiö mjög lofsamlega um- fiöllun í erlendum fagtímaritum og hefur því gætt nokkurrar eftirvænt- ingar á meðal Macintosh-notenda um að sjá hann,“ segir Gísli. -JGH ræða. Það er engu að síður greinilegt að fólk er farið að velta þessari tækni meira fyrir sér síðustu dagana," seg- ir Birgir. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 3-3,5 Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsógn 3-4 Lb.Sp 6mán. uppsögn 4-4,5 Sp 12 mán. uppsögn 5 Lb.lb 18mán. uppsögn 10 Ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Bb.Lb.Sp Sértékkareikningar 3-3,5 Lb Innlán verðtryggð • Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6mán. uppsögn 2,5-3,0 Allir nema Ib Innlánmeðsérkjörum 3-3,25 Ib Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 6-6.25 Bb Sterlingspund 12-12,6 Sp Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Bb.Sp Danskarkrónur 8,5-9 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 13,75 Allir Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 13,5-14.25 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir' Hlaupareikningar(vfirdr.) 17.5 Allir Utlán verðtryggð Skuldabréf 7,75-8,75 Lb Utlán til framleiðslu Isl. krónur 13,25-14 Lb SDR 10.5-11.0 Lb Bandarikjadalir 9,5-10 Lb Sterlingspund 15,5-15,7 Allir nema Sp Vestur-þýsk mork 10,75-11,1 Lb.lb Húsnæðislán 4.0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21,0 MEÐALVEXTIR Överötr. jan. 91 13,5 Verðtr. jan. 91 8.2 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala jan. 2969 stig Lánskjaravisitalades. 2952 stig Byygingavísitala jan. 565 stig Byggingavísitala jan. 176,5 stig Framfærsluvisitala jan. 149,5 stig Húsaleiguvísitala 3% hækkun . jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða Einingabréf 1 5,316 Einingabréf 2 2,877 Einingabréf 3 3,493 Skammtímabréf 1,783 Kjarabréf 5,199 Markbréf 2,761 Tekjubréf 2,022 Skyndibréf 1,543 Fjólþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,540 Sjóösbréf 2 1,802 Sjóðsbréf 3 1,765 Sjóðsbréf 4 1,519 Sjóðsbréf 5 1,065 Vaxtarbréf 1,7897 Valbréf 1,6776 Islandsbréf 1,103 Fjórðungsbréf 1,057 Þingbréf 1,102 öndvegisbréf 1,092 Sýslubréf 1,110 Reiðubréf 1,083 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,55 6,88 Eimskip 5,57 5,85 Flugleiöir 2,43 2,55 Hampiðjan 1,72 1,80 Hlutabréfasjóðurinn 1.76 1,84 Eignfél. lönaðarb. 1,89 1,98 Eignfél. Alþýðub. 1,38 1,45 Skagstrendingur hf. 4,00 4,20 Islandsbanki hf. 1,38 1.45 Eignfél. Verslb. 1,36 1.43 Olíufélagiö hf. 6,00 6,30 Grandi hf. 2,20 2,30 Tollvörugeymslan hf. 1,07 1,12 Skeljungur hf. 6,40 6,70 Ármannsfell hf. 2,35 2,45 Fjárfestingarfélagið 1,28 1,35 Útgerðarfélag Ak. 3,50 3,68 Olís 2,12 2,25 Hlutabréfasjóður VlB 0,95 1,00 Almenni hlutabréfasj. 1,01 1,05 Auölindarbréf 0,96 1,01 Islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08 (1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn, lb = Islandsbanki Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- r Inn birtast i DV ð fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.