Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991.
23
Smáauglýsingar
Blizzard Firebird skíði, 180-200 cm,
Look bindingar með skíðastoppurum,
verð aðeins kr. 11.800.
Ath. takmarkað magn. Póstsendum.
S. 91-82922. Útilíf, Glæsibæ.
Hama perlu unnendur! Nú eru komnar
nýjar perlur og litir í miklu úrvali,
ásamt botnum og myndum.
Póstsendum. Tómstundahúsið,
Laugavegi 164, s. 21901.
Hestakerrur. Hestakerrur. 4 hesta kerr-
ur, 3 hesta kerrur og 2 hesta kerrur.
Kerruhásingar með bremsum eða án,
allar hliðar í kerrur og vagna. Veljum
íslenskt. Víkurvagnar hf., Dalbraut,
símar 43911 og 45270.
■ BOar tQ sölu
Toyota 4Runner EFI, árg. ’86, rauður
með strípum, ekinn aðeins 66 þús. km,
32" dekk + álfelgur (bíll sem varla
er hægt að lýsa vegna glæsileika). Til
sölu og sýnis hjá Bílasölu Matthíasar
v/Miklatorg (þar sem viðskiptin ger-
ast), símar 91-24540 og 91-19079.
Dodge Van Transmann 300,1977, 6 cyl.,
sjálfskiptur, vökvastýri, nýjar hliðar,
ryðlaus. Góður bíll, verð 330 þúsund.
Úppl. í síma 985-24305 og 91-36545 eft-
ir kl. 18.
Toyota Hilux SR 5 ’86, lækkuð hlutföll,
33,12,50, BFG, ný 5" hækkun, Off Road
knastás, flækjur, CB talstöð, 4" bretta-
kantar og margt fleira. Uppl. í sima
91-687785 milli kl. 9 og 18.
BMW 730i, árg. ’88, ekmn 42 þus. km,
með öllu. Til sýriis og sölu á
Bílasölunni Braut, sími 91-681510 og
91-681502.
Fréttir
Akranesverktakar sækja um lóðir 1 nýja miðbænum:
„Nýr miðbær sem raunhæft
er að hefjast handa við“
- segir Ævar Harðarson, arkitekt og höfundur skipulagstillögunnar
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi;
Akranesverktakar hafa óskað
eftir því við bæjarráð að fá að hefja
byggingarframkvæmdir á svoköll-
uðum miðbæjarreit. Sótt er um lóð-
ir undir verslunar- og skrifstofu-
byggingar. Jafnframt hafa Akra-
nesverktakar óskað eftir viðræð-
um við bæjaryfirvöld um byggingu
á skrifstofuhúsnæði fyrir bæjar-
skrifstofu (ráðhús). Þeir hafa einn-
ig boðist til að útvega framkvæmd-
afé til verksins.
Að Akranesverktökum standa
stærstu aðilar í byggingariðnaði á
Akranesi en þeir eru Akur hf., Tré-
verk sf„ Málningarþjónustan hf„
VT-teiknistofan hf. og Þorgeir &
Ellert hf.
Samhliða umsókninni um lóðir
eru lagðar fram hugmyndir að nýju
skipulagi fyrir miðbæinn. Skipu-
lagshugmyndirnar gera ráð fyrir
8000 fermetra gólííleti undir ýmsa
þjónustustarfsemi. Ásamt fyrir-
huguðu ráðhúsi, verslunar- og
skrifstofuhúsnæði er gert ráð fyrir
að þarna rísi einnig húsnæði fyrir
ríkisstofnanir.
Húsin eru mismunandi að stærð
og byggjast meðfram yfirbyggðri
göngugötu. Svæðinu er jafnframt
skipt upþ í afmarkaða reiti sem
gerir áfangaskiptingu mögulega.
Einnig eru lagðar fram tillögur að
íbúöarbyggð í miðbænum.
Ævar Harðarson arkitekt er höf-
undur skipulagstillagnanna. Hann
sagði í samtali við DV að ef þessar
hugmyndir fengju brautargengi
myndi það verða veruleg lyftistöng
fyrir atvinnuhf bæjarins, bæði á
meðan á framkvæmdunum stæði
og þegar starfsémi gæti hafist í
húsunum. „Að sjálfsögðu vonumst
við til að vel verði tekið í þessar
hugmyndir. Þarna er lagður
grunnur að nýjum miðbæ Akra-
ness sem raunhæft er að hefjast
handa við,“ sagði Ævar.
Stefán Jóhannsson við fiskeldisker í fjárhúsinu að Þrándarstöðum. DV-mynd Sigrún
Austurland:
Bleikjueldi í fjárhúsum
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum;
Nú þegar sauðfjárrækt er á undan-
haldi horfa menn eftir einhverju því
sem getur komið í hennar stað fólki
til framfærslu og til að nýta þann
húsakost sem til er og víða er góður.
Það virðist dálítið langsótt að setja
bleikju inn í fjárhúsin en einmitt það
er nú verið að gera.
Tilraunir með bleikjueldi í köldu
vatni eru nú að hefjast á þremur
stöðum á Austurlandi, í Seldal í
Norðfirði og Ormsstöðum og Þránd-
arstöðum í Eiðaþinghá. Á Ormsstöö-
um voru ker steypt úti'en ætlunin
er að setja létt þak yfir til vamar
skefli. Hjónin Guðrún Benediktsdótt-
ir og Stefán Jóhannsson á Þrándar-
stöðum hafa fiskeldiskerin í fjár-
húsinu en þau hættu sauðfjárbúskap
fyrir allmörgum árum.
Það er Búnaðarsamband Austur-
lands sem stendur fyrir þessari til-
raun hér eystra og verkefnisstjóri er
Þórarinn Lárusson, tilraunastjóri á
Skriðuklaustri. Styrkur til verkefn-
isins fékkst frá framleiðnisjóði og
Vest-Norden sjóðnum en sams konar
tilraunir fara fram á Grænlandi.
Nú er unnið aö því fyrir sunnan
að merkja seiði til að senda út í til-
raunastöðvarnar sem verður seinna
í þessum mánuði. Um er að ræða 20
bleikjustofna úr ám og vötnum víðs
vegar af landinu.
Ungur kvikmyndargerðarmaður á Akranesi:
Sýndi fjórar stuttmyndir
Jakob Halldórsson kvikmyndagerð-
arnemi. DV-mynd Árni S. Árnason
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Ungur Akurnesingur, Jakob Hall-
dórsson, kynnti fjórar stuttmyndir,
sem hann hefur gert, fyrir rúmlega
70 gestum í Bíóhölhnni fyrir stuttu.
Jakob hefur undanfarin tvö ár stund-
að nám í kvikmyndagerö í Banda-
ríkjunum. Tvær myndanna voru
teknar hérlendis, önnur í ofnskála
íslenska járnblendifélagsins.
„Ég var mjög ánægður með við-
tökurnar sem ég fékk að sýningunni
lokinni og er þakklátur þeim sem
komu og sýndu verkum mínum
áhuga,“ sagði höfundurinn er DV
ræddi við hann.
Jakob stundar nám í School of
Visual Arts. Hann vinnur nú að loka-
verkefni sínu við skólann, 10 mín-
útna langri kvikmynd. Á meðal leik-
ara 1 henni er ungur íslenskur leik-
listarnemi, Ylfa Edelstein.