Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991. Útlönd Irakar sagðir hafa komið upp gerviskotpöHum: írakar eyðileggja olíulindir í Kúvæt - sjö Scud-eldflaugum skotið á Saudi-Arabíu 1 nótt Orrustvél tekur sig á loft frá bandaríska flugmóðurskipinu USS Saratoga. Bandamenn leggja nú höfuðáherslu á að granda elflaugaskotpöllum í írak. Simamynd Reuter Talsmaður Bandaríkjahers í Saudi-Arabíu segist hafa sannanir fyrir þvi að írakar eyðileggi nú olíu- lindir í Kúvæt. Ekki fengust upplýs- ingar um fjölda olíuhnda, aðeins að írakar sprengdu við olíulindirnar. írakar skutu sjö Scud-eldflaugum að Saudi-Arabíu í nótt og í morgun. í morgun titruöu rúður í Dhahran þegar Patriot-stýriflaug sprengdi Scud-eldflaug ofan við bækistöð bandamanna. Talsmaður banda- manna segir aö um þijár árásir frá suðurhluta Kúvæt hafi verið að ræða. Hafi eldflaugunum verið grandað með Patriot-stýriflaugum en ein mun hafa lent í sjónum utan við Jubail. Tveimur eldflauganna var miðað á höfuöborgina Riyadh en þremur á bækistöðvar bandamanna í austurhéruðum Saudi-Arabíu. Þetta er fimmti dagurinn sem eld- flaugum íraka er skotið á ísrael eða Saudi-Arabíu. Eftir fyrstu dag stríðs- ins fullyrtu bandamenn að hættan á eldflaugaárás íraka væri minnihátt- ar. Samkvæmt hernaðarheimildum í Saudi-Arabíu munu vestrænar leyniþjónustur hins vegar hafa van- metið fjölda Scud-eldflaugapalla í suðurhuta íraks. Bandamenn leggja nú alla áherslu á að eyðileggja eld- flaugaskotpallana en þoka og skýja- veður hefur tafið árásarferðir þeirra síðustu daga. Verið getur að einhveijar árásar- feröir orrustuvéla bandamanna hafi verið gangslitlar. Breski ráðherrann Archie Hamilton hefur sagt að írakar notist við gerviskotpalla, byggða úr spónaplötum og krossviði, til að villa um fyrir bandamönnum. Sé það hluti af hemaðaráætlun Saddams Hussein að láta bandamenn eyða kröftunum til einskis. Mjög erfitt mun vera að sjá úr lofti hvort eldflaugapallamir eru ekta eða plat. Þátttaka Þjóðverja Gerhard Stoltenberg, vamarmála- ráðherra Þýskalands, segir að mögu- leg árás íraka á Tyrki sé nægileg ástæða fyrir Atlantshafsbandalagið til .að hjálpa Tyrkjum. Hann tiltók ekki sérstaklega hvort stjórnvöld í Bonn myndu senda hersveitir á vett- vang en sagði Þjóðveija mundu ráð- færa sig við aðildarríki NATO áður en ákvörðun um viðbrögð yrði tekin. í Þýskalandi er mikil andstaða í Þýskalandi við beina þátttöku í stríð- inu við Persaflóa. Hafa heitar um- ræður verið um málið í þýska þing- inu. Stoltenberg vísar til fimmtu grein- ar í sáttmála NATO sem segir að það sé skylda bandalagsins að veita stuðning ef ráðist er á aðildarríki. Helmut Kohl kanslari hefur orðið fyrir gagnrýni bandamanna þar sem Þjóðveijar þykja ekki sýna nægan vilja til að koma til hjálpar verði ráð- ist á Tyrki. Menn úr flokki Kohls hafa stutt stjómarandstöðuna og segja Þjóð- verja ekki þurfa að verja Tyrki. Þar sem Tyrkir bjóði orrustuvélum bandamanna bækistöð í Tyrklandi sé það bandamanna að hjálpa Tyrkj- um í mögulegri gagnárás íraka á þá. 18 þýskar ormstuvélar eru í Tyrk- landi. Ákvæði stjórnarskrár banna Þjóðveijum að senda hersveitir til landa utan NATO. Þá er aðstoð þeirra við bandamenn í írak tak- mörkuð við fjárhagslega hjálp og tækjabúnað. Reuter ísraelar til vinnu þrátt ffyr- ir hótanir um nýjar árásir Bandariskir hermenn viö skotpalla með Patriot eldflaugum sem þeir hafa komiö fyrir i ísrael. Simamyndir Reuter ísraelar héldu til vinnu í gær en eldflaugaárásir íraka á föstudaginn og laugardaginn höfðu haldið mönn- um innanhúss. Yfirvöld í ísrael hafa þó tekið hótunina um nýja eldflauga- árás alvarlega því skólarnir em enn lokaðir. Tilkynnt var aö borgaramir ættu alltaf að hafa gasgrímur með- ferðis hvert sem þeir 'færu. Fólk var einnig hvatt til að safnast ekki saman í hópa. Ekki er ljóst af hveiju írakar hafa gert hlé á eldflaugaárásum sínum gegn ísrael eftir að þeim mistókst með þeim tveimur fyrstu að draga ísraela í stríðið. Dregið er í efa að Patriot eldflaug- arnar, sem ísraelar fengu frá Banda- ríkjunum um helgina, hafi fengið ír- aka til að láta af árásunum því þeir halda áfram árásum sínum á Saudi- Arabíu þaöan sem beitt er Patriot eldflaugum. Aðstoðamtanríkisráðherra Bandaríkjanna, Lawrénce Eaglebur- ger, er nú í heimsókn í ísrael. Hann sagöi í gær að Bandaríkin viður- Aðstoðarutanrikisráðherra Banda- ríkjanna, Lawrence Eagleburger, skoðar skemmdir eftir eldflaugaárás íraka á Tel Aviv. Með honum er borgarstjóri Tel Aviv, Shlomo Lahat, sem er til vinstri á myndinni. kenndu rétt ísraela til að hefna sín. Hann tók þaö fram að Bandaríkin mætu það mikils að ísraelar hefðu enn ekki blandað sér í stríðið. Eagle- burgur vísaði því á bug aö afhending Patriot flauganna væri höur í því að fá ísraela til að halda sig utan við Striðið. Reuter DV Bagdad einsog draugaborg Alþjóða Rauði krossinn í Genf hefur enga yfirsýn yfir aðstæður almennings í Bagdad. Samskiptin við borgina eru svo slæm að Rauöa krossínum er einungis kunnugt um sjö starfsmenn stofiiunarinnar og fjölskyldur þeirra em á lífi. Breskur fréttamaður, sem kom frá Bagdad á sunnudaginn, hefur greint írá því að borgin sé eins og draugaborg. Þar sé ekkert vatn né rafmagn. Þeir íbúar borgar- innar, sem ekki hafi flúið út á land, haldi sig í neðanjarðar- byrgjum og hafi ekki hugmynd um hvemig umhorfs sé i borginni eftir loftárásimar. Reuter Bush skotinn tvisvar tiljarðar Gamlar minningar hafa senni- lega skotið upp kollinum í huga George Bush Bandaríkjaforseta þegar hann lýsti reiði sinni yfir meðferð íraka á stríðsföngum bandamanna. Bush veit mætavel hvemig það er að vera skotinn niður í orrastuferð þar sem hann reyndí shkt í seinni heimsstyrj- öldinni. Bush var flugmaður í sjóhern- um. Orrustuvél hans var skotin niður yflr Kyrrahafi 2. september 1944. Minnstu munaði að hann yrði stríðsfangi en bandarískur kafbátur hafði betur í kappsigl- ingu við japanskt eftirlitsskip og bjaraði honum um borð. Tvcir félagar Bush úr véhnni íétusL Þetta var í annaö skipti sem hon- um var bjargaö úr Kyrrahafi. í fyrra skiptið varð hann að nauð- lenda á hafinu eftir að vélarbilun kom upp í orrustuvél hans. Bush og áhöfn hans var bjargað um borð í bandarískan tundursphli hálftíma síðar. í æviminningum sínum, „Look- ing forward“ eöa Horft fram á við, minnist hann þessara atvika sem verstu stunda striðsins. Bush hætti í skóla 18 ára gam- ah. Hann var yngsti flugmaður sjóhersins í seinni heimsstyijöld- inni, flaug 58 orrustuferðir frá flugmóðurskipum á Kyrrahafi. Bush var heiðraöur fyrir vask- lega framgöngu. Reuter írakar arunaðir um Lögreglan á Fihppseyjum hefur handtekið tvo syni írasks sendi- fuhtrúa eftir að hafa lagt hald á efni sem notuð er viö sprengju- gerö. Efnin vom i íbúö þeirra í Manila. Bræðurnir, sem eru 25 og 26 ára, eru nú i yfirheyrslu vegna gmns um aðild að thraun til sprengjuárásar á bókasafn bandarískra yfirvalda í Maniia. Þeir hafa báðir neitaö að hafa átt nokkum hlut að máli. Bræðurnir eru námsmenn í Manha en faöir þeirra er sendiherra í Sómalíu. Yfirvöld á Fihppseyjum vísuðu starfsmanni íraska sendiráðsins í Manila úr landi eftir að leyni- þjónustumenn höfðu fullyrt að hann hefði verið yiðriðinn sprengjuárásina. Einn íraki lét lifið og annar særðist þegar sprengjan, sem lögreglan sagöi aö koma hefði átt fyrir við bóka- safnið, sprakk of snemma. Þeir höfðu notað bifreið sendiráðs- starfsmannsins. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.