Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991.
9
Utlönd
Stríðsfangar til hemaðarlegra mikilvægra staða:
Saddam hótað réttarhöld-
um vegna stríðsglæpa
Tveir stríðsfangar voru sýndir í ír-
aska sjónvarpinu í gærkvöldi og hafa
írakar nú alls sýnt níu stríðsfanga.
Nöfn þessara tveggja voru nefnd en
vegna mikilla truflana var erfitt að
greina þau. Yfir tuttugu flugmanna
bandamanna er nú saknað.
írösk yfirvöld tilkynntu í gær að
stríðsföngunum yrði komið fyrir á
hernaðarlega mikilvægum stöðum
til að koma í veg fyrir frekari loft-
árásir Bandaríkjamanna og banda-
manna þeirra. Þessi yfirlýsing vakti
mikla reiði á Vesturlöndum sem
kröfðust þess að írakar færu eftir
Genfarsáttmálanum um meðferð
stríðsfanga.
Bandarísk yfirvöld hótuðu í gær
Saddam Hussein réttarhöldum
vegna stríðsglæpa. Bush Bandaríkja-
forseti lýsti því yfir að loftárásunum
á írak og Kúvæt yrði haldið áfram
þrátt fyrir þá augljósu hættu sem
stríðsfangamir væru í.
Fangamir, sem sýndir vom í sjón-
varpi, voru bólgnir í andliti og með
skrámur. Grunur leikur á að þeim
hafi verið misþyrmt en ekki talið
útilokað að þeir hafi hlotið meiðsl er
þeir voru skotnir niður. Sumir þeirra
lýstu yfir andstöðu sinni við árásir
bandamanna og óskuðu þess að
stríðið tæki enda sem fyrst. Víst þyk-
ir að þeir hafi verið píndir til að gefa
slíka yfirlýsingu.
Eftir að íraskur sendifulltrúi í
Washington hafði heyrt hörð mót-
mæh Bandaríkjanna sakaði hann
bandamenn um að myrða saklausar
íraskar konur og börn. Sagði hann
Bretar óttast
hryðjuverk
Guiuiar R. Sveinbjömsson, DV, London:
Mikill ótti hefur nú gripið um sig
meðal almennings í Bretlandi vegna
hugsanlegra hryðjuverka í kjölfar
átakanna við Persaflóa. Öll löggæsla
hefur verið hert til muna og sérstak-
ur vörður er við allar helstu opin-
berar byggingar. Herinn og lögreglan
sjá um þetta aukna eftirlit í samein-
ingu. Lögregluþjónum hefur verið
bætt við á öllum helstu samgöngu-
leiðum en herinn hefur að mestu séð
um öryggisgæslu á flugvöllum. Á
Heathrowflugvelh má sjá hermenn
gráa fyrir járnum akandi um á skrið-
drekum. Gæslan nú er sú mesta síð-
an írski lýðveldisherinn hótaði sem
mestum hryðjuverkum um árið.
Almenningur hefur verið hvattur
th samstarfs við her og lögreglu og
er beðinn um að hafa augun opin
gagnvart öllum grunsamlegum
pökkum og pinklum. Sérstakar orð-
sendingar er th dæmis að fmna í öll-
um neðanjarðarlestum þar að lút-
andi.
Meginþorri almennings virðist
fylgjandl þátttöku breska hersins í
átökunum og þegar fólk var beðið
um að gefa hlóð vegna hugsanlegra
meiðsla hermanna voru viðbrögðin
með óhkindum. Nokkrir mótmæla-
fundir og göngur hafa farið fram en
ekki hefur komið til vandræða á
þeim samkundum.
Áhugi á stríðinu er mikhl og senda
fjölmiðlar fréttir af atburðunum all-
an sólarhringinn. Reyndar finnst
sumum þingmönnum nóg um og þeir
krefjast þess að fréttaflutningur
verði skorinn niður enda sé hætta á
að óvinurinn geti fengið dýrmætar
upplýsingar með þessum hætti.
Aukin eftirspum eftir fréttum kah-
ar á aukið framboð. Hiö góðkunna
dagblað The Evening Standard sá
ástæðu,til að gefa út aukablað á laug-
ardag með frekari fregnum. Blaðið
kemur að öhu jöfnu ekki út þennan
dag. Lloyds tryggingafélagið hefur
hka haft í nógu að snúast. í fyrsta
skipti í 300 ára sögu þess var opið
um helgi um helgina.
„Staying alive“
Tihitssemin við hermennina og
ættingja þeirra er mikil. Útvarps-
stöðvar hafa th að mynda ákveðið
að leika ekki ákveðin lög sem ekki
eru talin viðeigandi vegna ástands-
ind. Má þar nefna „We didn’t start
the fire“ með Bhly Joel og „Staying
ahve“ með Bee Gees. Popparar hafa
margir hverjir ákveðið að nalda síg
heima og flestar af stórstjörnunum
sem áttu að mæta í poppveislu í
Cannes í Frakklandi hafa ákveðið að
halda sig heima af ótta við hryðju-
verk. íþróttahetjurnar eru einnig
varkárar en breskir krikketspilarar
hafa aflýst keppnisferð th Pakistan.
Ekki hefur borið á skorti á nauð-
synjum og almenningur virðist hafa
haldið ró sinni ólíkt því sem gerðist
víða í Evrópu. Fréttir hermdu að
ýmsar nauðsynjavörur hefðu þar
selst upp, eins og kafíi, sykur og
smjör. I Frakklandi var talað um að
borið hefði á vínskorti og sala pasta-
rétta á Ítalíu tók mikinn kipp í kjöl-
far stríðsins.
Brethr virðast almennt halda ró
sinni og þrátt fyrir ítrekaðar hótanir
um hryðjuverk hafa ekki borist
fregnir af shku - ennþá.
Samkvœmt*könnun Dagblaðsins
8. janúar, eru ódýrustu fermingar
myndatökurnar okkar, þcer
langsamlega ódýrustu sem
finnast á markaðnum,
Hjá okkurfœrðu : 6 myndir
9 x 12 cm og 2 stœkkanir
20 x 25 cm
Ljósmyndastofurnar:
Barna og fjölskylduljósmyndir
sími 1 26 44
Ljósmyndastofan Mynd
sími 5 42 07
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími 4 30 20
íraka fara eftir öllum alþjóðlegum
samningum um meðferð stríðsfanga.
Er fréttamenn spurðu hann þá hvers
vegna brotið hefði verið á alþjóðleg-
um samningum með því að sýna
bandarísku og bresku fiugmennina í
sjónvarpi hraðaði sendifulltrúinn sér
burtu.
Bæði bandaríska varnarmálaráðu-
neytið og það breska hafa lagt á það
áherslu að íröskum stríðsfóngum
verði ekki misþyrmt heldur farið eft-
ir ákvæðum Genfarsáttmálans.
Bandamenn hafa sennilega tekið að
minnsta kosti tuttugu íraska her-
menn th fanga undanfama daga og
hafa komið upp sérstökum búðum í
Saudi-Arabíu þar sem þeim er haldið.
Breski flugmaðurinn John Peters sneri ekki heim úr árásarferð þann 17. Reuter og NTB
janúar siðastliðinn. Hann er nú stríðsfangi íraka og var meðal þeirra sem
neyddur var til að koma fram i íraska sjónvarpinu. Símamynd Reuter
SHARP VC A105, eitt tæki úr magnsendingu sem nú er í boði með 20% afslættii
MeS afar haastæðum samningum við framleiðanda, tókst okkur að tryggja viðskiptavinum okkar, möguleika ó að
eignast þetta rróbæra myndbandstæki ó ótrúlega góðu tilboðsverði. Þú sparar ríflega ótta þúsund og óttahundruð
kronur!
Stafræn leitarforritun.
HljóSI aus vinnsla.
Alsjálfvirkt.
Sýnir aðgerS á skjá
365 daga minni á 8 mism. tímum
HQ i
Kapalsjónvarpsmóttakari. A
Barnalæsing. Æ
Teljari tíM
SKART tengi. JM
Margir tengimöguleikar. Æggt
Hljóöláta tfmamótatækið.
Hágæða myndhaus.
Greiðslukjör: VISA, EURO, SAMKORT OG MUNALAN
Ársábyrgb og T 0 daga skilaréttur.
VERSLUNIN
Hverfisgata 105, sími: 25999