Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991. 11 Utlönd Júgóslavneski herinn í viðbragðsstööu í Króatíu: Forseti lýðveldisins varar við hörmungum Forseti lýöveldisins Króatíu í Júgóslavíu hefur beðiö herinn um aö láta ekki til skarar skríöa í lýö- veldinu þar sem hemaðaraðgerðir myndu leiða til mikilla hörmunga. Orö forsetans eiga rætur að rekja til ótta viö aö júgóslavneska hernum yrði fyrirskipað aö afvopna sjálf- stæðar hersveitir í Króatíu yrðu þær ekki við beiðni um að skila af sér vopnum sínum. Lögregla er í viðbragðsstöðu í - segir stjómvöld leita tylliástæðna til valdbeitingar Króatíu og Slóveníu, þeim lýðveldum Júgóslavíu sem standa mest uppi í hárinu á sambandsstjórninni. For- seti Króatíu hefur varað herinn við að afvopna lögreglu í Zagreb, höfuð- borg Króatíu. Leiðtogar Króatíu og Slóveníu hafa sagt að þeir tryðu ekki á ofbeldisað- gerðir hersins gegn lýðveldunum en ef svo færi yröi svarað í sömu mynt. Leiðtogar í lýöveldinu Bosníu styðja Króata og Slóvena gagnvart mögu- legum hernaðaraðgerðum. Reiði er mikil í yfirstjórn Júgóslav- íu vegna sjálfstæðistilhneiginga í Slóveníu óg Króatíu. Óttast menn vopnaða uppreisn. Því var skipun um afvopnun gefin út 9. janúar. Slóvenía og Króatía hafa farið sínar eigin leiðir í síauknum mæli eftir að 45 ára kommúnistasfjórn leið undir lok í Júgóslavíu í fyrra. Ráðamenn lýðveldanna tveggja vilja aö hin sex lýðveldi Júgóslavíu verði framvegis í lauslegu ríkjasambandi þar sem hvert lýðveldi varöveitir sjálfstæði sitt. Yfirstjórn Júgóslavíu og ráða- menn í Serbíu, stærsta lýðveldinu, vilja sterkari miðstýringu. Herklædd lögregla gætir þinghúss- ins og sjónvarpshússins í Zagreb. Að sögn yfirmanna lögreglunnar ber þeim að skjóta ef á þá er ráðist. Varainnanríkisráðherra Króata hefur sagt aö varalið lögreglu verði kallað út komi til átaka við herinn. Hann sagði marga Króata hafa skilað ólöglegum vopnum en margir héldu þeim áfram vegna ótta um átök. Væru margir hræddir og hefði fólk hamstrað nauðsynjar. Hann sagði að í þessu máli væri ekki tekist á um ólögleg vopn heldur væri herinn að leita tylliástæðna til valdbeitingar í Króatíu í þeim tilgangi að stöðva hraða lýðræðisþróun þar. Reuter Haraldur V. sór eið sem konungur Noregs Haraldur V. sór eið sem konung- ur Noregs í norska stórþinginu í gærdag. Það var um hádegisbil sem Haraldur og Sonja drottning komu akandi niður Karls Jóhannsgötu, í átt að þinghúsinu. Þúsundir manna höfðu staðið og beðið konungs- hjónanna og þegar bíll þeirra leið hjá mannfjöldanum ríkti þögn til minningar um hinn látna konung, Ólaf V. í fyrsta skipti í 69 ár kom konung: ur í þingið í fór konu sinnar. Sonja drottning stóð svartklædd viö hlið manns síns meðan á athöfninni stóð. Meðal viðstaddra voru þing- menn, hæstaréttarforsetar og sendiherrar erlendra ríkja. Áður en Haraldur sór eið sem konungur las Jo Benkow, forseti þingsins, formlega tilkynningu um lát Ólafs konungs og tilkynnti kon- ungsskiptin. Eftir að Haraldur V. hafði svarið eiðinn sem konungur Noregs sagð- ist hann vona að hið góða samband sem verið hafði milli þingsins og föður síns, og afa þar á undan, yrði áfram og þróaðist í takt við þau verkefni sem norska þjóðin stæði fammi fyrir í framtíðinni. Þingforseti minntist síðan Ólafs konungs og talaði loks til hins nýja konungs. Kom fram að Haraldur tók við krúnunni á sama aldri og faðir hans og væri vel undir starf- ann búinn. Lagði hann áherslu á þátttöku Sonju í athöfninni. Eftir athöfnina, sem tók um 20 mínútur, yfirgáfu konungshjónin þinghúsið ogfundivarslitið. Ritzau Haraldur V. Norgskonungur yfirgefur þinghúsið i Osló i gær eftir að hafa svarið eið sem konungur Noregs. Símamynd Reuter Valdbeiting við Eystrasalt dregur dilk á eftir sér: Kornviðskipti Sovétmanna við Bandaríkin í hættu Milljónaviðskipti Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, þar sem Sovétmenn kaupa kom, eru í stórhættu. Valda aðgerðir Sovétmanna í Eystrasalts- ríkjunum þar miklu auk vöntunar Sovétmanna á beinhörðum gjaldeyri í viðskiptunum. Meirihluti útflutn- ings Bandaríkjanna til Sovétríkj- anna er kom. Á síðasta ári keyptu Sovétmenn bandarískt kom fyrir 3,4 milljarða Bandaríkjadollara og fyrir 4,3 milljarða árið á undan. Bush Bandaríkjaforseti hefur hvatt sovéska ráðamenn til að forðast vald- beitingu í Eystrasaltsríkjunum og segir áhyggjur vegna ástandsins þar vaxandi. Þær fréttir bámst úr Hvíta húsinu í síðustu viku að efnahagsað- stoð við Sovétríkin yrði jafnvel hætt vegna hægrisveiflu í stjórn Mikhails Gorbatsjovs. Bandarískir kornkaupmenn sjá fyrir sér mikla óvissu í viðskiptum við Sovétríkin ekki síst eftir að bandaríska þingið hvatti Bush til að hætta efnahagsaðstoð við Sovét- menn. Við bætist mikil samkeppni frá Evrópu og Suður-Ameríku en ríki þar bjóða Sovétmönnum milljarða dollara lán til kaupa á landbúnaðar- afurðum. Reuter Búlagría: Sovéskur f lugræn- ingi yf irbugaður Búlgarskar öryggissveitir yfir- buguðu sovéskan flugræningja og frelsuðu 151 farþega úr gíslingu í borginni Burgas í gærdag. Var flug- ræninginn yflrbugaður þremur tím- um eftir að sovésk vél, sem hann rændi, hafði lent í Burgas. Véhnni var rænt í áætlunarflugi milli Tashkent og Odessu. Flugræn- inginn skipaði áhöfninni að fljúga til Instanbul í Tyrklandi en þar var vél- inni neitað um lendingu. Flugræn- inginn haföi pakka í fórum sínum, sem ekki var vitað hvað var í, og hótaöi að sprengja vélina í loft upp yrði áhöfnin ekki við fyrirmælum hans. Eftir lendingu í Burgas var vélin samstundis umkringd og hófust samningaviðræður við ræningjann. Hann lét sig ekki og létu öryggis- sveitir því til skarar skríöa. Meðal 151 farþega vélarinnar voru fimm börn. Ræninginn mun vera sovéskur af- brotamaður sem nýlega var látinn laus úr fangelsi. Reuter iiii iy ii ™' Arshátíðir, afmæli, þorrablot Nefndu það, við framkvæmdum það! Veitingahús Laugavegi 45 (uppi) s. 11220, 626120 Vinningstölur laugardaginn 19- janúar 1993 i®# VINNINGAR FJÖLDI | VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN J VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 I 2.897.252,- O pws(agg(fi 4. 4af5^fM 2 251.262,- 3. 4af 5 128 6.772,- 4. 3af 5 4.658 434,- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 6.288.164,- kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.