Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Page 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991.
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991.
17
Iþróttir
Iþróttir
Sport-
stúfar
.... DV fékk rangar upp-
ílS lýsingar um úrslit í
//, C-riðli 4. deildar ís-
landsmótsins í innan-
hússknattspyrnu sem birtust í
blaðinu í gær. Rétt lokastaða í
riðlinum varð þessi:
Höttur.......3 3 0 0 8-5 6
Leiknir F....3 2 0 1 12-7 4
Grundarfj....3 0 1 2 10-14 1
Leiftri......3 0 1 2 9-13 1
• Þá misritaðist nafn Leiftra úr
Reykjavík og það skal því tekið
fram að ekki var um Leiftur frá
Ólafsfirði að ræða.
Ólafur Haukur vann
Bikarglímu Reykjavikur
• Bikarglíma Reykjavíkur fór
fram í fyrsta skipti í íþróttahúsi
Melaskólans um liðna helgi.
Keppt var í fimm flokkum og alls
mættu 17 keppendur til mótsins
frá tveimur félögum, KR og Vík-
verja.
Ólafur Haukur Ólafsson, KR,
besti glímumaöur landsins um
nokkurt skeið, vann öruggan sig-
ur í karlaflokki og hlaut 6 vinn-
inga. Vann hann allar glímur sín-
ar. í öðru sæti varð Orri Björns-
son, KR, með 5 vinninga og Ingi-
bergur Sigurðsson, Víkverja varð
þriðji með 4 vinninga. Úrslit í
öðrum flokkum urðu sem hér
segir:
Flokkur 16-17 ára
1. IngvarSnæbjörnsson........KR
2. Sigurður Sigfússon.......KR
3. Björgvin Ó. Magnússon....KR
Flokkur 14-15 ára
1. Jóhannes Oddsson..........KR
2. Haukur Claessen..........KR
Flokkur 12-13 ára
1. Pétur K. Guðmarsson.......KR
2. Kristinn Magnússon.......KR
Flokkur 10-11 ára
1. Hörður Arnarsson..........KR
2. Örn Þorsteinsson.........KR
Broddi tapaði fyrir
Árna Þór í úrslitum
• íslandsmeistarinn í einliðaleik
karla í badminton, Broddi Kristj-
ánsson, TBR, tapaöi óvænt í úr-
slitaviðureign opna meistara-
mótsins hjá KR á dögunum.
Broddi lék til úrslita gegn Áma
Þór Hallgrímssyni og vann Ámi
Þór nokkuð öruggan sigur, 15-7
og 15-8. Ámi Þór lék mjög vel á
mótinu og hafði frekar lítið fyrir
því að sigra Guðmund Adolfsson
í undanúrslitaleik, 15-3 og 15-12.
• í einliðaleik kvenna vann
Elsa Nielsen stöllu sína Bimu
Petersen í úrslitaleik 11-5 og
12-10.
• í aukaflokki karla sigraði
Tryggvi Nielsen, TBR, Hjalta
Helgason, KR, í úrslitum 15-5 og
15-7.
• í aukaflokki kvenna sigraði
Áslaug Jónsdóttir, TBR, Bryndísi
Baldvinsdóttur í úrslitum, 11-2
og 12-10.
Stprsigur HK
gegn Armenningum
• HK úr Kópavogi
vann stórsigur á Ár-
menningum j 2. deild
íslandsmótsins í hand-
knattleik í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Lokatölur leiksins
urðu 15-28. Þór frá Akureyri og
HK standa því jöfn í efsta sæti
deildarinnar, bæði liðið hafá hlot-
ið 25 stig að loknum 14 leikjum.
Breiðablik kemur í þriðja sæti
með 21 stig.
Þjálfara Cesena
sagt upp störfum
• Marcello Lippi,
þjálfari ítalska hðsins
/r • Cesena, var rekinn frá
“^ félaginu í gær. Cesena
er í neðsta sæti í 1. deild, hefur
aðeins hlotið níu stig úr 17 leikj-
um. Giampiero Ceccarelh var
ráðinn þjálfari í stað Lippi.
*
„Peter Shilton er
búinn að vera“
- segir Brian Clough um markvörðinn fræga
Brian Clough, hinn frægi fram-
kvæmdastjóri enska knattspyrnu-
Uðsins Nottingham Forest, sagði á
sunnudaginn að Peter Shilton, fyrr-
um landsliðsmarkvörður Englend-
inga, væri búinn að vera.
Shilton, sem er 41 árs og ver mark
Derby County, náði ekki að verja frá
Gary Lineker þegar sá síðarnefndi
skoraði sigurmark Tottenham í 1.
deildar leik liðanna á sunnudaginn.
Clough aðstoðaði sjónvarpsmann viö
beina útsendingu frá leiknum og
sagði: „Shilton er búinn að vera.
Fyrir ári hefði hann varið þetta
skot.“
Lineker, sem tók í haust við fyrir-
Uðasföðunni í enska landsliðinu af
Shilton, sagði hins vegar eftir leik-
inn: „Ég get ekki séð að Peter hefði
getað komið í veg fyrir mark og hann
var mjög nálægt því að veija. Mér
fannst hann eiga stórleik í markinu."
• Peter Shilton, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður Englendinga.
Stuðningsmenn Derby
vilja Maxwell burt
Eftir leikinn varð stór hópur stuðn-
ingsmanna Derby eftir á áhorfenda-
pöllunum og krafðist þess að Robert
Maxwell, stjórnarformaður félags-
ins, segði af sér. MótmæUn stóðu í
rúma klukkustund en Brian Clough,
sem stýrði Derby í eina tíð, og Arthur
Cox, framkvæmdastjóri félagsins,
gátu að lokum talað stuðningsmenn-
ina til og fengu þá til að yfirgefa leik-
vanginn.
Derby er nú næstneðst í 1. deild og
á greinilega erfiða faUbaráttu fyrir
höndum næstu vikurnar. Aðdáendur
félagsins eru reiðir MaxweU þar sem
hann hefur mörg járn í eldinum og
•aðstoðaði einmitt Tottenham við að
kaupa Gary Lineker frá Barcelona á
sínum tíma!
-VS
Heimsmeistaramótið 1 alpagreinum:
Grínið kom svissneskum
útvarpsmanni í koll
- sagðist vera með sprengju í töskunni sinni
Framkvæmdanefnd heimsmeist-
aramótsins í alpagreinum á skíðum,
sem hófst í Saalbach í Austurríki í
morgun, hætti við að halda sérstaka
opnunarathöfn í gærkvöldi. Tals-
maður nefndarinnar sagði að ástæð-
urnar hefðu verið tvær, ótti við
hermdarverk vegna Persaflóastríðs-
ins og dauðaslysið sem varð í Sviss
á föstudaginn þegar tvítugur Austur-
ríkismaður, Gernot Reinstadler, lést
eftir fall í brunkeppni.
Öryggisráðstafanir voru hertar í
Saalbach í gær þegar fregnir bárust
um að ellefu íranar, sem taldir eru
styðja Saddam Hussein íraksforseta,
hefðu verið handteknir í landinu,
grunaðir um að vera að undirbúa
hermdarverk.
600 öryggisverðir
hafa sérhæft sig
Um 600 öryggisverðir, þar á meðal
sveit sem hefur sérhæft sig í að koma
í veg fyrir hryðjuverk, gæta kepp-
endanna í Saalbach dag og nótt.
Skipuleggjendur keppninnar sögðu í
gær að allar 48 þjóðirnar sem taka
ætluðu þátt myndu mæta til leiks,
þar á meðal Bandaríkjamenn sem
hurfu heim á leið með alla keppend-
ur sína í heimsbikarkeppninni í síð-
usiu viku.
Bandaríska'Sveitin var þó ekki bú-
in að gera vart við sig í Saalbach í
gærkvöldi.
Grínið kom frétta-
manninum í koll
Svissneskur útvarpsfréttamaður
komst aö því í gær að það borgar sig
ekki að hafa ákveðna hluti í flimting-
um þegar heimsástandið er eins og
það er í dag. Hann var á leið til Sa-
albach til að fylgjast með mótinu og
sagði í gríni við öryggisverði á flug-
vellinum í heimalandinu að hann
væri með sprengju í töskunni. Það
leiddi til þess að allir farþegarnir í
vélinni urðu að fara frá borði og bera
kennsl á farangur sinn, véhn tafðist
um 35 mínútur og þegar hún fór í
loftið var fréttamaðurinn skilinn eft-
ir til frekari yfirheyrslu!
• Engir íslendingar keppa í Sa-
albach þar sem Skíðasamband Is-
lands ákvað fyrir nokkru síðan að
taka ekki þátt í mótinu að þessu
sinni. -VS
Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafirði:
Helga Sigurðardóttir, sundkona í
Vestra, hlaut titilinn íþróttamaður
ísafjarðar 1990, og var þetta í þriðja
sinn sem henni hlotnast þessi viður-
kenning. Að venju var tilkynnt um
útnefninguna í veglegu samsæti sem
bæjarstjórn ísafjarðar hélt íþrótta-
fólki á Hótel ísafirði, og var þá jafn-
framt fjöldi annarra ísfirskra
íþróttamanna heiðraður fyrir góðan
árangur á liðnu ári.
Ólafur Helgi Kjartansson, forseti
bæjarstjómar, lýsti kjöri íþróttamanns
ísafjarðar og rakti í stuttu máli það
helsta sem Helga Sigurðardóttir vann
sér til frægðar á árinu 1990.
• Helga Sigurðardóttir og Ólafur Kjartansson, forseti bæjarstjórnar, við
útnefningu íþróttamanns ísafjarðar 1990.
Helga íþróttamaður
ísafjarðar 1990
- hlotnast þessi heiður í þriðja sinn
Þrefaldur meistari
á íslandsmótinu utanhúss
Hún varð þrefaldur íslandsmeistari
á innanhússmeistaramóti íslands,
þrefaldur íslandsmeistari á íslands-
mótinu utanhúss, var ein af fimm í
A-landsliðinu í sundi 1990, var valinn
til þátttöku í heimsmeistaramótinu í
sundi, og var stigahæsti sundmaður-
inn í bikarkeppni Sundsambands ís-
lands í 1. deild, og þá ekki allt tal-
ið.
Helga byijaði að æfa sund árið 1982
og setti sitt fyrsta íslandsmet árið
1984. Árið eftir var hún valin í lands-
lið í fyrsta sinn og hefur verið einn
af burðarásum þess síðan.
Badmintonsamband Islands hefur hætt
við að senda íslenska landsliðið til þátt-
töku í Evrópukeppni B-þjóða, sem fram fer
í Búlgaríu, vegna Persaflóastríðsins.
í fréttatilkynningu, sem BSÍ sendi frá sér
í gær, segir: „Stjórn Badmintonsambands
íslands ákvað á fundi í gærkvöldi að hætta
við fyrirhugaða þátttöku í Evrópukeppni
B-þjóða í badminton.
Keppnin fer fram dagana 25.-27. janúar
í Vama í Búlgaríu, sem er nálægt norður-
landamærum Tyrklands.
Ástæðan fyrir þessari ákvörðun er stríð-
ið við Persaflóa. Talið var að mótið væri
óþægilega nærri líklegum stríðsátökum
og eins var ferðin löng og með nokkrum
millilendingum, og með tilliti til hermdar-
verka ekki talið ömggt að ferðast nú.
Vitað er að fleiri af fyrirhuguðum 19
þátttökuþjóðum hafa einnig hætt við þátt-
töku.“
-VS
1. deild - kvennahandbolti:
Víkingur sigraði FH
Einn leikur fór fram í 1. deild kvenna í handknattleik í gærkvöldi, Víkingur tók
á móti FH í Höllinni og sigraðu heimamenn 23-19. Fyrri hálfleikur fór rólega af
stað og liöin skiptust á að skora, var staöan í hálfleik 10-9 Víking í vil. Víkingur
kom mun ákveönarí til leiks i síðari hálfleik og náði að komast í 14-10 en FH-stúlk-
ur náðu aö núnnka munínn aftur í eitt mark, 14-13. Víkingsliöið náði sér svo aftur
á strik og sígraði í leiknum 23-19.
Sigrún i Víkingsmarkinu varði ágætlega á köflum þá var Halla sterk og Svava
náði sér á strik eftir frekar slæma byrjun. Þær Rut og Björg vora bestar í FH-Iiðinu.
• Mörk Víkings: Halla Helgadóttir 7/3, Andrea Atladóttir 4, Svava Sigurðardóttir
4, Inga Lára Þórisdóttir 4/2, Heiða Erlingsdóttir 3, Matthildur Hannesdóttir 1.
• Mörk FH: Rut Baldursdóttir 6/2, Björg Gilsdóttir 4, Kristín Pétursdóttir 3, Eva
Baldursdóttir 2, Hildur Harðardóttir 2/1, Arndís Aradóttir 1, María Sigurðardóttir 1.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
ingar Irfa
enn i voninm
- unnu óvæntan sigur á Haukum, 88-80,1 gærkvöldi
IR-ingar sigruðu í sínum öðrum
leik í vetur er þeir lögðu Hauka að
velli, í Seljaskóla í gærkvöldi, 88-80.
Breiðhyltingar byrjuðu af miklum
krafti og náðu fljótt öruggu forskoti
sem þeir héldu út nær allan hálfleik-
inn en góður kafli hjá Haukum í lok
fyrri hálfleiks varð til þess að mun-
urinn var einungis þrjú stig í hálf-
leik, 47-44.
Hvatning áhangenda
ÍR spilaði mikið inn í
Haukarnir byijuðu þann seinni eins
og þeir enduðu þann fyrri og breyttu
stöðunni á aðeins einni mín. í 47-51. -
Þar héldu margir að leik þessum
væri lokið en ÍR-ingar voru á öðru
máli og náðu að komast yfir þegar
níu mín. voru eftir 67-66 og spilaði
þar hvatning áhangenda ÍR-inga
mikið inní.
IR-ingar juku síðan forskot sitt
jafnt og þétt og það voru síðan fjögur
vitaskot frá þeim Birni Leóssyni og
Frank Booker er kórónaði sigur ÍR-
inga. Breiðhyltingar eiga hrós skihð
fyrir þennan leik. Þeir spiluðu sinn
besta leik a tímabilinu og ennfremur
sem ein heild og höfðu gaman af
leiknum.
Mótspyrnan kom
Haukum í opna skjöldu
Björn Steffensen spilaði mjög vel og
þó aðallega í fyrri hálfleik og ekki
er annað hægt en að minnast á þátt
Frank Bookers sem er mikil lyfti-
stöng fyrir ÍR-liðið en í heildina spil-
aðu IR-ingar sem ein heild og halda
enn í vonina að vera áfram í úrvals-
deildinni. Mótspyrna ÍR-ingar kom
Haukum mikið á óvart og er líklegt
aö með þessu tapi hafl þeir klúðrað
öðru sætinu í riðlinum, en þó getur
allt gerst.
Damon Vance stóð upp úr Uði
Hauka og varnarleikur Hennings
Henningssonar var mjög sterkur og
náði hann að halda Booker niðri stór-
an hluta leiksins.
• Stig ÍR: Frank Booker 40, Björn
Steffensen 20, Karl Guðlaugsson 9,
Björn Leósson 8, Hilmar Gunnarsson
5, Halldór Hreinsson 2, Ragnar
Torfason 2, Eggert Garðarsson 2.
• Stig Hauka: Damon Vance 32,
Pálmar Sigurðsson 16, Henning
Henningsson 15, Jón Arnar Ingvars-
son 15, Pétur Ingvarsson 2.
• Dómarar voru Jón Otti Ólafsson
og Guðmundur S. Maríasson og áttu
þeir sæmilegan dag:
KG/JKS
Forest og Palace mætast í þriðja sinn
Nottingham Forest og Crystal
Palace áttust við ööru sinni í 3. um-
ferð ensku bikarkeppninnar í gær-
kvöldi. Jafntefli varð, 2-2, og þurfa
liðin að eigast við í þriðja sinn og
verður aftur leikið á City Ground
þann 23. janúar. Jafnt var eftir venju-
legan leiktíma í gærkvöldi, 1-1, og
þurfti því að framlengja.
Stuart Pearce og Terry Wilson
skoruðu fyrir Forest en Ian Wright
pg John Salako gerðu mörk Palace.
í sömu keppni vann Rotherham lið
Swansea, 4-0, og Swindon vann Ori-
ent, 1-0. -JKS
• Frank Booker i liöi ÍR reynir körfukskot en Damon Vance er til varnar. Þeir voru
atkvæðamestir í liðum sínum í gærkvöldi. Booker skoraði 40 stig en Vance 32.
DV-mynd GS
Evrópumótið í badminton:
Landsliðið hættir
við þátttöku
- vegna stríðsins við Persaflóa
Gunnar SveinbjöxTiBson, DV, Englandi:
t......% John Silk, stjórnar-
I I formaður West Brom-
I//• I wich, hefur borið til
^ 1 baka aUar sögusagnir
um aö félagið sé að reyna að fá
Arthur Cox, stjóra Derby, til að
taka við liðinu eftir að Brian Tal-
bot var látinn taka pokann snm.
Fréttir hermdu að West Brom-
wich væri tilbúið að greiða Derby
umtalsverðar skaðabætur fyrír
aö hrifsa af félaginu ffam-
kvæmdastjórann.
Hræddir við
herkvaðningu
Afleiðingar átakanna við Persa-
flóa teygja anga sína víða, Nokkr-
ir leikmenn í ensku deildakeppn-
inni eiga á hættu’að vera kaUaðir
í herínn og þar á meðal eru þeir
Steve Walsh og Michael Cheet-
ham hjá Cambridge. Félagamir
eru auðvitað áhyggjufullir yfir
gangi mála og Cheetham segist
fá skjálfta í hnén í hvert sinn sem
hann sjái póstbúrðarmanninn,
sem ber út herkvaðningamar.
John Bond tekínn
við Shrewsbury
Shrewsbury hefur rekið fram-
kvæmdastjóra sinn, Asa Hart-
ford, og sett þjálfarann, John
Bond, í stöðuna um stundarsakir.
Shrewsbury hefur gengiö afarilla
það sem af er þessu keppnistíma-
biU og er nú í fjórða neðsta sæti
3. deUdar. Bond er fyrram fram-
kvæmdastjóri Norwich og Manc-
hester City en Hartford gerði
garðinn áður frægan með félög-
um á borð við Manchester City
og Everton.
Hvað gerir Þór gegn IBK?
í kvöld fer fram einn leikur í úr-
valsdefldinni í körfuknattleik. Þór
frá Akureyri leikur þá gegn Keflavik
og fer leikurinn fram í íþróttahöll-
inni á Akureyri og hefst klukkan
hálf átta.
Þórsarar komu nokkuð á óvart um
síðustu helgi er þeir lögðu lið Tinda-
stóls að velli og verður fróðlegt að
sjá hvað Þórsarar gera gegn Keflvík-
ingum í kvöld.
• í kvöld fara einnig fram tveir
leikir í bikarkeppni KKÍ. Grindavík
lgikur gegn B-Uði Njarðvíkinga kl.
20 og í kvennaflokki leika Grindavík
ogKRkl.18. -SK
Norrænu íþróttasamböndin:
Einhuga samstaða við
samtökin í Eistlandi
FuUtrúar norrænna íþróttasam-
banda, sérsambanda og ólympíu-
nefnda komu saman til fundar í
Kaupmannahöfn um helgina. Fund-
urinn lýsti yfir einhuga samstöðu
sinni við íþróttasamtökin í Eistlandi,
Lettlandi og Litháen og lét í ljósi von
sína um aukið íþróttasamstarf Norð-
urlandanna og Eystrasaltsríkjanna.
Þetta kemur fram í fréttatUkynn-
ingu sem íþróttasambands íslands
sendi frá sér í gær og þar segir enn-
fremur: „Fyrir fundinum lá jafn-
framt vUjayfirlýsing íþróttanefndar
Sovétríkjanna í Moskvu um aukna
þátttöku Eystrasaltsríkjanna í nor-
rænu íþróttasamstarfi, bæði í
íþróttamótum og á félagslegum vett-
vangi.“
Það vora fulltrúar frá Danmörku,
íslandi, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð,
Færeyjum og Grænlandi sem sátu
fundinn.
-VS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka verður hald-
inn nk. laugardag, 26. jan., kl. 14.00 í félagsheimilinu.
Stjórnin
Sport-
stúfar
-CT
u • Portland TraU Blaz-
ers hélt í fyrrinótt
// áfram sigurgöngu
—”sinni í bandarísku
NBA-deUdinni í körfuknattleik.
Portland fékk þá Milwaukee
Bucks í heimsókn og sigraði eftir
harða baráttu, 116-112.
Giants lagði 49ers
og mætir Buffalo
• New York Giants sigraði San
Francisco 49ers, 15-13, í undanúr-
slitum NFL-deildarinnar í amer-
íska fótboltanum í fyrrinótt. Þar
með varð draumur 49ers um að
hreppa meistaratitUinn þriðja
árið í röð að engu, en Giants
mætir Buffalo Bills í úrslitaleikn-
um, „Super-Bowl,“ á sunnudag-
inn kemur. Eins og sagt var frá
í DV í gær vann Buffalo stórsigur
á Los Angeles Raiders, 51-3, í hin-
um leik undanúrshtanna á
sunnudaginn.
19 ára áhorfandi
lét lífið í Grikklandi
• 19 ára gamall grískur knatt-
spyrnuáhugamaður lét lífið á leik
1. deildar liðanna AEK og Olymp-
iakos í Grikklandi á dögunum.
Leikurinn fór fram í Aþenu og
var knattspyrnuáhugamaðurinn
á leið inn á leikvanginn er hann
fékk flugelda í magann. Hann var
í skyndi fluttur á sjúkrahús en
léest þar á skurðarborði. Mikil
ólæti voru á umræddum leik á
heimavelli AEK og meðal annars
voru sprengdar miklar reyk-
bombur og varð að flauta leikinn
af fjórum mínútum áður en
venjulegum leiktíma lauk.
Per Frimann fær
fyrsta ágóðaleikinn
• Danski knattspyrnumaðurinn,
Per Frimann, sem leikið hefur
með sterkum liðum í Evrópu,
meðal annars lengi við hlið Arn-
órs Guðjohnsen hjá belgíska lið-
inu Anderlecht, hefur gefið upp
alla von um að komast að hjá
toppliðum framar. Ástæðan eru
endalaus meiðsli en þessi snjalli
knattspyrnumaður hefur verið
mjög óheppinn með meiðsli á sín-
um ferli. Nú hefur verið ákveðið
að Frimann fái ágóöaleik í sum-
ar, fyrstur danskra knattspyrnu-
manna. Frimann mun fá allan
ágóða af leiknum sem verður á
milh danska landshðsins sem sló
í gegn á heimsmeistarakeppninni
í Mexíkó 1986 og dönsku meistar-
anna Bröndby. Viðureignin fer
fram 26. júní.
Helsingör efst í
danska handknattleiknum
7• Helsingör IF er sem
jr” stendur í efsta sæti í
// 1. deildinni dönsku í
“handknattleik. Helsin-
gör, sem hefur dönsku landsliðs-
mennina Lars Lundbye og
Flemming Hansen innanborðs.
Helsingör er með 20 stig þegar 12
umferðum er lokið. í öðru sæti
er GOG með 19 stig. í þriðja sæti
er Kolding IF með 18 stig. Með
Kolding leika meðal annars þeir
Hans Peter Munk Andersen og
Otto Mertz, báðir danskir lands-
liðsmenn. Staða efstu liða er
þannig eftir 12 umferðir:
20
19
18
15
12
12
• Þessir eru markahæstir:
John Lauridsen, Ribe....- 71
Kim G. Jacobsen, Tarup......65
Lars Walther, Brönderslev...63
PerSabroe, GOG..............62
Flemming Hansen, Helsingör ...61
Helsingör .12 276-240
GOG .12 284-230
Kolding .12 276-237
Gladsaxe .12 249-248
Virum .12 238-248
Ribe .12 238-250