Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Side 26
26
ÞRIÐJUDÁGÍJR 22. JANUAR' 1991.
Afmæli
Þórarinn Þórarinsson
Þórarinn Þórarinsson, fyrrum
bóndi í Vogum í Kelduhverfi, nú til
heimilis aö Hvammi, dvalarheimili
aldraöra á Húsavík, er áttræður í
dag.
Starfsferill
Þórarinn fæddist aö Grásíöu í
Kelduhverfi. Hann missti ungur
fööur sinn en ólst upp á Grásíðu hjá
móöur sinni ásamt þremur yngri
sy stkinum en móöir hans stóö
áfram fyrir búi eftir lát manns síns.
Að loknu barnaskólanámi var
Þór arinn í unglingaskóla í Lundi í
Öxarfirði í þrjá mánuöi í ársbyrjun
1930 og í Laugaskóla veturinn
1930-31.
Er Þórarinn kvæntist hófu þau
hjónin búskap á Grásíðu og bjuggu
þar fyrstu árin en 1937 byggöu þau
nýbýhð Voga úr landi Grásíðu og
bjuggu þar til ársins 1981 er þau
fluttu í Hvamm, dvalarheimili aldr-
aöra á Húsavík. Þar hefur Þórarinn
búiö síðan en konu sína missti hann
1983.
Auk bústarfanna, sem lengst af
reyndust ærið dagsverk, sótti Þór-
arinn ýmsa vinnu utan heimilisins.
Á þeim árum voru ekki iðnaðar-
menn á hverju strái en tækninýj-
ungar að halda innreið sína. Vann
hann þá ásamt öðrum, m.a. við að
leggja vatnsmiðstöðvar í hús og
setja upp kokseldavélar á mörgum
bæjum.
Þórarinn gegndi mörgum félags-
og trúnaðarstörfum fyrir sveit sína
og hérað. Hann tók á yngri árum
þátt í íþróttum, starfaði í íþróttafé-
lagi og ungmennafélagi og sat þar í
stjóm um tíma. í stjóm búnaðarfé-
lagsins var hann í áratugi sem rit-
ari og forðagæslumaður í mörg ár.
Þá söng hann í Kirkjukór Garðs-
kirkju um áratuga skeið, var for-
maður kórsins um árabil og einnig
formaður Kirkjukórasambands
Norður-Þingeyinga í nokkur ár.
Hann var í mörg ár formaður sókn-
arnefndar og formaður áfengis-
varnanefndar. Þá endurskoðaði
hann reikninga Kelduneshrepps um
árabil og reikninga Kaupfélags
Norður-Þingeyinga í tíu ár. Þórar-
inn sat í skattanefnd Keldunes-
hrepps í áratugi og eftir að nefndin
var lögð niður vann hann í mörg ár
í hlutastarfl á skattstofunni á Húsa-
víkeðaframtil 1984.
Fjölskylda
Þórarinnkvæntist30.6.1934 Jó-
hönnu Haraldsdóttur frá Austur-
görðum í Kelduhverfi, f. 3.7.1900,
d. 1983, en hún var dóttir hjónanna
í Austurgörðum, Haralds Júlíusar
Ásmundssonar og Sigríðar Sigfús-
dóttur, sem þar bjuggu í þrjátíu ár.
Jóhanna var þriðja elst í hópi átta
systkina.
Þórarinn og Jóhanna eignuðust
íjóra syni: Þórarinn, f. 16.4.1935, b.
og bifreiðastjóri í Vogum, kvæntur
Maríu Pálsdóttur frá Hofi í Hjalta-
dal og eiga þau fimm börn; Haraldur
Björn, f. 15.4.1937, d. 13.8.1990, húsa-
smiður á Húsavík, en eftirhfandi
kona hans er Ásdís Kristjánsdóttir
frá Klambraseli í Aðaldal og eru
synir þeirra tveir; Sigurður Svavar,
f. 18.4.1939, fulltrúi sýslumanns á
Húsavík, kvæntur Hafdísi Jósteins-
dóttur frá Húsavík og eiga þau fjög-
ur börn; Guðmundur, f. 5.1.1946, b.
og bifreiðastjóri i Vogum, ókvæntur
og barnlaus. Langafabörn Þórarins
eru nú þrjú talsins.
Á heimili Þórarins og Jóhönnu í
Vogum dvöldu svo langdvölum auk
sonanna fjögurra Þorkell Halldórs-
son, sem kom þangað sumarið 1938,
þá sextán ára og heilsuveill vegna
ofnæmis en náði þar fullri heilsu
og átti þar heima í ellefu ár. Anna
Hjördís Sölvadóttir kom í Voga 1944,
ellefu ára, og ólst þar upp til fullorð-
insára. Þá flutti í Voga 1952 Jóhanna
Albína Jónsdóttir, þá öldruð og átti
Þórarinn Þórarinsson.
þar heimili og athvarf þangað til
hún flutti til sjúkrahúsvistar á
Húsavík 1974. Ýmsir dvöldu svo í
Vogum í skemmri tíma, t.d. sumar-
dvalarbörn í mörg sumur.
Systkini Þórarins: Kristbjörg, Þor-
björg og Þorgeir Einar.
Foreldrar Þórarins: Þórarinn Þór-
arinsson og síðari kona hans, Sigur-
rós Sigurgeirsdóttir.
í' dag dvelur Þórarinn á heimili
sona sinna og tengdadóttur heima í
Vogum og tekur þar á móti gestum.
Hjörleifur Sveinsson
Hjörleifur Sveinsson útgerðarmað-
ur, Keilufelli 10, Reykjavík, er ní-
ræðurámorgun.
Hjörleifur er fæddur í Selkoti und-
ir Eyjafjöllum og ólst þar upp.
Starfsferilll
Hjörleifur hefur skipstjórapróf og
var útgerðarmaður í Vestmannaeyj-
um 1922-1938. Hann var sjómaður í
Vestmannaeyjum 1921-1940 og vann
í verksmiðjunni Magna í Vest-
mannaeyjum 1940-1950. Hjörleifur
vann í smiðjunni í Fiskiðjunni í
Vestmannaeyjum 1950-1955, var
netamaður hjá syni sínum í Vest-
mannaeyjum 1955-1973.
Fjölskylda
Hjörleifur kvæntist 16. október
1926 Þóru Arnheiði Þorbjörnsdótt-
ur, f. 18. október 1903, d. 6. júlí 1970.
Foreldrar Þóru: Þorbjörn Eiríksáon
b. í Reyðarfirði, og Friöbjörg Einars-
dóttir. Börn Hjörleifs og Þóru eru:
Sveinn, f. 1. ágúst 1927, fyrrv. skip-
stjóri í Vestmannaeyjum, kvæntur
Aðalheiði Pétursdóttur; Anna, f. 31.
aprh 1929, póstmaður í Rvík, gift
Sigmundi Lárassyni múrarameist-
ara; Friðrik Ágúst, f. 16. nóvember
1930, sendibílstjóri í Rvík, kvæntur
Önnu Jóhönnu Oddgeirsdóttur
sjúkrarliða; Guðbjörg Marta, f. 20.
júlí 1932, fiskvinnslukona í Vest-
mannaeyjum, gift Agli Kristjáns-
syni húsasmið og Hjörleifur Þór, f.
7. mars 1940, d. 8. mars 1940.
. Systkini Hj örleifs: Guðrún, f. 25.
ágúst 1897, d. 25. maí 1988, gift Jóni
Hjörleifssyni, b. og oddvita í Skarðs-
hlíð; Guðjón, f. 30. ágúst 1898, d. 15.
maí 1968, sjómaður í Vestmannaeyj-
um, kvæntur Mörtu Eyjólfsdóttur;
Tómas, f. 14. ágúst 1903, d. 24. apríl
1988, sjómaður í Vestmannaeyjum,
kvæntur Líneyju Guðmundsdóttur;
Gróa, f. 18. júlí 1906, gift Gissuri
Gissurarsyni, er látinn, b. í Selkoti,
og Sigfús, f. 24. apríl 1907, sjómaður
í Vestmannaeyjum, kvæntur Guð-
rúnu Gissurardóttur.
Ætt
Foreldrar Hjörleifs voru Sveinn
Jónsson, f. 7. október 1874, d. 15. jan-
úar 1920, b. í Selkoti, og kona hans,
Anna Valgerður Tómasdóttir, f. 11.
ágúst 1871, d. 5. maí 1963. Sveinn var
sonur Jóns, b. á Lambafelli, Jóns-
sonar, b. á Heiðarseli, Jónssonar,
b. og hrepstjóra í Hlíð, Jónssonar,
b. í Eystri-Dal í Fljótshverfi, Eyjólfs-
sonar, b. í Eystri-Dal, Jónssonar, b.
áÞverá, Jónssonar.
Arnheiður var dóttir Tómasar, b.
á Raufarfelli, Stefánssonar, b. og
stúdentsd Selkoti, Ólafssonar, gull-
smiðs í Selkoti, Jónssonr, lögréttu-
manns í Selkoti, ísleifssonar, ætt-
Hjörleifur Sveinsson.
föður Selkotsættarinnar. Móðir
Stefáns var Guðlaug Stefánsdótir,
stiftprófasts í Laufási, Einarssonar
og konu hans, Jórannar Steinsdótt-
ur, biskups á Hólum, Jónssonar.
Móðir Tómasar var Anna Jónsdótt-
ir, prests í Miðmörk, Jónssonar og
konu hans, Ingveldar, systur Bene-
dikts, afa Benedikts Sveinssonar al-
þingismanns, föður Einars skálds.
Ingveldur var dóttir Sveins, prófasts
í Hraungerði, Halldórssonar og
konu hans, Önnu Eiríksdóttur, syst-.
ur Jóns konferensráðs. Móðir Arn-
heiðar var Gróa Arnórsdóttir.
Hjörleifur tekur á móti gestum
eftir kl. 18 á afmælisdaginn hjá syni
sínum og tengdadóttur á Keilufelh
10.
Björg Andrea Magnúsdóttir, Ham-
arsgötu 1, Fáskrúðsfirði, er áttræð
ídag.
Starfsferill
Björg er fædd á Hafnarnesi og ólst
upp frá eins árs aldri hjá Ólafi Jóns-
syni og Kristjönu Jónsdóttur á
Gvendamesi. Björg var fiskvinnslu-
kona á Fáskrúðsfirði 1950-1980.
Fjölskylda
Björg giftist 1934 Jens Lúðvíks-
syni, f. 29. septemebr 1910, d. 24.
mars 1969, útgerðarmanni á Fá-
skrúðsfirði. Foreldrar Jens voru
Lúðvik Guðmundsson, verslunar-
maður á Fáskrúðsfirði, og Helga
Jensdóttir. Synir Bjargar og Jens:
Róbert Dan, f. 2. júh 1935, forstööu-
maður Sjómæhnga ríkisins, kvænt-
ur Kristbjörgu Stefánsdóttur hjúkr-
unarfræðingi; Kristmann Dan, f. 14.
mars 1937, d. 30. maí 1941, og Krist-
mann Dan, f. 21. apríl 1942, d. 10.
ágúst 1988, tækjamaður hjá Frysti-
húsinu á Fáskrúðsfirði, kvæntur
Elsu Hjaltadóttur.
Systur Bjargar: Margrét, er látin,
verkakona á Akureyri, gift Ingólfi
Arnasyni verkamanni; Jóhanna,
húsmóðir á Eskifirði, gift Guðmundi
Stefánssyni, og Sigurlaug, húsmóðir
í Rvík, gift Kristjáni Stefánssyni.
Systkini Bjargar sammæðra: Þóra
Sigurðardóttir Kemp, húsmóðir í
Rvík, gift Júlíusi Kemp skipstjóra,
og Ragnar Steinsson, er látinn, vél-
stjóriíRvík.
Ætt
Foreldrar Bjargar voru Magnús
Guðmundsson, d. 1910, b. og sjómað-
ur á Hafnamesi á Fáskrúðsfrði, og
kona hans, María Sigurðardóttir.
Magnús var sonur Guðmundar, b'. á
Hafnamesi í Stöðvarfirði, Einars-
sonar, b. í Hvammi í Fáskrúðsfirði,
Guðmundssonar, b. á Dísarstöðum,
Ámasonar, b. í Kelduskógum, Jóns-
sonar, prests í Selvogsþingum, Giss-
urarsonar. Móðir Guðmundar í
Hafnamesi var Kristín Bjarnadótt-
ir, b. á Þverhamri, Stefánssonar, b.
á Þverhamri, Magnússonar, prests
á Hahormsstað, Guðmundssonar.
Móðir Magnúsar var Þuríður Ein-
arsdóttir, b. í Vík í Fáskrúðsfirði,
Jónssonar, b. á Sævarenda í Fá-
skrúðsfirði, Magnússonar, b. á
Brimnesi í Fáskrúðsfirði, Jónsson-
Björg Andrea Magnúsdóttir.
ar, ættfóður Brimnesættarinnar.
María var dóttir Sigurðar Frið-
rikssonar, b. í Borgargerði, Ras-
mundssonar. Móðir Maríu var
Guðný Höskuldsdóttir, b. á Þver-
hamri, Bjamasonar, systir Kristín-
ar í Hvammi. Móðir Guðnýjar var
Sigríður Jónsdóttir, b. á Skriðu í
Breiðdal, Gunnlaugssonar. Móðir
Jóns var Oddný Erlendsdóttir, b. á
Ásunnarstöðum, Bjarnasonar, ætt-
fööur Ásunnarstaðaættarinnar.
Til hamingju með
afmælið 22. janúar
90 ára_____________________
Helga Óskarsdóttir,
Ögmundarstöðum, Staöarhreppi.
Hún verður að heiman á afmælis-
daginn.
Sigurrós Kristinsdóttir,
Kvistageröi 5, Akureyri.
85 ára
Einar O. Eiriksson,
Breiðagerði 21, Reykjavik.
Valgeir Elíasson,
Miklaholti I, Miklaholtshreppi.
Friðþj ófur Þorsteinsson,
Ásgötu 13, Raufarhöfn.
Jens Kristjón Gestsson,
Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja-
vík.
80ára
Björg Magnúsdóttir,
Hamarsgötu 1, Fáskrúðsfirði.
BjarniGíslason,
Höfðavegi 7, Höfn í Hornafirði.
75 ára
SiggeirGeirsson,
Sléttabófi I, Skaftárhreppi.
Vafborg V. Emilsdóttir,
Borgarholtsbraut 27, Kópavogi.
Herdís Kjerulf,
Vahholti, Fljótsdalshreppi.
70 ára
Hlaðgerður Oddgeirsdóttir,
Aðalbraut 49, Raufarhöfh.
60 ára
Auður Gunnarsdóttir,
Stóragerði25, Reykjavík.
50ára
Bryndís Sigurðardóttir,
Arnartanga 28, Mosfellsbæ.
40 ára
Björgvin Þór Jóhannsson,
Bræðratungu 20, Kópavogi.
Jórunn Sigurðardóttir,
Hofgörðum20, Seltjamarnesi.
Margrét Gunnhildur Lárusdóttir,
Urðarbraut 23, BlönduósL
Gunnar K. Gunnlaugsson,
Starmýri9, Neskaupstað.
Stefán Magnússon,
Esjuvöhum 17, Akranesi.
Eiríkur Karlsson,
Bakkatúni20, Akranesi.
Baldvin Jónsson,
Garöastræti 14,Reykjavik.
Svanhildur Ágústsdóttir,
Grjótaseli 7, Reykjavík.
Kristín Sigurbjörg Björnsdóttir,
Bankastræti 6, Skagaströnd.
VERKAMANNAFÉLAGID DAGSBRÚN
Framboðsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Bíóborg (áöur Austur-
bæjarbíó) miðvikudaginn 23. janúar 1991 kl. 17.
Dagskrá:
Komandi stjórnarkosningar í Dagsbrún.
Dagsbrúnarmenn eru beðnir að koma beint úr vinnu.
Atvinnurekendur eru beðnir um að hindra ekki að
menn komist á fundinn.
Félagar, fjölmennið.
Stjórn Dagsbrúnar