Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Qupperneq 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 22, JANÚAR 1991.
Merming
Mörg lífleg atriöi eru í Rocky Horror Show, eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
„Rocky Horr-
or“ í Iðnó
Fáir söngleikir hafa eignast jafnmarga trygga aödá-
endur og áhangendur og „The Rocky Horror Show“,
sem var fyrst frumsýndur áriö 1973 í London. Á þeim
tíma vakti tiltækið furðu og hneykslan margra siða-
vandra borgara enda var daðrað við hvers kyns bann-
helga hluti í verkinu, oröbragðið var ekki ýkja pent
og alls konar furðufuglar léku þar lausum hala.
En engu að síður sló verkið hraustlega í gegn hjá
ungu fólki, sem leit allt öðrum augum á það, því fannst
tónlistin „algjört æði“ og efnið rokfyndið. Þær kyn-
slóðir, sem á eftir komu, horfðu upp til agna á kvik-
myndina, sem var gerð 1975 og hefur verið sívinsæl æ
síðan.
Söngleikurinn hefur ekki verið færður upp á íslandi
fyrr en nú, þegar Leikfélag Menntaskólans við Hamra-
hlíð leggur í það þrekvirki að koma upp stórsýningu
með meira en 100 þátttakendum.
Gamla Iðnó fyllist af lífi þegar ungir leikarar og
söngvarar fylla hvem krók og kima og kröftug tónlist-
in fær veggina til að titra. Kolbrún Halldórsdóttir leik-
stjóri hefur náð ótrúlega góðum árangri með leikend-
um og tónlistarfólki, sem að öðm jöfnu hefur allt ann-
að fyrir stafni en að koma fram á leiksviði. Það er
ljóst, hversu óhemjuleg vinna og natni við hvert smá-
atriði liggur á bak við sýningu eins og þessa og þau
Kolbrún, Jón Ólafsson tónlistarstjóri og Ástrós Gunn-
arsdóttir danshöfúndur hafa greinilega tekist á við
verkefnið af fullri alvöm.
Hér á áram áður var öflug leikstarfsemi í M.H., en
síðan dalaði áhuginn. Á síðustu árum hefur hann hins
vegar aukist aftur og nemendur hafa staðið fyrir
nokkmm mjög frambærilegum sýningum.
Uppfærslan á „Rocky Horror“ er hins vegar lang-
viðamesta skólasýning, sem ég man eftir í svipinn, og
raunar ótrúlegt að hópur menntaskólanema skuli geta
staðið undir allri þeirri vinnu sem í hana er lögð.
Tónlistin, sem á dijúgan hlut í vinsældum og frægð
verksins, er flutt af sjö manna hljómsveit og söngvur-
um. Flutningurinn er kröftugur og þáttur hljómsveit-
arinnar undir stjórn Gunnlaugs Guðmundssonar er
stór í þeim góða árangri, sem næst.
Páll Óskar Hjálmtýsson leikm- sjálfan Frank’n’Furt-
er af mikilli innlifun og öryggi og það er varla á neinn
hallað þó að hann teljist stjama kvöldsins fyrir til-
þrifamikinn leik og söng.
Leiklist
Auður Eydal
Katrín Kristjánsdóttir leikur Janet og Jón Atli Jónas-
son, Brad. Guðjón Bergmann er í hlutverki Riff Raff
og þær Edda Björg Eyjólfsdóttir og Steinunn Þórhalls-
dóttir leika Magentu/sætavísu og Columbíu.
í öðmm hlutverkum era Guðlaugur Ingi Harðarson,
Rocky, Bergur Már Bemburg, Eddie, Dofri Jónsson,
Dr. Scott og loks Gestur Svavarsson, sem leikur sögu-
manninn.
Þar er skemmst frá að segja að þessi ungmenni skila
sínum hlut með miklum ágætum og mörg bráðvel
bæði leik og söng. Sérstaklega vakti það athygli mína
að framsögn var undantekningarlaust góð og söng-
hæfileikar margra leikendanna komu á óvart. Tækni-
vinna við hljóðblöndun var góð, þannig að söngatriðin
komu mjög vel út og ekki bar á öðru en þessi kröftuga
og hráa tónlist hljómaði mætavel í Iðnó.
Eins ög áður var sagt er þaö með ólíkindum hversu
mikla vinnu nemendur M.H., leikstjóri og aðrir hafa
lagt í þessa sýningu, en árangurinn er líka eftir því.
Búningar í sígildum „Rocky Horror“-stíl og viðamikil
leikmynd em unnin af nemendunum sjálfum og hvers
kyns tæknivinna er í þeirra höndum.
Þarna hefur íjöldi ungmenna fengið tækifæri til að
virkja margvíslega hæfileika í skapandi starfi og þó
að það kosti einhveijar tafir frá öðru námi, læra þau
áreiðanlega margt jafnnytsamlegt af því að starfa sam-
an að verkefni sem þessu.
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlið sýnir í Iðnó:
Rocky Horror
Söngleikur eftir Richard O’Brian
íslensk þýðing: Veturliði Guðnason
Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir
Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson
Danshöfundur: Ástrós Gunnarsdóttir
Leikmyndarráðgjafi: Guðrún Sigriður Haraldsdóttir
Ljósahönnuður: Eglll Ingibergsson
Hljóðblöndun: Sigurður Bjóla Garöarsson
Aðstoðarleikstjóri: Ásdís G. Sigmundsdóttir
-AE
Tilkyimiiigar
Ofbeldi spurning
um þroskastig
Æskulýðs- og tómstundaráð Hafnaríjarö-
ar hefur í samráði við Samtök félagsmiö-
stöðva gefið út plakatið „Ofbeldi spum-
ing um þroskastig". Markmiðið með út-
gáfunni er að vekja ungt fólk til um-
hugsunar um vaxandi ofheldi í þjóðfélag-
inu og meö þessu móti leggja sitt af mörk-
um til þess að spoma við þeirri neikvæðu
þróun sem orðið hefur undanfarin ár.
Það er því von þeirra að plakatið fari sem
víðast og verði sem flestu ungu fólki í
huga þegar leysa þarf ágreiningsmál.
Flóamarkaður
í sal Hjálpræðishersins í dag, þriðjudag
og miðvikudag, kl. 10-17 báða dagana.
Hjónaband
Þann 6. október sl. vom gefin saman í
hjónaband í Dómkirkjunni af séra Krist-
jáni Þorvaröarsyni Kristín Sigrún Árna-
dóttir og Einar Kjartan Rúnarsson.
Heimili þeirra er að Veghúsum 23,
Reykjavík.
Kvenfélag Kópavogs
Þorrakvöld Kvenfélags Kópavogs verður
haldið 24. janúar nk. kl. 20 í félagsheimil-
inu. Matur, fjölbreytt dagskrá. Konur,
takið með ykkur gesti. Þátttaka tilkynn-
ist í s. 40332, Helga, 41726, Þórhalla, og
40388, Ólöf.
Ljósmyndaklúbburinn
HugmyndlOára
í febrúar 1981 var ljósmyndaklúbburinn
Hugmynd '81 stofnaður. Síðan em hðin
10 ár. í tilefni afmæhsins hyggst Hug-
mynd ’81 standa fyrir ýmsum uppákom-
um á árinu, svo sem ljósmyndasam-
keppni, sýningum á verkumfélagsmanna
og mörgu fleira. Starfsárið hefst með af-
mæhsfagnaði er haldinn verður laugar-
daginn 2. febrúar 1991 frá kl. 17 til 19.30
í húsnæði Hugmyndar ’81 að Klapparstíg
26, 3. hæð til hægri. Öhum þeim sem
áhuga hafa á Ijósmyndun er velkomið að
koma, þiggja veitingar og kynna sér starf-
semi klúbbsins.
Fundir
ITC-deildin Harpa
heldur reglulegan deildarfund sinn í
kvöld kl. 20 að Brautarholti 30, 2. hæð.
Allir velkomnir. Nánari upplýsingar gefa
Ágústa, s. 71673, og Guörún, s. 71249.
Aglow, kristileg
samtök kvenna,
halda fyrsta fimd á árinu mánudaginn
28. janúar í kafftsal Bústaðakirkju. Hefst
fundurinn kl. 20 og stendur tU kl. 22.
Dögg Harðardóttir er gestur þessa fundar
og mun hún predika út frá orði Guðs.
Er fundurinn opinn öhum konum og eru
konur hvattar til þess að byrja nýtt ár
með djörfung og bjóða með sér gestum.
Verið minnugar þess að uppskeran er
mikil.
Andlát
Knútur Haraldur Einarsson, fyrrver-
andi bifreiðarstjóri SVR, andaðist á
Landspítalanum 19. janúar.
Pála Jónína Pálsdóttir, Hofi, Öræf-
um, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands,
Sélfossi, sunnudaginn 20. janúar sl.
Endurski
✓
í
Júlía Matthíasdóttir frá Litlu-Hólum,
Vestmannaeyjum, lést á Sólvangi,
Hafnarfirði, 19. janúar sl.
María Sophia Bjarnadóttir lést á
Landspítalanum laugardaginn 19.
janúar.
María S. Bjarnadóttir lést á Land-
spítalanum laugardaginn 19. janúar.
Sigríður Bjarnadóttir, áður hús-
freyja á Hömrum, Grímsnesi, lést á
Kumbaravogi laugardaginn 19. jan-
úar.
Eggert Benónýsson útvarpsvirkja-
meistari, Ljósalandi 16, andaðist á
Borgarspítalanum aðfaranótt 20. jan-
úar.
Kristín Ástgeirsdóttir frá Litlabæ,
Vestmannaeyjum, lést á Hrafnistu,
Hafnarfirði, laugardaginn 19. janúar.
Jarðarfarir
Karles Tryggvason, Þórunnarstræti
134, Akureyri, verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
22. janúar kl. 13.30.
Ingólfur Tómasson, Lönguhlíö 25,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 23.
janúar kl. 15.
Valgeir Ólafsson, Álfaskeiði 64, B6,
Hafnarfirði, áður Mjósundi 3, lést á
St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, þann
9. janúar. Jarðarfórin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Utfor Stefáns Hilmarsson fv. banka-
sfjóra, verður gerð í dag frá Hall-
grímskirkju kl. 13.30.
ITC Seljur, Selfossi,
halda fund í Hótel Selfoss í kvöld, 22. jan-
úar, kl. 20.10 stundvíslega. Stef fundar:
Menn vantar ekki kraftinn heldur vilj-
ann. Fundarefni íjölbreytt að vanda,
hefðbundin fundarstörf ásamt áhuga-
verðum skyndiræðum og úr bókaskápn-
um. Upplýsingar hjá Kristínu, s. 98-21957,
og Svövu, s. 98-22238.
Félag eldri borgara
Opiö hús í dag, þriöjudag, í Risinu, Hverf-
isgötu 105, frá kl. 13. Leikhópurinn Snúð-
ur og Snælda hittist kl. 17. Haldin verður
snyrtivörukynning í Risinu á morgun,
miðvikudag, kl. 14.
Kiwanisklúbburinn
Harpa
heldur fund í kvöld kl. 20 að Smiðjuvegi
13a, Kópavogi. Ræðumaður kvöldsins er
Jón Hilmar Alfreðsson, yfirlæknir
kvennadeildar Landspítalans. Allir vel-
komnir.
Safnadarstarf
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu í dag kl. 18.30. Fyrir-
bænaefnum má koma á framfæri viö
sóknarprest í viðtalstímum hans þriðju-
daga til fóstudaga kl. 17-18.
Dómkirkjan: Starf eldri barna (10-12
ára) í safnaðarheimilinu í dag kl. 17.
Mömmumorgnar í safnaðarheimilinu
miðvikudaga kl. 10-12.
Grensáskirkja: Biblíulestur í dag kl. 14
í umsjón sr. Halldórs S. Gröndals. Síðdeg-
iskaffi.
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðsþjón-
usta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Opið hús fyrir aldraða á morgun, mið-
vikudag, kl. 14.30.
Langholtskirkja: Starf fyrir 10 ára og
eldri miðvikudag 16. janúar kl. 17. Óskar
Ingi Óskarsson og Þór Hauksson leiða
starfið.
Seltjarnarneskirkja: Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 15-17. Magnús Er-
lendsson kemur í heimsókn og ræðir um
nýaldarhreyfinguna.
Seljakirkja: Mömmumorgunn. Opið hús
kl. 10.
Gestur frá samtökum heimavinnandi
fólks.
Tapað fundið
Fressköttur í óskilum
frá Austurbergi
Þessi fressköttur hefur verið týndur frá
20. desember sl. Hann heitir Brandur og
er grábröndóttur. Ef einhver hefúr fund-
ið hann þá vinsamlegast hafið samband
við heimilisfólkiö í Austurbergi 34, sími
78109.
Álkerra tapaðist
úr Garðabæ
Álkerra hvarf frá Lyngási 10, Garðabæ,
aðfaranótt fimmtudagsins sl. Ef einhver
hefur séð kerruna eða veit hvar hún er
niðurkomin þá vinsamlegast hafið sam-
band í sima 652759. Fundarlaun.
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í grein í DV
í gær, þar sem fjallað var um Menn-
ingarverðlaun DV, að aíhendingar-
dagurinn var sagður 21. desember.
Hér átti að sjálfsögðu að standa 21.
febrúar. Em lesendur beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
-HK
Manns saknað
frá4.janúar
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir
Hauki Matthíassyni, 73 ára vist-
manni í Gunnarsholti í Rangárvalla-
sýslu. Haukur er dálítið hærri en
meðalmaður og sköllóttur. Líklegt er
talið að hann sé klæddur í jakkafót,
ljósan rykfrakka og sé með hatt. Þeir
sem hafa séð til ferða Hauks eftir
föstudaginn 4. janúar, eða vita hvar
hann er nú, eru beönir að hafa sam-
band við lögregluna.