Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 18. MARS 1991.
Fréttir
Haukur Pálsson bóndi um viðskipti sín við svindlara:
Glæpamenn haf a for-
gang í þjóðfélaginu
Haukur Pálsson bóndi kom til Reykjavíkur i gær til að reyna að endurheimta þrjú hross sem svikin voru af honum
fyrr í vetur. Ferðin var án árangurs. DV-mynd S
„Það sem klikkaði er að það þarf
samþykki glæpamannsins til að ég
fái hestana mína til baka. Eins og
réttarkerfi þessa lands er háttað get
ég ekki séð að ég eígi möguleika á
að endurheimta hrossin aftur. Þetta
sýnir bara að glæpamenn hafa for-
gang í þjóðfélaginu," segir Haukur
Pálsson, bóndi á Röðh í Húnavatns-
sýslu.
Forsaga málsins er sú að um mán-
aðamótin nóvember/desember 1990
handtók lögreglan mann sem hafði
svikið út málningu hjá SUppfélaginu
í Reykjavík meö fölskum kvittunum.
Málninguna seldi hann svo öðrum
eða lét hana í skiptum fyrir hesta.
Maðurinn stal einnig hestakerru
sem hann fór með norður í land og
bauð Hauki hana í skiptum fyrir þrjú
ótamin hross. Eftir skamman tíma
seldi Haukur kerruna. Stuttu síðar
hafði Rannsóknarlögregla ríkisins
samband viö hann og sagði honum
að kerran væri þýfi. Fór hann þá til
þeirra er höfðu keypt kerruna af
honum og bað þá að láta kerruna af
hendi aftur gegn því að hann endur-
greiddi þeim kaupverðið. Hefur
Haukur nú komið kerrunni í hendur
réttra eigenda.
í millitíðinni hafði sá er hrossin
fékk selt þau öörum. Haukur komst
svo að því að þau væri að finna í
hesthúsum við Rauðavatn. Hann fór
þangað og ætlaði að endurheimta
hesta sína en sú för var án árangurs.
„Ég komst að því aö tamningamað-
ur nokkur haíði keypt einn hestinn
og hafði hann unnið við að temja
hann í vetur. Þegar ég sagðist vilja
fá hann til baka sagði hann mér að
hann hefði lagt út í nokkurn kostnað
við hestinn. Eg bauð manninum að
borga honum fyrir tamninguna og
annan útlagðan kostnað en hann vill
ekki láta hestinn af hendi, þrátt fyrir
að hann viti að hesturinn var upp-
haflega fenginn með óheiðarlegum
hætti. Hinir tveir hestamir voru í
hesthúsinu en það var læst og var
mér meinað að sjá þá,“ segir Haukur.
„Mér finnst þetta ömurlegt réttar-
kerfi að það skuli þurfa samþykki
glæpamannsins til að ég fái hrossin.
Það fæ ég náttúrlega aldrei og því tel
ég að þessi hross séu mér glötuð Ég
sit uppi með tjónið af því að hafa átt
viðskipti við þennan mann.“
-J.Mar
Flokkur mannsins og Þjóðarflokkur fram saman:
Enginn málef nalegur ágreiningur
- segir Áshildur Jónsdóttir, Flokki mannsins
„Það skemmtilega við þetta sam-
eiginlega framboö er að flokkamir
virðast falla alveg saman. Þaö er
enginn málefnalegur ágreiningur. í
stefnuskrám okkar er í stórum drátt-
um verið aö tala um sömu hlutina
með mismunandi orðalagi. Ákvörð-
un okkar um að starfa saman bygg-
ist á miklu trausti. Við leggjum alger-
lega í púkk þar sem ekki var skipt
niður á framboðslista fyrirfram.
Þannig eru fleiri frá Flokki mannsins
á sumum hstum og fleiri frá Þjóðar-
flokki á öðmm,“ sagði Áshildur
Jónsdóttir, talsmaður Flokks
mannsins, í samtali við DV.
Flokkur mannsins og Þjóðarflokk-
urinn ákváðu formlega að hafa með
sér samstarf um framboð til Alþingis
í vor á fundi í síðustu viku. Verður
boðið fram í öllum kjördæmum und-
ir heitinu Þjóðarflokkur - Flokkur
mannsins og listabókstafnum Þ.
„Þetta gagnkvæma traust milli
okkar er kannski ástæðan fyrir því
að við lentum saman en ekki aörir
flokkar sem höfðu hugað að sameig-
inlegu framboði. Hinir flokkamir og
samtökin voru ekki tilbúin að starfa
saman á sama hátt og við. Þar tóku
menn miklu persónulegri afstöðu til
hlutanna.“
Áshildur segir þetta sameiginlega
framboö hjálpa til við að brúa bilið
milli þéttbýlis og dreifbýlis. Þá brú-
aðist einnig aldursbil en eldra fólk
setti frekar svip sinn á Þjóðarflokk-
inn en yngra fólk á Flokk mannsins.
„Ég held við gefum gott fordæmi
með því að standa svona saman í stað
þess að hnýta í hvort annað. Það er
ahð á svo mikihi sundrungu í þjóð-
félaginu, ekki síst milli þéttbýhs og
dreifbýlis.“
Framboðslistar hins sameiginlega
framboðs em ekki fylhlega thbúnir
en teknar hafa verið ákvarðanir um
efstu menn í nokkrum kjördæmum.
Pétur Guðjónsson verður efstur í
Reykjavík og Áshildur Jónsdóttir í
öðru sæti. Á Reykjanesi er Þorsteinn
Sigmundsson efstur, Helga Gísla-
dóttir á Vesturlandi, Ingibjörg G.
Guðmundsdóttir á Vestíjörðum og
Eyvindur Erlendsson á Suðurlandi.
-hlh
Svava Haraldsdóttir, 18 ára Reykja-
víkurmær, var kosin fegurðardrottn-
ing Reykjavíkur síðastliðinn föstu-
dag. Svava var einnig kosin Ijós-
myndafyrirsæta Reykjavfkur. Með
sigrinum öðlast hún rétt til að taka
þátt i keppninni um fegurðardrottn-
ingu íslands sem fram fer í vor.
— DV-mynd GVA
íslandsbankamótið í bridge:
Úrslitin alveg eftir bókinni
Undankeppni íslandsbankamóts-
ins í sveitakeppni í bridge lauk á
sunnudag á Hótel Loftleiðum. Segja
má að úrslit hafi verið eftir bókinni
ef tekin em mið af stigum sveitanna
í upphafi. Allar sveitir í A og B styrk-
leikaflokki komust áfram þó litlu
hefði munað í D-riðli í lokin.
í A-riðli komust áfram sveit Púls-
ins með 135 stig og sveit Ásgríms Sig-
urbjörnssonar frá Siglufirði með 133
stig. Siglfirðingarnir eru þarna að
komast annað árið í röð í úrsht ís-
landsmóts. B-riðilinn vann sveit Jak-
obs Kristinssonar frá Akureyri meö
143 stig en sveit Veröbréfamarkaðar
íslandsbanka varð nokkuð óvænt í
öðm sæti með 136 stig en fyrirfram
var búist við auðveldum sigri þeirrar
sveitar í riðhnum. Sveit Sjóvá/Al-
mennra frá Akranesi náði ágætis
skori, 123 stigum sem dugðu þó ekki
til sætis í úrslitum að þessu sinni.
Hæsta skori allra sveita náðu Sam-
vinnuferðir/Landsýn sem enduðu
með 162 (af 175 mögulegum) stig í
C-riðli. Sveit S. Ármanns Magnús-
sonar náði öðru sæti með öryggi með
135 stig. D-riðillinn var sá eini sem
bauð upp á spennu á lokasprettinum.
Fyrir lokaumferðina áttu 5 sveitir af
8 möguleika á sæti í úrslitum. Sveit
Landsbréfa náði nokkuð ömgglega
fyrsta sæti og skoraði 140 stig. Sveit
Tryggingarmiðstöðvarinnar náði
naumlega öðm sæti í riðlinum og
skoraði 120 stig. Sveit TM spilaði inn-
byrðisleik við Zink-stöðina í lokaum-
ferðinni og máttu ekki tapa þeim leik
meir en 17-13.
Það urðu einmitt lokatölur leiksins
en 18-12 tap hefði þýtt að Zink-stöðin
hefði farið í úrslit í stað Tryggingar-
miðstöðvarinnar. Sveit Zink-stöðvar-
innar endaði með 118 stig, sama
stigafjölda og sveit Roche en henni
hefðu nægt 19 stig í lokaumferðinni
til að komast í úrslitin. Sveit Roche
fékk aðeins 17 stig í lokaleiknum og
varð þar með naumlega af sæti í úr-
slitum. Dregið hefur verið um sæti í
úrslitum sem spiluð verða 27.-30.
mars og eru rásnúmer sveitanna
þannig:
1. Samvinnuferðir/Landsýn
2. Landsbréf
3. Tryggingamiðstöðin
4. Jakob Kristinsson
5. S. Ármann Magnússon
6. Verðbréfamarkaður íslandsbanka
7. Ásgrímur Sigurbjörnsson
8. Púlsinn
Úrshtakeppnin fer fram á Hótel Loft-
leiðum og keppnisstjóri verður Agn-
ar Jörgensson eins og í úrslitum.
ÍS
Vaskurinn
verðifellduraf
tónlistinni
„Þaö var samþykkt samliljóða
að brýna fyrir stjómmálamönn-
um að nota síðustu daga Alþingis
til að koma í gegn frumvarpi um
breytingu á lögura um virðis-
aukaskatt sem felur í sér niður-
fehingu á virðisaukaskatti á ís-
lenskri tóniist, bæði hljóðritun-
um og tónleikalialdi,“ sagði
Gunnar Guðmundsson en hann
skipulagði ráðstefnu í húsakynn-
um FÍH við Rauðageröi undir
j’firskriftinni „íslensk tónlist í
vaskinn". Að ráðstefnunni stóðu
Samband tónskálda og eigenda
flutningsréttar, STEF, Samband
hijómplötuframleiðenda, og Fé-
lag íslenskra hljómhstarmanna,
FÍH.
Sagöi Gunnar aö menntamála-
ráðherra heföi mætt á fundinn. í
máli hans hefði komiö fram að
hann hefði kynnt þessi sjónarmið
hagsmimaaðila í tónhst. Kom
fram að búið væri að feha virðís-
aukaskatt niður af allri íslenskri
menningu nema íslenskri tónlist,
það er tveimur prósentum menn-
ingarinnar.
„Við teljum að það sé réttlætis-
mál að láta jafnt yfir alla ganga.
Við viljum ekki fara í vaslúnn,"
sgði Gunnar.
-hlh
Sinfónluhljómsveitin:
Tónskáld fá
starfslaun
Tónskáldin Áskell Másson og
Haukur Tómasson fá starfslaun
til tónsmíða i þrjá mánuði hvor
frá Sinfóníuhljómsveit íslands.
Það var fyrir skömmu að hljóm-
sveitin auglýsti eftir umsóknum
: um starfslaun til tónsmíða í þágu
hljómsveitarinnar. Margar um-
sóknir bárust en ákveðið var að
þessu sinni að skipta starfslaun-
unum í tvennt.
Áskéll Másson fær launin til að
semja verk fyrir strengjasveit
sem tileinkað verður Sinfóníu-
hljómsveitinni en Haukur Tóm-
asson til að semja verk fyrir
hijórasveit með heföbundinni
hJjóðfæraskipan.
-lls
Fá1700millj-
óniraðláni
Flugleiðir hafa nú undirritað
lánasamning vegna kaupa einnar
Boeing 737-400 flugvélar sem af-
hent verður seinni hlutann í
aprílmánuði. Lánsupphæðin er
29,7 milljónir Bandaríkjadohara
eða 1700 milljónir íslenskra
króna. Það eru tveir japanskir
hankar sem lána fé til flugvéla-
kaupanna.
Með þessum flugvélakaupum
lýkur endumýjun flugflota Flug-
leiða í millilandaflugi.'Endumýj-
un innanlandsflotans fer fram á
næsta ári. Flugleiðir hafa tekiö
lán og keypt allar nýju þoturnar
en innanlandsflugflotinn verður
leigður með kauprétti eftir 10 ár.
-J.Mar
NMímatreiðslu:
Tveirfullirúar
frá íslandi
Tveir matreiðslunemar munu
keppa fyrir íslands hönd á Norð-
urlandameístaramótinu í mat-
reiðslu og framreiðslu sem fram
fer hér á landi 27. apríl næstkom-
andi. Það eru þeir Bjarni Har-
aldsson frá Akranesi og Kristján
Gunnarsson frá Reykjavík sem
báðir eru á þriðja námsári í Hót-
el-ogveitingaskólanum. -hlh