Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Side 5
MÁNUDAGUR 18. MARS 1991.
5
Fréttir
Starfsmaður Hampiðjunnar krafðist bóta vegna vinnuslyss:
14 milljóna kröf u haf nað
- lögmaður stefnanda segir meðdómara eiga hlutabréf í tryggingafélaginu
Bæjarþing Reykjavíkur hefur
sýknaö Hampiöjuna í Reykjavík og
Sjóvá-Almennar af skaðabótakröfum
sem fyrrverandi starfsmaöur Hamp-
iðjunnar höfðaði vegna veikinda sem
hann hefur átt við að stríða um nokk-
urra ára skeið.
Maðurinn taldi alvarlegt heilsutjón
sitt stafa af vinnuslysi sem hann varð
fyrir í Hampiðjunni árið 1981 þegar
kviknaði í blýpotti sem hann vann
við. í stefnu krafðist maðurinn
skaðabótakröfu upp á röskar 14
milljónir króna með dráttarvöxtum.
Bæjarþing Reykjavíkur komst aö
þeirri niðurstöðu að ósannað væri
að vinnuslysið hefði á nokkum hátt
verið orsök að heilsutjóni mannsins.
Hampiðjan var því sýknuð af kröfun-
um. Jón L. Arnalds borgardómari
kvað upp dóminn ásamt meðdóms-
mönnunum Jakob Kristinssyni, dós-
ent í eiturefnafræði og Tryggva Ás-
mundssyni lækni og sérfræðingi í
lungnasj úkdómum.
Jón Oddsson, lögmaður stefnanda,
hefur áfrýjað málinu til Hæstaréttar.
Dómsmálaráðherra hefur heimilað
gjafsókn í málinu. Jón sagði við DV
að ný gögn varðandi veikindi manns-
ins svo og breyttar málsástæður Uggi
fyrir í málinu:
„Eftir að dómur var kveðinn upp í
Bæjarþingi Reykjavíkur hefur komið
í Ijós að annar meðdómandinn,
Tryggvi Ásmundsson læknir, er eig-
andi að hlutabréfum í Sjóvá- Al-
mennum hf. upp á 216 þúsund krón-
ur, sölugengi þeirra er vel á aðra
milljón króna,“ sagði Jón Oddsson
hæstaréttarlögmaður í samtali við
DV.
„Sjóvá-Almennar er raunverulega
sá aðili sem verið er að krefja um
greiðslu í þessu tilfelli. Samkvæmt
6. grein mannréttindasáttmála Evr-
ópu, sem íslendingar eru aðili að, er
skýrt tekið fram að dómarar skuli
vera hiutlausir," sagði Jón Oddsson.
-ÓTT
Röng hæðarsetning á Sauðárkróki reyndist dýr:
Kostaði bæjarsjóð
rúmlega milljón
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkröki:
Bæjarsjóður Sauðárkróks þarf að
greiða rúma milljón króna vegna
mistaka er urðu við hæðarsetningu
einbýlishúss í Túnahverfinu í byrjun
síðasta áratugs. Ljóst er að dómnum,
sem kveðinn var upp í bæjarþingi
Sauðárkróks 17. janúar sl, verður
ekki áfrýjað. Hann féll Birgi Hreins-
syni, Dalatúni 4 í vil og voru honum
dæmdar í bætur 400 þúsund krónur.
Með vöxtum og málskostnaði nema
útgjöld bæjarsjóðs vegna málsins
rúmri milljón.
Birgir Hreinsson sagðist í samtali
við DV ekki vera að fullu sáttur við
dóminn, þar sem í honum sé ekki
nema að hluta tekið tillit til þeirra
atriða er hann grundvallaði kæruna
á. Að öðru leyti vildi Birgir ekki tjá
sig um niðurstöður dómsins.
Það var á árinu 1983 sem Birgir
gerði kvörtun til bygginganefndar
vegna rangrar hæðarsetningar húss-
ins. Þegar honum þótti sýnt að bæj-
aryfirvöld kæmu ekki til móts við
hann með greiðslu aukakostnaðar,
sem af þessu hlaust, varð hann sér
úti um lögfræðing og mál reis. Rann-
sókn málsins og meðferð hefur tekið
langan tíma.
WtMÆm ÆM® 160 WATTA
HLJÓMTÆKJA-
samstæða
Geislaspilari
Fjarstýring
Stafrænt útvarp
Tvöfalt kassettutæki
Plötuspilari
Tónjafnari
2 djúpbassa hátalarar
VÖNDUÐ VERSLUN
jVlEf>
ÖU-V
HlJMÓdu
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
SERTILBOÐ 39.950,
sigr.
C7
(ÁN GEISLASPILARA 26.495,- stgr.)
Afborgunarskilmálar
Þú færð hvergi jafn
öfluga tölvu ffyrir eins
GÖTTVERÐ!
Opið laugardag frá kl. 10:00 til 16:00.
Verðsamanburður hefur sannfært tölvunotendur um að
erfitt er að gera betri kaup en einmitt í Aórotech
tölvunum, þar sem saman fara gæði, góð vinnslugeta
og makalaust verð.
hað er einnig alkunna að nýja 20MHz Acrotech 286AT
er hraðvirkasta AT tölvan á markaðinum.
Pess vegna kunna tölvunotendur að meta Acrotech
tölvurnar. Nú átt þú auðvelt með að bætast í hóp
Acrotech eigenda, því verðið er hreint með ólíkindum.
Acrotech 286AT 20MHz kostar kr. 119.908.-
Acrotech 386SX 16MHz kostar kr. 139.900.-
Innifalið í verði: VSK, Super VGA litaskjár, 1 Mb innra
minni, 40 Mb harður diskur og MS-DOS 4.01.
Ótrúlegt verð fyrir óviðjafnanlega tölvu.
BALTI hf.
ARMÚLA 1 SÍMI (91 j 8 25 55