Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Síða 8
8
Utlönd
MÁNUDAGUR 18. MARS 1991.
BRIMBORG
BÍLAGALLERÍ
Opið
uirka ciaga 9-18.
Laugarrlaga 10-16.
Siini 685870.
FAKAFENI 8
Feroza Special ’90, grár, 5 g., vökv-
ast., sóllúga, álfeigur, útv/segulb.,
ek. 8.000, v. 1.3S0.000.
Honda Civic AM GL '88, rauður,
sjálfsk., vökvast., útv/segulb., ek.
38.000, v. 820.000.
Rocky Wagon '90, bensín, dökk-
grár, 5 g., vökvast., útv/segulb.,
kúia, ek. 8.000, sem nýr bíll, v.
1.600.000.
Subaru 4WD st. '89, hvitur, 5 g.,
vst., útv/segulb., aukadekk, ek.
21.000, v. 1.270.000.
Ford Fiesta ’87, rauður, 4ra g.,
útv/segulb., ek. 14.000, v. 400.000.
Rocky, stuttur, bensín, 2.0, '87, silf-
ur, 5 g., vst., álfelgur, útv/segulb.,
ek. 43.000, v. 1.100.000.
Charade TX '88, Iblár, sjálfsk.,
útv/segulb., ek. 21.000, v. 620.000.
Volvo 360 GL '87, Ijósgrænn, 5 g.,
vél 102 ha, útv/segulb., upph., ek.
49.000, v. 650.000.
Brimborg hf.
Faxafeni 8, s. (91) 685870
Volvo 740 GL '85, dökkgrár, sjálfsk.,
vst., útv/segulb., ek. 61.000, v.
950.000, fallegur bíll.
Þjóðaratkvæðagreiðslan um framtíð Sovétríkjanna:
Ahuginn beinist að
úrslitum í Rússlandi
Þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni í gær í Sovétríkjunum um nýja
sambandsríkjasamninginn var sögð
meiri en í kosningum í lýðveldunum
í fyrra. Áætlað var að þátttakan hefði
verið 70 prósent í Rússlandi, stærsta
lýðveldinu, og allt að 90 prósent í
Mið-Asíu. Það verður ekki fyrr en
eftir tíu daga sem gert er ráð fyrir
að lokaniðurstöður liggi fyrir en
snemma í morgun voru komnar
fyrstu tölur frá tveimur lýðveldum
austast í Sovétríkjunum. Þar höfðu
71 prósent og 80,4 prósent sagt já við
aðalspumingunni.
Hún var hvort sovéskir borgarar
teldu nauðsynlegt að varðveita sov-
éska ríkjasambandið sem nýtt sam-
band fullvalda ríkja. Lengi hefur litið
út fyrir að mikill meirihluti muni
svara þessari spumingu játandi.
Menn hafa því haft meiri áhuga á að
vita hver svörin verða við ýmsum
aukaspurningum í lýðveldunum níu
sem ekki neituðu að láta þjóðarat-
kvæðagreiðsluna fara fram.
Mikilvægasta aukaspurningin,
sem bætt var við, og ef til vill sú sem
er jafn afgerandi fyrir framtíð Sovét-
ríkjanna og aðalspurningin er spum-
ing rússneskra yfirvalda til borgar-
anna um hvort þeir vilji velja forseta
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, greiðir atkvæði i gær.
Hann kvaðst hafa svarað nei við
spurningunni um hvort velja ætti
forseta Rússlands I frjálsum kosn-
ingum. Símamynd Reuter
- kosningasvindl í Eystrasaltsríkjunum
Mikilvægasta aukaspurningin i þjóðaratkvæðagreiðslunni um nýja sambandsríkjasamninginn var spurningin sem
aimenningur i Rússlandi var beðinn að svara, það er hvort hann vildi velja forseta í frjálsum kosningum. Þessi
spurning þykir ekki síður afgerandi fyrir framtíð Sovétríkjanna en spurningin um hvort menn vilji áfram sambands-
ríkjasamning. Á myndinni má sjá Boris Jeltsin, forseta Rússland, svara spurningum fréttamanna eftir að hann
greiddi atkvæði í Moskvu í gær.
Simamynd Reuter
í frjálsum kosningum. í morgun lá
fyrir í tveimur héruðum að 70 pró-
sent höfðu sagt já.
Helstu menn þjóðarkvæðagreiðsl-
unnar, Mikhail Gorbatsjov Sovét-
forseti og Boris Jeltsin, forseti Rúss-
lands, fóru báðir snemma á kjörstað
í gær. Jeltsin, sem fyrir nokkrum
vikum krafðist afsagnar Gor-
batsjovs, var þó á undan. Þegar hann
var spurður hvort gjáin milh hans
og Gorbatsjovs væri óbrúanleg eða
hvort þeir gætu sæst sagði hann að
ekki væri hægt að orða hlutina á
þennan hátt. Um væri að ræöa
ágreining milli tveggja stjómmála-
manna, milli tveggja pólitískra kerfa.
Aðspurður kvaðst Gorbatsjov viss
um úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar, mikill meirihluti myndi svara
spurningunni um nýja sambands-
ríkjasamninginn játandi. Sjálfur
kvaðst hann hafa svarað nei við
spurningunni um forsetakosningar í
Rússlandi þar sem þær gætu leitt til
sundrungar ríkjasambandsins og
þar með bara komið að gagni þeim
sem ekki hafa vit á stjórnmálum og
hugsa aðeins um eiginn hag.
Yfirvöld í Eistlandi, Lettlandi, Lit-
háen, Georgíu, Armeníu og Moldavíu
neituðu að láta þjóðaratkvæða-
greiðsluna fara fram. Þó var haldin
atkvæðagreiðsla þar í einhveijum
mæli og stóðu einstök fyrirtæki, her-
fylki og samtök fyrir henni.
Kommúnistaflokkurinn í Eistlandi
og sovéski herinn skipulögðu þjóðar-
atkvæðagreiðsluna í þeim héruðum
landsins þar sem Rússar eru í meiri-
hluta. Samkvæmt eistlensku frétta-
stofunni Eta var hægt að greiða at-
kvæði á hvaða kjörstað sem var og
í húsi liðsforingjanna í Tallinn var
hægt að greiða atkvæði mörgum
sinnum. Fréttamaður varð var við
að sumir þáttakendanna fengu fleiri
en einn atkvæðaseðO. Kjörstjórinn
þar fullyrti að þáttakendur fengju
einungis einn seðil og að ekki væri
leyfilegt að kjósa fyrir aðra. Þegar
hann var spurður hvers vegna sumir
fengju fleiri en einn atkvæðaseðil
sagði hann að líklega hefðu menn
tekið seðla fyrir ættingja sem ekki
væru á kjörstað.
Seðlarnir voru aðgengilegir fyrir
alla og þurftu menn ekki að tilkynna
að þeir væru komnir til að greiða
atkvæði.
Fréttamaður Baltfax kvaðst hafa
getað greitt atkvæði fimm sinnum í
Riga, höfuðborg Lettlands, meö því
einu að sýna vegabréf sitt. í Vilnius,
höfuðborg Litháens, kvaöst frétta-
maður hafa séð Leningradbúa greiða
atkvæða og hefðu þeir ekki þurft að
sanna aö þeir byggju á staðnum.
Sumir hefðu sett fleiri en einn at-
kvæðaseðil í kjörkassana. Interfax
fréttastofan greindi frá því að í Tash-
kent, höfuðborg Úzbekistan, hefði
fólk getað keypt flmm pakka af síga-
rettum við kjörstaði en venjulegu eru
sígarettur ófáanlegar í borginni.
TT, Reuter og FNB
Litháen:
Yf irmaður vam-
armála gripinn af
Sovétmönnum
Skipuleggjandi vamarmála í Lit-
háen, Audrius Butkevicius, var grip-
inn í nótt úti á götu í Vilnius. For-
seti Litháens, Vytautas Landsbergis,
hafði í nótt samband við sænsk-Uthá-
iskan fréttamann, sem staddur er í
Vilnius, og tilkynnti honum að
Butkevicius hefði að öllum hkindum
verið handtekinn.
Fréttamaðurinn haföi það eftir
Landsbergis að sjónarvottar hefðu
séð hermenn sovéska innanríkis-
ráðuneytisins grípa Butkevicius ná-
lægt miðborg Vilnius. í gærkvöldi
ræddi fréttamaðurinn við Butkevic-
ius á hóteh sínu. Butkevicius hélt
þaðan klukkan hálfeitt í nótt að stað-
artíma. Fimmtán mínútum síðar sáu
sjónarvottar hermennina leiða burt
„mann sem líktist Butkevicius".
Aðspurðar tilkynntu sveitir sov-
éska innanríkisráðuneytisins í Viln-
ius að tveir menn hefðu verið gripnir
en aðeins annar þeirra var nafn-
greindur, bílstjóri Butkevicius.
TT
Boris Pugo
Ríkissaksóknari í Litháen mun
leggja fram ákæru á hendur sov-
éska innanríkisráðherranum, Bor-
is Pugo. Þetta sagði Vytautas
Landsbergis, forseti Litháens, í út-
varpsvíðtali i gær. Pugo verður
ákærður vegna þess að hermenn
undir stjóm hans halda áfram eft-
irliti með eigum sem tilheyra þeim
ekki.
Með þessu átti Landsbergis við
byggingar útvarpsins og sjónvarps-
ins í Litháen, sjónvarpsturninn í
Vilnius, blaöahúsið og fleirí bygg-
ingar sem Sovétmenn réðust inn í
11. og 13. janúar.
Landsbergis sagði einnig að
vopnuðum sovéskum sveitum
heföi fjölgað í Litháen að undan-
fórnu.
Litháar standa fyrir framan skrið-
dreka sovéskra hermanna á leið
til blaðahússins í Vilnius i janúar
síðastliðnum. Simamynd Reuter