Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Side 10
10 MÁNUDAGUR 18. MARS. 199L Hús verndarsj óður Reykjavíkur í lok apríl verður úthlutað lán'um úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til við- gerða og endurgerðar á húsnæði í Reykjavík, sem sérstakt varðveislugildi hefur af sögulegum eða byggingarsögulegum ástæðum. Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja greinar- góðar lýsingar á fyrirhuguðum framkvæmdum, verk- lýsingar og teikningar eftir því sem þurfa þykir. Umsóknarfrestur er til 6. apríl 1991 og skal umsókn- um, stíluðum á Umhverfismálaráð Reykjavíkur, kom- ið á skrifstofu Garðyrkjustjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. ■{f ALTERNATORAR ** & STARTARAR í FLESTA BÍLA, BÁTA,VINNUVÉLAR,VÖRUBÍLA. VERÐ Á ALTERNATORUM FRÁ KR. 5.900,- Hinir vinsælu DELCO alternatorar til í 3 stærðum, 63, 85, 108 amper. 108 amp. eru hentugir fyrir fjallabíla og vinnuvélar og fólksbíla o.fl. sem þurfa mikið rafmagn við lítinn snúning. VIÐGERÐA- & VARAHLUTAÞJÓNUSTA. Æm BÍLAKAF HF., BORGARTÚNI 19, SÍMI 24700. Stafaé skrafab L y k i l l a ð l e y n d a r m á l i Þú getur fylgst meb þessum spennandi leik á útvarpsstöbinni FM 957 á hverjum degi íþœtti Ágústar Hébinssonar milli kl. 13.00 og 16.00. Notabu þennan miba til ab finna rétta orbib og þú getur orbib utanlandsferb ríkari. Þú hlustar bara á FM 957 og verbur meb íleiknum. 3»c •------------------- Orð/ð sem vib leitum ab í dag: I 2 3 4 5 6 7 8 9 10 II 12 13 14 15 16 17 18 19 20 □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ 21 22 2.1 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 □□□□□□□□□□□□□□□ Nafn:_____________ heimili: Utlönd Leiðtogaskipti með nýrri stjóm á Grænlandi: Motzfeldt víkur eftir 12 ára setu - segist samt ekki vera hættur 1 stjómmálum „Ég er ekki hættur í stjómmálun- um ennþá. Þetta verður aðeins hlé núna því minn tími er ekki liðinn enn,“ sagði Jonathan Motzfeldt, leið- togi Grænlendinga síðustu 12 árin, eftir að ljóst var að flokksmenn hans höfðu hafnað honum á fundi í Sium- ut-flokknum á laugardaginn. , Motzfeldt hefur staðið höllum fæti í grænlenskum stjórnmálum síðustu misseri. Árið 1989 varð hann að láta formannsembættið í flokkum af hendi til Lars Emils Johansen en hélt þó enn stöðu leiðtoga og varð enn formaður landstjórnarinnar eins og hann hafði verið heilan áratug. Síðustu tvö árin hefur Motzfeldt haldið í síðasta hálmstráið til að verj- ast sókn Johansens til valda. Segja má að það hafi brostið þegar Motz- feldt varð seint á síðasta ári uppvís að sóun á almannafé ásamt ráðherr- um sínum og áfengisneysla hans komst enn í hámæli. Fram til þessa hafði Motzfeldt verið óumdeilanlega vinsælasti stjórnmálamaðurinn á Grænlandi en í kosningunum þann 5. mars hafði Johansen betur og fylgdi sigrinum eftir á fundi Siumut á laugardaginn. Þrátt fyrir áfollin munaði htlu að Motzfeldt hefði betur. í Grænlandi er því haldið fram að hann væri enn formaður landstjórnarinnar ef einn nánasti samverkamaður hans hefði ekki þurft að bregða sér til Kaup- mannahafnar nú um helgina. Sá er Hans-Pavia Rosing landsþingsmaður en í stað hans sat fund flokksins Benedikte Thorsteinsson, andstæð- ingur Motzfeldts. Þegar atkvæði Lars Emil Johansen formaður landstjómar á Grænlandi: Vinstri flokkamir náðu saman á einum degi í formennsku fyrir landstjórninni en samstarfsflokkurinn fær félags- og húsnæðismál. Grænlendingar reikna með að nokkur breyting verði á stefnu stjórnarinnar með nýjum formanni. Johansen hefur ákveðnari skoðanir en Motzfeldt í efnahagsmálum og viU beita ströngu aðhaldi. í þessum efn- um nýtur hann stuðnings hægri mannanna í Atassut enda áttu fleiri von á að hann myndaði stjóm með þeim. Flokksmenn inúíta vildu frem- ur hafa Motzfeldt áfram en sætta sig þó engu að síður við Johansen. Efnahagur Grænlendinga hefur farið mjög versnandi á síðustu árum. Þar er slakri efnahagsstjóm Motz- feldts kennt um. Hann hefur þótt eyðslusamur og óhræddur við aö. auka skuldir landsjóösins. Johansen segir að ekki megi dragst lengur að draga úr umsvifum landstjómarinn- ar. í ýmsum öðrum málum eru þeir sammála. Nýja stjórnin mun leggja áherslu á að nýta betur námur á Grænlandi en það hefur verið sér- stakt áhugamál Motzfeldts. Það verð- ur þó fyrst og fremst í stíl þessara manna sem Grænlendingar sjá mun- inn á Motzfeldt og Johansen. Nýi for- maðurinn þykir yfirvegaðri og ábyrgari en Motzfeldt þykir óheflað- ur og hefur oft sætt ámæli fyrir líf- erni sitt. Honum hefur loksins tekist aö velta Jonathan Motzfeldt úr sessi. Ritzau Ný vinstri stjóm undir for- mennsku Lars Emils Johansen tekur við völdum á Grænlandi í byrjun næsta mánaðar. Johansen hóf þegar í gær tílraunir til að mynda stjórn Siumut og flokks inúíta. Eins og búist var við náðu flokkarnir fljótt saman enda höfðu óformlegar viöræður staðið yfir allt frá því útslit kosninganna lágu fyrir þann 5. mars. Nýja stjórnin hefur 16 þingmenn af 27 á landsþingjnu að baki sér. í stjóminni verða sjö ráðherrar og verða fimm frá Siumut. Þessir flokk- ar hafa áöur setíð saman í stjórn eða att tíl kosninganna 1989 þegar Jonat- han Motzfeldt myndaði minnihluta- stjórn til hægri með stuðningi Atass- ut. Sú stjóm varð ekki langlíf því að Atassut gafst upp á samstarfinu seint á síðasta ári. Eftir það sat Motzfeldt í minnihlutastjórn með stuöningi inúíta. Þingmenn Siumut eru enn í helstu valdastöðum eins og þeir hafa vérið allt frá því að heimastjóminni var komið á fót á Grænlandi árið 1979. Flokksmenn fara enn með efnahags- og sjávarútvegsmál, auk þess að vera Lars Emil Johansen, verðandi formaður landsljórnarinnar á Grænlandi. Jonathan Motzfeldt hefur litla ástæðu til að gleðjast þessa dagna. Flokks- menn hans hafa vikið honum úr embætti formanns landstjórnarinnar en Motzfeldt hefur samt ekki sagt sitt síðasta orð. flokksmanna voru talin munaði einu atkvæði. Þrátt fyrir þetta eru ekki taldar lík- ur á að Motzfeldt getí velt Johansen úr sessi þegar landsþingið kemur saman þann 5. apríl og velur for- mann landstjómarinnar. Johansen hefur meirihluta þingmanna flokks- ins að baki sér og á landsþinginu vilja þingmenn úr öðrum flokkum fremur vinna með Johansen en Motzfeldt. Motzfeldt verður því að bíða um sinn áður en hann getur reynt að ná fyrri völdum. Hann er 52 ára gamall og aldursins vegna er ekkert því til fyrirstöðu að hann nái að skáka and- stæðingum sínum þótt síðar veröi. Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.