Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Page 15
15 MÁNUDAGUR 18. MARS 1991. Loðnubrestur - ekki bara vandi flotans Taka verður á vanda landverkafólks og einstakra byggðarlaga, segir greinarhöf. m.a. Fyrir skömmu lagöi sjávarút- vegsráðherra fram frumvarp á Al- þingi um ráðstafanir til að mæta vanda loðnuflotans vegna þess aflabrests sem fyrirsjáanlegur var. Með frumvarpinu er valin sú leið að bæta tekjutap loðnuflotans með tvennum hætti. Annars vegar með því að veita sjávarútvegsráðherra tímabundna heimild til að ráðstafa til loðnuskipa að hluta eða öllu leyti veiöiheimildum Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins, alls 8000 þorsk- ígildislestum. Hins vegar með því að úthluta tímabundið 5000 lesta viðbótarafla af úthafsrækju til loðnuflotans. Með frumvarpinu er því gerð til- raun til að mæta vanda loðnuflot- ans en ekki er tekið á þeim atvinnu- vanda og tekjumissi sem bæði landverkafólk og einstök byggðar- lög standa frammi fyrir. Byggðasjónarmið - óað- skiljanlegur hluti fiskveiði- stefnunnar Hagræðingarsjóður sjávarút- vegsins var stofnaður síðastliðið vor. Markmiðið með stofnun hans er meðal annars:...að stuðla að aukinni hagkvæmni í útgerð og koma til aðstoðar byggðarlögum er standa höllum fæti vegna breyt- inga á útgerðarháttum... “ eins og segir orðrétt í 1. grein laganna. Kvennalistakonur geta tekið undir þetta markmið. Þingkonur Kvennalistans hafa margoft bent á nauðsyn þess að tekið verði fyllsta tillit til byggðasjónarmiða við mót- KjaUaiiim Danfríður Skarphéðinsdóttir þingkona Kvennalistans, skipar 1. sæti framboðslistans á Vesturlandi un fiskveiðistefnunnar. I samræmi við þá stefnu lögðu Kvennahsta- konur fram fjölmargar breyting- artihögur við þau tvö frumvörp um stjóm fiskveiða sem afgreidd hafa verið frá Alþingi síðasthðin fjögur ár. Með stofnun Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins örlar aðeins á við- urkenningu stjórnvalda á þeim sjónarmiðum Kvennahstans að nauðsynlegt sé að taka tillit til byggðasjónarmiða í einhverjum mæli. Núverandi fyrirkomulag er þó enn fíarri hugmyndum Kvenna- hstans. Lausn fyrir flotann leysir ekki vanda landverkafólks Þegar frumvarp sjávarútvegsráð- herra var lagt fram höfðu skapast óvenjulegar aðstæður vegna afla- brests loðnuflotans og sá hann því ástæðu til að bregðast við vandan- um með þeim hætti sem frum- varpið gerir ráð fyrir og hér hefur verið lýst. Þingkonur Kvennahst- ans telja aðalgahann á frumvarpi sjávarútvegsráðherra vera þann að gert er ráð fyrir að honum verði veitt heimild til að úthluta eftir at- vikum öllum veiðiheimildum Hag- ræðingarsjóðs sjávarútvegsins til loðnuflotans eingöngu en land- verkafólk og byggðarlög voru skil- in eftir. Tillögur Kvennalistans Kvennalistakonur geta ekki sam- þykkt að veiðiheimildum Hagræö- ingarsjóðs veröi eingöngu úthlutað til flotans án þess að um leið sé reynt að leita leiða til að leysa vanda landverkafólks og byggðar- laga. I umræðum um máhð vöruðu þingkonur Kvennahstans við því ákvæði frumvarpsins sem veitir sjávarútvegsráðherra heimild th að tæma Hagræðingarsjóð sjávar- útvegsins í þessu skyni og útiloka þar með að unnt reynist að taka á vanda einstakra byggðarlaga sem upp kann að koma síðar á árinu. í ljósi þessa og með hliðsjón af stefnu Kvennalistans í sjávarút- vegsmálum lögðu þingkonur Kvennahstans fram breytingartil- lögur við umfjöllun um frumvarpið í efri deild. Þær breytingartillögur fela í sér að sjávarútvegsráðherra verði veitt heimild til að úthluta að hámarki 6000 þorskígildislestum úr Hagræðingarsjóði beint til byggðarlaga sem verða fyrir tekju- missi og atvinnuleysi vegna loðnu- brestsins. Jafnframt er kveðið á um að sveitarstjórnir í viðkomandi byggðarlögum skuh við úthlutun aflans til skipa setja skilyrði sem tryggi að starfsfólk loðnuverk- smiðja fái atvinnu við vinnslu afl- ans. Með þessum breytingartillögum vildu kvennahstakonur tryggja að tillit yrði tekið til landverkafólks og byggðarlaga ekki siöur en flot- ans og gerðu því ekki athugasemd- ir við að viðbótarrækjuafla yrði úthlutað beint til loðnuskipanna. Tillögurnar voru felldar í efri deild en þingkonur Kvennalistans í neðri deild munu að sjálfsögðu bera þær fram aftur við afgreiðslu málsins þar en ekki er ljóst, þegar þetta er ritað, hvort málið fær end- anlega afgreiðslu fyrir þinglok. Danfríður Skarphéðinsdóttir „Kvennalistakonur geta ekki sam- þykkt að veiðiheimildum Hagræðing- arsjóðs verði eingöngu úthlutað til flot- ans án þess að um leið sé reynt að leita leiða til að leysa vanda landverkafólks og byggðarlaga.“ Lykill að bættum lífskjörum .. .frelsi myndi leiða til drjúgrar hækkunar á verðmæti útflutts sjávarafla. Fyrir okkur íslendinga er landið okkar í rauninni ein stór auðlind. Við eigum besta fiskinn. Við eigum fahvötn sem búa yfir ótrúlegri orku. Við eigum hreint loft og nátt- úru sem er svo óspillt að útlending- ar falla í stafi. Þrátt fyrir þessa gjafmhdi náttúr- unnar erum við sjálf búin að reyra okkur svo kirfilega í fjötra úreltra kerfa - einkum í landbúnaði og sjávarútvegi - að hagfræðingar spá að um aldamótin kunni íslendingar að verða í hópi fátækustu þjóða á Vesturlöndum. Aukum kaupmáttinn Sjaldan hefur því verið jafnbrýnt og nú að finna leiðir sem gætu lyft lífskjörum án þess að verðbólgan shti á ný af sér tjóðrið. Þetta er ekki síst brýnt vegna þess að eitt mikilvægasta verkefni næstu miss- era er að auka kaupmátt hjá launa- fólki. En hvernig er það hægt án þess að leysa verðbólguna úr læðingi aftur? Mín leið felst í að þora - þora að stokka upp atvinnulífið. Þora að taka á úreltum kerfum í land- búnaði og sjávarútvegi. Þora að feta nýjar leiðir í markaösmálum. Þora að þróa nýjungar í orkusölu. Þora að beita félagslegum leiðum th að bæta kjör þeirra verst settu. Þetta er það sem við þurfum: Lækkað matarverð Uppstokkun í landbúnaði þar sem opnað yrði á innfiutning á iðn- framleiddum matvörum, svo sem eggjum, svínakjöti og kjúklingum - í fullri sátt við bændur. Matar- KjaUaiinn Össur Skarphéðinsson skipar 3. sætið á lista Alþýðu- flokksins í Reykjavík verð myndi lækka en samhliða drægi úr nauðsyn á útflutnings- bótum og niðurgreiðslum á inn- lendar matvörur. Þar með yrði um síðir verulegur spamaður hjá rík- inu sem mætti að hluta verja í tíma- bundnar aðgerðir til að styrkja bændur til að laga sig að breyttum markaði. Fiskveiðikvóti yrði seldur þannig að gjaldið rynni th þeirra sem eiga hann lögum samkvæmt, þ.e.a.s. þjóðarinnar. Þó farið yrði hægt af stað myndi þetta skjótt leiða til þess að milljarðar rynnu til sam- neyslunnar. Þannig yrði hægt að lækka skatta án þess að skera nið- ur velferðarkerfíð. Lögskylda ahan fisk af íslands- miðum th að fara yfir uppboðs- markað á íslandi. Við þetta stór- fjölgaði smáum fyrirtækjum sem ynnu sérhæfða vöru. í senn myndi því aukast framboð á vel borguðum störfum og verðmæti útflutnings á sjávarfangi myndi ennfremur hækka. Algeru afnámi á einokun í út- flutningi á frystum og söltuðum fiski. Frelsi á þessu sviði myndi leiða til drjúgrar hækkunar á verð- mæti útflutts sjávarafla. Hærri skattfrelsismörk Varfærna uppbyggingu stóriðju þar sem fyllstu mengunarvarna yrði gætt. Aliðja er þó alls ekkert lausnarorð í sjálfu sér en hún er góð með öðru. Jafnframt ber að stefna að orku- sölu um streng th Evrópu. Tækni- lega er þetta nú kleift og með slíkri sölu væri hægt að breyta orkunni í beinharðan gjaldeyri, án mengun- ar og án sérstakrar tengingar við stóriðju. Stórátaki í ferðamannaiðnaði þar sem hreina loftið, tæra vatnið og ómenguð náttúra yröi markaðssett með mun hnitmiðaðri hætti en nú er gert. Ofangreindar aðgerðir myndu fljótt gjörbreyta íslensku atvinnu- lffi, öllum til góða. Ég tel hins vegar að sérstakar aðgerðir þurfi auk- reitis til að bæta sérlega kjör þeirra verst settu. Það vil ég gera svona: Hækka skattfrelsismörk og þann- ig í raun afnema tekjuskatt hjá lág- launafólki. Veita húsnæðisbætur th lág- launafólks í leiguhúsnæði, stór- fjölga kaupleigu- og búseturéttar- íbúðum ásamt íbúðum í félagslega kerfinu. Jákvæð framtíð Þessar thlögur ganga að sönnu í berhögg við hagsmuni kvótakóng- anna í Sjálfstæðisflokknum. Þær munu heldur ekki fagna húrra- hrópum úr glæstum salarkynnum skrifstofubændanna við Hagatorg sem ráða landbúnaðarstefnu Framsóknar. En þær eru eigi að síður lykihinn að vel reknu þjóð- félagi þar sem hægt er að auka kaupmátt með betri launum, lægra matarverði, og spamaður í sjávar- útvegi og landbúnaði dregur veru- lega úr skattlagningu. Þær eru lykhl að betri framtíð. össur Skarphéðinsson „Mín leið felst 1 að þora - þora að stokka upp atvinnulífið. Þora að taka á úrelt- um kerfum 1 landbúnaði og sjávarút- vegi. Þora að feta nýjar leiðir í mark- aðsmálum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.