Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Page 32
44
MÁNUDAGUR 18. MARS 1991.
Afmæli________________pv
Ólafur Gíslason
Ólafur Gíslason fulltrúi, Skagflrð-
ingabraut 33, Sauðárkróki, er sjötíu
ogfimm áraídag.
Starfsferill
Ólafur fæddist að Pjósum í
Svartadal í Austur-Húnavatnssýslu
og ólst upp í Húnavatnssýslunni til
tólf ára aldurs en síðan á Sauðár-
króki. Ólafur stundaði bifreiðaakst-
ur frá 1934. Hann keyrði langferða-
bíla hjá BSA á Akureyri á árunum
1938-46 og stundaði síðan bifreiða-
akstur á eigin vegum til 1959. Þá hóf
hann störf hjá Pósti og síma þar sem
hann starfaði í tuttugu og sjö ár,
síðustu árin sem fulltrúi.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 18.3.1946 Guð-
rúnu Svanbergsdóttur, f. 17.8.1927,
kaupmanni, en hún er dóttir Svan-
bergs Sigurgeirssonar, vatnsveitu-
stjóra á Akureyri, og Aðalheiðar
Jönsdóttur húsmóður.
Börn Ólafs og Guðrúnar eru Gísli
Ólafsson, yfirdeildarstjóri Pósts og
síma á Akureyri, kvæntur Ingi-
björgu Jónsdóttur fulltrúa og eiga
þau þrjú börn, Lilju, Aðalheiði og
Ólaf; Óh Ólafsson, bakari á Akur-
eyri, kvæntur Sesselju Einarsdóttur
húsmóður og eiga þau þrjú börn,
Lindu Björk, Birgi Rafn og Helgu
Hrönn; Hörður G. Ólafsson, tann-
smiður og tónlistarmaður á Sauðár-
króki, og á hann þrjú börn, Guö-
rúnu Helgu, Ólaf Heiöar og Elfu
Hlín.
Ólafur átti tvær systur. Guörúnu,
skáldkonu í Reykjavík, sem er látin,
og Huldu, húsmóður á Sauðárkróki.
Foreldrar Ólafs voru Gísli Ólafs-
son, f. 2.1.1885, d. 14.2.1967, skáld
frá Eiríksstöðum, og Jakobína Þor-
leifsdóttir, f. 29.6.1896, d. 29.5.1968.
Jakobína var ættuð frá Kleifarhóli
Ólafur Gíslason.
í Langadal við Ísaíjarðardjúp en
Gísli var af Skeggjastaða- og Stóra-
dalsætt.
Ólafur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
MESTSELDI
FÓLKSBÍLL I EVRÓPU
VOLKSWAGEN
GOLF
KOSTAR NÚ AÐEINS FRÁ KR
898.000
® Sparneytinn @ Einstök fjöðrun
® Endingargóður @ Aflmikill hreyfill 1,6 l
® Auðveldur í endursölu 0 Aflstýri
0 Lág bilanatíðni 0 Samlœsing (4ra dyra)
# Ryðvörn í sérflokki @ Þriggja ára ábyrgð
DRAUMABÍLL I AKSTRI
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI695500
Andlát
Else Figved frá Eskifirði lést á hjúk-
runarheimilinu Skjóh þann 15. mars.
Hulda Dagmar Þorfinnsdóttir, Kárs-
nesbraut 125, Kópavogi, andaðist á
heimili sínufimmtudaginn 14. mars.
Jarðarfarir
Friðjón I. Júlíusson frá Hrappsey,
Austurgerði 4, Kópavogi, lést 6. mars.
Jarðarförin hefur farið fram frá
Kópavogskirkju.
Hólmfríður Jónsdóttir, Skipasundi
21, Reykjavík, sem lést 12. mars sl.,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 20. mars kl. 15.
Útför Þórðar Pálmasonar, fyrrver-
andi kaupfélagsstjóra í Borgarnesi,
th heimihs aö Kvisthaga 17, Reykja-
vik, fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 19. þ.m. kl. 13.30. Sæta-
ferðir verða frá Kaupfélagi Borgfirð-
inga, Borgamesi, kl. 11.15 f.h.
Jóhanna Kristin Yngvadóttir list-
málari, Heimahvammi, Blesugróf,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
í dag, 18. mars, kl. 13.30.
Tilkyniuiigar
Ljósmyndasamkeppni
Nýlega undirrituðu ViÚijálmur Kristj-
ánsson, formaður Hugmyndar ’81, og
Davíð Scheving, framkvæmdastjóri Sólar
hf., samning um ljósmyndasamkeppni.
Hugmyndin er að taka myndir fyrir Sól
hf. sem'nýst gætu sem auglýsingamyndir
en færu jafnframt upp á vegg í fyrirtæk-
inu. Samkeppnin fer þannig fram að fé-
lagsmaður Hugmyndar ’81 skilar inn
myndum hvort sem er í svart/hvítu, lit
eða á slides. Þá tekur við myndimum
dómnefnd þar sem tveir menn eru skip-
aðir af Hugmynd 81 en einn af Sól hf. og
velja þeir síðan 10 bestu myndimar. Þær
myndir sem lenda í þrem efstu sætunum
njóta síðan sérstakrar viðurkenningar
frá Hugmynd ’81. Skilafrestur mynda í
ljósmyndasamkeppnina er 30. mars og
eru allir félagsmenn Hugmyndar ’81
hvattir til að taka þátt í keppninni. Upp-
lýsingar eru veittar að Klapparstíg 26,
næstu fimmtudagskvöld frá kl. 20.30-23.
Leigjendasamtökin í
nýtt húsnæði
Leigjendasamtökin hafa flutt starfsemi
sína í Alþýðuhúsið að Hverfisgötu 8-10,
4, hæð (inngangur frá Ingólfsstræti).
Þangað getur fólk leitað á skrifstofutlma
eftir upplýsingum og félagsmenn hvers
konar aðstoða það við að ná rétti sínum,
ef á þaö er hallað í leigumálum. Einnig
reyna Leigjendasamtökin aö útvega fé-
lagsmönnum húsnæði eftir því sem hægt
er. Stjórn Leigjendasamtakanna hefur í
hyggju að setja á fót löggilta leigumiðlun
er annist miðlun leiguhúsnæðis. Hefur
stjómin leitað til Húseigendafélagsins og
Reykjavíkurborgar með samstarf í huga
eða stuðning. Leigumiðlun er þannig
væri að staðið ætti að geta notið trausts
beggja aðila leigumálans. Stjóm Leigu-
samtakanna vill hvetja alla leigjendur til
að hafa samband við skrifstofuna og taka
þátt í starfi samtaka sinna. Stærsta bar-
áttmnál samtakanna nú er að fá viður-
kenndan rétt leigjenda til húsnæðisbóta.
Er full þörf á samstöðu leigjenda til að
ná fram því réttlætismáli.
Kaffikonsert á Húsavík
Þriöjudagskvöldið 19. mars kl. 20.30 halda
fiðluleikarinn Hlíf Sigurjónsdóttir og gít-
arleikarinn Símon H. ívarsson tónleika í
Nýja safnaðarheimilinu í samvinnu við
Tónlistarskóla Húsavíkur. Einnig munu
þau halda námskeið fyrir nemendur Tón-
listarskólans fyrir tónleikana. Fiðla og
gítar heyrast ekki oft í samleik hér á landi
en hafa veriö nátengd hvort öðm í gegn-
um sögu tónlistarinnar. Hér gefur því að
heyra fjölbreytta tónlist frá ólíkum tíma-
bilum, en á efnisskránni em m.a. verk
eftir Handel, Beethoven, Paganini, Sara-
sate, Gunnar Reyni Sveinsson og Al-
beniz. Á tónleikunum er reynt að breyta
út frá hinu hefðbundna tónleikaformi,
m.a. með því að nemendur Tónlistarskól-
ans taki þátt í tónleikunum og einnig
verður kafii á boðstólum og gefst tón-
leikagestum þá tækifæri til að ræða við
flytjendur.
Tapað-fundið
Fjallahjól tapaðist
Bláu Murray fiallahjóli var stohð úr
hjólageymslu að Fálkagötu 11. Geti ein-
hver veitt upplýsingar er hann vinsam-
legast beðinn að hringja í síma 22378.
Leikhús
Aa
HHíA
Nqr
Hiá
Mjólkurskógi
eftir Dylan Thomas
Leikstjóri Viöar Eggertsson
Sýnt i Tjarnarbíói
Miöapantanir í síma 620458 eftir kl. 14.
10. sýning þriðjud. 19.3. kl. 20.30. Síð-
asta sýning.
1IIII
ÍSLENSKA ÓPERAN
___lllll GAMLA BlO INOOLfSSTHÆTl
RIGOLETTO
eftir Giuseppe Verdi
Næstu sýningar
20. mars, uppselt.
22. mars, uppselt.
23. mars, uppselt.
(Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur
hlutverk Gildu.)
Ath. Óvíst er um fleiri sýningar!
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 14-18 og sýningardaga til kl.
20.00.
Simi 11475.
Greiðslukortaþjónusta
VISA - EURO - SAMKORT
■ STÓRKOSTLEG
ASKRIFTAR
Ertþú örugglega
oroinn áskrifandi?
Leikfélag Akureyrar
Söngleikurinn
KYSSTU
MIG,
KATA!
eftir Samuel og
Bellu Spewack
Tónlist og söngtextar eftir Cole Porter
Þýðing: Böðvar Guðmundsson
Leikstjórn: Þórunn Sigurðardóttir
Leikmynd og búningar: Una Collins
Tónlistarstjórn: Jakob Frímann
Magnússon
Dansar: Nanette Nelms
Lýsing: Ingvar Björnsson
Leikendur, söngvarar, dansarar og
hljóðfæraleikarar: Ragnhildur Gisla-
dóttir, Helgi Björnsson, Vilborg
Halldórsdóttlr, Valgeir Skagfjörð,
Björn Ingi Hilmarsson, Eggert Kaa-
ber, Jón St. Kristjánsson, Kristján
Pétur Sigurósson, Jón Benónýs-
son, Þráinn Karlsson, Sunna Borg,
Gestur Einar Jónasson, Guðrún
Gunnarsdóttir, Berglind Björk
Jónasdóttir, Ingibjörg Björnsdótt-
ir, Nanette Nelms, Astrós Gunn-
arsdóttir, Jóhann Arnarsson,
Óskar Einarsson, Birgir Karlsson,
Karl Petersen, Sveinn Sigurbjörns-
son, Þorsteinn Kjartansson og
Björn Jósepsson.
4. sýning föstud. 22. mars kl. 20.30.
5. sýning laugard. 23. mars kl.
20.30.
6. sýning sunnud. 24. mars kl.
20.30.
ÆTTARMÓTIÐ
Aukasýningar
35. sýning miðvikud. 27. mars kl. 20.30.
36. sýning fimmtud. 28. mars (skirdag)
kl. 15.00.
37. sýning fimmtud, 28. mars (skirdag)
kl. 20.30.
Aðgöngumiðasala: 96-2 40 73.
Miðasalan er opin alla virka daga nema
mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga
kl. 14-20.30.
MTJNIÐ PAKKAFERÐIR
FLUGLEIÐA