Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Síða 3
MÁNUpAGUR }. JÚLÍ1991- 25 Iþróttir Sport- stúfar Valderrama til Real Valladolid - • Kólumbíski landsl- iðsmaðurinn Carlos Valderrama gerði um helgina tveggja ára samning við spænska félagið Real Valladolid. Valderrama lék áður um þriggja ára skeið með franska liðinu Montpellier. Valladolid þurfti að greiða um 200 milljónir fyrir kappann. Þess má geta að þjálfari Valladolid er Francisco Maturana en hann var þjálfari landsliðs Kólumbíu í síðustu heimsmeistarakeppni. Eiríkur vann opið golfmót í Grafarholti • Eiríkur Guðmunds- son, GR, sigraði á opnu golfmóti sem haldið var í Grafarholti. Ei- ríkur hlaut 38 punkta en í öðru sæti varð Finnur Oddsson, GR, með 37 punkta og í þriðja sæti lenti Eyjólfur Bergþórsson, GR, með 37 punkta. Eyjólfur er ef til vill betur þekktari fyrir störf sín á knattspymusviðinu en hann er formaður meistaraflokksráðs hjá 1. deildar Uði Fram. • Pavel Vandas skorar hið umdeilda mark í Kaplakrikanum í gær. Vandas komst einn inn fyrir vörn FH og skoraði með föstu skoti framhjá Stefáni Arnarsyni sem kom engum vörnum við. DV-mynd Brynjar Gauti Stuttgart Kickers í þýsku úrvalsdeildina • Stuttgart Kickers vann sér í gær sæti í þýsku úrvalsdeildinni í knattspymu á næsta tímabili. Stuttgart Kickers sigr- aði St. PauU í þriðju viðureign Uðanna, 3-1, en eftir tvo leiki stóðu Uðin jöfn að vígi og þurfti því þriðja leikinn til að skera úr um hvort Uðið fengi sætið í úr- valsdeildinni. St. PauU, Hertha BerUn og Bayer Uerdingen féUu niður en Stuttgart Kickers, Schalke og Duisburg taka sæti í úrvalsdeildinni. CSKA í efsta sæti í Sovétríkjunum • Tveir leikir fóru fram í sovésku 1. deUd- inni í gær. Torpedo Moskva sigraði Pak- htakor, 1-0, og Lokamotiv Moskva sigraði Pamir, 2-0. CSKA er efst í 1. deUd að loknum 16 umferðum með 24 stig en Torpedo og Donetsk eru jöfn í öðru tU þriðja sæti með 19 stig. Lyn sigraði Sogndahl • Lyn heldur 3. sæt- inu í norsku 1. deild- inni eftir 2-0 sigur á Sogndahl í gærdag. Ól- afur Þórðarson lék með Lyn eftir leikbann sem hann tók út um síð- ustu helgi. Viking er efst með 22 stig í norsku 1. deUdinni, Start í öðm sæti með 18 og síðan kemur lyn með 17 stig. Lendl vann með naumindum • Leikið var áfram á Wimbledon-mótinu í tennis í gær og er það í fyrsta skipti í sögu, mótsins sem leikið er á sunnu- degi mUli leikvikna. Þetta var gert vegna þess að mikU úrkoma hefur sett alla dagskrána úr skoröum. Tékkneski snilhngur- inn Ivan Lendl mátti þakka fyrir að sigra Bandaríkjamanninn M. Washington í 2. umferðinni í gær. Washington vann tvær fyrstu lot- urnar en Lendl náði að vinna sig- ur, 7-5, í 5. lotu og tryggja sér þar með nauman sigur. ÚrsUtaleik- imir verða leiknir um næstu helgi ef veður leyfir. Hasarí Krikanum umdeilt mark kom KA-mönnum á bragðið í 0-2 sigri Akureyringa „Þetta var auövitað geysUega mik- Uvægur sigur fyrir okkur gegn liði sem er á svipuðu reki og við. Nú er bara að halda áfram upp á við og reyna að síga upp töfluna á næst- unni,“ sagði Ormarr Örlygsson, þjálfari og leikmaður KA, eftir að norðanmenn höfðu sigraö FH, 0-2, í Kaplakrika í gærdag. Sigur KA var sanngjarn en það verður að segjast eins og er að fyrra mark Uðsins var mjög umdeilt. Það var á lokamínútu fyrri hálfleiks sem KA-menn náðu forystunni. Löng sending frá Einari Einarssyni fór inn fyrir vörri FH og þar virtust tveir KA-menn greinilega rangstæðir. Varnarmenn FH stoppuðu og biðu eftir að rangstæða yrði dæmd en svo var ekki. Pavel Vnadas fékk boltann og var algerlega einn og óvaldaöur og skoraði auðveldlega framhjá Ste- fáni Arnarsyni, markverði FH. Hafn- firðingar gersamlega trylltust og aU- ir leikmenn liðsins hópuðust í kring- um Guðmund Jónsson línuvörð. Sekúndum síðar, þegar flautað var til leikhlés, fóru forráðamenn FH- inga inn á vöUinn og mótmæltu mjög kröftuglega og það leið nokkur stund þar til Sveinn Sveinsson komst tU búningsherbergja ásamt Unuvörö- um. „Ég var ekki rangstæður þegar Einar spymti boltanum, það er alveg á hreinu," sagði Vandas sjálfur um atvikið. Það má þó segja að Guð- mundur Unuvörður hafi ekki verið sannfærandi í undanförnum leikjum því hann virtist gera tvö hrikaleg mistök í leik Stjörnunnar og Víkings á dögunum sem bitnuðu mjög á Stjörnunni. Það tók FH-inga, sem verið höfðu betri aðiUnn í fyrri hálfleik, nokkra stund að jafna sig á mótlætinu því KA-menn fengu 3 dauðafæri í upp- hafl síðari hálfleiks. Vandas og Páll Gíslason klúðruðu færum eftir að hafa komist í gegnum vörn FH og Einar átti síðan þrumuskot í þverslá. Síðasta hálftímann náðu FH-ingar undirtökum á miðjunni en náðu ekki að skapa sér nema eitt verulegt færi þegar Pálmi Jónsson skaut framhjá af markteig. Vörn FH opnaðist síðan iUa á lokamínútunni og eftir aU- þunga sókn náði Sverrir Sverrisson að skora annað mark KA og guU- tryggjasigurnorðanmanna. -RR Atletico bikarmeistari Atletico Madrid varð spænskur bikarmeistari í knattspyrnu á laug- ardaginn var. Atletico Madrid sigr- aði Real MaUorca í úrslitaleik í Madrid, 1-0. Alfredo Santa Elena skoraði sigurmarkið í framlengingu. LeUíurinn fór fram á Santiago Bernabeu, heimavelli Real Madrid, og var 36 stiga hiti þegar leikurinn fór fram. Þjóðverjinn Bernd Schuster, sem leikur með Atletico, er fyrsti leikmaðurinn sem vinnur spænska bikarinn með þremur félög- um. Fyrst með Barcelona 1983 og 1988, með Real Madrid 1988 og 1991 með Atletico. -JKS • Manolo Sanchez með bikarinn. o od Islandsmótið í knattspyrnu, 1. deild 1991 SAMSKIPA- -O 'O f E deildin O O o o ÚR-STJARNAN á KR-velli í kvöld kl. 20.00 Snælda með nýja KR-laginu, Hverjir eru bestir, fæst í KR-heimilinu. KR-sessurnar eru komnar. Nauðsynlegar á völlinn, í bílinn og garðinn. Verð aðeins kr. 500. BÍLASTÆÐIÁ MALARVELLI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.