Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Side 9
Einubesta moti lokið Yfirleitt vekur það ekki mikla athygli þótt rigni í Rangárþingi, en forsvarsmenn fiórðungsmótsins voru álika þungbúnir og veðrið á laugardeginum þegar regn fór að angra mótsgesti og fæla aðra frá að koma. En suddinn náði einungis nokk- urra tima törn á laugardeginum, að öðru leyti var veðrið til fyrir- myndar eins og flestir mótsgesta. Það er ljóst að aðstandendur mótsins hafa gert allt sem í þeirra valdi stóð til aö gera svæöið sem best úr garði fyrir gesti. Aðstaðan var frábær á flestum sviðum. Áhorfendabrekkur, hreinlætisaö- staða og veitingar miðsvæðis þann- ig aö ekki var hætta á að missa af neinu og stærsta tjald á íslandi veitti skjól ef eitthvað bjátaöi á. Það eina sem vantaði voru fleiri áhorfendur. Um það bil 4.0001 manns þurfti tii aö ekki yrði tap á [ rekstrinum og var sloppið fyrirj homrekstarlega-Þómættuhestaá- [ hugamenn af öllum landsfjórðung- um og jafirvel nokkrir útlendingar. Timasetningar voru rúmar og| stóðust að öllu leyti nema á sunnu- deginum er kynbótaverðlaunaveit- ingar fóru tæpa kiukkustund fram | úráætlun. -EJ • Hólmi frá Kvíabekk sigraöi i 150 metra skeiði Leistur enn fyrstur - áhugi meðal áhorfenda á kappreiðum og mikil þátttaka í skeiðgreinum DV-myndir EJ • Það voru ekki allir hestarnir sáttir viö að taka þátt i 800 metra stökkinu Töluverður áhugi var meðal áhorf- enda á kappreiöum. Þátttakendur vora ekki margir í stökki og brokki, en nokkrir tugir í skeiðgreinunum, eins og vepja er á stórmótum, enda verðlaun veglegri. Tímar voru bærilegir. í 150 metra skeiðinu sigraði Hólmi frá Kvíabekk á 14,48 sek. og skaut aftur fyrir sig vænlegri sigurvegurum. Leistur frá Keldudal er enn að og sigraði í 250 metra skeiðinu á 23,23 sek. Þróttur frá Tunguhálsi var ann- ar á 23,42 sek. Þrótti dugði einn sprettur, því hann var að keppa í úrslitum í A-flokki og fór ekki síðari sprettinn. Reyndar náðust þrir bestu tímarnir fyrri daginn. - Lótus frá Götu sigraði enn einu sinni í 800 metra stökki nú á 59,96 sek. sem er ágætur tími. Daði frá Syðra-Sköröugili var lang- fyrstur í mark í 300 metra brokki, skondraði völlinn á 32,24 sek. Ófeigum eigi í hel komið Þó svo að margir knapar færu um geyst og með töluverðum slætti fannst áhorfendum nóg um þegar skeiðgammurinn Depill datt á braut- inni. Depill var að keppa í 150 metra skeiði er hann missti fótanna, steypt- ist yfir knapann Alexander Hrafn- kelsson og bætti um betur og steig á höfuðiö á Alexander er hann stóð á fætur. Það var mikið hvíað og veinað í áhorfendabrekkunni því fólkið hélt Alexander stórslasaðan. Til að taka af allan vafa stökk Alexander á fætur og veifaöi til áhorfenda. Þar skildi milli feigs og ófeigs. Þess verður að geta að Alexander slasaðist lítillega á fæti, en hjálmurinn á höfði hans bjargaði honum frá fjörtjóni. -EJ Kapp- reiða- úrslit 150 metra skeið 1. Hólmi............14,48 sek. Knapi: Svanur Guðmundsson Eig.: Svanur/Vilberg Skúlason 2. Dreyri...........14,56sek. Knapi: Ragnar Hinriksson Eig.: Matthías Garðarsson 3. Snarfari.........14,86 sek. Knapi/Eig.: Sigurbjöm Báröars. 250 metra skeiö 1. Leistur..........23,23 sek. Knapi: Sigurbjörn Bárðarson Eig.: Hörður G. Albertsson 2. Þróttur..........23,42sek. Knapi: Erhng Sigurðsson Eig.: Hjálmar Guðjónsson 3. Kolbakur.........23,64 sek. Knapi/Eig.: Gunnar Amarson 350 metra stökk 1. Háfeti...........25,30sek. Knapi: ? Eig.: Lárus Þórhallsson 2. Subara-Brúnn.....25,44 sek. Knapi: Magnús Benediktsson Eig.: Guöni Kristinsson 3. Reykur...........26,01sek. Knapi: Guðmundur J. Jónsson Elg.: Pétur Kjartansson 800 metra stökk 1. Lótus............59,96 sek. Knapi: Reynir Aðalsteinsson Eig.: Magnús Benediktsson 2. Funi.............60,70 sek. Knapi: Daði Ingvarsson Eig.: Ingvar Björgvinsson og Kristín Oskarsdóttir 3. Léttir.........61,56sek. Knapi/Eig.: Þorvaldur H. Auð- unsson 300 metra brokk 1. Daði.............32,24 sek. Knapi: Bjöm Fr. Jónsson Eig.: Jón Friðriksson 2. Fylkir.........37,03sek. Knapi: Axel Geirsson Eig.: Magnús Geirsson 3. Krammi.........37,40sek. Knapi/Eig.: Guðmundur Viðarss. -EJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.