Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Side 11
• LAiíGMB5)A<SIíRI20/,0æiM19?y
%
MÉÉÉÉMAÉÉÉT
UÉÉÉÉÉÉÉM
UÉÉÉÉÉÉÉÉÉÉÉÉÉÉÍ
Böm og búskapur
Líf og störf stórfjölskyldunnar er
viðfangsefniö í þáttunum Böm og
búskapur sem Sjónvarpið sýnir á
sunnudagskvöldum. Hliðar fjöl-
skyldulífsins eru margar og í þátt-
unum er fjallað um þær á heldur
gamansaman hátt. Á frummáhnu
kallast þættirnir Parenthood en
kvikmynd með sama nafni um
sama umijöllunarefni gerði það
gott í bíóhúsum borgarinnar fyrir
ekki margt löngu. Þar var aðalhlut-
verkið í höndum grínarans góð-
kunna, Steve Martin, en hann kem-
ur þó hvergi nálægt sjónvarpsþátt-
unum.
Þó Martins njóti ekki við í þáttun-
um eru engir aukvisar í aöalhlut-
verkum. Ed Begley leikur heimilis-
fóðurinn Gil Buckham en Ed þessi
hefur getið sér gott orð fyrir
frammistöðu sína í myndum á borð
við She-Devil, Cat People og Proto-
col. Eiginkonu hans, Karen, leikur
Jayne Atkinson en margir muna
e.t.v. eftir henni úr Revenge of A1
Capone. Af öðrum leikurum má
nefna Wilham Windom, Sheha
MacRae, Maryedith Burrell, Susan
Norman og Ken Ober.
Aðalpersónur þáttanna eru hjón-
in Gil og Kate og börnin þeirra.
Uppeldisaðferðir hjónanna og
reyndar annarra ættingja eru oft á
tíðum skrautlegar. Sérstaklega á
þetta við um Susan, systur Kate.
Barn hennar, sem er þriggja ára
gamalt, er þátttakandi í karate-
tímum, sækir spænskutíma og les
verk eftir pólska rithöfundinn
Kafka. Gil og Kate taka hlutverk
sitt sem foreldra alvarlega en þó
með öðrum hætti en Susan og eig-
inmaður hennar, Nathan, sem hef-
ur frumkvæðið að þessu námi
barnsins.
Gh reynir sjálfur að theinka
heimhinu eins mikinn tíma og
hann mögulega getur en hann fmn-
ur fljótt að hann fær ekki öllu ráð-
ið um uppeldi barnanna og kemur
þar ýmislegt th. Karen reynir líka
að eyða miklum tíma með fjöl-
skyldunni en á í vandræðum með
að gera upp við sig hvort það eigi
að bitna á starfsframa hennar.
líf og störf stórfjölskyldunnar
Steve Martin lek aðalhlutverkið i kvikmyndinni Parenthood en Sjónvarpið sýnir nú framhaldsmyndaflokk sem er byggður á sama efni.
Framleiðandi þáttanna er The
Imagine Television en fyrirtækinu
innan handar er enginn annar en
Ron Howard, sá hinn sami og leik-
stýrði kvikmyndinni með samnefnt
nafn. Howard er sjóaður í bransan-
um og hefur m.a. leikstýrt Splash með Howard
og Cocoon. Honum til aðstöðar er Splash.
Brian Grazer en hann vann einmitt
að Parenthood og
Vísnaþáttur
Ljúft er að snúa að lokum heim
Fátt er það af fyrirbærum lífsins
sem blekkir okkur jafnáþreifan-
lega og tíminn. Meðan við erum að
vaxa úr grasi rétt mjakast hann
áfram, en þegar ellin færist yflr fer
hann á sem næst ólöglegum hraða,
að sumum finnst. Og alla leiðina
frá æsku th ehi sóum við tímanum
hugsunarlítið og hann okkur. En
öhum væri okkur fuh þörf á að
íhuga orð spekingsins Benjamíns
Frankhns sem sagði: „Ef þú elskar
lífiö skaltu ekki sóa tímanum, því
úr honum er lífið gert“. Og ekki
sakar að minna á orð annars spaks
manns, sem ég veit því miður ekki
hver er, eða var, en þau eru svo-
hljóðandi: „Mundu að dagurinn í
dag er fyrstur þeirra daga sem þú
átt eftir ólifaða".
Ásgrímur Kristinsson frá Ás-
brekku í Vatnsdal lýsir viðhorfi
sínu þannig:
Okkar stutta æviskeið
ýmsar kreppa skorður.
Sárt er að vera á suöurleið
er sumarið heldur norður.
Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum
telur sig hafa verið vanbúinn til
ferðar, er lífsganga hans hófst:
Elhn þagði um sárin særð,
svikabragð og falhð.
Æskan sagði: Indæl færð,
er ég lagði á fjallið.
Og þegar farið er að halla undan
fæti kveður hann, og kallar stök-
una Afturfor
Gerast hár á höfði grá,
hæhinn sár í skónum.
Berast árin að og frá
eins og bára á sjónum.
Guðmundur Gunnarsson frá
Tindum á Skarðsströnd lýsir
reynslu sinni á eftirfarandi hátt:
Æskuspaug er falhð frá,
fjör úr taugum þokast.
Svefninn augun sígur á,
senn fara þau að lokast.
Bráðum fundinn friður er
foldar undir grasi.
Lífsins pund var lánað mér,
lækkar á stundaglasi.
Bjarni Jónsson frá Gröf í Víðidal,
lengi úrsmiður á Akureyri, var
mjög snjah hagyrðingur. Hann orti
oftast í gamansömum tón og þá
ekki síður um sjálfan sig en aðra.
Ekki veit ég hvort hann hefur verið
að yrkja um sjálfan sig, er hann
kvað:
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Æviskeið er orðið langt,
oft var meira en hálfur,
aldrei dæmdhaðra strangt,
enda breyzkur sjálfur.
Hann sagði ennfremur:
Alltaf þyngist elhn mér,
ævi svignar greinin.
Dagur kemur, dagur fer,
dropinn holar steininn.
Syndir eins og fjaðrafok
finnast kringum veginn,
þegar ég í leiðarlok
lendi hinum megin.
Alnafni hans, Bjarni Jónsson frá
Sýruparti á Akranesi, var spurður
hvemig hehsa hans væri. Hann
svaraði:
Gigtin hamast, bognar bak,
brotalamir séröu.
Allt er gamalt ónýtt brak
og eins að framanverðu.
Björn Friðriksson frá Bergsstöð-
um á Vatnsnesi hefur verið lítið
betur á sig kominn, er hann kvað:
Lúnir armar, lundin þreytt,
lömuð af galdri norna.
Nú er ekki eftir neitt
annað en skapið foma.
Og Ásgrímur Kristinsson frá Ás-
brekku tekur í sama streng:
Eytt og glatað er mér flest,
ævifatið slitið.
Þung er gatan, þrekið mest
þurfti í matarstritið.
Faðir Ásgríms, Kristinn Bjarna-
son frá Ási í Vatnsdal, lýsir kjörum
sínum þannig:
Æska í fumi fram hjá mér
frá sér numin gengur.
Fyrir hruman öldung er
ekkert sumar lengur.
En hann er þó ekkert á því að
gefast upp, því hann segir:
Þegar elh þyngir fót,
þor og kraftur dvínar,
hugurinn getur mælt sér mót
við minningarnar sínar.
Jórunn Kristinsdóttir frá Minni-
Þverá í Fljótum, seinni kona Sæ-
mundar Sæmundssonar, skip-
stjóra á Hjalteyri, kveður svo:
Mér er farin að fórlast sýn
og fleiri sjást þess merki,
að út er shtin æskan mín
og ellin sezt að verki.
Lokaorðin á Þórhildur Sveins-
dóttir skáldkona:
Ljúft var að snúa að lokum
heim,
liðu tímar hljóðir,
en alltaf sá ég eftir þeim
ef þeir voru góðir.
Torfi Jónsson