Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Qupperneq 26
38 LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1991. ÚRVALSBÆKUR Á NÆSTA SOLUSTAÐ EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA 62 60 lO V ' m n vi vah 'spentikntign ■umcz cacitok I0Í.V FLuG * A,. & mmmv ■ ■ útv&h snrnntn.iy.i • ’.vnU i us',ri \.Yi vt Þegar George Harris, þekktur kanadískur bókaút- gefandi, bíður bana undir neðanjarðarlest lítur lögreglan aðeins á það sem slys eða kannski sjálfsvíg - en blaðamaðurinn Judith Harris er ekki sannfærð um það. Hún var að skrifa grein um Harris og einmitt nýkomin af fundi hans þar sem hann lék á als oddi og sagði skopsögur. Var trúlegt að maður, sem ætlaði að fara að fyrir- fara sér, gerði það? Judith er fráskilin móðir tveggja barna og á þar að auki við erfiða móður að etja. Hún hefur því lítinn áhuga á að flækjast í rannsókn á dauðs- falli. En hún getur ekki varist þeirri áleitnu hugs- un að Harris hafi verið myrtur og vill fá að vita hvers vegna. Morð á öðrum gildum bókaútgef- Aðeins kr. 790, anda, í New York að þessu sinni, verður til þess að Judith og vinkona hennar í New York, Marsha Hillier, lenda í miðri hringiðu rannsóknarinnar og vitsmunalegum átökum við öfluga óvini sem einskis svífast. En jafnvel í miðjum þessum æsilega leik fær róm- antíkin tækifæri til að dafna og blómstra. Þetta er fjörmikil og oft spaugileg spennusaga og gagnrýnendur eru á einu máli um að konurnar tvær, Judith og Marsha, séu einhverjar frískustu og heilbrigðustu konur sem komið hafa fram í spennusagnaheiminum hin síðari ár. Sviðsljós DV Dottir Rfdptins gefurútbók um foreldrana Dóttir fyrrv. forsetahjónanna er nú aö senda frá sér bók um líf erni fjölskyldunnar. Patti, dóttir Ronalds og Nancy Reagan, hefur skýrt frá því aö hún ætli sér að gefa út bók um lif foreldra sinna, séð frá sínum sjónarhóh. Samningur þar að lút- andi mun hafa verið undirritaöur og færir hann Patti litil þrjú hundruð þúsund sterlingspund í vasann. Bók um forsetahjónin fyrrverandi kom út fyrir skömmu og þótti ekki góö auglýs- ing fyrir þau hjónin. Höfundur- inn, Kitty Kelley, lét þar ýmislegt flakka og heyrst hefur að Nancy hafi veriö allt annaö en ánægö með þau skrif. Bókarinnar frá Patti er ekki síð- ur beðið með eftirvæntingu enda hefur hún ekki haft mikið sam- band við fjölskyldu sína og t.a.m. ekki rætt við foreldra sína í meira en ár. Samband hennar við systk- ini sín er, heldur ekki mikið en Patti segist þó ekki eiga í neinum deilum viö fjölskyldumeðlimina. Þegar að henni er gengið viður- kennir Patti þó að hún hafi átt sín ágreiningsmál við foreldra sina en segir jafnframt að bókin sé ekki skrifuð í hefndarskyni og sé á engan hátt ætlað að valda þeim vandræðum. Costneropnar spilavíti Costner er búinn að fjárfesta í spilavíti I Suður-Dakota. Bandaríski kvikmyndaleikar- inn Kevin Costner, sem nú má sjá á breiðtjaldi Regnbogans í hlutverki Hróa hattar, opnar spilavíti í Deadwood í Suður- Dakota síðar í þessum mánuöi. Slík starfsemi varð lögleg þar um slóðir á seinni hluta ársins 1989 og skömmu síðar fjárfesti leikar- inn í húsnæði undir spilavítið. Costner lét reyndar bróöur sinn, Ðan, sjá um þessi mál en hann er sérstakur fjármálaráð- gjafi stjörnunnar. Fréttir herma að húseignin hafi kostað um eina miUjón dollara en hluthafar eru sagðir vera fleiri en einn þó ekki fylgdi sögunni hverjir væru þar með í dæminu. Spilavítið hefur hlotiö nafhið Midnight Star en óhætt er að segja að Costner hafi söðlað um því í hlutverki Hróa stal hann af ríkum til aö gefa fátækum. Nú á hann á hættu að vera sakaður um aö rýja inn að skinni jafnt fátæka sem ríka, jafiivel þótt starfsemin sé fyllilega lögleg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.