Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Síða 43
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ1991.
55
Menning
Heillandi
Norsari
Urta heitir lítið forlag sem er farið aö láta aö
sér kveða, enda mjög sérhæft, hefur held ég ein-
göngu gefið út norrænar ljóðaþýðingar. Áður
hefur það m.a. gefiö út þýðingar Njarðar Njarð-
vík á ljóðum Tómasar Tranströmer sem fékk
bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, þýðing-
ar Hjartar Pálssonar á úrvali ljóða Danans Hen-
rik Nordbrandt, og nú þýðingar hans á 50 ljóðum
Norðmannsins Rolf Jacobsen. Sá er nú hálfní-
ræður og sendi fyrstu ljóðabókina frá sér 1933.
Þær eru tólf talsins, heildarsafnið þó innan við
300 bls.
Svið ljóða Jacobsens er borg og sveit, jafnt og
ósnortin náttúra. Flest er lífi gætt hjá honum
og gáski áberandi. Ljóðin eru þrungin tilfinning-
um án þess að um þær sé talað, þær birtast í
myndrænum lýsingum umhverfisins. Ekki
þekki ég ljóð Jacobsens svo vel að ég geti dæmt
um val ljóðanna í þessa bók en yfirleitt þýðir
Hjörtur vel. Hann fylgir norska textanum mjög
nákvæmlega, en oröar þó allt svo vel að íslensk-
um hætti að aldrei er hægt að sjá að þýtt sé.
Orðaforðinn er mikill og þýðandi sýnir mikla
leikni og þjálfun. En hann er oft of hátíðlegur.
Svo notuð sé slitin líking þá má skáld ekki láta
sér nægja hæstu tónana í hörpunni, hann verð-
ur að hafa tök á þeim öllum, ella skilar hann
ekki frumtextanum.
Fáein dæmi um stílmun á þýðingu og frum-
texta:
mulden puster mot foten - moldin andar mér
við il (bls. 9)
lefter de store klemt - lyftir hrynþungum
hljómum (bls. 9)
Þegar Jacobsen taiar um „gratis appelsiner",
þá heitir það ekki ókeypis appelsínur hjá Hirti,
heldur „gefins glóaldin" (bls. 28). Orðið „mil“
þýöir hann með „rastir" (bls. 13), „som vi her-
er“ verður „ber okkur að eyrum". „Slakteren
som hugger op sine koteletter" verður: „slátrar-
inn sem heggur sundur kjötið í rifiasteikina
sína“ (bls. 32). Þetta er eins og að sjá öflugan
íþróttamann þreyta hástökk íklæddan smóking,
þaö er vissulega tilkomumikiö, en áhorfandinn
hlýtur aö segja: „Að hugsa sér hvað hann
gæti...“
Ónákvæmni er sjaldgæf, sem fyrr segir. En
breytingar, svo sem á línuskiptingu, finnst mér
ekki mega gera nema af ótviræðri þörf. Og hana
sé ég ekki í „Sumar þistlanna" (bls. 18); höfund-
ur lagði áherslu á lokalínu með því að hafa
hana mun styttri en hinar, enda er með henni
stokkið yfir á annað svið, eftir að sumri var
lýst segir um það: „dreymt dýpst í hjarta Guðs“.
„Gömlu konumar" er ónákvæmt þýtt framan af:
Ungu konurnar svo eldsnöggar í
hreyfmgum hvert eru þær að fara
ar“ eða „hljóðlátar" og „eldsnöggar í hreyfing
um“ skilar ekki nógu vel „med lynsnare fott-
er“, því ljóðiö beinist svo mjög að því að lýsa
líkama hlutlægt. Lok 1. línu er þýðing á „hvor
blir det af dem“, en nákvæmara væri: „hvað
verður um þær“. Á sama hátt væri betra að
þýða „fetevarer" með „flesk" en „matvöru", því
mælandi Ijóðsins er að rifia upp nákvæmlega
Bókmenntir
ðrn Ólafsson
Langt úti í tímanum þegar þær
eru orðnar stilltar
Síðasta orðið er þýðing á lýsingarorðinu
„stille“, og léti nær að þýða það með „kyrrlát-
skynhrif bernsku sinnar. í öðru ljóði er jörðinni
líkt við dagblað sem er að fara í prentun. Og
þar sýnist mér gæta misskilnings:
Blossinn ljósmyndar leifturhratt
smáatriði sem máli skipta
Prófarkalesarinn á næturvakt-
inni fellir niður það
sem er beinlínis meiðandi,
annars veröur allt birt.
Fyrsta orðið er þýðing á „Lynef‘ og það væri
betra að þýða einfaldlega með „eldingin", því
hér er talað um hörðina í heild. Og „meiðandi"
er villandi þýðing á „pinligt", sem merkir,
„neyðarlegt, óþægiiegt". Svona athugasemdir
mega þykja lítilvægar, en ónákvæmni getur
spillt að nokkru áhrifum ljóös, svo sem „Olíu-
skipið". Það skip, „ískalt, hljóðlaust, innilokað
í sjálfu sér“ er borið saman við persónugerð
skip fyrri tíma, „þegar sérhvert skip var drottn-
ing sem feimin lyfti/ knipplingum hulin kjól sín-
um í dans“. Einmanaleiki olíuskipsins er sýndur
í lok ljóðsins, en fer forgörðum í flóknu orðalagi
þýðingarinnar, vegna þess að þar eru höfð
hausaskipti á þolanda og „geranda":
Engin mannleg höfn
veitir þeim hvíld. Vörtu i skerjagarðinum
þekkir enginn nema hið svefnvana
skip með skeytingarlausan
dómsdag í hjarta sér.
Meiningin er hins vegar sú að enginn þekkir
skipið nema eitt ómerkilegt sker, sannkölluö
„varta“ í skerjagarðinum, o.s.frv.
En við skulum láta þessar aðfinnslur nægja
og líta frekar á dæmi alls þess sem vel er gert.
Skjálfandi símastaurar
Hljóöið í þungum kvamarsteinum stjamanna
sem hverfast hægt um heljarmiklar naflmar, og
snúa alhrímuðum andlitunum hver að öðrum
og sveigja þau aftur undan handan við ljósár,
- allt sem hreyfist úti í himingeimnmn
á tröllauknum kúlulegum, stafar frá sér
lágum hfjóðum,
syngjandi þyt sem kafnar í órafirrð geimsins.
Það er þetta sem suð símalínanna ber okkur
að eyrum,
Hjörtur Pálsson þýddi Ijóð Rolfs Jacobsen.
þær eru loftnet sem nema hljóðmerki geimsins
og hrópa þau út yfir mýrar og móa á nóttunni
þegar stauramir muldra og kalla órólega
eins og þegar maður hefur illar draumfarir
og eitthvað veldur honum sting fyrir brjósti,
þjakandi hugsanir
sem hann skilur ekki og ryðja sér braut
gegnum kokið,
en stöðvast við góminn og verða einungis slitrótt óp,
það er hljóðið frá öllum stjörnunum,
þannig þýtur án afláts úti í himingeimnum.
Þetta ljóð virðist mér dæmigert um hvernig
Jacobsen tengir stórt og smátt. Fyrst er alheims-
myndin, það sem vart verður skynjað vegna
þess hve stórt það er. Það tengist svo hinu sem
naumast verður skynjað vegna þess hve hvers-
dagslegt það er. En hvorttveggja er þó sónn,
eins og frá lífveru, og tengslin liggja því m.a. í
persónugervingu dauðra hluta. Allar líkingarn-
ar eru ofurkunnuglégar lesendum. Stjörnurnar
birtast eins og einhverjir hrímþursar úr norsk-
um þjóðsögum, en jafnframt eru þær skynjaðar
með líkingum við tækni, forna og nýja (kvarnar-
steinar hverfast um nafir/á kúlulegum). Og tal
um nútímatækni, loftnet, tengir geiminn við hið
nálæga, mýrar og móa. „Jafnvel símastaurar
syngja", renna saman við mann sem sefur óró-
lega. Þannig sýnir ljóðið hvemig allt, stórt og
smátt er þrungið sama lífi, sem maðurinn í ljóð-
inu skynjar, en getur ekki orðað.
Þýöandi skrifar tveggja bls. formála, sem virð-
ist eiga að brúa bilið milli ljóða og lesenda. Lít-
ill fengur er þó að honum, hér er lítið um upplýs-
ingar um skáldið, og engar um fyrri þýðingar
ljóða þess á íslensku (Hannes Sigfússon þýddi
tólf í Norræn ljóð), bara almenn lýsing á ljóðum
þess. Þetta er mestmegnis venjulegt heimsó-
sómaraus, khsjur sem renna upp úr mönnum
alveg sjálfkrafa; „með aldrinum hefur orðið æ
ljósara hvern kvíðboga hann ber fyrir því að
stjórnlaus tímgun tækni og stórborga með til-
heyrandi mengun og umhverfisspjöllum sem
ógna vistfræðilegu jafnvægi, geti endað með
ósköpum" o.s.frv., o.s.frv. Þótt ekki sé hér á
Jacobsen logið skoðunum, er orðalagið fiarri
honum.
Þessi bók er aðgengileg og þó nýstárleg meðal
íslenskra ljóða, vönduð og merk. Meira af svo
góðu!
Rolf Jacobsen: Bréf til birtunnar.
Hjörtur Pálsson íslenskaði.
Urta 1991, 64 bls.
EFST Á BAUGI:
Svidsljós
Tryggðiá
sér munn-
inn fyrir
einamillj-
ón dollara
Munnur og bragðkirtlar Johns Harri-
son, yfirsmakkara hjá ísfyrirtækinu
Edys Granc, sem er í Chicago í
Bandarikjunum, eru svo mikilvægir
að hann lét tryggja á sér munninn
Fyrir eina miiljón dollara eða um 63
milljónir ísl. króna.
Simamynd-Reuter
isi .i:\siv4
ALFRÆÐI
ORDABOKIX
kjarnavopn kjamorkuvopn:
sprengjur þar sem orkan myndast við
kjarnahvörf, ýmist kjarnaklofnun eða
kjamasamruna; mjög öflug miðað við
stærð og efnismagn; gefa frá sér varma-
geislun, birtu, jónandi geislun, rafsegul-
högg, sem spillir rafeindatækjum og
fjarskiptum, og þrýstibylgjur ef sprengt
er í lofti eða á jörð. Þegar sprengt er
ofanjarðar myndast auk jress geisla-
virkt ryk sem berst upp í háloftin og
þaðan um mestalla jörðina (sjá geisla-
virkt ofanfall). Jafnframt þyrlast ryk
og sót upp í lofthjúpinn, m.a. vegna
eldstróka frá borgum og skógum (sjá
kjamorkuvetur). Sprengimætti k er lýst
með samanburði við sprengiefnið TNT
og jafngildir eitt kílótonn (kt) sprengi-
mætti 1000 t af TNT og eitt megatonn
(Mt) sprengimætti l mljó. t. af TNT.
Veður
Á morgun verður austangola eða kaldi sunnanlands
en annars staðar hægviðri. Skýjað verður um allt
land og hætt við smá súldarvotti við suðurströnd-
ina.. Hiti 7-14 stig.
Akureyri skýjaö 11
Egilsstaðir alskýjað 9
Keflavikurflugvöllur léttskýjað 14
Kirkjubæjarklaustur skýjað 14
Raufarhöfn alskýjað 9
Reykjavík skýjaö 14
Vestmannaeyjar léttskýjað 14
Bergen skýjað 17
Helsinki skýjað 19
Kaupmannahöfn rigning 19
Úsló skúr 19
Stokkhólmur þrumuv. 20
Þórshöfn skýjað 12
Amsterdam alskýjað 17
Barcelona léttskýjað 27
Berlín skúr 18
Chicago heiðskírt 23
Feneyjar léttskýjað 26
Frankfurt léttskýjað 24
Glasgow skýjað 19
Hamborg skúr 17
London skúr 18
LosAngeles alskýjað 18
Lúxemborg skýjað 18
Madrid skýjað 34
Malaga heiðskírt 28
Mallorca léttskýjað 31
Montreal léttskýjað 24
Nuuk skýjað 9
Paris skýjað 19
Róm heiðskírt 28
Vin skýjað 23
Winnipeg heiðskírt 16
Gengið
Gengisskráning nr. 135. -19. júlí 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 61,420 61,580 63,050
Pund 103,496 103,765 102.516
Kan. dollar 53,120 53,258 55,198
Dönsk kr. 9,0490 9,0726 9,0265
Norskkr. 8,9782 9,0016 8,9388
Sænsk kr. 9,6709 9,6961 9,6517
Fi. mark 14,5493 14,5872 14,7158
Fra. franki 10,3114 10,3383 10,2914
Belg. franki 1,6993 1,7037 1,6936
Sviss. franki 40,4571 40,5625 40,4750
Holl. gyllini 31,0665 31,1474 30,9562
Þýskt mark 34,9972 35,0883 34,8680
It. líra 0,04705 0,04717 0,04685
Aust.sch. 4,9739 4,9868 4,9558
Port. escudo 0,4081 0,4091 0,3998
Spá. peseti 0.5601 0,5616 0,5562
Jap. yen 0,44881 0,44998 0,45654
irskt pund 93,546 93,789 93,330
SDR 81,9116 82,1249 82,9353
ECU 71,9382 72,1256 71,6563
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
19. júlí seldust alls 90,703 tonn.
Magn 1 Verð I krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Blandað 0,149 20,65 5,00 67
Grálúða 0,058 75,00 75,00 75,00
Karfi 26,353 41,59 32,00 46,00
Keila 0,087 33,00 33,00 33,00
Langa 1,639 46,48 40,00 52,00
Lúða 0,836 243,11 165,00 330,00
Langlúra 0,057 40,00 40,00 40,00
Skata 0,025 20,00 20,00 20,00
Skarkoli 1,492 45,88 44,00 50,00
Sólkoli 0,032 50,00 50,00 50,00
Steinbítur 2,718 57,85 55,00 61,00
Þorskur, sl. 23,305 85,49 69,00 95,00
Þorskur, smár 0,221 60,00 60.00 60.00
Ufsi 7,427 63,23 20,00 67,00
Undirmálsfiskur 5,248 51,67 20,00 59,00
Ýsa, sl. 21,056 88,18 18,00 125,00
Fiskmarkaðurinn Hafnarfirði
19. júli seldust alls 56,123 tonn
Sild 0,011 10,00 10,00 10,00
Smáþorskur 0,114 64,00 64,00 64,00
Smáufsi 1,009 103,00 103,00 103,000
Smáýsa 2,381 78,53 75,00 90,00
Ufsi 0,790 60,00 60,00 60,00
Skötuselur 0,096 165,00 165,00 165,00
Lúða 0054 289,26 150,00 395,00
Öfugkj, 0,097 20,00 20,00 20,00
Ýsa 29,258 100,24 80,00 106,00
Þorskur 9,417 89,01 86,00 96,00
Steinbítur 0,590 56,90 56,00 62,00
Langa 0,563 56,00 56,00 56,00
Koli 0,263 70,00 70.00 70,00
Karfi 9,373 43,77 37,00 47,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
19. júlí seldust alls 63,141 tonn.
Skötuselur 0,584 279,97 150,00 370,00
Langlúra 0,463 56,00 56,00 56,00
Undirmál 0,517 35,03 30,00 50,00
Ufsi 5,820 57,25 40,00 66,00
Hlýri/Steinb. 0,067 55,00 55,00 55,00
Langa 0,469 52,00 52,00 52,00
Koli 0,237 40,00 40,00 40,00
Blandað 0,189 60,00 60,00 60,00
Humar 0,045 1100,001100,001100,00
Blálanga 2,146 55,00 55,00 55,00
Öfugkjafta 1,805 34,72 30,00- 37,00
Steinbltur 0,856 53.52 49,00 56,00
Sólkoli 0,037 60,00 50,00 50,00
Skata 0,115 69,13 50,00 73.00
Grálúða 1,680 74,00 74,00 74,00
Ýsa 1,618 104,88 60,00 139,00
Lúða 0,256 333,26 150,00 480,00
Karfi 18,633 37,51 15,00 49,00
Þorskur 27,603 82,15 38,00 105,00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSIMI • 653900