Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Side 44
p IT T A S T Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.' Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augíýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1991. Fann blásýru þarsembörn voru að leik „Ég sá nokkra krakka vera að leika sér hjá yfirgefnu húsi úti á Nesi og datt í hug að skoða það nánar. Á efstu hæð þess fann ég pilluglas, vandlega merkt „eitur". í því voru ellefu bláar töflur með hauskúpu á og það var einnig hauskúpa á glasinu." Þetta sagði ungur maöur sem ekki vill láta nafns síns getið opinberlega. Hann fann töflurnar í húsinu eftir að hafa verið á gangi á Seltjarnar- nesi. Maðurinn telur að þær inni- haldi blásýru. „Það var mjög einkennilegt um að litast inni í húsinu: allt innbú á sín- um stað eins og einhver heföi bara gengiö út og skilið allt eftir. Þar fann ég hin undarlegustu skjöl, einhvers skonar bókhald yfir eignir fyrir- tækja, fullt af rottueitri og gömul morstæki," sagði maðurinn. Hann sagði að sér hefði verið tjáð að útlendingar heföu búið á staðnum. Aðspurður sagðist hann ekki vita hvað hann ætlaði að gera viö töflu- glasið en taldi þó líklegt að hann myndi láta rannsaka innihaldið. -ingo Á gatnamótum Álmgerðls og Grensásvegar er nú unnið að þvi að setja upp umferðarljós. Eru þaö ein fernra nýrra umferðarijósa sem sett verða upp á gatnamótum f Reykjavík á þessu sólrfka sumrl. Þar með verða umferðarljós I borglnnl 68 en auk þeirra eru um 30 gangbrautarljós. DV-mynd GVA Lára Halla Maack sem sagði upp sem yfirlæknir: Vilji þeir réttargeð lækningar er sam starfsgrundvöllur „Staðan, sem ég var ráðin í, haföi ekkert með Sogn að gera og staðan, sem nú er auglýst, hefur heldur ekkert með Sogn aö gera. Það að réttargeðdeild eigi að vera á Sogni er bara hugmynd Sighvats. Ég átti að byggja upp réttargeðdeild og það var óvlst hvar sú deild ætti aö vera og hvernig hún yrði. Réttargeð- deild er fy rst og íremst öry ggismeð- ferð. Þama á ekki að fara fram nein öryggismeðferð," sagði Lára Halla Maack sem nýlega sagði starfi sínu sem yfirlæknir réttar- geðdeildar upp. Lára segir aö ekki sé hægt að framkvæma réttargeölækningar „að hætti Sighvats. Hann kann þær ekki“ segir Lára: „Máiið er hins vegar aö ef þeir vilja réttargeð- lækni og réttargeðlækningar er samstarfsgrundvöllur. En ef þeir vilja að ég íremji einhver ódæðis- verk í þeirra nafni þá er náttúrlega enginn samkomulagsgrundvöllur fyrir hendi. Ég fór í réttargeðlækningar af því að ég hef áhuga á þeim og ég kann þær. Sighvatur er heppinn að hafa mig en hann veit ekki af þvi. Það er ekki tíl neinn annar réttargeð- læknir hér á landi en ég. Það er til þessi Bogi í útlöndum og það vita ailir af hverju ráðuneytið hefur ekki viljað nýta hann. Þaö vita allir sem eitthvað vita um öryggismeð- ferð að hún verður ekki rekin með yfirmanni í útlöndum." - Má af þessu skilja að þú sért ómissandi? „Nei, nei eins og þú sérö eru þeir komnir á fullt meö einhverja fúsk- ara Þeir eru á fullu í að fá eitt- hvert fólk til þess að innrétta þenn- an stað sem veit ekkert um öryggis- gæslu. En staðreyndin er sú að þeir eru ekki búnir að ákveða hvernig meðferö fram. Það er synd að á að fara þarna ráðuneytísmenn skuli vera svo blindir að þeir skuli halda áfram þessati vitleysu uppi í sveit, vitandi ekki neitt, án þess að tala við kóng eða prest. Málið er náttúrlega að það á eng- inn læknir eftir að sækja um þetta. Á íslandi er enginn til sem hefur áhuga á því að lemja sig uppi í sveit. Náttúrlega eru allir þessir þrír sem ráðherann talar um stór- hættulegt fólk. En hann svona von- ast til þess að þetta séu góðar sálir inn við beinið og muni bara verða góðir ef þeir fara í sveitina. Þetta er verri lausn en engin. Að setja svona stórhættulegtfólk upp í sveit endar með mannsláti," sagði Lára Halla Maack. Bætur og ofgreiddir skattar: Tæpir 7 milljarðar útborgaðir Greiddar verða bætur og ofgreidd- ir skattar úr ríkissjóði 1. ágúst næst- komandi. Ákvarðaðar bætur og end- urgreiðsla ofgreiddra skatta nema rösklega 6,8 milfjörðum en þegar skuldajafnað hefur verið vegna skulda einstaklinga og barnabóta- auki hefur að hluta verið greiddur stendur eftir upphæð sem nemur um 5 milljöröum króna. Kemur hún til greiðslu á næstunni. Af heildarupphæðinni eru barna- bætur og barnabótaauki liðlega 2 milljarðar, vaxtabætur og húsnæðis- bætur 2.4 milljarðar og endur- greiösla ofgreiddra skatta 2.3 millj- arðar. Nýtt greiðslufyrirkomulag hefur verið tekið í notkun og stefnt er að því að sem flestir móttakendur greiðslna úr ríkissjóði fái þær greidd- ar beint inn á bankareikning í stað þess að fá póstsendar ávísanir eins og tíðkast hefur. Eyðublöð liggja frammi í öllum útibúum banka og sparisjóða fyrir þá móttakendur sem vilja fá bæturnar greiddar inn á reikning. -tlt Hafnarfjörður: Dreng bjargað frá drukknun Ungur drengur, sem var að leik í sundlauginni við Hringbraut í Hafn- arfiröi.var hætt kominn í gær. Bam- iö var að leika sér í dýpri enda laug- arinnar, sem er um 1,80 á dýpt, og haföi þaö tekið af sér sundkúta. Taliö er að drengurinn hafi rekið höfuðið í laugarbarminn og misst við það meövitund. Fulloröinn maður, sem var á sundi, sá drenginn liggja á botni laugarinnar og kafaöi eftir honum. j Sundlaugarvörður blés síðan lífi í | bamið og er tahð að því hafi ekki' orðið meint af volkinu. * -J.Mar | LOKI Ég erekkivissum að þau séu aðtala um rétta geðdeild. Veðrið á simnudag ogmánudag: Léttskýjað suðvestan- og vestan- lands A sunnudag og mánudag verð- ur austan- og norðaustangola eöa kaldi. Skýjað verður viö suöur- og suðauströndina en víöa létt- skýjað 1 öðrum landshlutum, einkum suðvestan- og vestan- lands. Hiti veröur á bilinu 10-16 stig. 111 Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TM-HUSGÖGN SIDUMULA :i() SIMI 686H22 í 4 4 4 14 5 ----—

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.