Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1991, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991.
5
<
í dag, 1. ágúst, kemur víkingaskipið Gaja til
hafnar á Vínlandi hinu góða eftir vasklega
siglingu yfir Atlantshaf þvert. Förinni er
ætlað að minna á að íslendingar fundu
Ameríku fyrstir Evrópubúa fyrir tæpum
1000 árum.
Á þessum merkisdegi er EIMSKIP mikil
ánægja að opna formlega skrifstofu
félagsins á Nýfundnalandi, en þar er talið
líklegast að Leifur heppni og föruneyti hafi
tekið land.
Skrifstofan er í höfuðborg Nýfundnalands,
St. John's, og starfar hún í nánu sambandi
við skrifstofu EIMSKIPS í Norfolk í
Bandaríkjunum. Hér er stofnað til enn betri
þjónustu í Ameríkuflutningum EIMSKIPS og
aukinnar þekkingar á mörkuðum erlendis í
samræmi við nútímakröfur.
EIMSKIP
V/Ð GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
EIMSKIP NEWFOUNDLAND, 27 AUSTIN STREET, PÓSTHÓLF 13816 ST. JOHN'S NFLD A1B-4G3 SÍMI.: (709)754-7222, FAX: (709)754-7999