Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1991, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991.
Fréttir
Sólskin og hiti kemur niður á laxeldi á Eskifirði
Þörungar valdir að
stórfelldum laxadauða
- hafa einnig gert usla 1 Skagafirði
Þörungar uröu valdir aö stórfelld-
um laxadauða hjá laxeldisfyrirtækj-
unum Austfirðingi og Sæbergi á
Eskifirði um helgina. Garðar Eð-
valdsson hjá Sæbergi gat ekki tiltek-
ið nákvæmlega hve mikið af laxi
hefði drepist. Ekki er búið að hreinsa
dauða fiskinn alveg upp úr kvíunum
þar sem kafara hefur vantað til starf-
ans. Heimildir telja að þörungarnir
hafi drepið að minnsta kosti fimm
tonn af laxi, jafnvel meira.
Á fimmtudag fór sjórinn inni í
Eskifirði að verða brúnleitur vegna
þörunga og á fóstudag varð brúni lit-
urinn enn meira áberandi. Það var
svo um helgina að menn hjá Aust-
firðingi og Sæbergi fóru að verða
varir við verulegan laxadauða.
í fyrstu beindust augu þeirra að
olíumengun sem varð í höfninni á
Eskifirði á föstudagsmorguninn þeg-
ar 100-200 lítrar af olíu fóru í sjóinn.
Sérstök hreinsiefni voru notuð til að
fella olíuna til botns og lék grunur á
að þau heföu getað orsakað laxa-
dauðann. Hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins leiddi rannsókn á
sýnum hins vegar í ljós að þörungar
voru að verki, enda fór olíumengun-
in hvergi nærri kvíunum.
„Eskfirðingar hafa oft séð brúna
flekki á firöinum um þetta leyti árs.
Nú var sjórinn mun brúnni en áður
og alveg skólplitaöur á tímabili. Þessi
þörungabylgja orsakast fyrst og
fremst af mikilli sól og miklum hitum
sem eru kjörvaxtarskilyrði þörunga.
í víkinni, þar sem fyrirtækin eru með
kvíarnar, Mjóeyrarvík, verður sjáv-
arhiti einna mestur á öllu Austur-
landi og því meiri hætta á þörungum
þar en annars staðar. Ég var að vinna
á mestu þörungasvæðunum í Noregi
og sé sömu einkenni á sýnunum hér.
Ég hélt að ég væri að koma til starfa
í þörungalausu eldi en það er nú
öðru nær,“ sagði Gísh Jónsson, dýra-
læknir fisksjúkdóma hjá Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins, í
samtali við DV.
Gísli sagði aö þrennt gæti gerst
þegar þörungar legðust á laxakvíar:
í fyrsta lagi væri ekki um eitraða
þörunga að ræða sem legðust á tálkn-
in og kæfðu fiskinn. í öðru lagi gætu
þörungarnir verið eitraðir þannig að
tálknin mynduðu mikið slím eða lax-
inn dræpist hreinlega úr blóðeitrun.
í þriðja lagi gætu þörungamir stolið
öllu súrefni frá fiskinum og kæft
hann. Þörungar koma verst niður á
stærstu fiskunum sem þurfa mest
súrefni og hafa minnst tálkn miðað
við stærð.
„Þetta er mjög óvenjulegt hér
heima en fyrr í júli voru þörungar
einnig á ferðinni hjá strandeldisstöð-
inni Miklalaxi í Fljótum í Skagafirði.
Þar steindrapst töluvert af laxi af
völdum ferskvatnsþörunga úr
Miklavatni. Þar er íjörðurinn lokað-
ur og vatn tekið úr yfirborði vatns-
ins. Með því að færa vatnsinntak
stöðvarinnar neðar í vatnið gátum
við kælt vatnið úr 14-16 gráðum í
tæpar 10 gráður sem bjargaði ástand-
inu um leið. Þar nyrðra var einnig
veðurfarinu um að kenna, miklum
hitaogsólskini." -hlh
Fjögur silunganet fundust í Steingrímsfirði:
20 laxar voru
í netunum
- milljónir í ræktun í húnvetnsku veiðiánum á ári
„Það voru tekin nokkur net og í
þeim voru 20 laxar, þetta voru net
sem voru lögð frá Drangsnesi, inn
með Selströnd og að Hólmavfk,"
sagði Ríkharður Másson, sýslumað-
ur á Hólmavík, í gærkvöld.
Það var rétt eftir helgi að þessi sil-
unganet fundust og voru 20 laxar í
þeim, en aðeins má veiða silung í
silunganet.
„Þetta gengur bara ekki með þessi
net og það verður aö breyta reglu-
gerðum um málið. Það er dýrt að
leita að þessum netum í sjónum, enda
er töluvert tekiö af laxi í net,“ sagði
Ríkharður, en hann er einn af leigu-
tökum Hrófár, í næsta nágrenni við
Hólmavík.
„Sverrir Hermannsson var í Hrúta-
tjarðará fyrir fáum dögum og veiddi
einn lax með netasárum og sá fleiri
með sár í hyljum árinnar,“ sagði
Gísh Ásmundsson, einn af leigutök-
um Hrútafiarðarár, í gærkvöld. ■
„Áreigendur og leigutakar eigá að
taka höndum saman og gera átak til
að spoma við þessu ófögnuði sem
netaveiði í sjó er. Þetta er bara
hörkulaxveiði og ekkert annað,“
sagði Gísli ennfremur.
„Þetta em váleg tíðindi að laxarn-
ir, sem eru að koma í húnvetnsku
veiðiárnar, skuli vera teknir svona í
silunganet," sagöi Böðvar Sigvalda-
son, formaður Landssambands veiði-
félaga og veiðifélags Miðíjarðarár í
gærkvöld.
„Við eyðum milljónum í ræktun á
hverju ári og svo eru laxarnir teknir
í sjónum, það verður að gera eitthvað
í málinu strax,“ sagði Böðvar enn-
fremur. -G.Bender
Stokkseyrarhreppur:
Vill samstarf
við Selfoss
„Við hefðura talið betra að ganga
til samstarfe víð veitumar á Sel-
fossi og höfum haldiö viöræðum
þar að lútandi til streitu. Í þessu
tilvxki sjá menn tvær leiðir út úr
sama máli og Eyrbekkingar telja
betra að selja Rarik rafveituna,“
sagði Grétar Sophaníusson á
. Stokkseyrí við DV..
Eins og blaðið greindi frá í gær
er hitaveita Eyra eín sú dýrasta á
landinu. Raforkuverð frá henni er
21% hærra heldur en niðurgreidd
raforka frá Rarik. Hitaveitan rekur
rafveitur Stokkseyrar annars veg-
ar og Eyrarbakka hins vegar.
Heimild var á fjárlögum til að rikið
yfirtæki 60 milljónir af 150 milljóna
skuldum hitaveitunnar. Þar með
heföi raforkuverðið náðst niður um
21%. En þá ákváöu Eyrbekkingar
að sefia Rarik sína rafveitu. Þar
með hætti ríkiö við yfirtöku lán-
anna.
Grétar sagöi að farið heföu fram
óformlegar viðræður um samstarfs
við veiturnar á Selfossi. Þaö mál
hefði hins vegar tekíð aðra stefnu
eftir að Eyrbekkingar hefðu ákveð-
iö að selja rafveituna.
„Við teljum að innan fárra ára
getum við fengið sömu gjaldskrá
og þá sem er í gildi hjá hitaveitu
Selfoss í dag. Hún er verulega
miklu lægri en okkar og raunar ein
sú ódýrasta á landinu. Við teljum
að hag íbúanna hefði verið best
tíorgið með samstarfi viö Selfoss.“
Grétar sagði að nú stæðu yfir við-
ræður við allmarga aöila vegna
þessa máls. Selfoss væri enn inni í
myndinni en menn væru aö kynna
sér málin á fleiri stöðum. Hann
kvaðst ekki vilja greina frá því við
hveija væri rætt um samvinnu
varðandi veitumar.
•JSS
Að höggva til steina i vegghleðslu er vandaverk ef vel á að fara. Þessa dagana er verið að hlaða upp kant við
Tjörnina í Reykjavík, i króknum fyrir framan Iðnó. DV-mynd GVA
Verslunarmannahelgin:
Besta veðrið fyrir
norðan og vestan
- Þórsmörkin er langvinsælust
Samkvæmt spá Veðurstofu íslands
er búist við besta veðrinu fyrir norð-
an land og vestan um verslunar-
mannahelgina. Þar verður bæði
þurrt og léttskýjað og hitastigið á
Norðurlandi gæti farið allt upp í 17
til 20 stig.
Mesta rigingarhættan er á Suður-
landi, þá á laugardag og sunnudag,
en spáð er þurru veðri um allt land
á föstudaginn.
Hjá BSÍ fengust þær upplýsingar
að búið væri að selja langflesta miða
í Þórsmörkina en fjöldi gesta verður
takmarkaður þangað.
Næstvinsælustu staðirnir, enn sem
komið er, eru Vestmannaeyjar og
mikið hefur verið spurt um ferðir í
Húnaver.
Gunnar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri BSÍ, sagði að áberandi væri hve
fólk fer miklu fyrr af stað í ár en í
fyrra.
„Fólk byriaði aö kaupa miða strax
fyrir síðustu helgi en í fyrra byrjaði
það ekki fyrr en á miðviku- eða
fimmtudeginum fyrir sjálfa verslun-
armannahelgina," sagði Gunnar.
Hann tók fram að enn væru flestir
miðarnir þó seldir síðustu dagana og
má því búast við mikilli ös þegar líð-
ur á vikuna.
-ingo
Kvótasvindlið:
Niðurstöðu að vænta í vikunni
SýslumaðurinnáSauðárkrókihef- að niðurstöður rannsóknarinnar ósi, en bátsveriar eru grunaðir um
ur að undanfömu yfirheyrt skip- liggi fyrir í þessari viku. að hafa umskipað aflanum í krókabát
veija á bát frá Hofsósi sem grunaðir Uppvíst varð um þetta mál rétt fyr- frá sama stað. Hinn síðamefndi hefur
eru um kvótasvindl. Er gert ráð fyrir ir helgi. Snýst það um bát frá Hofs- ekkertákveöiðaflamark. -JSS