Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1991, Qupperneq 3
ÞRIÐ JUD’AGUR.'27.! ÁGÚSTI1991.'.
3
Fréttir
Langtímaveðurspá frá miðjum ágúst til miðs september:
íslenskir úrkomudagar
ríkjandi enn um sinn
Hann verður heldur hryssingsleg-
ur næstu vikur með vænum
skammti af vætu. Fleiri orð þarf vart
að hafa um mánaðarveðurspá
bandarísku veðurstofunnar NOAA
fyrir ísland sem gildir fyrir tímabilið
frá miðjum ágúst til miðs september.
Þegar ágústspáin var birt á dögun-
um var haft á orði að fólk færi nú
loks að kannast við sig eftir heitt,
sólríkt og í flesta staði óvenjulegt
sumar. En fyrr má nú rota en dauð-
rota. Sumarúrkoman virðist hafa
safnast fyrir í ágúst og sum úrhellin,
sem menn hafa orðið vitni að, hafa
slegiö öll met með tilheyrandi flóðum
í kjöllurum. Þó ekki verði slegin fleiri
úrkomumet á næstunni má búast við
þessum dæmigerðu íslensku úr-
komudögum enn um sinn.
Annars staðar í Evrópu má búast
viö tiltölulega venjulegu haustveðri
þar sem engar afgerandi sveiflur eru
merkjanlegar. Yflr Mið-Evrópu virð-
ist þó ætla að verða hlýtt og þurrt.
Sem fyrr ber að geta þess að þessar
mánaðarspár segja ekki fyrir um
veðurfar frá degi til dags heldur
megintilhneigingar í veðrinu yfir
lengri tíma. I flestum tilfellum hafa
þessar spár staðist þokkalega.
-hlh
RLR handtók mann eftir vafasöm viðskipti á bílasölu:
Reyndi að kaupa
bíl með fölsuðu
skuldabréfi
- falsaðinöfnabyrgðarmannaabrefið
Rannsóknarlögregla ríkisins
handtók karlmann sem reynt hafði
að kaupa bifreið á bílasölu í Reykja-
vík með íölsuðu skuldabréfi síðdegis
á fostudag. Þarna var um að ræða
skjalafals og tilraun til fjársvika.
Maðurinn kom með skuldabréf upp
á 480 þúsund krónur á bílasöluna.
Við athugun reyndist grunur um að
ekki væri alit með felldu. Við rann-
sókn málsins kom fram að maðurinn
hafði falsað nöfn ábyrgðarmanna á
skuldabréfið. Maðurinn viðurkenndi
við yfirheyrslur hjá RLR að hafa
skömmu áður reynt svipuö svik á
tveimur bílasölum í Keflavík. Þar
mistókust svikin.
Málið er talið upplýst og verður það
bráðlega sent ríkissaksóknara til
meðferðar. Að sögn yfirlögreglu-
þjóns hjá RLR er talsvert um að reynt
sé að kaupa bifreiðir á fölskum for-
sendum með líkum hætti og í fram-
angreindu tilfelli. -ÓTT
Langtímaspá um veður á N-Atlantshafi til 15. sept.
Byggt á gögnum NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration)
* Spáin sýnir frávik frá meöalhita og meðalúrkomu á spásvæöinu
Atvinnuleysi minna en
á sama tíma í f yrra
Samkvæmt yfirliti um atvinnu-
ástandið í landinu, sem Vinnumála-
skrifstofa félagsmálaráðuneytisins
sendi nýlega frá sér, eru atvinnuleys-
isdagar í júlí 7.700 færri en á sama
tíma í fyrra.
í júlímánuöi voru skráðir 36.400
atvinnuleyisdagar á landinu öllu, 19
þúsund hjá konum en 16 þúsund hjá
körlum. Það jafngiidir því að 1.700
manns hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum.
Atvinnuleysisdögunum fjölgaöi þó
um 6.600 daga frá mánuðinum á und-
an, júnímánuði í ár, eða um 22%.
Mest varð aukningin á landsbyggö-
inni þar sem hlutfallslegt atvinnu-
leysi nam 1,6% á móti 0,9% á höfuð-
borgarsvæðinu. -ingo
*aod9e ÞEIR RUríMU UT
ébrinrlnn
DODGE RAM PICKUP
Eftirársbílarnir, sem viö fengum í sumar, hlutu
sannarlega góðar viðtökur enda verðið frábært.
Við náðum örfáum til viðbótar þannig að nú er
tækifæri að Qárfesta í góðum pickup á hreint frá-
bæru verði.
BÚNAÐUR M.A.: 5,9 I sex strokka Cummins turbo
disilvél, Spicer 70 afturhásing, læst mismunadrif,
rafmagn i rúðum, samlæsing á hurðum, loftkæling
o.fl. o.fl.
föOoclge
föDodge
fóOodge
1.183.935
290.065
1.474.000
JÖFUR HF - ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL
NÝBÝLAVEGI 2, KÓPAVOGI, SÍMI 42600
VERÐ
vsk
BÚNAÐUR M.A.:
5,9 I sex strokka Cummins turbo disilvél, Spicer
70 afturhásing, Spicer 60 framhásing, læst mis-
munadrif, 5 gira beinskipting, Qórhjóladrif, velti-
stýri.
DODGE RAM PICKUP 4X4 1991