Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1991, Blaðsíða 31
31
ÞRIÐJUDÁGUR 27. ÁGÚST 1991.
dv Veiðivon
Grímsá í Borgarfirði
hefur gefið 1100 laxa
„Veiðin gengur ágætlega og eru
komnir 1110 laxar á land, þeir eru
tveir 16 pund þeir stærstu," sagði
Rúnar Marvinsson, kokkur í veiði-
húsinu við Grímsá, í gær.
„Ég náði í fyrsta flugulaxinn fyrir
fáum dögum og veiddi ég fiskinn í
neðra Garðsfljóti. Þetta var 6 punda
lax og hann tók Green Butt fluguna.
Veiðimenn sjá töluvert af laxi og eitt-
hvað hefur veiðst af sjóbirtingi,"
sagði Rúnar og hélt áfram að steikja
smálúðu fyrir veiðimennina í hádeg-
inu og elda súpuna.
Hrútafjarðará og Síká
hafa gefið 220 laxa
„Hrútafjarðará hefur gefið á þess-
ari stundu 220 laxa en á sama tíma
í fyrra voru þetta 200 laxar. Svo þetta
er allt í lagi á þessari stundu," sagöi
Gísh Ásmundsson er við spurðum
um Hrútafjarðará og Síká.
„Síðasta holl með þá bræður Gunn-
ar, Magnús og fleiri veiddi 31 lax, auk
þess fengu þeir eitthvað af bleikjum.
Stærsti laxinn er 16 pund og stærsta
bleikjan er 6 pund. Þessa dagana eru
þetta mest 4,5 og 6 pund laxar. Það
er lítið af millistærðinni og einn og
einn stórlax hefur sést í ánni,“ sagði
Gísli ennfremur.
Vesturdalsá, þokkaleg lax-
veiði og feikna bleikjuveiði
„Veiðin í Vesturdalsá hefur gengið
þokkalega og eru komnir á annað
hundruð laxar,“ sagði Garðar H.
Svavarsson í gær, en Garðar hefur
verið siðustu vikurnar á bökkum
Vesturdalsár í Vopnafirði.
„Það eru komnar 1200 bleikjur og
eru margar þeirra eru tvö og þrjú
pund. Töluvert hefur sést af laxi
neðst í ánni og virðast þeir bíða eftir
auknu vatni. En þurrkar hafa verið
miklir í sumar og áin mjög vatnslít-
il,“ sagði Garðar í lokin.
- tveir 16 punda þeir stærstu
Garðar H. Svavarsson með 14 punda hrygnu úr Kvörninni í Haffjarðará
fyrir fáum dögum.
Breiðdalsáin
hefur gefið 60 laxa
„Þetta hefur verið reytingsveiði í
Breiðdalsánni og eru komnir 60 lax-
ar, hellingur hefur veiðst af bleikj-
um,“ sagði Skafti Ottesen á Hótel
Bláfelli á Breiðdalsvík, er við spurð-
um um Breiðdalsá.
„Stærsti laxinn er þrettán og hálft
pund. Veiðimenn hafa séð laxa í Efri
og Neðri Beljanda, 10 fiska í hvorum
veiðistað. Fyrst kom smálaxinn en
svo stærri fiskurinn, ég held að lax-
arnir bíði fyrir utan ána,“ sagði
Skafti ennfremur.
-G.Bender
Elmar Jensen með hnúðlax (bleik-
lax) 4 punda úr Selá i Vopnafirði.
En að sögn Garðars H. Svavarsson-
ar hefur þessi tegund af fiski veiðst
áður í ánni.
Fjölmiðlar
Undarlegur og hviraleiöur siður
hefur tekiö sig upp í fréttatímum
Stöðvar 2. Það eru þessar sífelidu
endurtekningar sem þykja nú ekki
mjög í anda fagsins. Þannig byrjar
fréttaþulur á að þylja upp einhveija
ákveöna frétt og yfirleitt er undan-
fari fréttarinnar of langur. Síðan
tekur íréttamaður við, endurtekur
það sem fréttaþulurinn var að lesa
og ekki nóg með það heldur segir frá
því sem viðmælandi haiði sagt. Loks
er hirt mynd af víðmælandum þar
sem liann segir allt upp á nýtt. Oft
kemur fyrir aö áhorfandi (hlust-
andi) heyrir kj arna fréttarínnar
þrisvar sinnum.
Ekki veit ég hvort Stöðvarmenn
þurfa aö teyja lopann til aö fylla upp
fréttatíma sína en manni sýnist svo.
Fréttatími Stöðvarinnar þykir mér
hins vegar oft mun meira lifandi en
hjá koliegunum á ríkisreknu stöð-
inni þar sem aliir vir ðast vera í
mikilli fýlu nema Bjarni Vestmann.
Þeir mega þó eiga að umræddar
endurtekningar heyrir maður sjald-
anáþeirristöð.
Þá vil ég einnig gagnrýna að yfir-
lit fréttanna á Stöð 2 er einungis
lesið klukkan 19:19. Formiegur
fréttatími hefst aldrei fyrr en hálf
átta og mig rennur í grun að fæstir
kveiki eða byrji að horfa fyrr. Stöð
2 er líkast til búin að hengja sig í
nafni fréttatímans. Þessar uppfyll-
ingamyndir, sem birtast á undan
fréttum klukkan háifátta, eru ekki
það merkilegar að þær geti kallast
fréttir. Fréttameim ættu endilega að
íhuga að lesa fréttayflrlit í byrjun
frétta klukkan hálfátta. Það kæmi
sér einnig vel fyrir þá sem hlusta á
fréttirnar í útvarpinu.
Ef yfirlitin kæmu klukkan hálf-
átta og endurtekningarnar hyrfu úr
fréttatímanum held ég bara að ég
yrði nokkuð sátt með kollega mína
þarna uppi á Krókhálsinum.
Elín Albertsdóttir
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900
ERTU MEÐ SKALLA?
HÁRVANDAMÁL?
.laK
!
Aðrlr sælta slg ekkl vií þaðl
Al hver|u skyldir þú gera það?
□ Fóöu altur þitt elgið hár sem vex eðlilega
□ sðrsaukalaus meðlerð
□ meðferðln er stutt (1 dagur)
□ skv. ströngustu kröfum
bandariskra og þýskra staðla
□ tramkvæmd undlr eftirliti og stjðrn
sérmenntaðra lækna
^^lmi
Upplýsingar hjá
EUROCLINIC LTD.
Ráögjafarstöð:
Neðstutröð 8
Pósthólf 111 202 Kópavogi
Sími 91-641923 Kvöldsími 91-642319
Litsjónvarpstæki
20" m/fjarst.
kr. 28.950,- stgr.
©y©@
Egilsstöðum
Sími: 97-12020
Veður
Suðvestan stinningskaldi eða allhvasst og viða rign-
ing vestanlands i dag og síðan skúrir. Austan til á
landinu má búast við heldur hægari sunnan- og
suðvestanátt og bjartviðri. Hiti á bilinu 8-15 stig.
Akureyri skýjaö n
Egilsstaðir léttskýjað 10
Keflavikurflugvöllur alskýjað 10
Kirkjubæjarklaustur skýjað 6
Raufarhöfn skýjað 7
Reykjavik þokumóða 9
Vestmannaeyjar þokumóða 10
Bergen alskýjað 13
Helsinki þokumóða 17
Kaupmannahöfn léttskýjað 16
Ósló skýjað 13
Stokkhólmur þoka 13
Amsterdam skýjað 15
Barcelona léttskýjað 25
Berlin léttskýjað 13
Feneyjar heiðskírt 21
Frankfurt heiðskírt 15
Glasgow alskýjað 13
Hamborg heiðskirt 9
London þokumóða 14
Lúxemborg heiðskirt 14
Madrid léttskýjað 20
Malaga léttskýjað 25
Mallorca þokumóða 23
Nuuk alskýjað 3
Paris heiðskírt 16
Valencia þokumóða 24
Vin léttskýjað 16
Gengið
Gengisskráning nr. 161. - 27. ágúst 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 61,410 61,570 61,720
Pund 103,046 103,314 103,362
Kan. dollar 53,715 53,855 53,719
Dönsk kr. 9,0944 9.1181 9,0999
Norsk kr. 8.9833 9,0067 9,0155
Sænsk kr. 9,6724 9,6976 9,7044
Fi. mark 14,4053 14,4429 14,5996
Fra. franki 10,3345 10,3614 10,3423
Belg. franki 1,7061 1,7105 1,7089
Sviss. franki 40,2372 40,3420 40,3004
Holl. gyllini 31,1481 31,2292 31,2151
Þýskt mark 35,0784 35,1698 35,1932
ít. lira 0,04703 0,04715 0,04713
Aust. sch. 4,9874 5,0004 4,9998
Port. escudo 0,4099 0,4110 0,4101
Spá. peseti 0,5630 0,5645 0,5616
Jap. yen 0,44743 0,44860 0,44668
írskt pund 93,896 94,141 94,061
SDR 81,8798 82,0931 82,1172
ECU 72,1291 72,3170 72,2463
Fiskmarkadimir
Faxamarkaður
26. ágúst seldust alls 32,246 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Blandað 0.051 21,76 10,00 30,00
Karfi 2,289 29,00 29,00 29,00
Keila 0,016 24,00 24,00 24,00
Langa 0.618 63,00 63,00 63,00
Lúða 0,280 266,95 225,00 320,00
Lýsa 0,150 41,00 41,00 41,00
Saltfiskflök 0,155 41,00 41,00 41,00
Skarkoli 3,643 73,01 73,00 75,00
Skötuselur 0,073 160,00 160,00 160,00
Sólkoli 0,319 50,00 50.00 50,00
Þorskur, sl. 12,624 94,83 78,00 170,00
Ufsi 0,407 28,55 20,00 50,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
26. ágúst seldust alls 67,440 tonn.
Karfi 12,232 37,88 37,00 39,00
Keila 0,013 37,00 37,00 37,00
Koli 0,497 75,00 75,00 75,00
Langa 0,987 59,58 59,00 60,00
Lúða 0,533 269,51 175,00 395,00
Skötuselur 0,187 211,28 210,00 215,00
Smáufsi 0,126 22,00 22,00 22,00
Steinbítur 0,496 70,12 70,00 74,00
Ufsi 20,680 69,12 68,00 70,00
Ýsa 16,046 99,66 93,00 111,00
Þorskur 15,642 98,51 84,00 103,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
26. ágúst seldust alls 100,266 tonn.
Blandað 0,377 42,43 15,00 85,00
Blálanga 0,387 56,00 56,00 56,00
Hlýri/Steinb. 0,144 79,00 79,00 79.00
Karfi 7.276 39,79 34,00 53,00
Keila + bland 0,061 15,00 15,00 15,00
Keila 3,556 45,57 41,00 46,00
Koli 0,743 75,00 75,00 75,00
Langa 0,146 33,56 20,00 40,00
Lúða 0,570 395,83 225,00 575,00
Makrill 0,014 10,00 10,00 10,00
Skarkoli 0,390 57,00 57,00 57,00
Skötuselur 0,096 210,83 170,00 445,00
Steinbitur 0,239 60,04 30,00 63,00
Ufsi 27,642 68,34 51,00 69,00
Undirmál 0,212 64,09 53,00 69,00
Ýsa 43,301 93,68 70,00 100,00
Þorskur 15,108 90,20 81.00 93,00
Fiskmarkaður Þorlákshafnar
26. ágúst seldust alls 50,747 tonn.
Karfi 0,965 38.78 38,00 40,00
Keila 0,218 45,00 45,00 45,00
Langa 1,792 65,00 65,00 65,00
Lúða 0,068 365,00 365,00 365,00
Skata 0,153 100,00 100,00 100,00
Skarkoli 0,074 73,00 73,00 73.00
Skötuselur 0,300 175,00 175.00 175.00
Steinbítur 0,754 69,68 69,00 70,00
Þorskur, sl. 10,969 102,92 90,00 116,00
Ufsi 23,607 66,55 65,00 70,00
Undirmálsf. 2,790 55,18 50,00 80,00
Ýsa, sl. 9,056 97,70 95,00 100,00
Fiskmarkaður Isafjarðar
26. ágúst seldust alls 6,192 tonn.
Grálúða 0,383 81,00 81.00 81,00
Lúða 0,037 255,00 255,00 255,00
Ýsa 4,068 88,11 50,00 90,00
Þorskur 1,704 79,01 77,00 80,00
Fiskmiðlun Norðurlands
26. ágúst seldust alls 20,337 tonn.
Grálúða 0.300 69,00 69,00 69,00
Karfi' 0,442 30,00 30,00 30,00
Lúða 0,130 120,00 120,00 120,00
Steinbitur 3,583 41,00 41,00 41,00
Ufsi 2,627 58,00 58,00 58,00
Ýsa 4,097 106,00 106,00 106,00
Þorskur 6,383 89,00 89,00 89,00
Þorskur, undirm. 2,743 69,00 69,00 69,00