Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1991, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1991, Qupperneq 32
F R ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 2.000 krónur. skoturn allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1991. Davíð Oddsson: Góðtíðindi „Auðvitað eru þetta góð tíðindi fyr- ir þessi lýðveldi sem við vorum sér- staklega að hafa forgöngu um að _>styðja fyrstu skrefin til endurheimts sjálfstæðis og væntanlega frelsis," sagði Davíð Oddsson forsætisráð- herra um ummæli Gorbatsjovs þess efnis að ekki væri lengur hægt að halda Sovétríkjunum saman. „Hlutirnir gerast hratt þarna fyrir austan og ummælin frá degi til dags eru dálítið óáreiðanleg. Gorbatsjov haföi sagt tveim dögum áður að ráða- menn baltnesku landanna væru slegnirpólitískriblindu.“ -JSS Ólafur Ragnar Grímsson: Sovétríkin búin aðvera „Þetta sýnir að Gorbatsjov er raun- sæismaður þó það hafi tekið hann nokkra daga að átta sig á aðstæðum. Ég held að ég hafi dregið þá ályktun um miðja síðustu viku að Sovétríkin væru í reynd ekki lengur til,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalags5 ns. „Sovétríkin eru búin að vera. í þeirra stað munu koma nokkur ný ríki. Um leið og viö fögnum þessari lýðræðisþróun þá þurfum við að gera I* okkur grein fyrir að hún knýr á um gjörbreytt öryggiskerfi í Evrópu." -J.Mar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Ánægjulegt „Gorbatsjov gat eiginlega lítið ann- að gert í stöðunni. Það er hvert lýð- veldið á fætur öðru að lýsa yfir sjálf- stæði og ég held að hann horfist í augu við það að ef þjóð vill vera sjálf- stæð þá er ekki hægt að koma í veg fyrir það. Það er ekki hægt að nota vald nema tímabundið,1' segir Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, þingkona Kvennalistans. „Mér finnst þetta mjög ánægjulegt og eðlilegt og nú er bara að sjá hvað * verður um Sovétríkin." -ns Eiður Guðnason: Mestu tíðindi áokkardögum „Ætli Gorbatsjov sé ekki búinn að viðurkenna staðreynd sem í raun- inni hefur legið fyrir um hríð. En nú hafa þessir heimssögulegu viðburðir gerst, sennilega einhverjir þeir mestu sem við höfum lifað. Afleið- ingarnar af því sjáum við varla á þessari stundu. En þetta eru sannar- lega mikil tíðindi," segir Eiður Guðnason, ráðherra Alþýðuflokks- #ins, um yfirlýsingu Gorbatsjovs um að ekki sé lengur hægt að halda Sov- étríkjunum saman. JU -JGH LOKI Fyrst er það ráðherra-rall ognúer það þjófa-rall. Baru 100 kiloa peningaskáp út Brotist var inn á 5 stöðum i þrem- ur bæjum á Norðurlandi í fýrrinótt og stolið á þriðja hundrað þúsund krónum auk ýmissa fémætra muna. Tveir peningaskápar komu við sögu. Annan tókuinnbrotsþjóf- arnir á brott með sér en hinn brutu þeir upp. Þrjú innbrot voru á Akur- eyri, eitt í Varmahlíö í Skagafirði og eitt á Blönduósi. Sömu aðilar eru taldir hafa verið að verki. í söluskála Esso á Blönduósi var '55 þúsund krónum stolið og 15-25 lengjum af sígarettum, að sögn starfsmanns þar. Af ummerkjum að dæma dunduðu þjófarnir sér viö aö fxnna lykla að bensínsjálfsala, opna hann fyrir utan en höfðu litiö upp úr því krafsi, að sögn starfs- manns. Þjófarnir brutust einnig inn í Kaupfélagið í Varmahlíð. Þar fóru þeir hljóðlega um þrátt fyrir að hafa borið 100 kilóa peningaskáp út meö sér. Útibússtjórinn svaf á efri hæð hússins. í skápnum voru haglabyssuskot, rifRlskot, erfða- skrá, óstimplaðar happaþrennur og ýmsir pappírar. Þjófarnir brutu einnig upp sex afgreiðslukassa og tóku úr þeim um 20 þúsund krónur í skiptimynt. Stærri peningaskáp í kaupfélaginu létu mennimir vera en þar voru verulegir fjármunir geypxdir. „Ég vona bara að þessir menn náist," sagði Guðmann Tóbíasson útibússtjóri við DV í morgun. Á Akureyri fóru þjófamir inn hjá hjá Bílver á Draupnisgötu ogbrutu upp peningaskáp og tóku úr honum tæplega 100 þúsund krónur auk 10-15 þúsunda króna í peninga- kassa á staðnum. Þjófamir skemmdu einnig glugga hjá Hnakkvirki og hjá bifreiðaverk- stæðið Baugsbroti á Akureyri en þar fundu þeir ekkert fémætt. Þjóf- amir gerðu auk þess misheppnaða tilraun til að fara inn hjá Bifreiða- skoðun íslands á Akureyri. „Við innbrotin notuðu þjófarnir greinilega voldugt jám því um- merkin eru þannig,“ sagði lög- reglumaður á Akureyri við DV í morgun. Lögreglumenn á Norður- landi rannsaka þessi innbroL Ljóst þykir þó aö þarna vora fleiri en einn þ'ófur á ferð. -ÓTT Sprengjusérfræðingar frá Landhelgisgæslunni fóru að Skrauthólum á Kjalarnesi í gærkvöldi til að kanna sjórekið dufl þar i fjörunni. Við skoðun kom t Ijós að þarna var um að ræða hættulausa bauju sem hefur slitnað upp, sennilega einhvers staðar í Faxaflóanum. DV-mynd S Veöriðámorgun: HlýjastáSuð- austurlandi Gert er ráð fyrir vestlægri og síð&r norðvestlægri átt. Rigning og súld á Norður- og Vesturlandi sem smám saman dregur úr. Skúrir veröa suðvestanlands en bjart veður á Suður- og Suðaust- urlandi. Hiti er áætlaður 8-16 stig einna svalast á Norðvesturlandi en hlýjast á Suðausturlandi. Steingrímur Hermannsson: Rússland verður efnahagsleg þungamiðja „Ég fagna því sem gerst hefur í Sovétríkjunum á síðustu dögum. Sjálfstæði lýðveldanna er einn þáttur í lýðræðisþróuninni. Sem betur fer er þetta að gerast í friði núna en ekki í átökum eins og útlit var fyrir," sagði Steingrímur Hermannsson, spurður áhts um þá yfirlýsingu Gorbatsjovs að lýðveldum Sovétríkjanna væri frjálst að segja sig úr ríkjasamband- inu. Steingrímur kveðst þó sannfærður um að löndin kæmu til með að vinna saman í efnahagslegu tilliti þar sem Rússland yrði þungamiðjan. „Þau eru þaö háð hvert öðru að náin sam- vinna væri af hinu góða,“ segir hann. -kaa Sláturkostnaður gefinnfrjáls haustið 1992 Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum; Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra sagði á aðalfundi sauðfjár- bænda á Hallormsstað í gær hann stefndi að því að gefa sláturhúsum frjálsar hendur um sláturkostnað haustið 1992. Formaöur sauðfjárbænda, Jóhann- es Kristjánsson, sagði fréttamanni DV aö skoðanir hefðu verið mjög skiptar um þetta á fundinum. Fund- armenn skipst í tvo hópa en Jóhann- es sagði að auðvitaö gæti þetta þýtt lækkun sláturkostnaðar og aukið samkeppni hjá sláturhúsum. Fundinum var haldið áfram í morgun og lýkur í kvöld. Skákþingíslands: Dregur saman Helgi Ólafsson er enn efstur á Skákþingi íslands eftir 5 umferðir með 4'/; vinning en það dregur sam- an með efstu mönnum. Helgi gerði jafntefli í gær við unga íslandsmeist- arann Héöin Steingrímsson. Jóhann Hjartarson vann Þröst Þórhallsson og er annar með 4 vinninga. Jón L. Árnason vann Róbert Harðarson og Karl Þorsteins vann Helga Ás Grét- arsson. Þeir Jón Loftur og Karl eru í 3.-4. sæti með 3 'A vinning. Úrslit í öðrum skákum í gær urðu þau að Margeir Pétursson vann Sig- urð Daða Sigfússon og Snorri Bergs- son vann Halldór G. Einarsson. Mar- geir er í fimmta sæti með 3 vinninga. Þröstur er með 2 'h v. Róbert 2, Hall- dór, Héðinn, Helgi Áss og Snorri 1 'h hver og Sigurður Daði hefur 1 vinn- ing. -hsím ÞJÓFAVARNIR FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMIU Vönduð og viðurkennd þjónusta Ím 0 91-29399 Allan sólarhringinn ár Öryggisþjónusta VARI ■-'síðan 1 969

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.