Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1991, Qupperneq 23
IJAU'ÖARbXGÖR':3'l.'Á'G'ÚST;1991.
23
Madonna hefur áhrif:
Á brjóstahaldaranum á ball
- ný undirfatatíska hefur haldid innreið sína hér á landi
„Undirfatatískan hefur veriö að
breytast á undanförnu einu og hálfu
ári. Tískan viröist djörf en er þaö
ekki. Þaö sem einhvern tíma þótti
að minnsta kosti djarft þykir sjálf-
sagt í dag,“ segir Jóna Lárusdóttir,
framkvæmdastjóri Módel 79 og
verslunareigandi, er helgarblaðið
forvitnaðist um nýja undirfatatísku
sgm virðist breiðast hratt út héí á
landi.
Sennilega hafa allir tekið eftir
hversu miklar breytingar hafa orðið
á undirfatatísku kvenna undanfarið.
Blúndur, pífur, sokkabönd og beltí
eru allsráðandi, að ekki sé talað um
brjóstahaldara, annaðhvort upp-
stoppaöa eða meö spöngum. Tískan
er kvenleg. Meira að segja sextíu og
átta kynslóðin, sem henti brjósthald-
aranum út í hom á uppreisnartíma-
bilinu, kemur nú inn í glæsilegar
undirfataverslanir borgarinnar og
kaupir sér eitt slíkt lífstykki. Sumar
í fyrsta skipti á ævinni.
I sumar hefur einnig borið nokkuð
á tískusýningum þar sem eingöngu
eru sýnd undirföt. Þessar sýningar
hafa verið vel sóttar, jafnt af konum
sem körlum. Jóna segir að það sé
ekki erfitt að fá stúlkur tíl að sýna
undirfötin en sumar myndu þó aldrei
vilja taka þátt í þeim sýningum.
Enginn myndi voga sér að bera
saman undirfatasýningar í dag og
þær sem voru fyrir nokkrum árum
á vegum PAN-hópsins svonefnda.
Mörgum finnst þó ekki mikill munur
á. Hins vegar er nú um að ræða há-
tísku og þá breytist hugsunarháttur
fólks.
Bómullarnærfötin
niður í skúffu
„Verslunum, sem selja undirföt,
hefur fjölgað mjög mikið undanfarið.
Þær voru reyndar alltaf mjög fáar,“
segir Jóna. Þá hafa margar tísku-
verslanir tekið undirföt í sölu. „ís-
lenskar konur gengu allar í þessum
venjulegu bómullarnærfötum en nú
vilja þær blúndubuxur. Pifuundir-
fötin er mörg úr bómull en oft úr
gerviefnum. Silkinærföt fást líka en
eru mjög dýr. Samfellur eru vinsælar
og úrvahð mikið,“ segir Jóna.
„Ungar stúlkur fara á ball í galia-
buxum og á brjósthaldaranum. Þær
eru kannski í jakka utan yfir eða
gegnsæjum skyrtum. Oftast eru
bijóstahaldarar þeirra bólstraðir,
jafnvel með skrautsaumi eða lykkj-
um. Það þykir mjög fínt að fara þann-
ig klædd á ball,“ segir Jóna ennfrem-
ur.
Sokkabönd um lærin, sem flestír
kannast við úr vestramyndum þar
sem vændishús eru oftar en ekki við-
komustaður kúrekanna, eru nú
brúkuð af ungum stúlkum sem
skraut. Sokkabandabelti eða maga-
beltí, eins og þau hétu áður fyrr, eru
einnig vinsæl og þá að sjálfsögðu með
sokkum. Sokkabuxumar, sem kven-
þjóðin fagnaöi ákaft á sínum tíma,
em því að úreldast - að minnsta kosti
tímabundið.
Stórbrjóstítísku
Jóna telur þó að sokkabuxurnar
séu ennþá vinsælli en sokkabanda-
beltin og sokkarnir. „Konur fá sér
falleg undirföt en þessi sokkabönd
þurfa ekki endilega að fylgja. Mörg-
um ungum stúlkum þykja beltín flott
en kaupa þau samt ekki. Ég held að
konur á öllum aldri hugsi miklu
meira en áður hverju þær klæðast
undir ytri föturn," segir Jóna. „Þessi
tíska er ekki eingöngu á íslandi held-
ur um allan heim. Það er í tísku að
vera kvenlegur með stór brjóst. Er-
lendar umboðsskrifstofur fyrirsæta
vilja t.d. ekkert núna nema grannar
stúlkur sem eru yfir 175 og með stór
brjóst," segir Jóna Lárusdóttir.
„Það er farið að aukast að konur,
sem aldrei hafa gengið með brjósta-
haldara, komi hingað tíl að máta og
oftast kaupa þær sér einn slíkan því
að þær frnna hve það er miklu þægi-
legra,“ segir Melkorka Gunnarsdótt-
ir hjá undirfataversluninni Klöru í
samtali við helgarblaðið. „Nú kaupa
þær sér spangarbrjóstahaldara enda
eru gæði þeirra miklu betri en var
áður fyrr er-spangirnar stungu og
særðu. Yngri konur kaupa sér heila
brjóstahaldara og ganga síðan í
gegnsæjum skyrtum yfir. Það er tísk-
an í dag og kemur frá söngkonunni
Madonnu. Brjóstahaldarinn er núna
hluti af heildarmynd tískunnar."
- En koma karlar og kaupa á konur
sínar?
„Já, það er talsvert mikið um það
og hefur aukist. Ef þeir vilja gefa
konunum eitthvað fallegt kaupa þeir
nærföt. Fyrst voru karlmenn mjög
feimnir að koma hér inn en þeir eru
það ekki lengur.“
- Má ekki segja að þessi undirfata-
tíska sé djörf?
„Nei, það finnst okkur ekki. Þetta er
fallegt og á að gera sitt gagn. Við fmn-
um að viðhorfið er farið að breytast.
Undirfatnaður er ekkert sem er gróft."
- Eru einhverjir litir sérstaklega í
físku í undirfötum?
„Svart og hvítt er alltaf vinsælast.
Náttúrulitir eru einnig vinsælir og
dumbrautt hefur verið að sækja á.“
Bjarma Didriksen í Misty tekur í
sama streng. Þangað koma konur á
öllum aldri og vilja kaupa tískuund-
irfót og eiginmennir ekki síður. „Þaö
hafa verið auknar áherslur á undir-
föt almennt og þykir tilhlýðilegt að
þau sjáist á opinberum vettvangi.
Þess vegna eru kröfurnar meiri um
að undirfótin séu falleg," sagði
Bjarma. Hún er á þeirri skoðun að
margt hafi hjálpast að við að búa tíl
þessa undirfatatísku og ekki síst
söngkonan Madonna. „Það er alltaf
verið að gera betur og vandaðra og
ungt fólk er mjög meðvitað um tísk-
una og hinir eldri fylgir á eftir.“
Sokkaböndin spari
í sumar á undirfötum. Hér sýna ung-
ar stúlkur hluta af öllu því framboði
sem er á boðstólum í verslunum i
undirklæðum.
aðrir viðmælendur DV að þessi nýja
tíska væri djörf því t.d. sokkabönd
væru einungis sjálfsögð viðbót við
önnur undirfót. „Konur nota sokka-
böndin spari, t.d. ef þær ætla að gera
eitthvað sérstakt fyrir sig eða mak-
ann. Þær ganga ekki með sokkabönd
hversdags, þó allur gangur sé á því.
Það er mikið atriði að undirfötin séu
fyrir augað, litir, blúnda og þess hátt-
Sokkaböndin þóttueinu sinni djörf.
Nú eru þau sett upp spari.
DV-myndir Anna
ar. Þeir litir sem eru í tísku hverju
sinni á fatnaði koma einnig í nær-
fætnaði. Pastelhtir eru vinsælir á
sumrin en dökkir á veturna."
Bjarma telur að heilsuræktar-
stöðvarnar og aukin áhersla á lík-
amsrækt hafi vakið athygli eldri
kvenna á fallegum nærfatnaði.
„Ungar stúlkur eru fljótar tíl og þar
sem konur hátta saman, t.d. í líkams-
Þessi unga stúlka var ekkert feimin
að taka á móti gestum á Hótel ís-
landi á nærklæðunum einum fata
enda er þetta hátíska og alls ekkert
djörf.
ræktarstöðvum eða sundstöðum,
verða hinar eldri fyrir áhrifum er
þær sjá ungu stúlkurnar í fallegum
undirfötum," sagði Bjarma.
„í fyrsta skiptí um síðustu jól voru
nærföt frekar tekin til gjafa heldur
en náttföt. Eiginmennirnir áttu ekki
síst þátt í því. Vinkonur slá líka oft
saman í falleg undirfót handa vin-
konuítækifærisgjöf." -ELA
Bjarma vildi ekki segja frekar en
Áttu barn á skólaaldri?
Þá geturðu hugsanlega haft áhuga á Dans-Nýjung Barnabæ sem kynnir nýtt á ís-
landi: 9 mánaða námskeið fyrir börn á aldrinum 5-7 ára.
Kennt verður frá kl. 8-12 og síðan 13-17.
Hvað vilt þú gera fyrir barn þitt???
.. .vandaðu valið!
Hjá okkur læra börnin dans, söng, leiklist, slökun, framsögn, fram-
komu, kurteisi, borðsiði, að vinna með liti, við bökun, lestur, teikn-
un.
Þegar námskeiðinu lýkur halda börnin sýningu á því sem þau hafa
lært og veita viðurkenningum skólans viðtöku. Þau verða í alvöru-
leikbúningum sem skólinn lætur í té.
Unnið verður úr hinum frábæru barnabókum sem Vaka-Helgafell
gefur út og Gáski segir frá.
Öll kennda miðast við að vera barni þínu til gagns og gleði.
Ath., takmarkaður fjöldi nem-
enda.
Skólinn tekur til starfa mánudag-
inn 9. sept. Skírteinaafhending
verður laugardaginn 7. sept.
kl. 14.00-18.00.
Upplýsingar í síma 677270
alla daga þessa viku frá 13-18
<nyi—Ud4!