Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1991, Side 25
25
LAUGARDAGUR 31. Á&S'T 1991.
niðri óánægju sem kraumaði undir
og þjóðernisdeilum.
Fyrri valdherrar
spyrnaviðfótum
Eftir fráfall Títós fyrir 10 árum og
síðar hrun kommúnismans hafa deil-
ur blossað upp á ný milli þjóða Júgó-
slavíu. Síðastliðið ár hafa þessar deil-
ur harðnað svo að forsætisráðið, sem
skipað er fulltrúum allra ríkjanna
og fer með hið eiginlega forsetavald,
hefur ekki getað við neitt ráðið.
í frjálsum þingkosningum á síðasta
ári urðu kommúnistar að láta í minni
pokann fyrir frjálslyndari mönnum
í Króatíu og Slóveníu. Fljótlega varð
síðan ljóst að ríkin stefndu að sjálf-
stæði og fór það mjög fyrir brjóstið
á fyrri valdhöfum sem enn halda um
stjórnartaumana í Belgrad, höfuð-
borg Serbíu. Þar er einnig að finna
höfuðstöðvar ríkjasambandsins sem
og sambandshersins.
Að aflokinni þjóðaratkvæða-
greiðslu í Króatíu og Slóveníu í vor,
þar sem yfirgnæfandi meirihluti lýsti
sig fylgjandi fullu sjálfstæði, tóku
þjóðþing þessara ríkja síðan af skarið
í lok júní síðastliðins; Slóvenía lýsti
yfir sjálfstæði en Króatía fór aðeins
hægar í sakirnar og lýsti því yfir að
hún stefndi að sjálfstæði á næstunni.
Frá þeim degi sem þessar ákvarðanir
voru teknar hafa blóðug átök átt sér
stað í Júgóslavíu.
Þegar eftir sjálfstæðisyfirlýsingu
Slóveníu hugðist Júgóslavneski sam-
bandsherinn, sem er mjög vilhallur
stjóm kommúnista í Serbíu, grípa í
taumana. Til blóðugra átaka kom í
kjölfarið en vegna öflugrar mót-
spyrnu Slóvena varð herinn að láta
í minni pokann. Ákvað sambands-
herinn að einbeita sér að því að
hindra Króata í að öðlast sjálfstæði.
Stríðiö í Króatíu er um margt sér-
kennilegt því víghnur eru þar lítt
markaðar og oft óljóst hverjir óvin-
irnir eru. Stjórnvöld í Serbiu ásamt
yfirmönnum í júgóslavneska sam-
bandshernum hafa fram til þessa
haldið því fram aö um sé að ræða
varnarstríð hins serbneska minni-
hluta í Króatíu gegn yfirgangi stjórn-
valda þar sem klippa vilji á tengshn
við Serbíu. Hvorki stjórnvöld í Serb-
íu né sambandsherinn styðji þessa
sjálfsprottnu uppreisn. Því er haldiö
fram að Serbar í Króatíu geti ekki
hugsað sér að jarðir þeirra og þorp
komi til með að tilheyra frjálsu og
fuhvalda ríki Króata.
Það er hins vegar athyghsvert að í
Áustur-Króatiu, þar sem átökin milli
Króata og Serba eru hvað hörðust,
eru Serbar í minnihluta, einungis um
17 prósent íbúanna. Á fámennum
svæðum í Mið- og Suður-Króatiu eru
hins vegar nokkur þorp þar sem
Serbar eru í örlitlum meirihluta. Alls
er um hálf mihjón Serba búsett í
Króatíu eða um 11 prósent íbúanna.
Þrátt fyrir fullyrðingar Serba og
yfirmanna sambandshersins um að
um sjálfsprottna uppreisn sé að ræða
er þó ljóst að stór hluti sambands-
hersins styður uppreisnina og að
stærsti hluti uppreisnarmanna eru
vel þjálfaðir hermenn frá Serbíu,
vopnaðir stríðstólum frá sambands-
hernum.
Illa vopnaðir ungliðar
sendir á vígvöllinn
Króatísk stjórnvöld eiga í miklum
erfiðleikum með að veriast ásókn
Serba, enda hafa þeir engan annan
her sér til varnar en sambandsher-
inn sem þeir á sama tíma eiga í stríði
við. Af veikum mætti hafa þau reynt'
að bregðast við vandanum með því
að koma á fót sérstökum sveitum
þjóðvarðhða innan lögreglunnar.
Sjálfstæðisbarátta Króata hefur
kostað miklar blóðfórnir. Daglega
berast fréttir af mannfalii og tugir
þúsunda hafa orðið að flýja heimili
sín. Simamynd Reuter
Við allar mikilvægar byggingar og
víða á götum eru vopnaðir þjóð-
varðliðar á verði. Þinghúsið í
Zagreb er þar engin undantekning.
DV-mynd KAA
Þessar sveitir eru þó illa vopnum
búnar og að stærstum hluta mannað-
ar ungum og lítt þjálfuðum mönnum.
Mega þær sín því lítils gegn ofurefl-
inu.
Þótt serbnesk stjórnvöld hafi enn
sem komið er ekki viljaö taka á sig
ábyrgð á stríði Serba í Króatíu hafa
þau engu að síður lýst yfir þeim vhja
að myndað verði nýtt og stærra ríki
Serba sem nái yfir hluta af lands-
svæðum Króatíu, ásamt þeim lands-
svæðum sem nú tilheyra ríkjum Bos-
níu og Hersegovínu, Makedoníu og
Montenegro. Fátt virðist geta komið
í veg fyrir að Serbíu takist þetta ætl-
unarverk sitt en að sama skapi er
ljóst að það mun kosta blóðuga
borgarastyijöld, ekki bara í Króatíu
heldur einnig í hinum ríkjunum,
meðal annars í Makedoníu þar sem
Albanir eru fjölmennir.
í Króatíu ríkir mikh óvissa varð-
andi framtíðina. Þrátt fyrir fjöl-
breytni í atvinnulífi blasir efnahags-
legt hrun við þjóöinni. Átökin við
Serba hafa þegar valdið hruni í ferða-
þjónustunm; þangað leggur enginn
ferðamaður leið sína. Að sögn ferða-
málafrömuða mun það taka minnst
fimm ár aö byggja upp ferðamanna-
þjónustuna á ný. Sömu sögu er að
Stipe Mesic, forseti forsetaráðs
Júgóslaviu, hefur nú hótað að segja
af sér hætti Serbar ekki tafarlaust
árásum á Króata. Á myndinni er
Stipe að ráðgast við Petar Kriste,
ráðherra í ríkisstjórn Króatiu.
DV-mynd KAA
Króatískir þjóðvarðliðar á tali við
borgara fyrir utan þinghúsið í
Zagreb. DV-mynd KAA
segja um fjárfestingar erlendra aðila
í iðnaðar- og þjónustugreinum. Eng-
ina fæst til aö fjárfesta af ótta við
framtíðina og fyrir vikið hefur
stjórnvöldum ekki tekist að einka-
væða ríkisfyrirtækin.
Atburðir síðustu vikna hafa þjapp-
aö króatísku þjóðinni saman. Þar
ríkir nú einhugur um aö fullt sjálf-
stæði sé eina færa leiðin í átt til lýð-
ræðis. Þeir sem áður höfðu efasemd-
ir og óttuðust leið þjóðernishyggj-
unnar hafa einnig látið sannfærast
að ekki komi aðrar leiðir til greina.
Átökin við Serba hafa fært mönnum
heim sanninn um að þessar þjóðir
séu of menningarlega og póhtískt
óhkar til að halda ríkjasamstarfinu
áfram.
Djöfullegar limlest-
ingar og fjöldamorð
Tiltrú Króata á friösamlegri lausn
á landamæradeilunum við Serba fer
minnkandi með hverjum degi. Þrátt
fýrir að í stjómarskrá Júgóslavíu sé
að finna ákvæði um að ekki megi
breyta landamærum ríkjanna viröa
Serbar það að vettugi. í þrígang hefur
forsætisráð Júgóslavíu, með forset-
ann Stipe Mesic í broddi fylkingar,
lýst yfir vopnahléi milh stríðandi
fylkinga án árangurs. í vikunni hót-
aði síðan forsetinn að segja sig úr
ráðinu ef vopnahléið yrði ekki virt.
Frá því átökin hófust fyrir alvöru
fyrr í sumar hafa hundruð Króata
látið hfið, þar á meðal fjöldi óbreyttra
borgara. í nokkrum þeirra þorpa,
sem Serbar hafa ráðist á, hefur um
grimmdarleg fjöldamorð verið að
ræða. Líkin, sem flutt hafa verið til
Zagreb, bera vott um djöfuhegar hm-
lestingar. Kviðrist lík ungra manna
með klofin höfuð og afhöggna úthmi
hafa fyllt þjóðina óhug. Flóttamenn-
irnir frá átakahéruðunum nema tug-
um þúsunda. Þeir standa uppi alls-
lausir eftir að hafa verið hraktir á
brott frá heimilum sínum.
í samtah við DV fyrr í mánuðinum
kvaðst Mesic sannfærður um að frið-
samlega lausn mætti finna á næstu
vikum en augljóslega fer bjartsýni
hans nú þverrandi. Sömu sögu er að
segja af ráðamönnum í Króatíu. For-
seti þjóðarinnar, Franjo Tudjman,
ásamt forsætisráðherranum, Franjo
Greguric, hafa ítrekað lýst þeirri
skoðun að ekki komi til greina að
gefa eftir svo mikið sem spildu af
landsvæði Króatíu. Hins vegar segj-
ast þeir tilbúnir að ræða myndun
sjálfsstjórnarhéraða þar sem Serbar
eru hvað fjölmennastir.
Vonaraugum
beinttilEvrópu
Sú skoðun er ríkjandi í Króatíu að
endi verði ekki bundinn á sókn Serba
nema th komi viðurkenning erlendra
ríkja á sjálfstæði þjóðarinnar. Nú
þegar hafa Serbar náð undir sig allt
að fimmtungi af landsvæðum Króata
og sókn þeirra heldur áfram. Stuðn-
ingur sambandshersins er jafnframt
orðinn augljósari.
Þá daga sem blaðamaður DV dvaldi
í Króatíu voru miklar vonir bundnar
við aðstoð EB-ríkjanna við að stööva
átökin, enda eru bæði innri og ytri
landamæri Júgóslavíu viðurkennd á
alþjóðavettvangi. Vonin um aðstoð
EB dvinaði þó eftir heimsókn þriggja
ráðherra th Júgóslavíu fyrr í mánuð-
inum. Þeir sneru heim með þær yfir-
lýsingar að ekkert væri hægt að gera.
í Serbíu fognuðu menn yfirlýsingu
EB-ráðherranna, enda ráðamenn þar
alfarið á móh erlendum afskiptum
af málefnum Júgóslavíu. Hinn
herskái herforingi Serba í Króatíu,
kapteinn Dragon, eins og hann er
nefndur, lét þá hafa eftir sér að ekk-
ert gæh lengur komið í veg fyrir
myndun stórríkis Serba. í Króahu
urðu menn hins vegar harmi slegnir.
Sú spuming brann á vörum þjóðar-
innar hvort Evrópa æhaði sér að af-
neita og fórna þessum hluta Evrópu.
Flaggað til sigurs
í augum flestra Króata er baráttan
fyrir sjálfstæði einungis fyrsta skref-
ið í áh th náinnar samvinnu við önn-
ur riki Evrópu. Það fer heldur ekki
á mhh mála að króahska þjóðin álít-
ur sig eiga heima í samfélagi Evrópu-
þjóða, bæði í menningarlegu og efna-
hagslegu tihih. Allt yhrbragð þjóðfé-
lagsins ber með sér að þar býr fólk
sem í engu sker sig úr frá nágrönnum
sínum í norðri og vestri. Það er tákn-
rænt í þessu sambandi að víðast hvar
þar sem hinn nýi þjóðfáni Króahu
blakti við hún máth sjá th hhðar fána
EB. Til samans mynduðu fánastang-
irnar V fyrir sigur.
En Króatar eru trúuð þjóð. Hún
biður fyrir réhlæh og er sannfærð
um að verða bænheyrð. Atburðir síð-
ustu daga hafa einnig aukið líkurnar
á að svo verði. Fyrir atbeina Hans-
Dietrichs Genscher, utanríkiráð-
herra Þýskalands, er nú um það ræh
innan EB að viðurkenna sjálfstæði
Slóveníu og Króahu hæth Serbar
ekki þegar árásum sínum á króahsk
landsvæði. Þessari skoðun vex nú
fylgi með hverjum deginum innan
bandalagsins. í Austurríki hafa ráða-
menn vhjað ganga lengra og viður-
kenna þegar í stað sjálfstæði.þessara
þjóða, réh eins.og verið sé að gera
gagnvart Eystrasaltslýðveldunum.
Ljóst er þó að nokkur bið kann að
verða á viðurkenningu Evrópu-
bandalagsins á sjálfstæði þessara
þjóða. Og sú bið kann að kosta mikl-
ar blóðfómir. Að undanförnu hafa
átökin verið harðari en nokkru sinni
fyrr. Svo kann jafnvel að fara að
Serbar nái að knýja fram fullnaðar-
sigur á næstunni.
Þróist mál á þennan veg mun Kró-
atía þurfa að sjá á efhr stórum land-
svæðum, einkum í austri við landa-
mærin að Serbíu en einnig í Mið- og
Suður-Króatíu. Líkur eru á að hluti
strandarinnar verði einnig innlimað-
ur í lúð nýja stórríki Serba. Innan
þeirra landamæra yrði efhr stór
minnihlutahópur Króata og annarra
þjóðarbrcfta. Þróist mál á þann veg
er ljóst að ólga og ófriður halda áfram
á Balkanskaganum um ókomin ár.
Kristján Ari Arason
INNKAUPAPARADÍS FRÁ ÞÝSKALANDI
MADELEINE
ICH MAG'S ICH TRAG'S
TOP-SHOP
QUELLE
Tískulisti með
óvenjulega glæsi-
legum fatnaði fyrir
konur. Ótrúlega fal-
leg hönnun sem
uppfyllir óskir um
það allra besta.
Ef þú þarft fallegan
kvenfatnað í stórum
númerum þá er þetta
listinn. Fallegur fatn-
aður í númerum til
54 fyrir kvenfólk á
öllum aldri. Nýtisku
fatnaður í númerum
sem passa.
Listinn fyrir unga
fólkið. Skemmtilegur
og frisklegur fatnað-
ur. Klæðnaður fyrir
öll möguleg tæki-
færi. Þetta er listinn
fyrir táninga sem
vilja sérstakan fatn-
að.
Fjölskyldulistinn,
50.000 vörunúmer á
1300 bls. Ótrúlegt
vöruúrval: fatnaður,
heimilisvara, leik-
föng, raftæki o.fl.
o.fl. Inneignarseðill,
ísl. þýðingarlisti og
falleg gjöf fylgir list-
anum. Gæði og gott
verð einkenna þenn-
aneinstaka vörulista.
Pöntunarlína
91-50200
Gæðavörur frá Þýskalandi
Allar vörurnar frá Quelle standast hina ströngu,
þýsku gæðastaðla um efni og framleiðslu eða
gera jafnvel betur.
inn
kaup
án
allrar
(Huelle
pýskt «knar
STÆRSTA P0STVERSLUN EVR0PU
VERSLUN OG AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI.
SÍMI 91-50200
Pöntunarlína
91-50200
Hægstætt verð.
Quelle-verðið er mælikvarði á hagstæð innkaup.