Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1991, Side 46
LAlKiARDAGUH 31. ÁGÚST. 1991.
íþróttakennarar, athugið
iþróttakennara vantar nú þegar að Laugaskóla, Dala-
sýslu. Nýtt íþróttahús á staðnum.
Allar frekari upplýsingar gefur skólastjóri í símum
93-41269 og 93-41262.
Menningarsjóður
íslands og Finnlands
Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finn-
lands og íslands. ( því skyni mun sjóðurinn árlega
veita ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða
öðru fremur veittir einstaklingum, stuðningur við
samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstak-
lega stendur á. Að þessu sinni verður lögð áhersla
á að styrkja þýðingar á finnskum og íslenskum bók-
menntum.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir árið 1992 skulu
sendar stjórn Menningarsjóðs (slands og Finnlands
fyrir 30. september næstkomandi. Áritun á íslandi:
Menntamálaráðuneytið, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á
sænsku, dönsku, finn.sku eða norsku.
Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands
29. ágúst 1991
Störf á Veðurstofu íslands
Rafeindafræðingur óskast í hálft starf (50%) við
tækni- og veðurathuganadeild Veðurstofu íslands.
Nánari upplýsingar gefa deildarstjóri og veðurfræð-
ingar tækni- og veðurathuganadeildar Veðurstof-
unnar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf og meðmælum, ef fyrir hendi eru, skulu hafa
borist umhverfisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
Reykjavík, eigi síðar en 10. september næstkomandi.
Tækni- og veðurathuganadeild Veðurstofu Islands
óskar að ráða fjölhæfan tæknimann (deildariðnfræð-
ing) til að vinna við smíði, viðhald og uppsetningu
mælitækja og fara með daglega verkstjórn á vinnu-
stofu. Æskileg er iðnmenntun í einhverri grein málm-
smíða og vélstjóramenntun eða sambærilegt fram-
haldsnám. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Nán-
ári upplýsingar gefa deildarstjóri og veðurfræðingar
tækni- og veðurathuganadeildar Veðurstofunnar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf og meðmælum, ef fyrir hendi eru, skulu hafa
borist umhverfisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
Reykjavík, eigi síðar en 10. september næstkomandi.
Frá grunnskólum
Reykjavíkur
Grunnskólar Reykjavíkur hefja starf í byrjun septemb-
er. Kennarafundir hefjast í skólunum mánudaginn
2. september kl. 9 árdegis.
Nemendur komi í skólana fimmtudaginn 5. septemb-
er sem hér segir:
10. bekkur komi kl. 9
9. bekkur komi kl. 10
8. bekkur komi kl. 11
7. bekkur komi kl. 13
6. bekkur komi kl. 13.30
5. bekkur komi kl. 14
4. bekkur komi kl. 14.30
3. bekkur komi kl. 15
2. bekkur komi kl. 15.30
Nemendur 1. bekkjar (börn fædd 1985) hefja skóla-
starf mánudaginn 9. september en verða áður boðað-
ir til viðtals með foreldrum, hver í sinn skóla.
Nemendur Fossvogsskóla komi í skólann mánudag
inn 2. september skv. ofangreindri tímatöflu.
Afmæli
DV
Vilborg Lárusdóttir
Vilborg Lárusdóttir húsmóðir, nú
til heimilis að Dvalarheimili aldr-
aðra í Stykkishólmi, verður sjötíu
og fimm ára á mánudaginn.
Starfsferill
Vilborg fæddist í Stykkishólmi og
ólst þar upp en þar hefur hún búið
alla tíð að undanskildum þremur
árum er hún og maður hennar
bjugguíReykjavík.
Vilborg stundaði lengst af hús-
móöurstörf auk ýmissa annarra
starfa. Þástundaði hún ýmis félags-
störf, söng með kirkjukórnum í
mörg ár, var einn af stofnendum
barnastúkunnar Bjarkar í Stykkis-
hólmi og starfaði mikið með Kvenfé-
laginu Hringnum en hún er heiðurs-
félagi þess.
Fjölskylda
Vilborg kvæntist 27.5.1939 Pétri
Jónssyni, f. 26.11.1913, d. 13.7.1980,
sjómanni í Stykkishólmi, en hann
var sonur Jóns Rósmanns Jónsson-
ar og Magðalenu Svanhvítar Páls-
dóttur er bj uggu í Þormóðsey.
Börn Vilborgar og Péturs: Jósef-
ína Guðrún, f. 21.3.1940, búsett í
Reykjavík, gift Sverri S. Kristjáns-
syni og eru böm þeirra Indiana,
Vilborg og Guðlaug; Jón Svanur, f.
21.7.1942, búsettur í Stykkishólmi
en dóttir hans er Friðný; Lárus, f.
30.11.1944, búsettur í Stykkishólmi,
kvæntur Hafdísi Knudsen og eru
böm þeirra Sigurður Þór og Knútur
Lárus; Hreinn, f. 21.6.1946, d. 8.3.
1969, var kvæntur Sæbjörgu Guð-
bjartsdóttur og eru þeirra synir Pét-
ur Fannar og Helgi Sævar; Sigurð-
ur, f. 1.4.1950, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Guðrúnu Kristínu Egg-
ertsdóttur og eru þeirra börn Þor-
geir Helgi og Magðalena; Þórey Jó-
hanna, f. 31.5.1953, búsett í Reykja-
vik, gift Guðmundi Péturssyni og
era þeirra börn Hreinn Rósmann,
Thelma, Eva Dögg og Pétur Gunnar;
Rakel Hrönn, f. 12.12.1958, búsett í
Gautaborg í Svíþjóð, gift Gísla
Hjartarsyni og eru böm þeirra Þór-
unn Kristín og Einar Torfi.
Systkini Vilborgar: Jósefína Guð-
rún, f. 27.1.1909, d. 1937, var gift
Ingólfl Guðmundssyni; Hrefna, f.
2.10.1911, var gift Ingvald Espeseth
semléstl964ogeruböm þeirra íj ög-
ur; Jón, f. 2.9.1916, d. 1922; Bene-
dikt, f. 18.3.1924, kvæntur Kristínu
Bjömsdóttur og era börn þeirra sjö.
Langömmuböm Vilborgar eru nú
fimmtalsins.
Vilborg Lárusdóttir.
Foreldrar Vilborgar vora Lárus
Guðmundur Kristjánsson, f. 2.8.
1883, d. 1966, smiður í Stykkishólmi,
og Þórey Ólína Nikulásdóttir, f. 5.10.
1879, d. 1966, húsmóðir.
Láras var sonur Kristjáns Björns-
sonar, gullsmiðs í Straumi á Skógar-
strönd, og Vilborgar Jósefsdóttur.
Þórey var dóttir Nikulásar Árna-
sonar og Ólafar Bjamadóttur frá
Garðabrekku í Staðarsveit á Snæ-
fellsnesi.
Vilborg verður stödd í Veitinga-
húsinu Knudsen í Stykkishólmi,
sunnudaginn 1. september milli
klukkan 14 og 17.
Karen Mellk
Karen Mellk, sagnfræðingur og
verslunarsljóri í Eden í Hveragerði,
Þelamörk 46, Hveragerði, er fertug
ídag.
Starfsferill
Karen er fædd í Elizabeth í New
Jersey í Bandaríkjunum og ólst upp
í Short Hills í sama ríki. Hún var
við nám í Beaver College, Pennsyl-
vania, 1969-1973 og lauk B A prófi í
sagnfræði og kennaraprófi frá þess-
um skóla. Haustið 1971 var hún við
nám í City of London Polytechnic
og vorið 1972 við nám í Austro-
American Institute í Vínarborg.
Lauk prófi sem aðstoðarmaður lög-
fræðinga Paralegal Institute, New
York City, 1973. Stundaði nám í
sagnfræði viö Hunter College, New
YorkCity 1975-1976.
Karen vann við lagadeild G. A.F.
Corporation, New York City, 1974-
1979.
Haustið 1979 flutti hún til íslands.
Hún vann sem fóstra í Laufásborg
í Reykjavík, 1979-1981, sem einkarit-
ari framkvæmdastjóra Samvinnu-
trygginga 1982 en flutti það sama ár
til Hveragerðis og vinnur nú sem
verslunarstjóri í Eden.
Fjölskylda
Karen giftist 6.5.1988 Braga Einars-
syni, f. 19.8.1929, forstjóra Garð-
yrkjustöðvarinnar Eden. Karen og
Bragi höfðu veriö i sambýh frá ár-
inu 1982. Foreldrar hans era Einar
Kr. Þorbergsson, sjómaður og
verkamaður, og Sigríður Valdi-
marsdóttir húsmóðir.
Karen og Bragi eiga einn son
André Berg, f. 4.11.1986. Bragi á tvö
böm frá fyrra hjónabandi, Einar
Bjöm, f. 21.1.1960, og Olgu Björk,
f. 13.8.1963. Bragi á einnig eina dótt-
ur sem hann ættleiddi, Ólafíu
MargrétiKarlsdóttur, f. 10.1.1956.
Systkini Karenar: Róbert Mellk,
f. 25.8.1949, framkvæmdastjóri út-
gáfuþjónustunnar Víkverja. Hann á
tvö böm og er búsettur í Reykja-
vík.
Marilyn Herdís Mellk, f. 4.2.1961,
gráfíklistamaður, gift Kristjáni Ósk-
arssyni hljómhstarmanni. Þau eiga
tvöböm.
Foreldrar Karenar eru George
Mellk, f. 12.2.1915, d. 1973, aðstoðar-
forstjóri Glemby Co, New York City,
og Kristjana Bjargmundsdóttir
Mellk, f. 29.12.1925, húsmóðir. Þau
bjuggu lengst af í New Jersey í
Karen Mellk.
Bandaríkjunum en Kristjana býr nú
íReykjavík.
Ætt
Foreldrar Georges vora Morris og
Golde Mehk en þau fluttu frá Minsk,
Byelorassia í Rússlandi th Banda-
ríkjanna á fyrsta áratug aldarinna.
Foreldrar Kristjönu voru Bjarg-
mundur Sveinsson frá Efriey í
Meðhandi, albróðir Jóhannessar
Sveinssonar Kjarvals hstmálara og
Herdís Kristjánsdóttir.
Ami Amason
Ámi Ámason, framkvæmdastjóri
Austurbakka, til heimihs að Seilu-
granda 17, Reykjavík, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Ámi fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá VI1972 og hefur setið fjölda
stjómunamámskeiða á vegum JC-
hreyfingarinnar hér heima og er-
lendis.
Árni var verslunarmaður 1972-82
og hefur verið framkvaémdastjóri
frá 1983. Hann var jafnframt skó-
kaupmaður 1974-79 og hefur setið í
stjóm Kringlusports og sljóm
Omega Karma frá 1990.
Árni sat í stjórn Heimdahar
1973-74, stjóm Byggung í Reykjavík
1973-89, var formaöur félagsins
1987-89, í stjórn JC Reykjavik
1976-80 og forseti 1979-80, í lands-
stjóm JC Island 1980-81, landsfor-
seti JC á íslandi 1982-83, sat í heims-
stjóm JC intemational og alþjóðleg-
ur varaforseti 1987.
Ámi situr í varastjóm ÍSÍ frá 1988,
sat í badmintondeild Víkings
1983-87 og var formaður hennar
1985-87, er formaöur fimleikadehd-
ar KR frá 1990, formaður Badmin-
tonráðs Reykjavíkur frá 1985, sat í
varastjórn Verslunarráðs 1988-90 og
hefur stundað ýmis nefndarstörf
fyrir Félag íslenskra stórkaup-
mannafrál987.
Fjölskylda
Ámi kvæntist 20.10.1976 Guð-
björgu Jónsdóttur, f. 9.10.1951,
íþróttakennara, en hún er dóttir
Jóns Jóhannessonar, vélsfjóra í
Keflavík, og Jónu Sigurgísladóttur
matráðskonu.
Böm Áma og Guðbjargar era
Sandra Dögg Ámadóttir, f. 19.9.
1976; Árni Amason, f. 29.10.1978;
Agnes Þóra Ámadóttir, f. 22.2.1988.
Systkini Árna era Þórhildur
Ámadóttir, f. 6.6.1954, húsmóðir,
og Guðjón Ingi Ámason, f. 6.6.1958,
Árni Árnason.
framkvæmdastj óri.
Foreldrar Áma eru Árni Árnason,
f. 12.2.1929, forstjóri í Reykjavík, og
kona hans, Guðrún Pálsdóttir, f. 5.9.
1929, húsmóðir.
Árni er sonur Árna Jóhanns
Árnasonar, skrifstofustjóra hjá
Gasstöð Reykjavíkur, og konu hans,
Helgu Guðmundsdóttur.
Guðrún er dóttir Páls Einarssonar,
rafveitustjóra í Reykjavík, og konu
hans, Ingunnar Guðjónsdóttur.