Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991. 5 Fréttir Nemendur Ármúlaskóla reiðir: Leikf imiaðstaðan er hreint og beint ömurleg - hækkim á húsaleigu ástæðan, segir skólameistarinn „Lögum samkvæmt á að vera leik- fimikennsla í öllum framhaldsskól- um landsins, þetta er meira að segja skyldufag, en hér í Ármúlaskólanum er engin innileikfimi og öll aðstaða til íþróttaiðkana mjög léleg,“ sagði reiður nemandi í Fjölbrautaskólan- um Ármúla í samtali við DV. „Við eigum bara að mæta með jogg- ing-galla og hlaupa úti á milli þess sem við höfum einhverja aðstöðu í pínulítilli stúku í Baldurshaganum þar sem einungis er hægt að hlaupa eða stökkva í einhveija sandgryfju," sagði nemandinn. „Það eru allir nemendurnir fjúk- andi reiðir yfir þessu. Það hefur ver- ið talað mn að fara í mótmælagöngu eða eitthvað álíka því að leikfimiað- staðan er hreint og beint ömurleg." Hafsteinn Stefánsson, skólameist- ari fjölbrautaskólans, segir að hingað til hafi skólinn ávallt leigt Laugar- dalshöllina fyrir íþróttaiðkanir nem- enda en að eftir að leigan var hækk- uð hafi hún reynst skólanum of dýr. „íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkur hækkaði leiguna um 52% fyrir tveimur árum en okkur var gefinn kostur á að borga gömlu leiguna fram að síðustu áramótum. Síðan þá höfum við hreinlega ekki haft efni á að halda höllinni. Hver tími þar kostar nú 3800 krón- ur og miðast við að höllin sé tekin á leigu frá klukkan 8-16 á daginn. Þetta gerir 960 þúsund krónur á önn og með Baldurhaganum er þetta komið upp í tæpar þijár milljónir króna yfir veturinn, bara húsaleigan fyrir íþróttamannvirkin. Og þar sem rekstrarfé skólans er einungis um 12 milljónir á ári er þetta 5% af því fé,“ sagði Hafsteinn. „Við höfum margreynt að semja því að við teljum okkur vera að nota Um leigu Armúlaskóla á Laugardalshöll: Aldrei reynt að semja við okkur - segir framkvæmdastjóri ÍTR „Það er ekki rett að stjornendur Fjölbrautaskólans Ármúla hafi reynt að semja við okkur um leigugjöld eða afslátt af Laugardalshölhnni. Við höfum ekkert heyrt frá þeim,“ sagði Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur, ÍTR, í samtali við DV. „Þeir sendu okkur uppsagnarbréf í mars þar sem þeir sögðu upp íþróttaaðstöðunni frá og með 24. apríl. En í lok bréfsins sögðust þeir vonast eftir góðu samstarfi í haust þegar kennsla hæfist að nýju. „Við sendum þeim því bréf í mars og buðum þeim að koma að ræða við okkur um notkun þeirra á íþrótta- mannvirkjum okkar og leigugjöld fyrir þau áður en skólastarfið hæfist. Það hafa engar slíkar viðræður far- ið fram því þeir hafa ekkert óskað eftir því, en við höfum ekki fengið neina formlega yfirlýsingu frá þeim um að þeir æth sér ekki að nýta hús- ið þessa önnina. Við gerðum meira að segja ráð fyr- ir því alveg þar til í síðustu viku að þeir myndu nýta húsið, því það eina sem þeir hafa sagt er að þeir æth sér ekki að nota húsið fyrir áramótin," sagði Ómar. Reynir Karlsson, íþróttafulltrúi ríkisins, sagðist aðspurður vita til þess að Reykjavíkurborg hefði boðið skólameistara Ármúlaskóla upp á umræður um kjör og leigu á Laugar- dalshöllinni. „Þetta hlýtur að vera misskilning- ur hjá skólameistaranum, hann hef- ur ekki áttað sig á því að hann þurfti að hafa frumkvæðið að því að semja,“ sagði Reynir. Hann benti á að skólamir væru sífellt gerðir sjálfstæðari og sjálf- stæðari í dag en að um leið þyrftu þeir að halda sína fjárhagsáætlun. „Það er náttúrlega alveg gjörsam- lega forkastanlegt að skóli leggi nið- ur íþróttir þegar verið er að gera átak í þessum efnum í framhaldsskólum. Og mér þykir mjög kyndugt ef það á að fara að skerða íþróttir í skólan- um því mér skilst að verið sé að fjölga námsbrautunum. Það getur ekki gengið á kostnað íþróttanna," sagði Reynir. -ingo Læknar um niöurskuröinn: Aðförað heilbrigðisþjón- ustunni Stjórn Læknafélags Reykjavíkur kallar það aðför að heilbrigðiskerf- inu að að breyta St. Jósefsspítala í hjúkrunarheimili og að loka skurö- stofum úti á landi auk þeirra að- gerða að skerða rekstrarfé Borgar- spítalans og Landakots um hálfan milljarð. „ Læknafélagði telur að þetta þýði að vísa þurfi fólki frá sjúkrahúsun- um og segja að niðurskurðurinn komi einna helst niður á biðlista- sjúklingum sem sumir hafa látist án þess að komast að. Þeir telja einnig fjarri lagi að sjúkrahúsin séu við því búin að taka við því viðbótarálagi sem fylgir lokim St. Jósefsspítala, en talið er að 4.500 sjúklingar færist þaðan yfir á bið- listahinnasjúkrahúsanna. -ingo annars dauðan tíma í höllinni en við viðbrögð ennþá. Við erum auðvitað bara ekki hvað hægt er að gera,“ höfum hins vegar ekki fengið nein alls ekki sáttir við þetta en við vitum sagðiHafsteinn. -ingó Panasonic VHS MOVIE VIDEOTOKUVEL Nýja Panasonic NV-Gl videotökuvélin færir þig nær raunveruleikanum bæði hvað varðar myndgæði og verð, hún er einföld í notkun, með fullkomnum sjálfvirkum fókus og vegur aðeins um 900 grömm. Komið og kynnist þessari nýju og frábæru vél því sjón er jú sögu ríkari. &JUOO/H DIGITAL LIGHTWEIGHT & COMPACT 3Lux BRAUTARHOLTI 2 OG KRINGLUNNI SÍMI 625200 JAPIS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.