Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991. 11 DV Sviðsljós Lewis réttir upp hendurnar og fagnar sigri er hann flýgur fyrstur yfir 100 metra marklínuna. Carl Lewis - sprettharðasti maður í heimi Ef áhorfendur hefðu deplað auga tvisvar hefðu þeir getað misst af stór- kostlegasta 100 metra hlaupi sögunn- ar. Það var sem Carl Lew'is tækist á lof og flygi yfir 100 metra línuna. Hann náði því að verða fljótasti mað- ur í heimi þegar hann setti nýtt heimsmet í Tokyo og hljóp 100 metr- ana á 9,86 sekúndum. Það bíés þó ekki sérlega byrlega hjá honum í upphafi hlaupsins því 1 að hann var viðbragðsseinn þegar hlaupið var ræst og talið var að hann hefði ekkert í hinn unga hlaupara, I Leroy Burrell. En á síðustu 40 metr- unum, þegar hinir hlauparamir voru farnir að hægja aðeins á sér, flaug hana. fram úr þeim eins og hvirfilbylur og setti nýtt heimsmet. Lewis, sem stendur á þrítugú, hef- ur verið í heilan áratug á toppnum. Hann þráði að vinna stóra sigra á þessu heimsmeistaramóti í Tokyo til að sanna að hann væri enn einn af þeim allra bestu og honum varð svo sannarlega að ósk sinni. Hann er fyrsti maðurinn á þessum aldri til að ná svo frábærum árangri að hlaupa 100 metrana undir tíu sek- úndum. Lewis, sem hefur unniö sjö gull á heimsmeistaramótum og auk þess unnið sex titla á ólympíuleikum, er enn ekki tilbúinn að hætta. Sophia Loren lemur niður þjóf Ráðist var á leikkonuna Sophiu Loren nú fyrir stuttu þegar hún var á gangi með systur sinni á hliðargötu í Róm. Hin fimmtíu og sex ára gamla 'ítalska leikkona snerist til varnar þegar árásarmaðurinn sló til hennar og lamdi hann svo harkalega að hann lá í götunni. Maður, sem stóð álengd- ar, kom þá systrunum til hjálpar og saman gátu þau haldið árásarmann- inum þar til lögreglan kom á vett- vang. Vitni sagði, „Hún var ótrúlega hug- rökk því að maðurinn gat verið með hníf eða skotvopn. Hún var mjög hugvitssöm því um leið og hún áttaði sig á því að maðurinn ætlaði að ræna hana sparkaði hún í hann og lamdi hann svo i götuna." Árásarmaðurinn, sem er ákærður fyrir líkamsárás og tilraun til þjófn- aðar, er nú í vörslu lögreglunnar. Hin stórglæsilega leikkona, Sophia Loren, snerist til varnar þegar mað- ur reyndi nýlega að ræna hana. Fjöldi bílasala, bíla- umboða og einstaklinga auglýsa fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum og í öllum veróflokkum með góðum árangri í DV-BÍLAR á laugardögum. Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR þurfa aó berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum. Sniáauglýsingadeildin er hins vegar opin alla daga frá kl. 09.00til 22.00 nema laugardaga frá kl. 09.00 ti I 14.00 og sunnudaga frá kl. 18.00til 22.00. Smáauglýsing í HELGARBLAÐ veróurað berast fyrirkl. 17.00 á föstudögum. Auglýsingadeild K0BEN GLASGOW LONDON alla miðvikudaga Fast verð án flugvallarskatta og forfallatryggingar Til samanburðar: Ódýrasta superpex kr. 33.750 Þú sparar kr. 14.000 20. sept. og 21. sept. alla miðvikudaga 19.750 11.900 18.900 Dagsferðir Brottför kl. 07:00 Heimkoma kl. 23.00 Flugtími aðeins 1:45 mín. Fast verð án flugvallarskatta og forfallatryggingar Til samanburðar: Ódýrasta superpex kr. 31.940 Þú sparar kr. 13.040 FLUGFERÐIR _ SULRRFLUG Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331 iXillIfiiSÍ NÚ SELJGM VID SÍDaSTa 8ÆTIN í síÐasTa ÓDÝRq LEIGaFLaG SGMARSINS 18. 3EPT. OG 25. SEPT. Frjálst val um hótel og bílaleigur á 20 - 40% afsláttarverði. Fjölbreytt ferðaþjónusta í London og Kaupmannahöfn. Framhaldsferðir með dönskum og enskum ferðaskrifstofum, sumarhús og flugferðir hvert sem er um heimsbyggðina. ALLT VERÐ ER STAÐQ REIÐSLUVERÐ li: illilttiiitll ssms

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.