Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991. Utlönd Tveir vopnaðir menn réðust inn á krána Bull and Finch í Bos- ton í Bandaríkjunum og rændu staðinn. Krá þessi er ein sú fræg- asta í heimi enda er hún fyrir- mynd að sjónvarpskránni Staupasteini. Mikill fjöldi ferða- manna kemur árlega aö skoða krána enda hafa sjónvarpsþætt- imir verið sýndir víða um heim. Nú er svo komið að enginn stað- ur í Boston dregur aö sér álíka marga feröamenn og Bull and Finch enda er innrétting á Staupasteini nákvæm eftirlíking af iimréttingunni þar. Þjófamir höföu í það minnsta 50 þúsund dali upp úr krafsinu en það jafngildir um 300 þúsund- um íslenskra króna. Þeir börðu einn þjóninn í höfuðiö með flösku. Engar skemmdir voru þó unnar og hefur kráin verið opin gestum síðustu daga eins og áður. Noriegavann með smyglur- um í Kólombíu Einn þeirra sem borið hafa vitni gegn Manuel Noriega, fyrrum forseta Panama, segist hafa séö nafn forsetans í bókhaldinu hjá eiturlyijasmyglurum i Kólombíu. Vitniö segist hafa séö nafnið i bókum svokallaðs Medelin- hrings en fyrir honum fór Pablo Escobar, sem nú situr inni í heimalandi sínum og dundar við bleikjueldi. Saksóknarar í máh Bandaríkja- stjómar gegn Noriega hafa geng- ið út frá því sem visu aö hann hafi unnið með Medelin-hringn- um og Escobar en vantaö sannan- ir. Framburður vitnisins þykir styrkja yflrvöld í málinu gegn Noriega. Mistökum Gorbatsjvos aðkenna Robert Gates verður að öllum likindum næsti torstjóri CIA. Simamynd Reuter Robert Gates, sem Georges Bush Bandarikjaforseti vonast til að verði næsti forstjóri CLA, sagöi viö yflrheyrslur aö rekja mætti fall kommúnismans í Sovétríkj- unum til mistaka Míkhaíls Gorb- atsjov við að koma á umbótum í landinu. Gates hefur undanfama daga verið í yfirheyrslum hjá þing- nefnd öldungadeildar Banda- ríkjaþings. Samkvæmt banda- rískum stjórnlögum verður hann aö sýna fram á aö hann sé hæfur til að gegna embætti forstjóra leyniþjónustunnar áöur en hann getur tekið við embætti. f Gates sagði að menn CIA hefðu ekki gert sér grein fyrir því sem væri að gerast í Sovétríkjunum dagana fyrir valdaránið í síðasta mánuði vegna þess að þeir hafl ofmetið tilraunir Gorbatsjovs til að bæta úr í efnahagslífi landsins. Reutcr Serbneskir stríðsmenn hlaða stórskotaliðsbyssu i bardögunum í Króatíu i gær. Simamynd Reuter Vopnahlé í Króatíu gengið í gildi: Barist af grimmd í Zagreb í morgun Loftárásir voru gerðar á króatísku höfuðborgina Zagreb í gær, aðeins nokkram klukkustundum eftir að vopnahléssamkomulag, sem gert var aö undirlagi Evrópubandalagsins, var undirritað. Þá urðu einnig sprengingar í borginni og skotið var af vélbyssum. Bardagarnir héldu áfram í nótt og morgun. Loftvamaflautur voru þeyttar um alla Króatíu. Skothríðin varð í suður- og suð- austurhlutum Zagreb þar sem króat- ískir stríðsmenn sitja um tvennar búðir sambandshers Júgóslavíu. Eldglæringar úr stórskotaliðsbyss- um lýstu upp sjóndeildarhringinn og íbúar hlupu sem fætur toguðu í bráðabirgðaskýh í neðanjarðarbíla- stæðum og kjöllurum. Bardagarnir blossuðu upp eftir að Franjo Tudjman, forseti Króatíu, Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, og Veljko Kadijevic hershöfðingi, vamarmálaráðherra Júgóslavíu, féllust á vopnahléið á fundi með Carrington lávarði, formanni friðar- ráðstefnu Evrópubandalagsins. Þeir lýstu því yfir að aöeins væri dagaspursmál hvenær bardagarnir yrðu að allsherjarborgarastríði og sögðu að bardögum ætti að hætta nú klukkan tíu í morgun að íslenskum tíma. „Viö heitum því að allir sem lúta okkar stjóm og við höfum póhtísk og hernaðarleg áhrif yfir stöðvi bar- dagana umsvifalaust," sögðu þeir í vopnahléssamkomulaginu sem var gert í ferðamannabænum Igalo við Adríahafið. En Tudjman lét uppi efasemdir um samkomulagið og sagði að Króatar mundu ekki yfirgefa herstöðvarnar sem þeir heíðu gripið frá því á föstu- dag. Þær aðgeröir urðu kveikjan að nýju oíbeldishrinunni. „Króatar munu ekki hverfa burt frá eigin landsvæði," sagði hann á fundi með fréttamönnum í Zagreb. „Herinn er farinn að kikna undan skellunum sem við höfum veitt hon- um á undanfomum dögum svo þaö er ein ástæðan fyrir því að hann vill semja,“ sagði Tudjman. Samið hefur verið um vopnahlé í Króatíu nokkrum sinnum áður en það hefur alltaf farið út um þúfur. Samkvæmt samkomulaginu í gær ber deiluaðilum að draga sveitir sín- ar frá átakasvæðunum og leysa upp og afvopna allar sérsveitir sínar. Þá á sambandsherinn að hverfa aftur til búða sinna. Ekki er vitað um mannfall í bar- dögunum í Zagreb en tuttugu manns voru drepnir víðs vegar um Króatiu íbardögunumígær. Reuter Carl Bildt reynir nú að mynda minni- hlutastjórn (jögurra flokka í Sviþjóð. Takist þaö ekki er líklegt að tveir flokkar myndi stjórnina. Meirihluta- stjórn kemur ekki til greina enn um stund. Carl Bildt leitar möguleika á stjómarmyndun í Svíþjóð: Ræðir sljórn tveggja eða fjögurra flokka Tilraunir Carls Bildt, formanns Hófsama sameiningarflokksins í Sví- þjóð, beinast nú að möguleikum á að koma á minnihlutastjórn tveggja eða fjögurra flokka. Verði niöurstaðan sú að Bildt myndi tveggja flokka stjórn er líkleg- ast að Miðflokkurinn veröi með og stjórnin þá í miklum minnihluta á þingi. Hinn möguleikinn er að Kristi- legir demókratar og Frjálslyndir slá- ist í hópinn og vantar stjórnina þá aðeins fimm þingsæti til að hafa meirihluta. í gærkvöldi átti Bildt fund með Bengt Westerberg, formanni Fijáls- lynda flokksins. Ekkert hefur verið látið uppi um hvað þeim fór á milli en að fundinum loknum sagði Bildt aö hann sæi þessa möguleika helsta í stöðunni en útilokaði þó ekki aö þrír flokkar yrðu í stjóminni. Þá sit- ur einn af borgaraflokkunum vænt- anlega hjá en ekki er vitað hver það yröi. Bæði Miðflokkurinn og frjálslyndir töpuðu í kosningunum þannig aö draumur Bildts um að mynda fjög- urra flokka meirihlutastjóm borg- araflokkanna varö að engu. Báðir þessir flokkar eru tregir til að taka sæti í ríkisstjóm eftir fylgistapið í kosningunum. Westerberg sagði þó eftir fundinn með Bildt í gær að hann útilokaði ekki fjögurra flokka minni- hlutastjórn. Bildt gæti myndað meirihluta- stjóm með stuðningi Nýs lýðræðis ef ekki kæmi til að formenn annarra borgaraflokka neita með öllu að setj- ast í stjórn sem ætti líf sitt undir duttlungum manna í Nýju lýðræði. Westerberg er manna fremstur í and- stöðunni við Nýtt lýðræöi. í Svíþjóð hallast nú flestir að því að minnihlutastjórn fjögurra flokka verði mynduð. Þar en nú talað um að Svíar fái á næsta kjörtímabili að kynnast „danska kerfinu" í stjórn- málunum en þar hefur ekki setið meirihlutastj órn um árabil. tt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.