Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991. Spumingin Stundar þú einhverja líkamsþjálfun? Ragnheiður Dagbjartsdóttir, er að læra að verða þjónn: Nei, það geri ég ekki. Ólöf Jónsdóttir húsmóðir: Já, ég syndi og geng. Svo hef ég líka verið í vaxtarrækt. Valdimar Sveinsson, gjaldkeri og áhugaljósmyndari: Já, badminton, racketball og sund. Logi Amþórsson sendibilstjóri: Nei, ég fæ næga þjálfun í vinnunni. Þorsteinn Kristjánsson afgreiðslu- maður: Já, ég skokka og svo var ég í líkamsrækt. Ása Haraldsdóttir meinatæknir: Já, ég syndi og geng. Lesendur Því ekki leiguferð- ir að vetrinum? Björn Björnsson skrifar: Nú hefur komið í ljós að hinar ódýru ferðir, sem íslendingum buö- ust í sumar til Bretlands og Dan- merkur, hafa verið mjög eftirsóttar. Sá aöili, sem hefur helst staðiö fyrir þessu, Guðni Þórðarson, hatði, að sögn, í hyggju að lengja ferðamanna- tímabilið með því að bjóða ferðir til London. Afstaða íslenskra stjóm- valda er andsnúin þessari hugmynd og neita þau slíkri starfsemi að vetri til. - Hvaða munur skyldi vera á vetri og sumri í þessum efnum? Af hveriu má ekki bjóða leiguflug á föstum gmnni allt árið frá íslandi eins og öðrum löndum í grennd við okkur? Þetta leiðir til þess að íslendingar eiga ekki stöðugt kost á ódýmm ferð- um til útlanda eins og áður. Ekki verður þetta heldur til þess að hjálpa íslenskum hótelum að bæta nýting- una yfir vetrartímann, eins og þó heföi verið hugsanlegt ef áætlanir um leiguflug t.d. frá Bretlandi heföu gengið eftir. - Það líða þvi sjö eða átta mánuðir áður en aftur er hægt að búast við sanngjömum fargjöld- um fyrir okkur íslendinga til og frá landinu. íslensk stjómvöld verða að gera sér grein fyrir þvi að héðan kemst fólk ekki nema eins og fughnn fljúgandi. Hér em ekki farþegaskip sem hafa fastar áætlunarferðir milli landa. Samgönguþættinum að þvi er varðar utanferðir hefur því í raun hrakað verulega frá því sem áður var þegar tvö og þrjú farþegaskip höföu reglu- lega áætlun frá íslandi til Evrópu. - Veturinn á íslandi er langur og það er óeðlilegt að við búum ekki við sama skipulag og reglur í samgöngumálum allt árið. Hver segir að fólk sæki ekki í sólarlönd að vetrinum með því að kaupa fyrst ódýr fargjöld til næstu nágrannalanda? Áskorun til Dagsbrúnarmanna Jóhannes Guðnason, trúnaðarmað- ur Dagsbrúnar, skrifar: Nú em flestir kjarasamningar hér á landi lausir. Krafa launafólks í komandi samningum setur ríkis- stjómina í mikinn vanda. Megin- kröfurnar em stórhækkun lægstu launa, kaupmáttartrygging og hækk- un skattleysismarka. Þjóðarsáttar- samningamir hafa ekki gefið góða raun fyrir þá verst settu. Það góða við þá samniiiga er þó að það tókst að halda verðbólgu og vöxtum niðri með aðhaldi verkalýðsfélaga og þá- verandi ríkisstjómar. Núverandi ríkisstjóm er því miöur stjóm auðvalds og viðskipta og allt er á uppleið nema lágu launin. Helstu hugmyndimar era svo skattahækk- anir. Fjármálaráðherra talar um að ekki sé um skattahækkanir að ræða heldur aö verið sé að „breikka skatt- stofninn". Það þarf nú ekki neinar ofurgáfur til að sjá og finna þá kaup- máttarrýrnun sem hækkun þjón- ustugjalda hefur í för með sér - hvaða nafn sem þessu er gefið. Lægsti kauptaxti hjá Dagsbrún er nú kr. 42.395, og þaö væri fróðlegt að kanna hvort t.d. þingmenn vildu láta bjóða sér þessi laun. Þetta fólk verður að vinna tvö- eða þrefalda vinnu til að lifa. Könnun á meðaltali launa hjá Dagsbrún sýndi að það er með um 60-70 þúsund kr. á mánuöi þegar allt er tahö, þ.e. bónus, og mjög mikil aukavinna. - Við viljum hækka dagvinnulaun í 80 þúsund krónur, svo að fólk svelti ekki í hel eins og vísitöluíjölskyldan sáluga. Framfærslukostnaður 'hækkaði um 0,6% frá ágúst til sept. Næstu 12 mánuðina á undan var hækkunin 7,7%. Ef við lítum aðeins á síðustu 3 mánuöi, þá var hækkunin 2,1%, sem jafngildir 8,5% á heilu ári. Starfsmannafélag ríkisstofnana hefur nú kynnt meginatriðin í sinni kröfugerð. Byrjunarlaun verði ekki undir 70 þús. kr. Línan sem formaður samninganefndar ríkisins boðar er sú, að kaupmáttur verði óbreyttur í upphafi samningstímabils, hann fari niður á við með samdrætti í efna- hagslífinu á næsta ári en fari svo upp aftur og aukist í lok þriggja ára samningstímabils. - Þarna ber mikið á milh. Ég skora á aha Dagsbrúnarmenn að standa saman í komandi samning- um og bið A- og B-hstamenn að shðra sverðin og sameinast á meðan á samningum stendur því sigur vinnst með samstarfi en sundraðir náum við ekki árangri. En ljóst er að and- stæðingar okkar munu reyna að reka flein í raðir Dagsbrúnarmanna. - Ef núverandi samninganefnd nær ekki góðum samningum í haust verður auðvelt val að kjósa hina sterku og áhugasömu menn í mótframboðinu í janúar nk. Landeigendur, Heiðarfjalli: Nú skal leigja mengunina Ólafur Jónsson skrifar: Hafi maður nokkum tíma lesið ís- lenskt nútímaævintýri þá er það um þá landeigendur Heiðarfjalls. En svo em þeir nefndir sem krefjast skaða- bóta vegna meintrar mengunar á fjallinu. Þeir telja mengun vera það mikla á þessu fjalh sínu að hún sé orðin uppspretta fjárhagslegra verð- mæta í formi skaðabótagreiðslna af hendi bandaríska hersins. - Til vara segja þeir að til greina komi að „taka leigu" fyrir mengunina - að viöbætt- um skaðabótiun að sjálfsögðu. En umhverfismálaráöuneyti telur margt brýnna en að skoða mengun á einhveiju fjalh og þykir engum mikiö. Engin ástæða er tíl að hlaupa upp til handa og fóta vegna kröfu- gerða landeigenda. En hvaða árátta er þetta líka orðin hjá okkur íslend- ingum, að vilja fá fé úr hveiju sem á fjörur okkar rekur, jafnvel þótt það sé okkur ekkert viðkomandi? - Þess- ar kröfugerðir landeigenda að Heið- arfjalh minna ekki á neitt annað en Á Heiöarfjalli. - Uppspretta fjárhagslegra verðmæta? heimtufreka krakka sem standa uppi ef til vih ný tegund fjáraflamanna í hárinu á foreldrunum. - Þetta er hér? Fleiriviljakjöt kaupa Ásgeir skrifar: Nú er komið í ljós að aðrir en Mexíkanar eru tilbúnir til að kaupa kjöt héðan. - Fyrirspum- um nánast rignir yfir landbúnað- arráðuneytið. Það er engin furða þótt margir setji upp spumar- svip. Er hugsanlegt að einhverjir aðilar hér á landi hafi staðið í vegi fyrir þvi að selja kjötið? Einhvem tíma heyrði ég að búnaðarsamtökin eða Samband- ið heföu algjört neitunarvald í sölumálum íslensks kindakjöts til útlanda. Það skyldi þó aldrei vera aö losnaö heföi um hömlur einhvers staöar! - Eða að geymslugjaldið margfræga heföi verið þröskuldur? Maöur trúði því aldrei að ekki væri hægt að finna kaupendur að íslensku lambakjöti, svo mjög sem það hefur verið kynnt á erlendri grund. Enginn ábyrgur íÁlafossi? Guðmundur Gunnarsson skrifar: Það var mikið rætt um að þeir sem stjórnuðu byggingu Perl- unnar yrðu að svara fyrir um- frameyðslu viö hönnun og fram- kvæmdir. Það er nú búið að upp- lýsa það mál og gera skýrslu um hvað fór úrskeiöis. - En víðar er pottur brotinn. Tugmilljóna samningar em nú i hættu vegna óvissu í uhariðn- aði. Óstjórn sú sem leiddi til gjaldþrots Álafoss hefur þó ekki enn verið gerð lýðum Ijós svo neinu nemi. Hefur veriö beðið um skýrslu frá stjórn Álafoss hf.? Voru þarna e.t.v. eintómir aular í forsvari sem geta ekki staðið fyrir máh sínu? Mörgum finnst þeir sleppa nokkuð bhlega frá öllu saman - landsþekktir menn úr stjórnmála- og fjármálalífi ís- lendinga. Niðurskurðurá Tryggingastofnun Helgi skrifar: Heilbrigðisráöherra hefur verið á fullu í niðurskurði á ýmsum þáttum heilbrigöisþjónustunnar. Hvemig væri nú að sefja hnífinn á Tryggingastofnunina sjálfa, þar sem hámenntað fólk er m.a. að setja bætur í umslög til bótaþega? Hversu margir skyldu nú bóta- þegar vera, sem em t.d. meö heimatilbúna bakveiki og sjúk- *dóma? Þegar kemur að endur- mati er svo oftar en ekki stimplaö „óvinnufær vegna veikinda“. Er nú ekki nóg koroð af þessu? Eiga ekki læknar í endurmati Tryggingastofnunar ríkisins ein- hveija sök á ef þeir era plataðir af fólki sem ekki á rétt á örorku- lífeyri? - Er ekki kominn tími til að taka til hjá Tryggingastofhun, hr. heilbrigðisráöherra? Burtmeðgrind- verkið Þórarinn Björnsson skrifan Ég las ummæh Sigurðar Skarp- héöinssonar aöstoðargatnamála- stjóra um gríndverkið sem sett hefur verið upp á Laugarne- stanga. - Hann segir tilgang girö- ingarinnar vera þann aö fækka slysum. Hvílíkt rugl er þetta. Grindverkið minnkar ekki slysa- hættu eða aftanákeyrslur. Oft era tugir bifreiða í einu í heimsókn á listamannaheimili Sigurjóns Ólafssonar og mikih erill viö staöinn. Þama er einnig bifreiðaverkstæöi. Þetta veit kannski Sigurður ekki. Grind- verkið (fræga aö endemum) er 74 sm hátt og ekkert gönguhhð! Þetta eiga konur og böm að klof- ast yfir. Þetta er nú verkhönnun í lagi! Ég eyði ekki fleiri orðum í bUi en skora á heUbrigöa aðUa sem máhö varðar og eru ábyrgir að taka þetía grind verk tafarlaust niður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.