Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991.
Útlönd
bónda sínunt
Erjum hjóna í Lundúnum lauk
meö því aö konan kleip eista af
bónda sínum. Máliö var reifað
fyrir rétti nú á dögunum en hjón-
in hafa sótt um skilnað. Þau búa
þó enn saman.
Atvik voru þau aö maðurinn
kom seint heim og lentu þau
hjónin í rifrildi vegna þess. Þegar
þau ætluðu loks að ganga til
sængur læsti konan dyrum
svefnherbergisins og skildi mann
sinn eftir úti. Hann braut upp
hurðína en konan brásttil varnar
með því aö klípa með beittum
nöglum í klofið á honum.
Fyrir réttinumm sagði konan
að hún hefði ekki vitað fyrr en
hun hélt á öðru eistanu. Maður-
innféllþegaríyfirlið. Reuter
Dæmdurfyrir
tvömorðog
limlestingar
Norðmaðurinn Arve Einar
Hansen hefur verið fundinn sek-
ur um að hafa skotið til bana tvo
landa sína í byrjun desember á
síðasta ári. Rétturinn taldi einnig
sannað að hann hefði sagað lik
mannanna í sundur með vélsög
og hent á ruslahauga.
Þeir sem þarna lótu lífið hétu
Magne Hansen. og Bjöm Sverre
Tveiten. Arve Einar fékk aðstoð
hjá manni að nafni Finn
Smedsrud til að flytja líkin af
morðstaðnum og koma þeim fyr-
ir. Finn var einnig ákærður en
rétturinn sýknaöi hann og lét
dómarinn áminningu duga. NTB
Páfinntrúirá
vemdarengla
Jóhannes Páll páfi segir að
vemdarenglar séu til og að þeir
séu stöðugt að störfum. Því er að
hans mati óþarfi að setja traust
sitt á verndargripi og annað heið-
ið dót.
„Verndarenglarinr em sendir
okkur af forsjóninni í þeim tíl-
gangi aö hjálpa okkur í lífinu,"
sagði páfi i gær þegar hann veitti
almenningi áheyrn.
Eftir kenningum kaþólskra
manna eru verndarenglarnir
andlegar verar með greind og
frjálsan vilja. Hlutverk þeirra er
að vernda trúaða frá hættum i
lifinu og beina þeim af hinum
breiöa vegi syndarinnar.
Reuter
LATTU EKKI
VERDMATIN
FJÚKA llf Í
VEHII06 VIHD
ENDURBÆTT EINANGRUN
EYKUR VERÐGILDI
steinutt
Gerum
tiibob
[HHÚSA
EINANGRUN
Símar: 91 - 22866
oq 91 - 622326
Forseti Króatíu hittir páfa 1 dag:
Herinn sprengir
kirkjur í Dubrovnik
Króatiskur varðliði stendur yfir liki hermanns úr sambandshernum. Við
hlið líksins er mynd af Tító, fyrrum leiótoga Júgóslavíu. Haröir bardagar
geisuðu um alla Króatíu í gær. Simamynd Reuter
Hermenn úr júgóslavneska sam-
bandshernum sóttu að ferðamanna-
bænum Dubrovnik við Adríahafið í
gær og hersveitir lögðu til atlögu um
alla Króatíu og gerðu árásir á borgir
af landi, úr lofti og af sjó.
Króatískir embættismenn sögðu að
þeir óttuðust að harðlínumenn í
hernum, sem lýtur stjórn Serba,
hefðu öll ráð í hendi sér og eygðu
litla von um að viðræður færu fram
til að stöðva blóðbaðið.
Landher og sjóher réðust á
Dubrovnik og svæðið þar í kring með
sprengjuvörpum og stórskotaliði,
annan daginn í röð. Þeir lokuðu fyrir
vatn og rafmagn, sprengdu íjar-
skiptamiðstöðvar og lokuðu vegum
til borgarinnar.
Talsmaður eftirlitsnefndar Evr-
ópubandalagsins í Króatíu staðfesti
að komið hefði til bardaga í miðbæ
Dubrovnik sem er frá miðöldum.
Fallbyssubátar sjóhersins skutu á
höfnina og fréttir bárust af hörðum
sprengjuvörpuárásum norður af
borginni.
Útvarpið í Belgrad skýrði frá því
að tíu hermenn og hundruð króat-
ískra varðliða hefðu látið lífið í bar-
dögunum. Útvarpið í Króatíu sagði
hins vegar að áttatíu hermenn, fjórir
króatískir varðliðar og tveir óbreytt-
ir borgarar hefðu verið drepnir og
þrjátíu aðrir hefðu særst.
Franjo Tudjman, forseti Króatíu,
hefur sent bréf til Bush Bandaríkja-
forseta og farið fram á hjálp til að
bjarga lýðveldinu. í dag hittir Tudj-
man Jóhannes Pál páfa í Páfagarði
þar sem hann mun skýra honum frá
eyðileggingu á kirkjum og trúarleg-
um minnisvörðum í lýðveldinu.
Breskur háskólakennari, sem
staddur er í Dubrovnik, sagði í gær
að herinn hefði sprengt þar upp
kirkjur og önnur menningarverð-
mæti. Menningarmálastofnun SÞ
hefur lýst Dubrovnik sem hluta af
arfleifð alls mannkyns.
Bardagar geisuðu víða annars stað-
ar í Króatíu i gær og létu tugir manna
lífið eða særðUSt. Reuter
Baker hótar valdaráns-
mönnum á Haítí innrás
„Þessi herforingjastjórn er ólögleg
og meðan hún er við völd á Haíti
enga samleið með lýðræðisríkjum.
Hún er og verður án alls stuðnings,
án allra vina og á sér enga í'ramtíð,"
sagði James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, eftir að Sam-
tök Ameríkuríkja höfðu boðað til
sérstaks neyðarfundar vegna
ástandins á Haítí.
Ætlun samtakanna er að senda
nefnd manna á fund hinna nýju vald-
hafa á Haítí í þeim tilgangi að fá þá
til að leggja niður völd og viðurkenna
Jean-Bretrand Artistide forseta sem
réttkjörinn valdhafa. Aristide er nú
landfótta í Venesúela.
í máli sínu gaf Baker í skyn að
Samtök Ameríkuríkja gætu beitt
hervaldi til að koma forsetanum aft-
ur á valdastól. Litið er á þetta sem
mjög alvarlega hótun enda var henni
fylgt eftir með því að Bandaríkja-
stjórn sendi 400 landgönguliða til
ílotastöðvarinnar í Guantanamo á
Kúbu.
Sagt er að landgönguliðarnir séu
þar til að tryggja öruggan brottflutn-
ing bandarískra borgara frá Haíti
komi til frekari átaka þar. Örskammt
er frá Guantanamo yfir til Haítí.
Aristide forseti er á móti því að
hervaidi verið beitt fyrst um sinn.
Hann vill að fyrst verði allra leiða
leitað til að koma valdaræningjunum
frá með friðsamlegum hætti. Hann
hefur þó látið þung orð falla um
valdaræningjana og kallað þá glæpa-
menn.
Aristide er fyrsti lýðræðislega
kjömi forsetinn á Haítí. Sögur eru á
kreiki um að forsetinn hafi látið
myrða Roger Lafontant, fyrrum inn-
anríkisráðherra, þar sem hann var í
fangelsi á Haítí.
Reuter
Roger Lafontant var innanríkisráðherra á Haítí í tíð Duvalier-feðga og al-
ræmdur fyrir að stjórna Tonton Macute, dauðasveitum lögreglunnar. Hann
er nú allur en jafnvel talið að Aristide forseti hafi látið myrða hann.
Símamynd Reuter
DV
Löggurkyrktu
óðanhund
Tveir breskir lögregluþjónar
slógust við óðan hund sem hafði
ráðist á hóp skólabarna og kyrktu
hann til að koma í veg fyrir fleiri
árásir.
„Hann barðist um eins og
krókódíll. Hann var alveg snar-
brjálaður. Hausinn á honum var
á stærð við fótbolta og kjafturinn
á honum var risastór. Þetta var
skelfilegt dýr,“ sagði lögreglu-
þjónninn John Newey sem tók
þátt í aðförinni að hundinum, 25
kílóa rottuhundi, á þriðjudag.
Breska stjórninhefur lýst þessa
hundategund stórhættulega og
lagt bann við innilutnmgi henn-
ar.
Rokkararfá
merkta smokka
írskt fyrirtæki hefur fundið
góða leið til aö græða fé með því
að selja rokkhljómsveitum sér-
merkta smokka sem þær geta síð-
an gefið aðdáendum sínum á tón-
leikum.
„Þeir koma að meira gagni en
skyrtubolir,“ sagði fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Hann sagði að símar hefðu ver-
ið rauðglóandi eftir að auglýsing
um smokkana birtist í breskum
tónlistartímaritum.
Kaninn
rekinn heim
Corazon Aquino, forseti
Filíppseyja, veítti Bandaríkjun-
um þriggja ára frest í gær til að
kalla hersveitir sínar frá landinu.
Þar með verður bundinn endí á
næstum aldarlanga dvöl banda-
rískra hersveita í þessari fyrrum
amerísku nýlendu. Öldungadeild
þingsins á Filippseyjum hafnaði
fyrir skömmu nýjum herstöðva-
samningi ríkjanna tveggja.
Hörðustu andstæðingar banda-
riska hcrsíns vildu að hann færi
innan árs en aðrir vildu veita
Bandaríkjastjórn sjö ára frest.
Bandaríkjastjórn hefur sagt að
hún muniekki opna aðra herstöð
í Asíu ef floti hennar yrði að fara
frá Subicflóa, stærstu bandarísku
herstöðinni í þessum heimshluta,
Hundarhlekkj-
aðirvið
ráðuneytið
Hundaunnendur hlekkjuðu níu
eskimóahunda við girðingar
breska utanríkisráðuneytisins í
gær og var það liður í baráttu
fyrir að bjarga tegundinni á Suð-
urskautslandinu.
Þeír vilja að bresk stjórnvöld
herði andstöðu sína gegn þeim
hluta nýs samnings um Suður-
skautslandið sem á að undirrita
í Madrid í vikunni sem kveður á
um að eskimóahundar verði
bannaðir af svæðinu. Hætta er á
að þeim eitt hundraö sem þegar
eru þar verði fargað.
Breskir embættismenn sögðu
að Bretland, Argentína og Ástral-
ía væru andvíg því að banna eskí-
móahundana samkvæmt klásúlu
samningsins sem bannar allar
dýrategundir sem eiga ekki upp-
runaieg heimkynni sín á Suður-
skautslandinu.
Kastalitilsölu
Einkavæðingarstofnun Þýska-
lands, sem venjulega selur ryðg-
aðar verksmiðjur í austurhluta
landsins, bauö dálítið nýtt í gær,
nefnilega 12. aldar kastala með
lyftu og keilubraut sem var áður
í eigu austur-þýska ríkisins.
Stofnunin vildi ekki skýra frá
því hvaö sett væri á kastalann
sem heitir því faliega nal'ni Boitz-
enborgarhöll og er í um 90 kíló-
metra fjarlægð frá Berlín.
Reuter