Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar -
- Dreifing:
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991.
Kolvitlaust
veðurá
Siglufirði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bæjarstarfsmenn á Siglufirði stóðu
í ströngu í nótt en þeir voru kallaðir
út um klukkan tvö vegna foks í bæn-
um.
Þá voru ruslatunnur og fleira laus-
legt farið að fjúka og þegar hvessti
enn meir síðla nætur fóru þakplötur
að fjuka og á einum stað við Aðal-
götu fauk nær heilt þak af húsi. Á
fleiri stöðum fuku þakplötur og fleira
lauslegt.
í morgun var snarvitlaust veður á
Siglufirði og fólki ráðlagt að vera
ekki á ferli. Skólahaldi var frestað
a.m.k. fram yfir hádegi, og á Hofsósi
var skólahaldi frestað í allan dag
vegna veðurs.
í innsveitum norðanlands var ekki
eins hvasst. Á Akureyri var t.d. ekki
mjög slæmt veður en þó rigndi þar
mjög mikið í nótt.
EB-EFTA:
Jón Baldvin
svartsýnn
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík
isráðherra er svartsýnn á að Evrópu-
. bandalagið og EFTA-ríkin nái sam-
komulagi um evrópskt efnahags-
svæði og segir hann að bilið hafl
breikkað. Úrslit í málinu fást á sam-
eiginlegum fundi ráðherra EFTA og
EB í Lúxemborg 21. október.
Jón Baldvin ræddi við Gerald Coll-
ins, utanríkisráðherra írlands, í
Dyflinni í gær. Jón segir fundinn
ekki hafa borið neinn árangur.
Collins hélt stíft við þá afstöðu íra
að EFTA-ríkin gætu ekki fengið að
fullu frjálsan markaðsaðgang að
Evrópubandalaginu. Sagði Collins að
sérhagsmunir íra vegna síldar, lax
og makríls réðu þar úrslitum.
Aö sögn Jóns eru írar ekki eina
hindrunin. Afstaða Breta er sú sama
og íra. Þá mætir krafan um frjálsan
markaðsaðgang vaxandi hörku
Frakka sem eru þungavigtarþjóð í
Evrópubandalaginu. -JGH
Skeiðará:
Vatnsmagnidsvipad
„Það hefur ekki orðið nein veruleg
breyting á vatnsmagninu í nótt. Það
er svipað og undanfarna daga,“ sagði
Ragnar Stefánsson, bóndi í Skafta-
felli, er DV ræddi við har.n í morgun.
Grunur leikur á að Skeiðarárhlaup
sé nú í aðsigi. Vatnsmagn í ánni hef-
ur aukist jafnt og þétt sl. tíu daga.
-JSS
LOKI
Tímarnir breytast
-jafnvel hjá Framsókn!
HM í bridge 1 Yokohama:
úrslitakeppnina
BerglirKÍ Oddgeirsdóttir, DV, Yokohama:
íslenska landsliðið hefur heldur
hægt ferðina eftir frábæra byrjun
á heimsmeistaramótinu í bridge. í
öðrum leik annarrar umferðar,
sem var síðasti leikur gærdagsins,
unnu íslendingar minnsta sigur,
16-14, á Argentínumönnum. í
fyrstu umferðinni i dag kom tap,
11-19, gegn Egyptum og á sama
tíma unnu Bretar Ástrali, 18-12. í
annarri umferð í dag gerðu íslend-
ingar jafntefli, 15-15, gegn Áströl-
um. Bandaríkjamenn unnu Breta
naumt, 16-14, i sömu umferð.
Staðán er nú þannig að íslending-
ar eru sem fyrr efstir í riðlinum
með 197 '/>. Næstir eru Bretar með
187, Argentína í þriðja með 179 'A,
Bandaríkjamenn fjórðu með 167 %
og Venesúela fimmtu með 148.
Svíar hafa náð forystunni í hin-
umriölinum eftir sigur, 18-12, gegn
Brasilíumönnum. Svíar eru með
205 stig, Brasilía 194, Póiland 191 'A,
Bandaríkin II með 182 og Hong
Kong 171.
Frammistaða íslendinga hefur
vakiö verðskuldaða athygli. Það er
oröið ljóst að góð byrjun var ekki
nein bóla sem sprakk og íslending-
ar eru búnir að tryggja sér rétt til
þátttöku i úrslitakeppni átta þjóða.
Bandaríkjamaðurinn Bobby Wolff
er meöal áhorfenda á mótinu en
hann verður forseti AIheimssam;
bandsins í bridge á næsta ári. í
töfluleiknum við Breta í gær var
Wolff meðal útskýrenda. Hann
hrósaði íslendingum í hástert fyrir
góða spilamennsku og lýsti því yfir
aö þeir gætu vel orðið heimsmeist-
arar.
Um 100 þjóðir eru aðilar að al-
heimssambandinu í bridge en á
heimsmeistarakeppninni spila 16
bestu þjóðirnar. Ljóst er að íslend-
ingar hafa þegar tryggt sér sæti
meðal átta bestu og er það stórkost-
legur árangur þegar miðað er við
þjóð afþessari stærð, Síðasti leikur
íslendinga í dag er við Japani en
riðlakeppninni lýkur á morgun
með leikjum við Venesúela og
Bandarikin.
Veðrið á morgun:
Þurrt sunn-
anlands
Á morgun eru horfur á hvassri
norðan- eða norðvestanátt, fer þó
að lægja allra vestast á landinu
þegar líður á daginn. Þurrt verð-
ur að mestu sunnaniands en rign-
ing í öörum landshlutum, slydda
eða snjókoma til fjalla. Veður er
heldur kólnandi, fyrst vestantil á
landinu. Hiti verður á bilinu 2-8
stig.
Símareikningar:
Sundurliðun
á næsta ári
Póstur og sími mun í vetur gefa
þeim símnotendum, sem tengdir eru
við stafræna kerfið, kost á að fá sund-
urliðaða símareikninga. Er stefnt að
því að hefja þessa þjónustu snemma
á næsta ári. Kostnað greiða þeir sem
hennar njóta.
Á yfirliti því sem rétthafi símans
fær sent má sjá hvert hringt var,
hvenær, hve lengi símtalið stóð og
hvað það kostaði. Ekki verða þó tveir
síðustu stafirnir í því númeri sem
hringt er í, skráðir.
Innanbæjarsímtöl verða ekki skráð
á þennan hátt, heldur einungis þau
sem skráð eru á dýrari taxta. Þá eru
grænu númerin undanþegin skrán-
ingu. -JSS
Tíminn breytist:
Verður óháð-
ur Framsókn
„Eg tel líklegt að það komi fleiri
aðilar inn í útgáfuna og þá verður
Tíminn gefmn út sem blað óháð póli-
tískum ílokkum. Ég get ekkert sagt
um hvaða aðilar það eru á þessari
stundu,“ segir Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins og formaður útgáfustjórn-
ar Timans.
Öllu starfsfólki Tímans hefur verið
sagt upp og búast má við að um ára-
mót muni hinn nýi Tími koma út, eða
hvað sem blaðið mun heita þá.
„Þrátt fyrir að Tíminn verði ekki
flokksblað vona ég að blaðið verði
málgagn þeirrar frjálslyndu, um-
bótasinnuðu stefnu sem Framsókn-
arflokkurinn fylgir," segir Stein-
grímur.
Bæði Þjóðviljinn og Alþýðublaðið
eiga í svipuðum erfiðleikum og
Tíminn en Steingrímur segir að þær
viðræöur, sem í gangi eru, séu ekki
við hin litlu blöðin.
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
Þjófur 1 Hafnarfirði:
t
Stoliðúrpeninga- d
skápámeðan
heimilisfólksvaf
Þröngt mega sáttir sitja, jafnt þingmenn sem almennir. Á Alþingi i gær kastaðist engu að síður í kekki milli stjórn-
arsinna og stjórnarandstæðinga. Deilt var um skipan fimm fulltrúa í forsætisnefndina en í henni eiga sæti forset-
ar þingsins. í nafni lýðræðis krefjast stjórnarandstæðingar þriggja fulltrúa en það gera stjórnarflokkarnir einnig
i nafni þingstyrks. Hóta stjórnarandstæðingar nú að taka ekki þátt í stjórnun þingsins í vetur og tilnefna ekki fulltrúa
í nefndina verði ekki orðið við kröfu þeirra. Á þingfundi í gær var Salome Þorkelsdóttir kosin forseti þingsins og
fjárlagafrumvarpi 1992 var dreift til þingmanna. Ekki fengu þeir þó tækifæri til að segja sitt álit á því með nýju
atkvæðabjöllunum sem sjá má á borðum þeirra. DV-mynd GVA
Brotist var inn í íbúð við Reykja-
víkurveg í Hafnarfirði í nótt og verð-
mætum stolið úr peningaskáp. Þjóf-
urinn komst í lykil að skápnum á
meðan heimilisfólk svaf. Hann hafði
einnig á brott með sér myndbands
tæki. íbúðin er á efri hæð hússins
en verslun er á neðri hæðinni. Rann
sóknarlögregla ríkisins vinnur að
rannsókn málsins. -ÓTT
VAKTÞJÓNUSTA
Oryggisverðir um alla borg...
...allan sólarhringinn
Vönduð og viðurkenna þjonusta
091-29399
Allan sólarhringinn
Öryggisþjónusta
VARI síðan 1969
t
t
t