Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Page 13
FIMMTt'DÁGim 3. 0cRtÖBÉR' Í99l'.'í' 13 I Áaðleggjaá auðlindaskatt? „Auðlindaskattur er auðvitað ekkert annað en rentuskattur.. í þeirri umræðu, sem átt hefur sér stað hér á landi um flskveiði- stjórnun, hefur mikið farið fyrir því sjónarmiði að nauðsynlegt sé aö innheimtur veröi auðlindaskatt- ur af fiskveiðunum svo fullkomin hagkvæmni megi komast á í þeirri grein. Formælendur þessa sjón- armiðs hafa haft sig svo mikið í frammi í að afla skoðun sinni fylg- is að halda mætti að aðrar skoðan- ir á málinu væru útilokaðar. Þaö er þó öðru nær. Kostir skattsins? Formælendur auðlindaskattsins hafa bent á það í skrifum sínum að núverandi fiskveiðistjórnun, kvótakerfið, sé skref í rétta átt. Kerfið byggi réttilega á því að tak- marka heildaraíla alls fiskveiðiflot- ans, en þaö sem mikilvægara er aö það takmarkar einnig heildarafla hvers fiskveiðiskips. Síðarnefnda takmörkunin er hornsteinninn að hagkvæmu skipulagi fiskveiði- mála, þó með þeirri viðbót að fullt framsal sé leyfilegt á aflakvótum á milli skipa. Gallinn viö þetta kerfi er þó sá, að mati sömu aðila, að ekki hefur veriö innheimtur sér- stakur auðlindskattur af handhöf- um kvótanna. Þar sem slíkt hefur ekki verið gert er að þeirra mati ekki að furða að kerfiö hafi ekki náð því markmiði sínu aö minnka flotann niður í kjörstærð. Ef aöeins þessi skattur heföi verið innheimt- ur og þá jafnvel á þann hátt aö rík- isvaldið seldi kvótana á uppboði, þá væri hagkvæmnin meiri. Ekki nóg með að skatturinn myndi út- rýma sóun úr fiskveiðunum, held- Kjallariim Dr. Birgir Þór Runólfsson lektor i hagfræði ur myndi þessi nýja tekjulind ríkis- ins geta orðið til þess að virðis- aukaskattur yrði lækkaöur eða tekjuskattur jafnvel afnuminn. Það verður nú að segjast að ýmislegt er nú athugavert viö þessa rök- semdafærslu. Fáeinar athugasemdir í fyrsta lagi er nú ekki alveg rétt farið með staðreyndir. Á árunum 1984-1990 urðu breytingar til batn- aðar sem rekja má beint til kvóta- kerfisins. Fjölgun skipa hefur stöðvast og sóknarkostnaður minnkaö, eins og prófessor Ragnar Árnason hefur bent á. í öðru lagi er núverandi kvóta- kerfi ekki sama kerfið og var við lýði til síðustu áramóta. Tvær meg- inbreytingar hafa þar verið gerðar. Annars vegar hefur sóknarmark veriö afnumið og hins vegar er framsal kvóta frjálsara en áður. Báðar þessar breytingar munu hraða mjög hagkvæmni í fiskveið- um, bæði meö minnkandi flota og í enn minni sóknarkostnaði. í þriðja lagi er það rétt að til að auka hagkvæmnina í veiðunum er nauösynlegt að verð myndist á fisk- inum í sjónum. Slíkt hefur gerst með því að skilgreina aflatakmark- anir skipanna, kvótahafar hafa nú möguleg verðmæti undir höndum. Það er hins vegar rangt að einhver nauðsyn sé á því aö kvótahafar greiði þetta verð, andvirði kvót- anna, til einhvers þriöja aðila, eins og ríkisins. Aðalatriðið er að kvóta- hafar hafa nú tiltekin réttindi til veiða á ákveðnum tonnaíjölda af fiski, réttindi sem þeir geta selt eða nýtt hvort heldur þeir telja arðbær- ara. í ijórða lagi, eins og vikið var að hér að ofan, þá hefur þróun í átt til aukinnar hagkvæmni þegar átt sér stað, en skatturinn myndi ein- ungis tefja þar fyrir. Skiptir þá eigi máli hvort hann væri innheimtur af veltu eða á uppboði. í fimmta lagi er það nú frekar barnaleg trú að halda að ríkisvald- iö myndi sleppa hendinni af öðrum tekjumöguleikum þó nýr bættist í hópinn. Það hefur sýnt sig jafnt hérlendis sem erlendis að slíkt heyrir til undantekninga, í besta falli. Sagan er þar okkar besti kennari, þó önnur fræði leggi nú sitt af mörkum líka. Hér á landi var á sínum tíma tekinn upp söluskatt- ur svo lækka mætti tekjuskatta, en báðir eru þessir skattar nú hærri en til stóð. Á öðrum tímum hafa hér verið tekin upp tímabundin gjöld, bæði af innflutningi og ann- arri þjónustu, en sjaldnast hafa þau þó afnumin veriö. Þá hafa gjöld verið lögð á til eyrnamerktra verk- efna, eins og bensíngjald til vega- gerðar, eignaskattsauki til bygg- ingar þjóðarbókhlöðu, gjald til framkvæmdasjóðs aldraðra, en á endanum hafa þau öll runnið í rík- ishítina. Nýjasta dæmið er síðan það að stjórnvöld hafa á þessu ári og ætla sér á því næsta að nýta sér fé, sem renna á til þjóðkirkjunnar, í eyðslu ríkisins. í sjötta lagi er rétt að spyrja að ef auðlindaskattur er svona hag- kvæmur, hvers vegna er hann ekki þá lagður á allar auðlindir? Af hverju er ekki lagður auðlinda- skattur á orkuveitur? Af hverju fiæmum við ekki bændur af jörð- um sínum á nokkurra ára millibili, svo ríkið megi bjóða upp afnota- réttinn af jöröunum? Og því skyld- um við stoppa þar? Auðlindaskatt- ur er auðvitað ekkert annað en rentuskattur og það er víst mál að renta myndast víða í hagkerfinu. Væri því ekki samkvæmninnar vegna best að leggja slíkan rentu- skatt á alla rentumyndun? Á seinni hluta nítjándu aldar kom maður að nafni Henry George fram með ekki ósvipaða hugmynd um auðlindaskatt á allar jaröeign- ir. Hagfræðingar sýndu þá strax fram á rökleysuna í hugmyndum hans og því heföi margur ætlað að slík endurtekning væri óþörf nú rúmum hundrað árum síðar. Birgir Þór Runólfsson G „Aðalatriðiö er að kvótahafar hafa nú tiltekin réttindi til veiða á ákveðnum tonnafjölda af fiski, réttindi sem þeir geta selt eða nýtt hvort heldur þeir telja arðbærara.“ Hollusta „Það er ekki nauðsynlegt að sprikla eða yfirkeyra sig á æfingum þó það sé gagnlegt." Holusta getur miðast viö að lifa lífinu í jafnvægi. Hún þarf ekki endilega aö tákna að maður þurfi að rembast í einhverri heilsurækt. Hún getur falist í að viðhalda jafn- vægi frá morgni til kvölds, gera allt sem þarf að gera, vera í tengsl- um við lífið og tilveruna eins og það er. Hollusta í vinnu er alveg eins að afkasta vel, eins og að hvíla sig vel á milli, til að sinna heil- brigöi sínu. Hollusta getur einnig táknað holla hugsun. Ef við verðum leið, döpur eða reið er hægt að einbeita sér að því að eyða þeim hugsunum upp og ná inn á jafnvægi á nýjan leik. Þetta gerðu stóistarnir á sín- um tíma. Þú hlýtur að kannast viö orðið „stóísk ró“. Þetta sama var í gfidi hjá kínversku lífsspekingun- um og er enn hjá jógum í dag. Það er ekki nauðsynlegt að sprikla eða yfirkeyra sig á æfingum þó það sé gagnlegt. Hollusta getur einnig verið ókeypis. Hér eru dæmi: við finnum að það er þungt loft inni. Ráð: opna gluggann og anda að sér fersku, íslensku lofti, hreinu og tæru norrænu lofti sem er laust við mengun spúandi iðnað- arhéraða Evrópu, Ameríku, svo við tölum ekki um Sovét. Ókeypis - meðan enn er ekkert aukaálver. Annað dæmi: við erum þyrst. Líkamann vantar vökva. Ráð: láta kranavatnið renna í nokkur augnablik og fá okkur síðan sopa af vænu íslensku bergvatni, bless- uðu af Guðmundi góða forðum daga. Ómengað, ferskt grunnvatn - laust við mengun erlendra stór- þjóða sem létu gróðasjónarmiðin fara með sig... en bíðum við... ætti ég að segja „þar til“ .. .að... KjaHariim Rafn Geirdal skólastjóri við höfum verið svo sniðug að setja upp álver... og endanlega fara með allt saman. Álver er einhver bjánalegasta hugmynd sem þjóðin getur látið sér detta í hug. Við erum að stefna í voða 1100 ára hreinni og fagurri fasteign fyrir gróðasjónarmið er- lendra auðfyrirtækja. Með því að opna fyrir nýju álveri kunnum við að vera að opna fyrir enn fleiri og að lokum er eyjan óbyggileg. Ég myndi ekki vilja móðga forfeður okkar með slíku. Velferðargildi Meta á hollustu sem æðstu lífs- gæði. Vellíðan einstaklinga. Þroska þeirra. Menntun. Sköpunargleði. Þetta er ekki metið til fjár. Þetta er metið með innri nemum okkar, þúsundum tauganema, sem segja okkur á nákvæmari hátt hvernig okkur líður heldur en nokkur hag- fræðiútreikningur í Seðlabankan- um. Bættur hagvöxtur skapar ekki nauðsynlega bætta velferð. Bætt vellíöan þjóðarinnar gerir það ör- ugglega! Ef við legðum sama fé í fjárfestingu á hollustu, fræðslu til almennings, heilsurækt og umönn- un og við erum að sóa í væntanlegt- álver þá kæmist þjóðin á helmingi hærra velmegunarstig en hún er nú á. Mokum eldri peningagildum út, veitum nýjum sjónarmiðum hollustu inn! Þetta er leiðin fyrir íslenska þjóð! Stjórnmálastraumar Fyrir alþingiskosningar auglýsti Framsókn mikið fegurð íslenskra sveita, hina óspilltu íslensku nátt- úru. Eftir alþingiskosningar lagði Hjörleifur Guttormsson svo ríka áherslu á að hér kæmi ekki inn álver að það lá við að fyrri ríkis- stjórn vægi salt aðeins á þessu eina máli. Sjónarmiö heilsu og hrein- leika eiga enn upp á pallborðið þrátt fyrir nýgerða álsamninga. Þið skuluð ekki efast um hvorum meg- in ég er við borðið! Má ég minna á að hér var norræn umhverfisráð- stefna í sumar þar sem veitt voru verðlaun til íslenskrar þjóðar sem fremst norrænna þjóða í umhverf- isvernd. Ætlum við nú að spilla þessu með asnaskap þeirra sem halda að allt gangi út á peninga? Ég segi álverin út í hafsauga í von um að ísland fái að véra hreint um aldur og ævi. Siðfáguð þjóð í vor kom upp umræða á breska þinginu um hvort telja ætti íslend- inga til siðmenhtaðra þjóða eða barbara, út frá því hvort við ætluð- um að slátra hval eða láta eins og menn. Ég ber upp sömu spurningu gagnvart þeim herrum sem ætla að eyöileggja menningu upplýstrar söguþjóðar með þriðja flokks þungaiðnaði. Ég segi: Nei, takk. Siðfágun fæst með andlegri rækt, sem iðkuð er í ró og næði, inni fyr- ir luktum dyrum eða úti í óspilltri náttúrunni. Erlendar stórþjóðir sækja nú í sveitasæluna; eru orðn- ar þreyttar á stórborgarys og spú- andi iðnverum. Leyfum þeim að sækja hingað. Myndum hollustuleg samskipti við þá einstaklinga sem sjá fegurðina i náttúrunni og svo ég noti orð hagfræðinga: „fjárfest- ingu“ sem guð sá um að skapa og hefur verið hér í árþúsundir. Eitt- hvaö sem við fæðumst í „ókeypis“ og „rekur sig sjálft“. Ekki aðeins það, þegar við plöntum tré, „ávaxt- ar það sig sjálft“ og hefur engan áhuga á að græöa. Nema þá að græða landið. Vörum okkur á spúandi álverum áður en það er orðið of seint. Snú- um rásinni við og verndum það sem þegar er til staðar. Það er leið- in til velmegunar. Ég þakka. Rafn Geirdal „Álver er einhver bjánalegasta hug- mynd sem þjóðin getur látið sér detta 1 hug. Við erum að stefna í voða 1100 ára hreinni og fagurri fasteign fyrir gróðasjónarmið... “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.