Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991. 9 Móðirstalfrá baminusínu Áströlsk kona, sem borgaöi nærri þrjú hundruö þúsund króna sumarfrí sitt með pening- um sem hafðí verið safnað fyrir veikan son hennar, var dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fang- elsi í gær. Sex ára sonur konunnar þjáist af sjúkdómi sem kemur í veg fyr- ir að hann svitni. Hann má ekki fara út þegar heitt er í veðri og þarf oft í bað til að kæla sig. Efnt var til fjársöfnunar fyrir piltinn þegar móðirin bað um aðstoð tíl að komast til Banda- ríkjanna að kaupa kælívesti sem búið vartil fyrir geimfara. í stað- inn fór konan í frí til Sydney. Ríkar þjóðir hjálpafátækum Hópur 24 rikra þjóða innan Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins er reiðu- búinn að veita Eystrasaltslönd- unum þremur fjárhagsaðstoð og gerir ráö fyrir að hin nýfrjálsu ríki gangi í gjaldeyrissjóðinn næsta vor. Einnig er búist við að Albaníu, fátækasta landi Evrópu, verði veitt aðstoð. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi þjóðanna 24 í Bangkok á Tælandi i gær en ársfundur Al- þjóðabankans og Alþjóöagjald- eyrissjóðsins er haldinn þar þessa vikuna. Henning Christophersen, vara- forsetí framkvæmdastjórnar EB, sem stýrði fundinum, sagði að samstaða hefði verið um málið. Hann sagði að fundurinn í gær hefði verið boðaður tíl að und- irbúa ráðherrafund þjóðanna þann 11. nóvember. Hvalamergðvið vesturströnd Grænlands Sjómenn og veiðimenn á Græn- landi eru óánægðir með að mega ekki veiða hrefnur og langreyöar við vesturströnd landsins. Hvalir þessir eru þar í miklu magni og fara í net sjómanna og éta hinn eftirsótta þorsk. „Upplýsingum líffræðinga um hvalastofnana og það sem sjó- menn og veiðimenn sjá á degi hverjum ber ekki saman. Ef ég á að fara eftir því sem sjómenn og veiðimenn segja bendir alit til að stofnamir séu í vexti en á mótí segja lífíræðingar aö þeir séu i útrýmingarhættu," sagði Alfred Jakobsen frá sjómanna- og veiði- mannasamtökunum KNAPK í samtali við útvarpiö á Græn- landi. Frakkifékk eðlisfræðinóbel Franski prófessorinn Pierre- Gilles de Gennes við CoUege de France fékk nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í gær. Verölaunin fékk hann fyrir þá uppgötvun að að- ferðir, sem voru þróaöar til að lýsa skipan einfaldra kerfa, geta einnig verið notaðar til aö lýsa flóknari efhaformum, einkum fljótandi kristöUum og fjöllíöa- efnum. Helsta áhugasvið de Gennes innan eðlisfræðinnar hefur veriö breytingin yfir í ofurleiöandi ástand hjá vissum efhum og breyting úr skipulögðu f óskipu- lagt ástand i fljótandi kristöllum. Fljótandi kristallar hafá m.a verið notaðir í vasareiknivélar og armbandsúr og nýlega er farið að nota þá við gerð flatra sjón- varpsskjáa. Pierre-GiUes de Gennes, sem fæddist 1 París 1932, hefur veríð kaUaður Isaac Newton okkar daga. Hann er sjö barna faöir og mikiU áhugamaður um segl- brettasighngar. Reuter, Ritzau og TT Útlönd Presturdæmdur fyriraðleitaá ungadrengi DómstóU á Nýfundnalandi hef- ur dæmt prest í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa með grófum hættí leitað kynferöislega á unga drengi. Var hann dæmdur fyrir brot gegn fjórum drengjum. Hann er áttundí presturinn á Nýfundnalandi sem dæmdur er fyrir brot af þessu tagi síðan 1988. Nærallarþýskar konur áreittar kynferðislega Könnun í Þýskalandi sýnir að 9 af hverjum 10 konum á vinnu- markaði hafa orðið fyrir kynferö- islegri áreitni á vinnustað. Könn- unin tók tíl 1980 kvenna og sögö- ust 93% þeirra hafa orðið fyrir áreitni. Fram kom að konurnar líta á klámbrandara sem kynferðislega áreitni og sömuleiðis ef myndir af nöktum konum eru hafðar tíl sýnis. Þá kom fram að það eru konur á þrítugsaldri sem verða fyrir mestri áreitni, einkum þeg- ar þær eru að hefja störf á nýjum VÍnnUStað. Reuter Ólympíuleikar í Svíþjóð 2004? Borgarstjómin í Stokkhólmi hefur mikinn hug á að fá að halda ólympíuleikana árið 2004. Undir- búningur málsins er þegar hafinn og á að skipa sérstaka nefnd til að kanna hvort þetta stórfyrir- tæki sé á færi borgarinnar. TT Júgóslavneskur hermaður og læknir aðstoða hermann sem Króatar höfðu náð á sitt vald og barið heldur óþyrmi- lega í suðurhiuta Króatíu í gær. Símamynd Reuter Atök harðna í Króatíu Bardagar við borgina Vukovar í Króatíu færðust í aukana í gær og hafa þeir aldrei verið meiri á þeim slóðum frá því átökin brutust út. Og deiluaðilar spilltu enn frekar fyrir friðinum með því að gera auknar kröfur. Serbar og bandamenn þeirra í for- sætisráði Júgóslavíu sögðu að friðar- ráðstefna EB væri gagnslaus án nær- veru þeirra. Stjórn Króatíu endurtók kröfu sína um að sambandsherinn hyrfi á brott og gaf frest til 10. nóv- ember. Króatar hertu afstöðu sína til frið- arviðræðnanna enn frekar með því að neita að ailétta herkví á bæki- stöðvar hersins fyrr en herinn sýndi á sér fararsnið. Nýtt samkomulag um aö binda enda á ófriðinn sem Gorbatsjov Sov- étforseti hafði milligöngu um virðist einnig ætla að verða andvana fætt, þrátt fyrir stuðning Jeltsíns, forseta Rússlands. Stórskotaliði var beitt í bardögun- um við Vukovar í gær og fótgöngu- liðar gerðu árás á Vinkovci langt fram á nótt. Aö sögn útvarpsins í Króatíu féllu fjórir óbreyttir borgar- ar í þeim átökum. Reuter MIKIÐ ÚRVAL AF BÍLUM Á VERÐI OG KJÖRUM VIÐ ALLRA HÆFI! BILA HUSIÐ SÆVARHÖFÐA 2 ® 674848 í húsi Ingvars Helgasonar YFIR 150 BÍLAR Á STAÐNUM Subaru Legacy 2200 sedan 4x4, árg. 1990, ekinn aöeins 4 þ. km, 5 gíra, ABS, álfelgur, samlæsing o.m.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verö 1790 þús. Eigum einnig sjálfskipt- an. Mercedes Benz 260E, árg. 1987, ekinn 52 þ. km, sjálfskiptur, topp- lúga, ABS, álfeigur, bílasími o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 2990 þús. MMC Pajero, langur, árg. 1988, ekinn 69 þ. km, 5 gíra, krómfelg- ur, 31" dekk, brettakantar o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verö 1830 þús. Eigum einnig árg. '86, '87, '89 og 1990. Nissan King cab dtsil 4x4, árg. 1990, ekinn 40 þ. km, 5 gíra, vökvastýri, . klæddur pallur, brettakantar o.fl., vsk-bill. Ath. skipti á ódýrari. Verð 1420 þús. Höfum einnig bensín king cab. Toyota Corolla 1600 GTi liftback, árg. 1988, ekinn 50 þ. km, 5 gíra, rafm. í rúðum, samlæsing, bein innspýting o.fl. Ath. skipti á ódýr- ari. Verö 1050 þús. Nissan Sunny 1600 SLX 4x4, árg. 1988, ekinn 45 þ. km, 5 gira, vökvastýri, aukadekk o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verö 800 þús. Höfum allar árg. af Sunny. Nissan Micra Special, árg. 1989, ekinn 46 þ. km, 5 gíra, topplúga, alhvitur o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 570 þús. Eigum allar árg. af Micra. Terrano 3,0SE, árg. 1990, aöeins 19 þ. km, 5 gíra, álfelgur, samlæsing, splittað drif o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verö ,2400 þús. Eigum einnig árg. 1991. MMC Lancer 1500 GLX, árg. 1988, ekinn 48 þ. km, sjálfskiptur, rafm. í rúðum o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 720 þús. Höfum einnig árg. ’86 og 1987. Subaru 1800 st. 4x4, árg. 1989, ekinn 48 þ. km, 5 gíra, rafm. í rúöum, aukadekk o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 1170 þús. Höfum allar árg. af Subaru 4x4. Daihatsu Feroza EL II, króm, árg. 1989, ekinn aðeins 18 þ. km, 5 gíra, topplúga o.fi. Ath. skipti á ódýrari. Verð 1080 þús. Subaru 1800 st. 4x4 turbo, árg. 1987, ekinn 77 þ. km, sjálfskiptur, hæðarstilling, 135 hö., álfelgur, aukadekk á felgum o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 1050 þús. Höfum einnig árg. '86 og ’88. Mercedes Benz 190E, árg. 1989, ekinn 52 þ. km, sjálfskiptur, topp- lúga o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 2480 þús. Höfum einnig árg. '83, ’84, ’85 og 1988. Subaru Legacy 1800 st. 4x4, árg. 1990, ekinn aðeins 10 þ. km, 5 gira, samlæsing, álfelgur o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 1420 MMC Pajero, bensin, árg. 1987, ekinn 67 þ. km, 5 gira, 30" dekk, grind o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 1270 þús. Höfum einnig árg. '83, '84, ’86 og 1988. Subaru Justy J-10 4x4, árg. 1988, ekinn aðeins 23 þ. km, 5 gira. Ath. skipti á ódýrari. Verð 550 þús. Höfum allar árg. af Justy.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.