Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn Askrift - Dreifing: Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 17. OKTÖBER 1991. Hafafundið loðnuá löngu svæði Sígarettum stolið Snæfellsnes: Fiskmarkað- ur stof naður Fiskmarkaður Breiðafjarðar var stofnaður í gær. Að honum standa sveitarfélögin á Snæfellsnesi, stærstu fyrirtækin og útgerðarmenn á svæð- inu. Stofnendur eru 80 talsins og hlut- afé fyrirtækisins er 15 milljónir. Að sögn Páls Ingólfssonar stjórnar- formanns verður markaðurinn stað- settur í Qórum þéttbýlisstöðum á Snæfellsnesi; Stykkishólmi, Ólafs- vík, Grundarfírði og á Rifi. Áætlað er að hefja uppboð í byrjun næsta mánaðar. -JSS LOKI Allt er mest íTexas! ’ '* „Við höfum verið á rækju hér út af Vestfjörðum og fylgdumst því vel með skipúnum sem voru við loðnu- leit á dögunum. Það er alveg ljóst að það er mikil loðna á miðunum. Leit- arskipin 4 tilkynntu um loðnu á yfir 300 mílna löngu svæði. En svo gerist bara ekki neitt. Rannsóknarskipið var allt annars staðar að dunda sér,“ sagði Bjarni Sveinsson, skipstjóri á rækju- og loðnuveiðiskipinu Pétri Jónssyni RE, i samtali við DV í morg- un. Bjarni sagði skipstjórana á leitar- skipunum hafa gagnrýnt fiskifræð- ingana fyrir að koma ekki á þaö svæði þar sern loðnan fannst, eins að sjómönnunum þætti fiskifræðing- arnir gera lítið úr því sem leitarskip- in voru að finna af loðnu. Sjálfur sagðist Bjarni Hafa orðið var við loðnu, enda þótt hann væri á rækju- veiðum. Hann sagðist líta svo á að það væri ekki minna af loðnu nú en í venjulegu árferöi þar norður frá. Öll skilyrði í sjónum væru líka eins og best verður á kosið. -S.dór RLR var tilkynnt um fjögur innbrot á höfuðborgarsvæðinu sem áttu sér stað í fyrrinótt. 80-90 sígarettulengj- um auk skiptimyntar var stolið úr verslun við Hófgerði í Kópavogi. Andvirði þýfisins er metið á liðlega 200 þúsund krónur. Einnig var brot- ist inn í verslun að Kársnesbraut 100 en þar var verkfærum stolið. Við Nethyl í Árbæjarhverfi var brotist inn í tvö fyrirtæki. Lögreglan í Reykjavík handsamaði í morgun síbrotamann sem var bú- inn að stela um 30 lítrum af bensíni af bifreið í Breiðholti. Hann gaf þær skýringar að hann væri að verða of seinnívinnu. • -ÓTT Fenqu f angelsis w w dóma fyrir öku skírteinafals Sakadómur Reykjavíkur hefur dæmt þijá Reykvikinga til fangels- isrefsingar, 6 mánaða, 3 mánaða og 30 daga, fyrir aðOd sina að fólsun ökuskirteina fyrir 25 unglinga á árunum 1989-1990. Höfuðpaurinn var dæmdur fyrir skjalafals en hin tvö fyrir hlutdeild að skjalafalsi. Refsingar fólksins eru skilorðs- bundnar í 2 ár. Skírteinunum fram- vísuðu 25-menningamir ýmist í vínveitingahúsum, í verslunum ÁTVR eða á báðum stöðum. 24 ára karlmaður var höfuðpaur- inn í málinu. Hann viðurkenndi að hafa falsað ökuskírteini fyrir 25 ungmenni. Maðurinn tók 2.500 krónur fyrir hvert skírteini. Verkiö framkvæmdi hann i öll skiptin á heimib sínu með tölvuteikniforriti og prentaði skírteinin út með leysi- prentara. 29 ára kona og 21 árs karlmaður voru hins vegar mUligöngumenn um að útvega „viðskiptafólk". Kon- an var ákærð fyrir fyrir að hafa haft mibigöngu að fölsun höfuð- paursins fyrir 20 ungmenni. Yngri maðurinn var ákæröur fyrir að hafa haft miOigöngu að sölu fals- aðra ökuskírteina til þriggja ung- menna. Fyrir hvert skipti fengu mibigöngumennirnir 500 krónur frá höfuðpaurnum. Maðurinn sem ffamkvæmdi fals- anirnar var dæmdur í 6 mánaða fangelsi. Konan fékk 3 mánaða fangelsisrefsingu en yngri maður- inn var dæmdur í 30 daga fangelsi. Allar refsingarnar eru skilorðs- bundnar í 2 ár. Það þýðir að fólkið fer ekki í fangelsisafplánun. Verði það hins vegar uppvíst að brotum á næstu 2 árum verður því gert að sæta fangelsi. Höfúðpaurinn sat 4 daga í gæsluvarðhaldi á meðan lög- reglurannsókn þessa máls stóð yf- ir. Komi tO þess að hannfari í fang- elsi munu þeir dagar dragast frá afplánun hans. Guðjón St. Mar- teinsson, sakadómari í Reykjavík, kvað upp dóminn. -ÓTT Afar sterkur sviptivindur feykti bílunum til á veginum með þeim afleiðingum að þeir rákust mjög harkalega saman. DV-mynd S Veðrið á morgun: Víðast úr- komulaust Á morgun verður norðvestan gola eða kaldi. Skýjað verður með köflum á Norður- og Vesturlandi og smáél á stöku stað viö strönd- ina en víðast úrkomulaust aö kaOa. Bjartviðri verður sunnan- og suðaustanlands. Hiti verður ÚA stig síðdegis en víðast vægt frost að næturlagi. Alþingi: Karpað um EFTA-EB Miklar umræður urðu um samn- ingaviðræður EFTA og Evrópu- bandalagsins um evrópskt efnahags- svæði í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær. Fjöldi þingmanna tók til máls. Steingrímur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, vék að spumingunni um það hvers virði evrópska efnahagssvæðið væri í raun fyrir okkur Islendinga. Efaðist hann um að það væri jafnmikils virði og rætt hefði verið um. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra vildi ekki tjá sig um stöðu viðræðnanna aðeins nokkrum dög- um fyrir úrslitafundinn í Lúxem- borg. Hann kvað íslendinga alls ekki hvika frá nokkrum prinsippmálum, meðal annars um fyrirvara á rétti útlendinga til fjárfestingar í útgerð, frumvinnsluogorkumálum. -JGH Týndur Þjóðverji kominnfram 23 ára Þjóðverji, sem farið var að óttast um í vikunni, fannst á gangi við Höfðabakka í gær. Þjóðverjinn hafði verið í húsi í Reykjavík en hvarf þaöan með slíkum hætti að ástæða þótti til að leita hans. Þegar maðurinn fannst í gær sagðist hann hafa hafst viö í tjaldi við Hafravatn. -ÓTT Reykjanesbraut í gær: Sviptivindur talinn orsök banaslyss Tæplega fimmtugur maður lést í bílslysi á Reykjanesbraut, skammt frá afleggjaranum í Voga, um klukk- an fjögur síðdegis í gær. Maðurinn var á fólksbil á leið til Keflavíkur þegar hann mætti stórum olíuflutn- ingabíl sem var á leið til Reykjavík- ur. Atvikið varð Keflavíkurmegin við Vogaafleggjarann. Að sögn sjónarvotta, sem óku á eft- ir bílunum, varð afar sterkur svipti- vindur til þess að bílarnir virtust fjúka til á veginum með þeim afleið- ingum að þeir rákust mjög harkalega saman. Talið er að maðurinn í fólks- bílnum hafi látist nær samstundis og er bifreiðin gjörónýt. Læknir kom fljótlega á slysstað. Ölíubíllinn end- aði utan vegar um 100 metra frá slys- staö. Undirvagn hans skemmdist og fór annað framhjólið af. Ökumaður olíubílsins meiddist á hné. Mennirn- ir voru einir í bílunum þegar slysið varð. -ÓTT 0RU6GIR-ALV0RU VARI - ORYGGISVORUR 0 91-29399 Allan sólarhringinn ¥ARI Öryggisþjónusta síðan 1 969 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.