Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 21. OKTÖBER 1991. Fréttir Tillaga veiðistjóra um grisjun mávastofns: Sex milljónir til að drepa níu þúsund máva Veiðistjóri hefur gert tillögu um að 6.1 milljón króna verði varið til þessað drapa allt að níu þúsund máva. „Tillagan gekk út á að gera til- raun með að svæfa máva í varpi með því að setja svefnlyf á hreiður- barma þannig að ekki ætu aðrir en þeir sem meiningin var að deyða. Hún gerir ráð fyrir um 6 milljóna króna kostnaði sem dreifist á sveit- arfélag á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum," sagði Páll Her- steinsson veiðistjóri í samtali við DV. „Tillagan var tekin fyrir á fundi hjá samtökum sveitarfélaga á höf- uöborgarsvæöinu í gær. Þetta er vissulega kostnaðarsamt en ég held samt að þessi fjárhagsáætlun sé nokkuð raunhæf. Hins vegar er þaö því miður þannig að kjörnir fulltrúar okkar bæði á þingi og í bæjarstjórnum vilja láta ljúga að sér um kostnað- aráætlanir eins og flestir hafa tekið eftir. Menn eru mikið ánægðari með að samþykkja hluti sem eru ekki allt of dýrir. þó að fyrirfram sé ljóst að kostnaöur sé vanmetinn. Ég hef haft það fyrir venju aö gera kostnaðaráætlanir sem standast. Það var ekki meiningin að ganga frá neinni samþykkt á fundi sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu (SSH) heldur voru lagðar þarna fram tillögur til umfjöllunar. Þær verða ekki samþykktar fyrr en viðkomandi sveitarfélög hafa gefiö samþykki sitt,“ sagöi Páll. „í tillögunni um fækkun í máva- stofni var gert ráð fyrir því að sveit- arfélögin á höfuðborgarsvæöinu legðu fram 3,5 milljónir í kostnað. Síðan var gert ráð fyrir því að Suö- umesjamenn legðu fram upphæð á móti í þetta verkefni," sagði Jónas Egilsson, framkvæmdastjóri Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu, í viðtali við DV. „Þetta er sameiginlegt verkefni SSH og samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). Heildarupp- hæðin er um 6.2 milljónir króna. Þessum lið var vísað til stjórnar til frekari meðferðar vegna þes að mönnum þótti þetta nokkuð há upphæð. Menn eru sammála um að þessi vandi er fyrir hendi en vilja vita meira um málið áður en samþykkt er að leggja út í svo dýra framkvæmd. Málinu var vísað til stjórnar SSH sem er ætlaö að kynna þaö sveitar- félögunum. Veiðistjóri var beðinn um aö gera þessa áætlun fyrir SSH. Hann hefur gert þaö mjög sam- viskusamlega. Ef hann fer fram úr áætlunum er þaö algerlega hans mál “ sagði Jónas. -ÍS Árekstur varð á gatnamótum Vesturlandsvegar og Þverholts i Mosfellsbæ umhelgina. Bifreið, sem ekið var i austurátt, ók í veg fyrir bifhjól sem var á vesturleið. Ökumaður og farþegi bifhjólsins voru fluttir á slysadeild. DV-mynd S Markús Möller um íslenska garðyrkju: Getum verið samkeppnisfær Vinnings- forskot Kasparovs Heimsmeistarinn Kasparov hefur náö vinningsforskoti eftir 3 umferðir á stórmótinu í skák í Tilburg. Hann vann Kortsnoj í 2. umferð. Náði jafntefli með þrá- skák viö Kamsky á svart i 3. umferð. Hefur 214 v. Kamsky, Short, Karpov og Timman hafa 114 v. Anand 1 v. og biðskák, Bareev 1 v. og Kortsnoj 14 v. og biðskák. í 2. umferð vann Timman An- and á svart en jafntefli gerðu Karpov-Short, Bareev-Kamsky. í 3. umferð vann Skort Bareev en Timman og Karpov gerðu jafh- tefll Biðskák hjá Kortsnoj og Anand eftir 75 leiki þar sem Ind- verjinn hefur peð yfir. Biðskák Bareev og Karpov úr 1. umferð laukmeðjafntefli. -hsím íslendingar fjölmennir í Lúxemborg Jón G. Hauksson, DV, Lúxemborg: Fjölmennur hópur íslenskra samningamanna er kominn til Lúxemborgar vegna ráðherra- fundar EFTA og EB sem þar fer fram í dag. Fyrir hópnum fara ráðherrarnir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráöherra. Þá eru hér Hannes Hafsteín, aöalsamningamaöur ís- lands í EFTA-EB viðræðunum, Gunnar Snorri Gunnarsson, skrif- stofustjóri í utanríkisráðuneytinu, Kjartan Jóhannsson, sendiherra íslands hjá EFTA, Árni Kolbeins- son, ráðuneytisstjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu, auk nokurra starfsmanna við sendiráöið i Brussel og utanríkisráöuneytiö. Bílaþjófnaður álsafirði Aðfaranótt siðastliðins fostu- dags var tveimur bifreiðum stolið á Isafirði. Lögreglan fann fljót- lega aöra biireiðína við Fiarðars- el þar sem þjófurinnhafði yfirgef- iö hana og var hún óskemmd. Hin bifreiðin fannst ekki fyrr en daginn eftir á Kirkjubólshlíö þar sem ökumaðúrinn hafði ekiö henni út af veginum og skilið hanaþar eftir. Bifreiðin er nokk- uð skemmd eftir útafaksturinn. -Sl< Markús Möller hagfræðingur, ssagði á fundi Sambands garðtyrkju- bænda að íslendingar ættu að geta verið samkeppnisfærir gagnvart inn- fluttu grænmeti ef yrði af samning- um um evrópskt efnahagssvæði. í samtali við DV sagði Markús Möller aö rannsóknir á úttekt á sam- keppnisaðstöð íslenskrar garðyrkju væru þó komin það stutt á veg að ekki væri hægt aö slá neinu fóstu um útkomuna. „En þegar menn eru að flytja inn grænmeti í flugi þá er það svo dýrt aö við ættum að geta Þórhallur Ásmundsson, DV, NorðurLvestra: „Atvinnuástandiö er mjög gott núna og eiginlega miklu betra en maður hafði búist við. Það vantar frekar fólk en hitt en þetta gæti auð- vitað breyst þegar sláturtíðinni lýk- ur,“ segir Valdimar Guömannsson, formaður Verkalýðsfélags Austur- verið í samkeppni við slíka vöru. Garðyrkjubændur hafa einungis ræktað grænmeti á vissum árstima. En,nú hefur vaknað áhugi meðal þeirra að fara að rækta það allt árið og nota þá lýsingu og hitaveituvatn til upphitunar gróðurhúsa. En slíkur aukakostnaður hefur ekki verið tek- inn með í reikninginn því það hefur enn ekki verið gert,“ sagði Markús. „Ég hef það á tilfinningunni að við ættum að geta ræktað grænmeti allt árið, í húsum með lýsingu og hita- veituupphitun á það hagkvæman Húnvetninga. Valdimar sagöi að útlitið hefði ver- ið ískyggilegt á tímabih þegar rækju- vinnslan Særún sagði upp sínum mannskap en nýlega var ákveðiö að uppsagnirnar kæmu ekki til fram- kvæmda. „Það er náttúrlega dálítið af að- komufólki hérrja í sláturhúsinu sem hátt að við yrðum fyllilega sam- keppnisfær við erlenda aðila. Til að það geti orðið er nauðsynlegt fyrir garðyrkjubændur að ná niður raf- magnsverði. En útreikningar mínir hvað varðar ræktun allt árið með ljósanotkun og upphitun, að vetri til, eru komnir það skammt á veg að ekki er kominn nein marktæk niður- staöa. Við ættum þó aö mínu mati að geta notað bæði ódýrt rafmagn og hita til aö rækta okkar eigið græn- meti og verið fyllilega samkeppnis- fær,“ sagði Markús. -SÞ maður veit ekki hvort ílengist að slátrun lokinni. Síöan er ekki aö vita hvað gerist þegar verklok verða við Blöndu, hvort sá mannskapur sem þar er fylgir verktökunum í áfram- haldandi virkjunarframkvæmdir annars staðar," sagöi Valdimar. Akureyri: Ekiðástúlkur á gangbraut Gyifi Kiistjánsson, DV, Akureyri: Ekið var á tvær stúlkur á gang- braut á Þingvallastræti á Akur- eyri aöfaranótt laugardags. Þetta átti sér stað við spennistöðina skammt ffá KA-heimilinu. Meiðsli stúlknanna reyndust ekki alvarieg og fengu þær báðar að fara heim af slysadeild aö lok- inni skoðun. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu eru deildar meiningar um hvemig ljósin við gangbrautina voru stillt er atvikið átti sér stað. Sjálfsíkveikja í Borgarkringlu Sjálfvirkt edlboðunarkerfi í Borgarkringlunni fór í gang um hádegisbilið í gær. Starfsfólk sem var að vinna á staönum gerði slökkviliöinu þegar viðvart. Þegar það koma á staðinn var mikill reykur á annarri hæö hússins en enginn eldur var laus. Við nánari athugun kom í ljós að sjálfsíkveikja hafði átt sér stað í ryki, en nýlokið var við að slípa gólf og var rykið geymt í pokum uppi á annarri hæð hússins. Slökkviliöið notaði reykblásara til að hreinsa reykinn burt og er ekki talið að um miklar skemmd- ir hafi verið að ræða. -SÞ Lögreglan í Kópavogi: ökumanni Sjö ára drengur varð fyrlr bif- reið, sem ekiö var út frá bifreiða- geymslum Hamraborgar út að Vallartröð, um klukkan þrjú síð- degis mánudaginn 14. október. Okumaöur bflsins stöðvaði til að huga að meiðslum drengsins. Hann virtist i fyrstu ekki vera slasaður og hélt því bílstjórmn af vettvangi. Við nánari læknisrannsókn hefur komið í fiós að drengurinn varö fyrir meiðslum og því nauð- synlegt að ökumaöur gefi sig ífam. Ekki er vitað hverrar teg- undar bíllinn er en þó er talið að þarna hafi veriö um aö ræða hvita fólksbifreið meö R-númeri. Okumaður bifreiöarinnar svo og vitni, ef einhver eru, eru beðin um að hafa samband við rarm- sóknadeild lögreglunnar í Kópa- vogi í síma 41200. -ÓTT Næg atvinna á Blönduósi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.