Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 4
.MÁNL'ÍJAGUK '21. ÖKTÓBER 1991. Fréttir Jón Baldvin Hannibalsson um EB-EFTA viðræðumar í Lúxemborg: Meiri líkur eru á að samningar takist ekki Jón G. Hauksson, DV, Lúxemborg; Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra segir að miðað við fengna reynslu af Evrópubandalaginu, EB, séu nú meiri líkur á að samningar um evrópskt efnahagssvæði, EES, sem hefjast í Lúxemborg í dag, takist ekki. „Ég er í raun hvorki bjartsýnn né svartsýnn á stöðuna í máhnu. Þetta getur brugðið til beggja vona. Reynslan af viðræðunum til þessa sýnir að meiri hkur eru á að þetta takist ekki,“ sagði Jón Baldvin í sam- tali við blaöamann DV við komuna th Lúxemborgar í gær. Að mati Jóns verður deilan um þungaílutninga um Alpana meiri hindrun á fundinum hér í Lúxem- borg en deilan um fiskinn, fijálsan markaösaögang sjávarafurða EFTA-ríkjanna inn á markað Evr- ópubandalagsins. Alpamálió aðalhindrunin „Ég tel að Alpamáhð verði aðal- hindrunin. Grikkir, Hohendingar og ítalir hafa algerlega hafnaö samn- ingsdrögunum sem framkvæmda- stjóm EB gerði við Svisslendinga á dögunum. Þeir hafa skammast yfir þessu og segja samkomulagið vera oftúikað. Þessi ríki munu taka þessi mál kröftuglega upp á fundinum. Ef ekki tekst að beygja ríkisstjómir þessara þriggja þjóða í málinu em samningar um evrópskt efnahags- .svæði úr sögunni. Ég tel kröfur Evrópubandalagsins um umferð þungaflutningabíla um Alpana vera mjög ósanngjamar. Þær ganga gegn umhverfisvemd og bera vott um bölvaða frekju." Varðandi fiskinn telur Jón Baldvin að þrennt geti spiht samkomulagi. í fyrsta lagi að Spánveijar harðneiti samningunum en í tilboðinu sem nú er rætt um er gert ráð fýrir minni afla tíl har.da Spánveijum en á fund- inum í Lúxemborg í sumar. í öðm lagi geti samningar orðið ipjög erfið- ir ef aðhdarþjóðir bandalagsins sýna algeran ósveigjanleika. í þriðja lagi sé það svo spumingin um svigrúm Norðmanna en Evrópubandalagið gerir fyrst og fremst kröfur á Norð- menn í viðræðum um fiskinn. „Ef við metum stöðu norsku ríkis- stjómarinnar heima fyrir þá er hún í sjálfheldu í málinu. Hún er í minni- hluta og þarf aðstoð tveggja flokka í stjómarandstöðu th að koma málinu í gegn. Engu að síður er öllum Ijóst að þessir samningar eru Norðmönn- um lífsnauðsyn. Ef þeir em hins veg- ar of dým verði keyptir em líkur á að þeir verði ekki samþykktur í Nor- egi.“ Dagar EFTAtaldir? Jón vhdi ekkert tjá sig um hvort við íslendingar gætum gengið að því thboði sem Evrópubandalagið hefur sett fram. Hann telur fuhvíst að ef ekki næst samkomulag á fundinum hér í Lúx- emborg í dag sé viðræðunum um evrópskt efnahagssvæði lokið. „Þetta er búiö ef ekki gengur saman hér á fundinum.“ Um hvað þá taki viö segir Jón lík- legast að þau EFTA-ríki sem horft hafa til EB sæki um aðhd. „Finnar verða líklegast búnir að sækja um fyrir vorið en Norömenn bíða eflaust fram yfir kosningar." Því má skjóta hér inn í að Austur- ríkismenn og Svíar hafa þegar sótt um aðhd að Evrópubandalaginu. Gangi Finnar og Norðmenn inn líka eru aðeins þrjú EFTA-ríki, ísland, Sviss og Lichtenstein, fyrir utan bandalagið. Dagar EFTA yrðu þá nánast taldir. Um það hvort tvíhhða viðræður hefjist á milh íslendinga og Evrópu- bandalagsins, fari viðræður um EES út um þúfur, segir Jón að það komi vart th greina og bætir við: „Hver á þá að greiða sjóðsframlagiö og hver á þá að veita bandalaginu fiskveiði- heimhdir?" Jón Baldvin sagði íslendinga ekki hafa verið í beinu sambandi við þjóð- arleiðtoga eins og Mitterrand Frakk- landsforseta og Kohl, kanslara Þýskalands. Þeir hafa opinberlega lýst yfir fihlum stuðningi við sér- stöðu íslendinga í máhnu. „Við höfum komið okkar upplýs- ingum á framfæri við sendiherra þessara ríkja i Reykjavík. Eins hefur fastafuhtrúi okkar hjá EFTA komið upplýsingum á framfæri." Jón bætir því við að vegna forfalla hafi Hannes Hafstein, aðalsamninga- maður íslands í viðræðunum, gegnt formennsku í fiskimálanefnd EFTA að undanfömu og þannig haft góða aðstöðu th að fara ofan í saumana á sjónarmiðum okkar. í óformlegu thboði framkvæmda- stjórnar EB í síðustu viku, th lausnar máhnu, vom, að sögn norsku frétta- stofunnar NTB, settar upp kröfur um að EFTA-ríkin gæfu 32 mhljarða ís- lenskra króna í þróunarsjóð EB. Jón vhdi ekki staðfesta þessa tölu. Hann sagði að ef lausn fengist á deh- unni um fiskinn og flutningana um Alpana yrði sjóðamálið ekki hindr- un. „Upphæðir verða þá víðsfjarri þeim kröfum sem EB hefur krafist." Músarholusjónarmið Jón segir að eitt af því sem geti ýtt á samningsvilja EB í Lúxemborg í dag séu loforð bandalagsins um að vera efnahagslegur bakhjarl ný- fijálsra ríkja Austur-Evrópu. „Ef samningar um EES nást ekki sýnir það öhum htla getu bandalags- ins th að semja vegna sérhagsmuna- hópa innan þess. Eg hef kallað þetta músarholusj ónarmið. ‘ ‘ Jón segir ennfremur að þjóðarleið- togar nýfrjálsra ríkja Austur-Evrópu hafi fylgst grannt með viðræðum EFTA og EB. Takist samningar ekki nú muni það rýra traust þeirra á bandalaginu og draga úr trú þeirra á að þeir geti náð sams konar samn- ingum við það. „Staða þjóða Austur-Evrópu er að því leytinu til verri þar sem þau eru fyrst og fremst að biðja um markaðs- aðgang fyrir sínar landbúnaðarvör- ur. Þar eru þó sérhagsmunirnir hjá bandalaginu mestir. Ef ekki kemur til „Marshahaöstoð“ bandalagsins við ríki Austur-Evrópu, sem þó er aðeins í því fólgin að opna markaði, fer illa fyrir þeim. Fallegar hugsjónir um nýjan evrópskan arkitektúr nást því ekki nema vemdarstefnu banda- lagsins, framsóknarstefnunni, verði hrint í burtu.“ í dag mælir Dagfari_____J — -_________ Davíð dregur línuna A flokksráðsfundi Sjálfstæðis- flokksins á föstudaginn gerðist það helst og kannski það eina að Davíð formaður Oddsson flutti ræðu. Formaðurinn flutti ræðu um góðan flokk og góða ríkisstjórn annars vegar og vonda flokka og vonda stjórnarandstöðu hins vegar. Var sem sagt ekki annað að heyra en formaðurinn væri harla ánægður með ástandið eftir að hann tók við. Hann segist að vísu vera staddur í skuggasundi en „við munum fljótt komast úr þessu skuggasundi“. Allt voru þetta yfirlýsingar sem bæði er skylt og rétt að viðhafa á flokksráðsfundum þar sem saman- komnir eru þeir máttarstólpar sem eru sama sinnis. Menn verða aö fá linuna. En Davíð geröi fleira í þess- ari ræðu. Hann vék að þeim erfið- leikum í landinu sem stafa af því að fólk býr á ýmsum stöðum á land- inu þar sem slæmt er að búa, að minnsta kosti fyrir þá sem ekki búa á þessum stöðum. Forsætisráð- herra varpaði þess vegna fram þeirri hugmynd hvort ekki væri rétt að hjálpa þessu bágstadda fólki th aö flytja burt frá þessum guð- svoluðu stöðum þar sem okkur hinum líður svo hla yfir að þar búi fólk. Forsætisráðherra segir aö sjóða- sukkið og fyrirgreiðslan hafi komið óorði á byggðapólitíkina og vill breyta henni í þá veru að í staðinn fyrir ógeðfellda byggðapóhtík gangi menn í það að flytja fólkið burt af landsbyggðiniii th að byggðapólitík leggist niður. Þetta er einfold lausn og afar snjöll hjá formanni Sjálfstæðisflokksins því í raun og veru nær það ekki nok- kurri átt að fólk búi úti á landi án þess að nokkur hafi beðið það um að búa úti á landi. Það er bara fyr- ir, þar sem þaö býr og það hefur ekkert nema kostnað í för með sér. Þess vegna vhl Davíð borga fólkinu fyrir aö flytja og losna við það í eitt skipti fyrir öh. Ekki nefndi Davíð hvaða staði hann hafði í huga. En þau eru mörg krummaskuðin á landinu þar sem fólk er að flækjast fyrir sjálfu sér og öðrum og ríkisstjómin getur stofnað sjóð sem fjármagnaður ér með láni frá útlöndum til að fólk geti sótt um styrk til að flyfja. Síðan þarf að setja stjórn fyrir sjóðinn sem tekur ákvörðun um það hveija sé heppilegast aö flytja og þá hvert. Þetta þurfa að vera góðir menn sem skipast í stjómina og þeir þurfa að ferðast um landið th að átta sig á þvi hvaða fólk er til mestra vand- ræða fyrir þjóðarbúið. Nefndin þarf síðan að taka ákvörðun um þaö hvaða staður liggur best viö höggi. Við skulum segja að nefndin ákveði að leggja niður byggð í Ól- afsvík. Það er nærtækt. Þar era ekkert nema vandræðamenn og útgerðin er á hausnum og fisk- vinnslan og hæjarfélagið hka og gott að byrja á svoleiöis stað. Svo mundi nefndin ganga í hús og bjóða fólki peninga fyrir aö flytja og þeir sem ekki vhja flytja verða teknir í karphúsið og það þarf að herða sultarólina svo þeir eigi ekki ann- arra kosta völ en samþykkja bú- ferlaflutninga. Það má gera með þvi að setja eftirlegukindurnar í einangrun, stöðva aha vöruflutn- inga á Nesiö, setja hafnbann á höfn- ina og svelta þá síðan út eins og gert var með tófuna í gamla daga. Þannig getur forsætisráðherra hugsaö sér að afnema hyggöapóli- tíkina og leggja niður sjóðina með því að stofna nýjan sjóð sem borgar farið fyrir þá sem þurfa að flytja í þágu þjóðarhags. Þetta er mikil framtíðarsýn og heillandi viðfangs- efni fyrir ríkisstjórnina og það hlýtur að vera ofsalegur spenning- ur í bæjunum allt í kring að kom- ast í náðina hjá ráðherranum til að verða fluttir sem fyrst. Bæjar- stjórnir geta sent bænarbréf th rík- isstjómarinnar og gert út sérstakar sendinefndir með htabæklingum th að lýsa þeirri hörmung sem fylg- ir því að búa áfram þar sem fólkið býr og knýja þannig á um skjóta búferlaflutninga. Nú verður að hafa snör handtök því það eru margir um boðið þegar sú hug- mynd verður að veruleika, að leggja skuh niður byggðarlög og bæjarfélög sem eru til ama fyrir þá sem ekki búa í þessum bæjarfé- lögum. Davíð hefur gefiö línuna og dreg- ið línuna mhh þeirra sem eiga rétt á sér og hinna sem eiga aö hypja sig með hafurtask sitt. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.