Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Qupperneq 16
16
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991.
Fréttir
Atvinnuástandið 1 september:
Minnsta atvinnu-
leysi sem mælst
hefur á árinu
I september voru skráðir tæplega
26 þúsund atvinnuleysisdagar á
landinu, 14 þúsund hjá konum og
12 þúsund hjá körlum. Þetta jafn-
gildir því að 1.190 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysisskrá
í mánuðinum en það samsvarar 0,9
próent af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði samkvæmt spá
Þjóöhagsstofnunar. Á sama tíma í
fyrra reyndist atvinnuleysið 1 pró-
sent. Þetta kemur fram í nýju yfir-
liti um atvinnuástandið sem vinnu-
málaskrifstofa félagsmálaráðu-
neytisins hefur gefið út.
Samanborið við ágústmánuð
fækkaði skráðum atvinnuleysis-
dögum um 5.500 daga. Er þetta
minnsta atvinnuleysi sem skráð
hefur verið í einum mánuði á ár-
inu. í þessu sambandi er þó rétt að
taka fram að septembermánuður
er sá mánuður sem að jafnaði hefur
hæst atvinnustig.
Sé atvinnuleysiö í júlí, ágúst og
september skoðað kemur í ljós aö
skráðir atvinnulevsisdagar voru
rúmlega 93 þúsund, eða 22 þúsund
færri samanborið við sömu mánuði
í fyrra. Sem hlutfall af mannafla
var atvinnuleysið þessa mánuði í
ár 1 prósent miðað við 1,3 prósent
ífyrra. -kaa
VESTFIRÐIR
0,2 0,2
Atvinnuleysið í september í %
I í
JORÐURLAND
j-j VESTRA W(
VESTUR-21
LAND ’
I
Q
1,7
0,6
Heimild: félagsmálaráðuneytið
NORÐUfíLAND
0^9 VESTRA NORÐURLAND
EYSTRA AUSTURLAND
ID
0,5
n HÖFUÐB-
'—' SVÆDID
1-1
□
1,1
hO,9
I
SUÐURLAND
SKYRINGAR
| Konur
] Katlar
Þessar glæsilegu og hressu stúlkur munu koma Suöurnesjabúum í gott form i vetur. Frá vinstri Guðbjörg Finns-
dóttir, Bryndis Jónsdóttir, Guðrún Reynisdóttir, Oddný Stefánsdóttir, Biate Rademacher, Þýskalandi, Nancy Wellen-
stein frá Bandarikjunum - DV-mynd Ægir Már.
Sólbaðs- og þrekmiðstöðin í Keflavik 10 ára:
Hingað kemur fjöldi
fólks á degi hverjum
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Sólbaðs- og þrekmiðstöðin Perlan í
Keflavík er 10 ára um þessar mund-
ir. Þrekmiöstöðin var opnuð fyrir 5
árum og hefur sífellt verið að stækka.
Þar eru ein fullkomnustu lyftinga-
tæki sem völ eru á hérlendis. Eigend-
umir, þau Alda Jónsdóttir og Birgir
Olsen, byrjuðu með 30 m2 sólbaðs-
stofu í Njarðvík, síðan fluttu þau sig
í Keflavík í 50 m2 húsnæði sem þau
hafa verið að stækka undanfarin ár
og eru nú komin með 530 m2 á einum
besta stað 1 Kefiavík.
„Það var kominn tími til að stækka
og hafa góðan tækjasal og erobikksal
enda kemur mikill íjöldi hingað á
degi hverjum. Við höfum smám sam-
an verið að byggja upp aðstöðuna og
keypt eitthvað nýtt á hveiju ári. Þá
höfum við fengið gestakennara frá
Bandaríkjunum sem kennir erobikk.
Hún hefur kennt í Kansas í USA.
Þykir mjög fær enda með 8 ára
reynslu og öll þau réttindi sem kenn-
ari þarf aö hafa. Þá erum við líka
meö þýskan íþróttafræðing hjá okk-
ur sem kennir það nýjasta. Það má
ekki gleyma islensku erobikkkenn-
urunum sem hafa einnig sótt sín
námskeið og þykja færir enda búnir
að vera lengi í þessu. Guðbjörg
Finnsdóttir, íþróttakennari að
mennt, var í 2 mánuöi í Bandaríkjun-
um í sumar, kenndi í einn mánuð
þar erobikk og stóð sig mjög vel.
Þetta er áhugamál hjá okkur og
viljum við hafa aöstöðuna góöa. Við
settum einnig upp hér litla sport-
vöruverslun til að koma til móts við
fólkið og það kann aö meta það. Viö
hjónin sjáum ekki eftir neinum þeim
tíma sem við höfum verið hérna."
sögðu þau Alda og Birgir.
Washington, Orlando
og Tokyo 7. til
20. okt.
Gautab., Stokkh.,
og Ósló 25.-31. jan.
* Osló og " '
Kaupmannahötn
^ 19.-25. mars^
Kaupmannahöfn
25.-30. maí og
Uruguay og ^
Nýfundnaland 30. júlí
til 10. ágúst
FetðUfforseta
til útlawml991
Opinberar ferðir forseta íslands til útlanda:
Hef ur verið er-
lendis 54 daga 42
fyrstu vikurnar
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, kom í gær heim frá Japan. Þar
tók hún á móti heiðursdoktorsnafn-
bót. Þá hefur hún dvaliö erlendis í
opinberum erindagjörðum í 54 daga
á 42 fyrstu vikum ársins. Það þýðir
aö hún hafi veriö erlendis rúmlega
einn dag í hverri viku ársins.
Fyrsta opinbera ferð forsetans til
útlanda á árinu var til Gautaborgar,
Stokkhólms og Óslóar dagana 25. til
31. janúar. Næsta ferð var til Óslóar
og Kaupmannahafnar 19. til 25. mars.
Þá kom ferö til Kaupmannahafnar
25. til 30. maí.
Þar á eftir kom löng ferð til Urugu-
ay og Nýfundnalands dagana 30. júlí
til 10. ágúst. Enn fór forsetinn til
Kaupmannahafnar 11. til 15. sept-
ember. Þá til írlands 2. til 4. október
og loks stendur nú yfir ferð frá 7. til
20. október þar sem farið var til
Washington og Orlando í Bandaríkj-
unum og þaðan til Tokyo í Japan.
Allur kostnaður við opinberar
ferðir forsetans er greiddur af ríkis-
sjóði. Að auki fær forseti íslands í
þessum ferðum dagpeninga sem er
sama upphæð og ráðherrar fá eða
13.770 og upp í 14.770 krónur eftir því
hvert farið er. Ofan á upphæðirnar
bætist svo 20 prósent, alveg eins og
hjá ráðherrum. Dagpeningar Vigdís-
ar Finnbogadóttur í ár eru því rúmar
900 þúsund krónur. Forseti íslands
greiðirekkiskatta. -S.dór
Landsvirkjim:
Leggur línu á
Sandskeiði
„Þetta eru bráðabirgðastaurar
sem settir voru upp vegna línu sem
á að leggja þarna þvert yfir veg-
inn,“ sagði Agnar Olsen, forstöðu-
maður verkfræðideildar hjá
Landsvirkjun, aðspurður hvaöa til-
gangi staurarnir þjónuðu sem nú
er búið að reisa á Sandskeiði.
„Víramir í nýju línuna, Búrfells-
línu 3b, verða dregnir yfir götuna
og stauramir eiga bara að koma í
veg fyrir að þeir falli á hana. Þetta
er því bara öryggisráðstöfun á
meöan verið er að leggja línuna,"
sagði Agnar.
Nýja línan, Búrfellslína 3b, kem-
ur í framtíðinni til með aö liggja frá
Sandskeiði til Hamraness sem er
ný tengistöð sunnan við Hvaífiörð.
„Fyrst um sinn tengist línan til
bráðabirgða inn á Búrfellslínu 2 en
verður væntanlega tengd alla leið
í Búrfell þegar þar að kernur,"
sagði Agnar. -ingo
Staurarnlr á Sandskelði eru reistir til bráðabirgða á meðan verið
er að leggja Búrfellslinu 3b. DV-mynd GVA