Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 18
18 MÁNUDÁGUR '21. OKTÓBER 1991. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1992 Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1992. Athygli borgarbúa, svo og hagsmunasamtaka (t.d. íbúasamtaka) er vakin á að óskir, tillögur og ábendingar varðandi gerð fjárhagsá- ætlunarinnar þurfa að hafa borist borgarráði fyrir 20. nóvember nk. 18. október 1991. Borgarstjórinn í Reykjavík Fréttir Bændaskólinn Hólum Hrossarækt og reið- mennska í 1. sætinu Umboðs- og söluaðilar eru á Gulu línunni mwiMgim 62-62-62 Hringdu fyrst í Gulu línuna áður en þú leitar annað eftir Walter Wager var lögð til grundvallar kvikmynd- inni Die Hard 2: Die Harder, sem sýnd var í Bíóborg- inni undir nafninu Á tæpasta vaði. Flestum flugvöllum á austurströnd Bandaríkjanna hefur verið lokað vegna snjókomu. Nítján flugvélar bíða þess að geta lent á Kennedyflugvelli í New York áður en hann lokast líka. Þá hringir ókunnur maður og allt í einu er veðrið orðið aukaatriði... þegar flugturninn myrkvast og slokknar á ratsjánni. Meðan klukkan tifar verður Malone lögreglumaður að komast að því hver ókunni maðurinn er og stöðva hann - áður en flugvélin með ungri dóttur lögreglu- mannsins hrapar til jarðar... eftir 58 mínútur... Þetta er úrvals spennusaga þar sem ekkert lát er á spennunni frá upphafi bókar fram á síðustu síðu. Úrvalsbækur eru sérstaklega valdar handa þeim sem hafa yndi af að lesa. Úrvalsbækur - ótrúlega ódýrar Á næsta sölustað Áskriftar- og pantanasími 62-60-10 Aðeins kr. 790,- Bókin 58 mínútur ÞórhaSur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki: Bændaskólinn á Hólum var settur 14. október. Fleiri nemendur stunda nám við skólann í vetur en nokkru sinni fyrr, 50 að tölu, þar af 47 í al- mennri búfræði og 40 sem ætla að sérhæfa sig í hrossarækt og reið- mennsku. Sú grein virðist njóta mestra vinsælda búnaðarnáms um þessar mundir. Nýr skólastjóri er mættur til starfa við skólann. Sá heitir Sveinbjöm Eyjólfsson, röggsamur náungi þrátt fyrir ungan aldur. Hann er aðeins 31 árs og starfaði áður sem deildar- stjóri búnaöarsviðs í landbúnaðar- ráðuneytinu. Sveinbjöm leysir Jón Bjarnason af en Jón er í ársleyfi og situr nú á skólabekk í Skotlandi. Veturinn nýtir hann til endurmennt- unar í Edinborgarháskóla. Nemendum fiskeldisbrautar Hóla- skóla, svokallaörar sporðbrautar, hefur fækkaö síðustu vetur. Kann að vera að slæm staða fiskeldis í landinu ráði þar einhveiju um. Ein- ungis þrír fiskeldisnemar eru við Hólaskóla í vetur. Við líflambaval á Gunnarsstöðum i Þistilfirði. Þar má sjá, talið frá vinstri, Pétur Guðmundsson, bónda á Hraunum í Fljótum, Egil Bjarnason, ráðunaut á Sauðárkróki, Jóhannes Sigfússon, bónda á Gunnarsstöðum, Guðbjart Guö- mundsson, ráðunaut á Blönduósi, og Grænlendinginn Tómas, starfsmann á Gunnarsstaðabúinu. DV-mynd öm Bændur fá nýjan fjárstof n Öm Þórarinssan, DV, Fljótum: Nokkrir bændur í Skagafirði fá nýjan fjárstofn í haust aö loknu fjár- leysi vegna riðuniðurskurðar. Þann- ig hafa verið keypt rúmlega 400 lömb undanfarið sem dreifast á allmarga bæi í héraðinu því sumir bændur eru nú að bæta við þann fjárstofn sem þeir keyptu í fyrra. 120 lömb eru keypt í Ámeshreppi á Ströndum en 300 í Sauðanes- og Svalbarðshreppum í Norður-Þing- eyjarsýslu. Skagfirðingar keyptu fé á þessum stöðum í fyna og er sú reynsla sem fengin er af því fé frem- ur góð. A báðum svæðum stendur sauðfjárræktin á áratugagömlum merg og hefur bændum tekist að rækta upp úrvalsfjárstofna með til- liti til vænleika, holdsöfnunar og fijósemi. Um 700 hross í Víði- dalsrétt Magnús Ólafesan, DV, Húnaþingi: Þrátt fyrir slæmt veður mætti fjöldi fólks til hrossaréttar í Víðidalsrétt. Þar ráku bændur hross sín í dilka og var talið að um 700 hross hefðu komið af afréttinum að þessu sinni. Ef menn vildu selja hross sín voru þau sett í sérstakan dilk þar sem væntanlegir kaupéndur gátu skoðað þau og prúttað um verð eins og hæf- ir við hrossakaup. Það var ekki bara réttað í Víðidals- rétt um helgina því hross voru einn- ig rekin í Laufskálarétt. Þaö gengur mikið á þegar veriö er að draga hross í dilka á haustin. DV-mynd Magnús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.