Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991.
Fréttir
Viðgerð - ekki hættulaus - á veginum þar sem fyllan fór í sjóinn.
DV-mynd Sigursteinn
Steve Vai blómagítarinn
Tilboðsverð 85.000 m/tösku,
rétt verð 101.000. Góðir greiðsluskilmálar.
HLJÓÐFÆRAVERSLUN
PALMARS ÁRNA HF
ÁRMÚLA 38 105 REYKJAVÍK SÍMI 32845
ÉmmmimM
Kambanesskriður:
Fylla úr
veginum
hrundi
niður í sjó
Sigursteinn Melsted, DV, Breiðdalsvík;
Vegurinn um Kambanesskriður,
milli Breiðdalsvikur og Stöðvarfjarð-
ar, skemmdist mikið í stórrigningu
fyrst í síðustu viku. Mörg þúsund
rúmmetra fylla fór úr veginum og
hrundi niður í sjó, 100-200 metra.
Eftir stendur ein bílbreidd og er
kanturinn mjög blautur.
Viðgerð er hafm með stórvirkum
vélum og er ekki hættulaus vegna
þess hvað jarðvegurinn er laus.
í sumar var grafið fyrir ljósleiðara
í efri kant vegarins og óttast menn
aö vatn hafi komist í jarðveginn og
meira hrun geti orðið á þessum slóð-
um.
Stykkishólmur:
Tónlistar-
skólinn í
nýtt húsnæði
Kristján Sigurösson, DV, Stykkishólmi:
Nýtt og glæsilegt húsnæði Tónlist-
arskóla Stykkishólms var vígt laug-
ardaginn 12. október sl. Vígslan var
glæsileg og komu þar meðal annars
fram nemendur skólans og skóla-
hljómsveit Mosfellsbæjar.
Tónlistarskóli Stykkishólms var
stofnaður 1964 og var þar þá einn
kennari starfandi. 1975 tók sveitarfé-
lagið við rekstri skólans og annast
hann enn. Nú starfa þrír kennarar
við skólann auk skólastjórans, Daða
Þórs Einarssonar. Nemendur eru 85.
Ólafsflörður:
Frystiskip
keyptfrá
Keflavík
Helgi Jónsson, DV, ÓlaMrði:
Nýtt frystiskip bættist í skipaflota
Ólafsfiröinga 15. október. Margir
bæjarbúa skoðuðu skipið við kom-
una til Ólafsfjarðar. Gunnar Þór
Magnússon útgerðarmaður hefur
keypt frystiskipið Stafnes KE130,187
tonn, frá Keflavik. Skipið var smiðaö
í Noregi áriö 1988. Hér er um að ræða
aihliða fiskiskip en um borð er bún-
aður til að frysta aflann.
í sambandi við kaupin er gengiö
út frá að skipt verði á skipum, það
er að Sigurfari ÓF, sem var smíðaður
1966 og er því 25 ára gamall, gangi
upp í hluta kaupverðs. Aflaheimildir
verða eftir hjá hvorri útgerð.
Skattafsláttur,
sjálfvirkur lánsréttur,
öflugur lífeyrissjóður,
lán til húsnæðismála
og afburða ávöxtun
fæst með þátttöku í RS.
Réttu megin við strilað með
Regiubundnum spamaði
Reglubundinn sparnaður - RS - er einfalt og sveigjanlegt sparnaðarkerfi
byggt á nýjum og gömlum þjónustuþáttum Landsbankans. RS hentar
öllum þeim sem hafa áhuga á aó vera réttu megin við strikið í fjármálum.
Ávinningurinn er margfaldur: Þú eignast sparifé og ávaxtar þaó með öruggum og arðbærum hætti, átt
greiðari aðgang að lánsfé, kemst í hóp bestu viðskiptavina bankans og nærð betri tökum á fjármálum þínum
en nokkru sinni fyrr. Allt sem til þarf er að semja við bankann um aó millifæra ákveðna upphæð reglulega inn
á Grunn, Landsbók, Kjörbók eða Spariveltu sem saman mynda RS.
Viltu stofna þinn eigin lífeyrissjóó, spara fyrir ákveðnum útgjöldum, leggja grunn að þægilegri fjármögnun
Við inngöngu í RS húsnæðis, tryggja þér skattafslátt, ávinna þér lánsrétt og tryggja þér örugga afburóa ávöxtun
færðu þægilega hvort sem þú vilt spara í lengri eða skemmri tíma?
fjárhagsáætíunar- Taktu þáttí Reglubundnum sparnaói Lands- ^íjí LðndSbStllCÍ
möppufyrirheimilið þankans0g þú verðurréttu megin viðstrikió. B. íslðlldS
og fjölskylduna. ÆBSLÆ Banki allra landsmanna
Allar nánari upplýsingar fást I ítarlegum bæklingi sem liggur frammi í næstu afgreiðslu Landsbankans