Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992.
Fréttir
Færeyingar vilja veiðiheimildir gegn tollalækkunum:
Enginn viðskiptasamningur
og tollahækkun framundan
- kröfu Færeyinga alfarið hafnað afíslenskum stjómvöldum
„Færeysk stjómvöld hafa gefið til
kynna að þau vilji ræða afnám tolla
gegn því að halda veiðiheimildunum.
Við höfum einnig orðið varir við þá
skoðun innlendra hagsmunaaðila,
svo sem skipafélaga og kjötútflytj-
enda, að það eigi að fara varlega í
að skera niður veiðiheimildir Færey-
inga hér við land. Okkar svar til
stjómvalda í Færeyjum er hins vegar
alveg skýrt. Við blöndum ekki saman
umrasðum um veiðiheimildir og
tolla,“ segir Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra.
Færeyingar hafa heimild til að
veiöa allt að 9 þúsund lestir af fiski
í íslenskri fiskveiðilögsögu, þar af 1,5
þúsund lestir af þorski. Skömmu fyr-
ir áramót lýsti Þorsteinn því yfir við
stjómvöld í Færeyjum aö um vem-
lega skerðingu og jafnvel afnám
veiöiheimilda við ísland yrði að ræða
á næstunni. Þorsteinn hittir fær-
eyska ráðamenn að máli í Stokk-
hólmi í lok þessa mánaðar og mun í
kjölfarið taka ákvörðun í málinu.
í tengslum við endurskoðun á frí-
verslunarsamningi við EB á síðasta
ári ákváðu Færeyingar að hækka
tolla á innfluttar vörar frá þeim ríkj-
um utan EB sem hafa ekki sérstakan
viðskiptasamning við Færeyjar.
Tollahækkunin mun taka gildi um
næstu mánaöamót. Þar sem enginn
viðskiptasamningur er í gildi milh
íslands og Færeyja mun tollahækk-
unin að óbreyttu ná til stórs hluta
íslenskra útflutningsvara.
Enn liggur ekki fyrir hvaða vörar
taki tollahækkunum né hve miklum.
Samkvæmt heimildum DV er nú
unnið aö undirbúningi viðskipta-
samnings við Færeyinga í utanríkis-
ráöuneytinu. Sú vinna mun þó vera
skammt á veg komin. Líklegt þykir
aö við gerð þess samnings muni
Færeyingar taka mið af því hvort
veiðiheimildir þeirra verða skertar.
Þorsteinn aftekur ekki aö veiði-
heimildir Færeyinga verði með öllu
felldar niður. Aðspurður vildi hann
ekki ræða fýrirhugaðar tollahækk-
anir Færeyinga í þessu sambandi.
Hann segir málið alfarið í sínum
höndum sem sjávarútvegsráðherra
en sem fyrr muni hann þó kynna
máhð fyrir ríkisstjóminni.
„Fundurinn í Stokkhólmi verður
samráðsfundur en ákvörðim um
hugsanlega veiðiheimfid munu ís-
lendingar taka einhhða. Ég hef þegar
tilkynnt þeim að um verulega skerð-
ingu verði að ræða. Magnið er okkar
að ákveða og er ekki háö samkomu-
lagi.“
Hahdór Blöndal landbúnaðarráð-
herra tekur undir það sjónarmið
sjávarútvegsráðherra að ekki komi
til greina að blanda saman veiöi-
heimfidum og verslunarhagsmunum
í samningum við Færeyinga. Hann
segir ekkert formlegt erindi hafa
komiö frá Færeyingum varðandi
skipti á veiðiheimfidum og kaupum
á lambakjöti héöan.
„Það hafa ýmsir aðilar lýst yfir
áhyggjum vegna þessa máls og verið
umhugað að ekki dragi úr viðskipt-
um þjóðanna. í þessu sambandi hef-
ur meðal annars veriö talað um sölu
á lambakjöti. Færeyingar hafa boðist
til aö hðka fyrir viðskiptum þjóðanna
með lækkun toha en um leið lýst
yfir áhyggjum vegna skerðingar
veiðiheimilda. Að mati íslenskra
stjórnvalda kemur hins vegar ekki
til greina að blanda þessum málum
sarnan."
-kaa
Davíð Oddsson (orsætisráðherra og Ásgeir Pétursson bæjarfógeti lögðu blómsveig að leiöi Ingibjargar og Olats
Thors í Gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. DV-mynd GVA
Minningarathöfn
vegna aldaraf mæl-
is Ólafs Thors
„Á aldarafmæh Ólafs Thors hugs-
um við til drengskaparmanns, til for-
ingjans snjaha sem stýrði flokki sín-
um svo farsæhega, sem leiddi þjóð
sína af styrk og trúfestu og vann
henni dagsverk sem lengi mun end-
ast. Við biðjum Guð að blessa minn-
ingu Ingibjargar og Ólafs Thors og
heitum því frá þessum stað að vinna
landinu þeirra, landinu okkar, aht
sem við megum."
Þannig fórust Davið Oddssyni for-
sætisráðherra meðal annars orð í
gær, er hann lagði blómsveig að leiði
Ingibjargar og Ólafs Thors í tilefni
af því að þá vora hundrað ár hðin
frá fæðingu Ólafs.
Aldarafmæhs Ólafs Thors fyrrver-
andi formanns Sjálfstæðisflokksins
og forsætisráðherra var minnst með
ýmsum hætti í gær. Minningarat-
höfn var við styttu hans í Keflavík.
Hún hófst klukkan 10.30. Blómsveig-
ur var lagður að styttunni og ræða
flutt.
Klukkan tvö í gær hófst síðan at-
höfn í Gamla kirkjugarðinum við
Suðurgötu í Reykjavík. Þar var lagð-
ur blómsveigur að leiði Ingibjargar
og Ólafs Thors. Síðan flutti forsætis-
ráðherra ávarp og karlakórinn Fóst-
bræður söng. Ungir sjálfstæðismenn
stóðu heiðursvörð meðan athöfnin
fórfram. -JSS
í dag mælir Dagfari
Ferðumst með Flugleiðum
Menn era stundum að gamna sér
við þann glannaskap að spreyta sig
á samkeppni í feröabransanum.
Setja upp hótel og ferðaskrifstofur
og bílaleigur og stofna flugfélög út
í bláinn, rétt eins og þeir hafi ein-
hvem sjéns. Fijáls samkeppni lifi,
segja einkaframtaksmenn í brans-
anum og viö erum jafnvel að kjósa
um það í kosningum hvort hér eigi
að vera einokun eða fijálsræði í
viðskiptum og menn era að
skammast út í kvóta í fiskeríinu
og skömmtunarkerfi í versluninni.
Þetta á engan rétt á sér, segja fijáls-
hyggjumenn og hrósa frjálsri sam-
keppni.
Nú erum viö að sjá afleiðingamar
af þessari ævintýramennsku. Ver-
öld er farin á hausinn, Úrval/Útsýn
hefur yfirtekið Sögu og nú er þaö
nýjast aö Úrval/Útsýn kaupir utan-
landsdeild Atlantik-ferðaskrifstof-
unnar. Skemmst er að minnast
þess þegar Útsýn var innlimuð í
Úrval sem nú er aö innlima aðrar
feröaskrifstofur í bransanum. Aht
er þetta á sömu bókina lært og
renna nú allar ár til Dýrafjarðar
vegna þess að aðalaeigandi Úr-
val/Útsýnar er Flugleiðir hf.
íslendingar hafa veriö að bisa viö
að halda uppi ftjálsri samkeppni í
ferðamálum. Allar hafa þessar
skrifstofur, sem að framan er getið,
verið settar á fót af fuhhugum sem
hafa haldið að þeir ættu erindi inn
á þennan vettvang. Þeir hafa haldið
aö ferðaskrifstofur séu eitt og flug-
félag annað. Þaö er mikih misskiln-
ingur eins og þeir hafa rekið sig á
og vora það ekki Flugleiðir sem
þurftu að koma Veraldarferðafólk-
inu til bjargar þegar búið var að
loka fyrir rafmagnið og vatnið á
hótelunum ytra? Vora það ekki
Flugleiðir sem þurftu að bjarga
Sögu frá gjaldþroti og eru það ekki
Flugleiðir sem kippa til sín utan-
landsferðunum hjá Atlantik þegar
grípa þarf til hagræðingar og
spamaöar?
Og hvemig var þaö þegar Amar-
flug fór á hausinn? Vora það ekki
Flugleiðir sem hlupu í skarðiö í
Amsterdam-fluginu og era það ekki
Flugleiðir sem eiga hótelin og bíla-
leigumar og Iceland Tours í Þýska-
landi þegar einhveijum Þjóðveij-
amum dettur í hug aö feröast tfl
íslands?
Og hveijir eiga Flugleiðir nema
vinir okkar hjá Eimskip sem
hyggja nú á frekari hótelbyggingar
eftir að hafa keypt þrotabúið hjá
Hafskipi? Og hverjir eiga Eimskip
nema vinir okkar hjá Sjóvá og Al-
mennum sem nú era að leggja síð-
ustu hönd á endalok Ríkisskipa
fyrir atbeina samgönguráöherra
sem situr í stjóminni hjá Sjóvá á
milli þess sem hann gegnir ráðher-
rastörfum?
Og hveijir era það sem hafa tekiö
aö sér rekstur Leifstöðvarbygging-
arinnar og hveijir era það sem sitja
í flugráði og úthluta rekstrarleyf-
um til annarra flugfélaga sem era
svo vitlaus aö sækja um slík leyfi?
Auðvitað vinir okkar hjá Flugleið-
um, sem eru þannig búnir að
tryggja sér einkaleyfi á flugferðum
til og frá íslandi, yfirburðastöðu í
fragtflutningum, rekstur hótela,
rekstur ferðaskrifstofa og prívat
ráðherra tfi að fylgjast með að
einkaleyfin og kvótamir í ferða-
bransanum fari á réttar hendur?
Eitthvað var SAS að reyna að
undirbjóða Flugleiðir á leiðunum
milli Reykjavíkur og Kaupmanna-
hafnar. Ráðherrann sá um að
stööva það. Eitthvað var Sólarflug
aö bjástra við leiguflug til sólar-
landa. Flugleiðir eiga eftir að kvéða
þá vitleysu niður meö undirboðum
meðan Sólarflug verður að keppa
við þau undirboð.
Dagfari hefur alltaf sagt það og
segir það enn að fijáls samkeppni
á engan rétt á sér nema fyrir þá sem
ráða markaðnum. Frjáls sam-
keppni er best komin í höndum
Sjóvá og Almenna sem eiga Eim-
skip sem eiga Flugleiðir sem eiga
hótelin og ferðaskrifstofúmar og
geta einir komið hjálparvana ís-
lendingum til bjargar þegar vatnið
er tekið af þeim í útlöndum.
Þetta hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn séð, enda er hann mest inni í
lögmálum fijálsrar samkeppni.
Sjálfstæðisflokkurinn vill að ferða-
bransinn sé á einni hendi og marg-
ar ferðaskrifstofur og mörg flugfé-
lög era til óþurftar þeirri sam-
keppni sem Flugleiöir og Eimskip
þurfa að halda uppi svo að íslend-
ingargetiferðast. Dagfari