Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992. Utlönd Beitti kynþokka rænafjéramenn Kona nokkur í borginni Harbin í noröurhluta Kína beitti kyn- þokka sínum til aö narra að minnsta kosti fjóra menn heim með sér þar sem eiginmaöur hennar myrti þá og bútaöi lík þeirra í sundur. Opinbert dagblaö í Kína segir að hjónin hafi gert þetta í því skyni aö ræna mennina og að fyrsta morðið hafi verið framið 1989. „Þau stálualls fimm gullhringj- um, tvennum eyrnalokkum úr gulli, tveimur silfurarmböndum, fjórum úrum og peningum aö andvirði um tuttugu þúsund krónur," sagöi í blaðinu. Lögreglan er enn aö rannsaka málið. Fannstlátinn eftirfimmtíma lestarferð Miðaldra japanskur maður lést úr hjartaslagi í fullri farþegalest í Tokyo á fóstudagsmorgun en enginn farþeganna veitti honum athygli í fimm Mukkustundir. Lik mannsins fannst um hádegi á fóstudag. Af lestarmiða mannsins mátti sjá að hann steig um borö í lestina um Mukkan sjö um morguninn. Svo viröist sem lestin hafi farið tvær hringferöir milli endastööva áður en stöövarvörður fann manninn. 15.000 portúg- öiskbörnviitna Um fimmtán þúsund börn und- ir fjórtán ára aldri vinna ólöglega í Portúgal, að því er atvinnu- og félagsmálaráðherra landsins, Jose Silva Peneda, sagði í gær. í ræöu sem ráðherrann hélt á ráðstefnu um bamavinnu sagöi hann að stjómvöld hefðu gert ýmislegt til að bæta ástandiö frá því sem það var 1987 þegar um tuttugu og fimm þúsund börn unnu ólöglega. Tölurnar sem ráðherrann nefhdi eru mun lægri en áætlanir Alþjóðavinnumálastofnunar Sameinuðu þjóöanna sem telur að sextíu og þrjú þúsund portúg- ölsk böm vinni ólöglega. Börnin vinna flest í litlum vefh- aöarverksmiðjum i norðurhluta Iandsins þar sem laun era mjög lág. Dreifa ástralskir menn eyðniveir- unniumAsíu? Ástralskir karlmenn sem fara í kynlífsferðir til Asíu kunna aö vera aö dreifa eyöniveirunni meöal vændiskvenna, aö því er sagöi í ástralska læknablaðinu í morgun. Þar er sagt frá manni einum sem fór til eyjarinnar Balí í Indó- nesíu þar sem hann haíði sam- neyti viö vændiskonur. Við heimkomuna fór hann í eyönipróf og reyndist það já- kvætt. Hins vegar kom upp úr dúmum aö hann haföi smitast af ástralskri konu tveimur árum áður. „í bessu tilviki er þaö kynlífs- feröalangurinn sem hefur stofn- aö vændiskonum í hættu meö HlV-smiti. Þetta gæti hafa orsak- aö smit meöal hópa þar sem veir- unnar haföi ekM orðið vart áö- ur,“ sagöi dr. Nick Crofts í grein í blaðinu. Reuter i Herráðið 1 Georgíu styrkir stöðu sína: Gamsakhurdia er búinn að tapa öllu - ekki er vitað hvar forsetinn brottrekni er niðurkominn Herráðiö, sem fer með völdin í Georgíu, styrkti stöðu sína í vestur- héraði landsins þar sem hinn brott- ræki forseti, Zivad Gamsakhurdia, nýtur einna mests fylgis. Tengiz Kitovani, annar formanna ráðsins og fyrram undirmaður forsetans, sagði að Gamsakhurdia væri búinn að vera í stjórnmálum lýðveldis- ins. „Gamsakhurdia er búinn að tapa ölfu og hann getur ekki lengur haft nein áhrif á gang mála í Georgíu eða stjórnað á neinn. hátt,“ sagði Kito- vani við blaðamenn í höfuðborginni Tíflis. Hann sagði að innan þriggja eða fjögurra daga yrði aftur komin ró á óróasvæðunum sem fylgja Gamsakhurdia enn að málum. Alit bendir til þess að hersveitum stjórnarinnar hafði orðiö vel ágengt í vesturhéraðum lýðveldisins en þar sem íjarskipti eru nánast engin gæti sigurvissa herráðsins reynst ótíma- bær. Johnny Kartséva, yfirmaður her- sveitanna í bænum Kutaisi, þar sem herráðið hefur höfuðstöðvar sínar, sagði að bærinn Samtredia sem er miðstöð lestarsamgangna í vestur- héraðinu, hefði gefist upp fyrir stjómarhermönnum án blóðsúthell- inga á laugardag. Héraðsmiðstöðin Abasja féll einnig í hendur herráðs- manna. Ekki var vitað með vissu í gær hvar Gamsakhurdia var niðurkom- inn. Herforingi í herráðinu sagði að hann væri líklega í bænum Gali í Abkhaziuhéraði en rússneska sjón- Gömul kona i Tíflis, höfuðborg Georgíu, biður hermenn herráðsins að hætta að skjóta á stuðningsmenn Gamsak- hurdia, forsetans brottrekna. Hermennirnir skutu aðeins út í loftið. Símamynd Reuter varpið sagði að hann væri í höfuð- borg Abkhaziu, Sukhumi, ferða- mannabæ við Svartahafið. í Tíflis skutu hermenn herráðsins úr byssum sínum yfir höfuð nokkur þúsund stuðningsmanna Gamsak- hurdia sem komu saman þrátt fyrir neyðarástandslög. Hermennimir flúðu hins vegar af hólmi þegar mannfjöldinn tók á rás í átt til þeirra. Enginn slasaðist. Reuter Vaxandi spenna milli Serbíu og Króatíu: Tíu menn létu lífið í vopnahlésbrotum Suzana Dujkovic heldur hér á syni sínum, Marko, fyrsta barninu sem fædd- ist á sjúkrahúsinu í Vukovar, eftir aö bardögum þar lauk. Símamynd Reuter Spenna fer nú vaxandi milli Serbíu og nýfrjálsrar Króatíu. Að minnsta kosti tíu manns létu lífiö í vopnahlés- brotum yfir helgina og leiðtogar serbneskra harðlínumanna neita að viðurkenna forræði Króatíu. RíMsútvarpið í Belgrad, höfuðborg Serbíu, veittist að Evrópubandalag- inu í gær fyrir að viðurkenna sjálf- stæði Króatíu og Slóveníu þann 15. janúar og sagði að viðurkenningin hefði skapað aðstæður fyrir lang- vinnt stríð á Balkanskaga. Vopnahlésbrotin hafa færst í auk- ana eftir viðurkenningu EB og út- varpið í Króatíu sagði að fimm króa- tísMr varðliðar hefðu fallið í árás á bæinn Gospic. Tanjug-fréttastofan í Belgrad sagði að fimm sambandsher- menn heföu fallið í átökum við Kró- ata. Leiðtogar serbneskra svæða innan Króatíu sögðu að þeir mundu aldrei verða hluti af sjálfstæðu ríM né mundu þeir heldur leyfa júgóslav- neska hemum að hverfa á brott af landi sínu eins og gert er ráð fyrir í friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna. Þeir sögðu að áætlun SÞ væri óað- gengileg. Eftirlitsmenn SÞ era komnir til Krajinahéraðs, stærsta serbneska svæðisins í Króatíu. Reuter nauman Zhelyu Zhelev, forseti Búlagar- íu, hafði nauman sigur í síðari umferð forsetakosninganna í landinu. Hann fékk 53,5% at- kvæða en andstæðingur hans, Velko Valkanov, frambjóðandi arftaka gamla kommúistaílokks- ins, fékk 46,5%. Þetta er minni munur en marg- ir áttu von á því forsetinn hafði öruggt forskot eftir fyrri umferð- ina. Valkanov höfðaði mjög til þjóðerniskenndar í málflutningi sínum og það féll í góðan jarðveg þjá fólki sem telur aö umbóta- sinnar stefni íramtíö búlgörsku þjóðarínnar í voða. í Búigaríu er sú regla viðhöfð aö réttkjörinn forseti verður að hafa hreinan meirihluta kjósenda að baM sér. i fyrri umferöinni voru 18 frambjóðendur og fékk enginn tilskilinn meiriMuta. Zhelev forseti hefur hoitiö því að halda áiram fyrri stefnu um umbætur í efnahags- og stjóm- málum landins. Hann sagði m.a. eftir aö úrslit lágu fyrlr að Búlg- örum væri mikil nauðsyn á að laða að erlent flármagn. Hann sagði að það kæmi á óvart að landar sínir höfnuðu komm- únistum ekki með jafn afgerandi hætti og víðast í Austur-Evrópu. Hann sagöi þó aö þróunin í átt til fijálsræðis væri á öruggri braut og ekM yrði snúið aftúr tii fyrri stjórnarhátta. j Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.